Morgunblaðið - 19.12.1935, Síða 6

Morgunblaðið - 19.12.1935, Síða 6
6 MORGUNBLAÐIÐ Fimtudaginn 19. des. 1935, Fallegt og ódýrt. Syona líta gamlir herrahattar át þegar búið er að breyta þeim í kyenhatta, eftir nýjustu tísku, og líta. Fyrsta flokks vinna. Hattasaumasfofan, Laugaveg 19. Simi 1004. Bækur hentugar til jólagjafa: Sagan um San Michele. íslensk fornrit, Egilssaga, Laxdæla og Eyrbyggja. Ennfremur úrval af nýjum bókum. Bókaverslun Þór. B. Þorlákssonar Bankastræti 11. Sími 3359. Gefið bdrnunum s Gæsamðmmu í fólagjöf. Aiiir rwwr þarfa að spegla sig. Kaupið spegla til jólagjafa. Ludvig Storr,’ Laugavcg 15 Reyktar^!"* róllupylsur, 75 aura Vz kg. KjótbúOin Herðubreið Hafnarstræti 18. Sími 1575. EGGEBT CLAESSEN hæstarjettarmálaflutningsmaður. Skrifstofa: Oddfellowhúsið, Vcmarstræti 10. (Inngatigur um austurdyr). Tryggingamálin.r Framhald af bls. 3. þessi maður reki atv. sína með engum ágóða. Ekkert er sagt hver innheimtir iðgjöldin og enginn gjalddagi á- kveðinn. Þá er heimilt að leggja enn einn skatt á alla vinnukaupendur, .1% af vinnulaunum, sem hann greiðir, til þess að mynda jöfnunarsjóð sjúkrasamlaga. Og sýnast nú lítil takmörk orðin fyrir þessum nýju gjöldum. Enn ke'mur svo nýr skattur til ellitrygginganna 1% af skattsk. tekjum. Minnir þetta á lesta- manninn, sem altaf bætti húð og hömsum af þeim hestum, sem slyg- uðust á þá, sem eftir voru. Og alt: af uppgáfust þeir hestar, setn stóðu uppi, fljótar og fljótar. Eu sá síð- asti sligaðist þegar í stað, er öll byrðin kom á hann. Þá er lífeyrisjóður embættis- manna. Sá hluti hans, sem af- gangs verður, þegar núverandi em bættisme'nn eru úr sögunni, á að ganga inn í lífeyrissjóð fslands. Þessi sjóður er stórfje, um Vfó miljðif, og hann er myndaður með einkaframlögum embættismanna sjálfra. Að taka þetta fje er eitt- hvað það allra ósanngjarnasta í öllu frumvarpinu. Um þessa starfs me'nn ríkisins er stefnt beint í öf- uga átt. Þeir eiga að hætta að vera trygðir eins og hingað til. Ákvæði frv. um það, að þeir, sem eru yngri en 40 ára, geti heimt að tillög sín út úr sjóðnum, miðar ■ ekki að neinu öðru en veikja sjóð- inn. Hvað á svo ellitryggingin að verða há ? Ekkert er um það sagt, en í grg. frumvarpsins er eitthvað tal- að um 400—450 kr. á ári. Þetta er svo lágt, í samanburði við það, sem ve'rið hefir, kð engrí átt nær. En sjálf lögin segja ekkert um það, hvað fullur lífeyrir á að verða hár. Hjer er enn eitt megin- atriði í óvissu. Hvers vegna hefir þetta ekki verið reiknað út? Um atvinnuleysistryggingar er sdfcaa að segja og aðra kafla, að mörg aðalatriði ei*u ekki tekin fráth,4 heldur geymd síðari tíma. En annars þýðir lítið að ræða um þessár tryggingar, því að frams.m. meiri hlutans sagði, að hjer væri aðeins um byrjun áð ræða. Það væri tilgangurinn að færa sig upp á skaftið, og er víst ekki hætta á öðru,- e*n eftir því verði gengið. öll þessi atriði sýna, hve fjarri sanni það er, að afgreiða nú mál- íb svona lítið hugsað. • >í Briem, gerði fyrirvara um frv. að því er snertir atvinnuleys- istryggingar, út frá þeirri for- sendu, að besta atvinnutrygging- in væri sú, að efla atvinnuvegina sjálfa, og stemma þannig á að ósi. En um aðra kafla taldi hann sig samþykka hugsuninni, eta ýms vansmíði munu vera þar á. Hrevfði hann nokkrum slíkum atriðum, t. d. því, hverjir eru trygðir. Har. G. Taldi einmitt nauðsyn- legt að setja þessi lög nú, af því að ástandið væri svo slæmt. Af því að nú þyrfti að gera hjálpar- ráðstafanir fyrir alla framleiðslu, og bæi og sveitir, þá þyrftu þeir, sem hje'r ættu hlut að máli, að fá eitthvað líka af þeim reitum, sem nú er verið tæta í sig. Allir þessir ræðumenn töluðu oftar. Auk þess talaði Páll Her- mannsson nokkur orð um eitt at- riði frumvarpsins. Að síðustu var frumvarpið sam- þykt til 3. umræðu. Dagbók. _I.O.O.F. 5 = 1171219972 = E. K. Veðrið (miðvikud. kl. 17) : Há- þrýstisvæði er yfir Grænlandi og fslandi, og fylgir því stílt veður og víðast bjart hjer á landi. Með ströndum fram e'r víðast 1—4 st. frost en alt að 10 st. í innsveitum syðra og 12—13 st. nyrðra. Yfir Atlantshafinu vestur af Bretlands- eyjum og suður af Grænlandi eru lægðir á hreyfingu A-eftir en fara svo sunnarlega, að þær munu tæp- lega geta valdið veðrabreytingu hjer á landi næsta sólarhring. Veðurútlit í Rvík í dag: Stilt, og bjart veður. Skátafjelagið Emir. Skátar, mætið allir að Ægisgötu 27, föstu- daginn 20. þ. m. kl. 9 e. h., afar áríðandi. H.f. Strætisvagnar Reykjavíkur he'fir farið fram á það að fá úr bæjarsjóði rekstrarstyrk fyrir líð- andi og liðin ár, alls kr. 48,000,00, og auk þess aðstoð til þess að kaupa hráolíuvagna-í stað bensín- vagnanna. Bæjarráð hefir synjað erindinu. Hjúskapur. Síðastliðinn laugar- dag voru gefin. saman í hjónaband af síra Árna Sigurðssyni, Vigdís Brynjólfsdóttir og Guðmundur Maríusson, vjelstjóri. Heimili ungu hjónanna er á Þórsgötu 5. f veikindaforföllum síra Frið- rilcs Hallgríms^par vinnur síra Ásmundur Guðmundsson prófess- or prestsve'rk fyrir hann um há- tíðirnar. Síra Ásmundur prófessor á heima á Laufásveg 75, sími 1816. Mæðrastyrksnefndin. Upplýs- ingaskrifstofa Mæðrastyrksnefnd- arinnar er opin mánud. og fimtud. kl. 8—10 í Þingholtsstræti 18, niðri. Jólafjársöfnun Morgunblaðsins, frá Á. Þ. 10 kr.. Krumma 10 kr., ónefndri 5 kr., í. S. 10 kr., Ó. B. 5 kr., Kristínu 20 kr. Hver upphæð sem er, smá eða stór, sem þjer gefið til Vetrar- hjálparinnar verður til þess að auka á jólagleði fátæku bamanna, sem annars fengju lítið eða ekkert á jólunum. Aðalfundur Stúdentafjelag8ins verður haldinn í kvöld á Garði. Lýðskóli Björgvins. Frumvarp Björgvins sýslumans, um heimild fyrir sýslu- og bæjarfjelög til að starfrækja lýðskóla með skyldu- Vinnu nemenda gegn skólarjett- indum, virðist ætla að ná sam- þykki þingsins að þessu sinni. Mál- ið var í gær samþykt til 3. umr. í Ed., en áður hafði það verið sam- þykt í Nd. Munið mæðrastyrksnefndina. Hvar er pabbi, hver vill gefa köldum fótum nýja skó? Engan þyrfti jeg um að spyrja ef hún mamma hefði nóg. Hver vill þerra votan vanga, velja hálm í stallinn minn, flytja bæði mjeT og mömmu mikla jólaboðskapinn? G. S. Skrifstofa Mæðrastyrksnefndar tekur á móti gjöfum til fátækra mæðra. Opin frá 3—6 daglega, sími 4349. Þingholtsstræti 18. Hjer sbeðnr aldrei neitt, verður heppilegasta jólagjöfin. — Fæst hjá bóksölum. Vaiermans ber af öllum sjáífblekungum. Fœst enn í bókaverslun Snœbjarnar Jónssonar- Vftfrftr menn velfa bækur öðru fremur til vinagjafa. Hvort >em bókin er íslensk eíSa útlend, er varla annarstaW fremur a?5 leita hennar en í Bókaverslun Snæbjarnar Jónssonar. Kápuefnftn ko I I in. Verslun Guðrúnar Þórðardóttir. Vesturgötu 28. Sími 1670. Þur( loft. Allir, sem hafa miðstðvarhitun, ættu að setja leir- ker eða vatnshylki fylt vatni á miðstöðvarofnana, til þess að gera loftið rakara. Höfum nýja gerð vatns- hylkja, þau falla inn á milli ofnrifjanna o'g verða næst- um ósýnileg. J. Þorláksson & Norðmann, Bankastræti 11. Sími: 1280. Lán til atvinnubóta. Bæjarráð hefir samþykt að bera fram eftir- farandi tillögur í sambandi við fjárhagsáætlún bæjarins: — Bæj- arstjórnin heimilar borgarstjóra | að taka að láni á árinu, með sam-, þykki bæjarráðs, alt að 100 þús. kr. til atvinnubóta ef nauðayn krefur ,enda náist samkomulag við ríkisstjórnina um framlag úr ríkissjóði á móti lánsfjenu. Hjúskapur. í dag verða gefin saman í hjónaband af síra Svein- birni Högnasyni, Sólbjörg Jóns- dóttir og Viggó Eyjólfsson bif- reiðaeftirlitsmaður. Heimili þeirra verður á Leifsgötu 32. Óheppilegur framsögnmaður. — Sigurður Einarsson var af fjár- veitinganefnd falin framsaga fjárankalagafrumvarpsins 1933. Nefndin lagði einróma til, að frumvarpið yrði samþykt óþreytt. Hefði því mátt afgreiða málið á 2—3 mínútum, en í þe'ss stað fór Sig. E. að víta þáverandi stjóm fyrir kostnað þann, sem varð vegna nppþots kommúnista 9. nóv. 1932 og auðvitað fór hann þar með vísvitandi ósannindi. En fjár- veitinganefnd gaf S. E. ekkert umþoð til þess að víta þessa greiðslu og gerði hann þetta í ó- þökk nefndarinnar. Var því sýni- legt, að þessi Tlónska Sig. E. myndi koma af stað miklum um- ræðum og sá forseti (J. Bald.) þann kost vænstan, að taka málið út af dagskrá, eftir að Sigurður Kristjánsson hafði gefið nafna sín um Einarssyni maklega ráðningu. Jólagæsir frá Gæsabúinu í Saltvík. Nú eru síðustu forvöð fyr* ir þá, sem vilja fá sjer reglu- lega góðar Jólagæsir. Gæsirnar, sem eru ungar frá í ár, hafa í sumar verið aldar á grænu túni og í alt haust á kjarnfóðri (þær hafa aldrei fengið fisk eða úrgang). Gæsimar kosta, plokkaðar og heimfluttar frá kr. 12,00 til 15,00, eftir stærð. Þeim verður slátrað rjett fyrir jól- Hjer er trygging fyrir að þjer fáið nýslátraðar, aldar og ungar gæsir. Aðeins fáeinar ólofaðar. Tekið á móti pöntunum J síma 1618. Bæjarstjórnarfundur verðuí haldinn í kvöld í KaupþingssalB' um. Þar verða til seimti umneðu fjárhagsáætlanir bæjarráðs hafnarsjóðs fyrir næsta ár. Framh. á 7. síðu.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.