Morgunblaðið - 11.09.1936, Blaðsíða 3
Föstudagur 11. sept. 1936.
MORGUNBLAÐIÐ
3
Mikil sfidvfliði
i Faxaflóa
i gær.
Um 2250 tn. í fjórum
veiðistöðvum.
Um 2250 tunnur síldar
komu á land í fjórum
veiðistöðvum við Faxaflóa í
gær.
Til Reykjavíkur komu þessir
bátar með síld í gær: Geir goði
með ea. 150 tn., Bangsi 100, ís-
leifur 60—70, Fram 60—70 og Jón
Þorláksson með um Í20 tn.
Til Hafnarfjarðar konra tveir
bátar í gær með samtals um 150
tunnur.
Til Keflavíkur komu í gær alls
á land 1352 tunnur síldar.
Afli bátanna var sem lijer seg-
ir: Svanur 56, Jón Guðmundsson
53, Ólafur Magnússon 80, Bjarni
Ólafsson 75, Kári í Garði 65, Herj-
ólfur, Ve. 67, Bragi 80, Freyja 45,
Óðinn, Ve. 33, Óðinn, Garði 67,
Maggi, Ve. 7, Öðlingur 38, Björg-
vin 93, Mummi 17, Trausti 31,
Goðafoss 52, Reynir 43, Ása 28,
Örninn 102, Erlingur, Ve. ca. 120
og Ingólfur, Sandgerði 200.
Bátar þessir fóru ekki á veiðar
í gærkvöldi.
Til Sandgerðis komu þessir bát-
ar með síld í gær: Mummi 87 tn.,
Ingólfur 58, Gylfi 42 og Lagar-
foss 39.
Um afla Akranessbáta var ó-
frjett í gærkvöldi.
Björn R. Stefánsson,
fyrv. alþm, látinn.
Björn R. Stefánsson fyrverandi
alþingismaður andaðist í fyrra-
dag. Hafði hann farið, ásamt öðru
starfsfólki Tryggingarstofnunar
ríkisins, í skemtiferð út úr bænum
og var komið við í Skíðaskálan-
um á heimleið og matast þar.
Undir borðum hneig Björn skyndi-
lega niður og var brátt örendur.
Þessa merka og vinsæla manns
verður getið nánar hjer í blaðinu.
Myndarleg gjöf. Landsnefnd
Hallgrímskirkju í Saurbæ hefir
nýlega borist eitt þúsund króna
veðdeildarbrjef að gjöf, sem á sín-
um tíma skal varið til þess að
kaupa fyrir altaristöflu handa
kirkjunni. Gefandinn, sem er val-
inkunnur sæmdarmaður, vill ekki
láta hafns síns getið, en með því
að nefndin hefir fyrir löngu tekið
þá ákvörðun, og víkur ógjarna frá
henni ,að gripir gefnir kirkjunni
skuli áletraðir með nafni gefand-
ans, liefir honum verið tjáð að
nafn hans muni verða greypt á
töfluna, að honum látnum. Inni-
legustu þakkir fyrir þessa stör-
myndarlegu gjöf. Ól. B. Björnsson.
Innanfjelagssundmót Ármanns
heldur áfram n.k. sunnudag. Nán-
ari upplýsingar gefur Þórarinh
Magnússon, Fhakkastíg 13.
Valdhafarnir neyöast til að ganga
að kröfu Morgunblaðsins.
Samþykt i gær að hækka
stórlega innflutnings-
ieyfi á byggingarefni.
Aukafundur Búnaðarþingsins:
jarðræktarlögin sett
í 5 manna nefnd.
Frá setningu þingsins.
Kröfu Björns
Ólafssonar full-
nægl að
t I
esfu.
jaldeyris- og innflutningsnefnd samþykti
á fundi í gær, að verða að mestu leyti
við kröfu Iðnsambands byggingamanna um við-
bótarleyfi á byggingarefni til bæjarins.
Nefndin samþykti að veita viðbótarleyfi til
að fullgera þau hús, sem í smíðum eru og enn-
fremur að veita leyfi fyrir timbri, sementi og
járni, sem með þarf fyrir áramót til þeirra ný-
bygginga, sem um getur í skýrslu Iðnsambands-
ins, að undanskilinni einni byggingu, bílaviðgerð-
arstöð Steindórs Einarssonar, sem sjerstakt leyfi
þarf fyrir. ________________________
Eins og skýrt hefir verið frá
hjer í blaðinu, var í skýrslu
Iðnsambandsins gengið út frá,
að vanta mundi byggingarefni
fyrir 311 þús. króna, auk efnis
í verkamannabústaði, háskóla,
kartöflukjallara og hafnarhús.
En sá galli var á þessari skýrslu,
að hún var ekki tæmandi, eins
og sýnt hefir verið fram á hjer
í blaðinu.
Þar sem Gjaldeyris- og inn-
flutningsnefnd hefir tekið þá
ákvörðun að leggja til grund-
vallar skýrslu Iðnsambandsins,
ættu byggingarefna-leyfin til
innflytjenda í bænum að vera
þessi:
Áður leyft .... kr. 150.000
Nú leyft ....... — 311.000
Samtals kr. 461.00
Þó undanskilur nefndin eina
nýbyggingu, bílaviðgerðastöð
Steindórs Einarssonar, sem
sótt hefir verið um bygginga-
leyfi fyrir. Um þessa byggingu
segir nefndin, að sækja verði
sjerstaklega um leyfi fyrir
hana. Má því gera ráð fyrir
að þetta leyfi fáist einnig, ef
afráðið er að byggja nú í haust.
En auk þessara leyfa, sem
koma til skifta milli byggingar-
vöruverslana bæjarins, ber
nefndinni að veita sjerstök leyfi
fyrir efni til háskólans (ca. 40
þús.), verkamannabústaða fca.
50 þús.), kartöflukjallara (ca.
25 þús.) og hafnarhúss.
Mun því láta nærri, að heild-
arleyfin — að frádregnum op-
inberum byggingum — nemi
svipaðri upphæð og Björn Öl-
afsson flutti tillögu um á dög-
Lærdómsrík
saga.
Baráttan um byggingarefnið,
sem staðið hefir rúma viku, er
mjög merkileg og lærdómsrík.
Þegar málið er tekið fyrir á
fundi Gjaldeyris- og innflutn-
ingsnefndar 2. þ. m., er boð-
skapur valdhafanna sá, að ekki
megi leyfa byggingarefni nema
fyrir 150 þús. kr., en af þeim
skuli 50 þús. kr. ganga til
verkamannabústaðanna.
Morgunblaðið sýndi strax
daginn eftir fram á, að þetta
framferði valdhafanna yrði til
þess, að öll byggingarvinna
myndi stöðvast í bænum fram.
á næsta vor, eða í fulla 8 mán-
Morgunblaðið sýndi ennfr.
fram á, að afleiðing þessara að-
gerða yrði stórkostlegt atvinnu-
leysi fyrir iðnaðarmenr. og
verkamenn í bænum.
Tveir dagar liðu, án þess að
Alþýðublaðið segði eitt orð um
málið. Sýnilegt var, að Alþýðu-
blaðið ætlaði — rjett einu sinni
— að gleyma skjólstæðingun-
um, verkamönnum.
Loksins á þriðja degi, kemur
gusa í Alþýðublaðinu og ræðst
það þá með skömmum og sví-
virðingum á Björn Ólafsson,
stórkaupmann, manninn, sem
haldið hafði fastast á rjetti
verkamanna í Gjaldeyris- og
innflutningsnefnd.
Samhliða þessu var Alþýðu-
blaðið með skæting til Morg-
unblaðsins og sagði það bein
ósannindi, að byggingarvinna
myndi stöðvast í bænum, þótt
ekki fengist byggingarefni
PRAMH. Á SJÖUNDU SÍDU.
Kl. IV2 í gær var aukafundur Búnaðar-
þmgsins settur í Baðstofu iðnaðar-
manna. Allir búnaðarþingsfulltrúarnir voru þar
mættir. Til aukafundar þessa er boðað sam-
kvæmt bráðabirgðaákvæðum hinna nýju Jarð-
ræktarlaga, þar sem ákveðið er, að Búnaðarþing
skuli á aukafundi taka afstöðu til þeirra atriða í
lögunum er varða Búnaðarfjelag Islands.
Áður en þingið var sett, skýrði Magnús Þorláksson bóndi á
Blikastöðum frá því, að stjórn Búnaðarfjelagsins hefði daginn
áður samþykt að óska eftir því við Magnús Guðmundsson, að
hann gegndi forsetastörfum þessa búnaðarþings. En Magnús
Guðmundsson var eftir fráfall Tryggva Þórhallssonar, kosinn
forseti fjelagsins, enda þótt Magnús Þorláksson, varamaður
hans, hafi altaf gegnt þeim störfum síðan.
Um leið og Magnús Guð-
mundsson setti þetta Búnaðar-
þing, bar hann fram þá ósk, að
góð samvinna mætti takast
milli hans og fulltrúanna, og að
samþyktir þær, sem þingið
gerði, mættu verða til heilla og
blessunar fyrir bændastjett
landsins.
Hann sagði ennfremur:
Ástæðan fyrir því, að þessi
aukafundur Búnaðarþingsins er
kallaður saman, er sú, að í
bráðabirgðaákvæðum Jarðrækt-
arlaganna frá síðasta Alþingi
er ákveðið að landbúnaðarráð-
herra kveðji þenna aukafund
saman, í samráði við Búnaðar-
fjelag Islands í þeim tilgangi,
að kosningar til nýs Búnaðar-
þings geti farið fram fyrir
næstu áramót.
Hann komst ennfremur að
orði á þessa leið:
Áður en gengið verður hjer
til starfa, er skylt að minnast
þriggja manna sem dáið hafa
síðan síðasta Búnaðarþing var
haldið og mjög koma við sögu
Búnaðarfjelags íslands og land-
búnaðarins yfirleitt, að því er
snertir tvo þeirra.
Er þá fyrst að nefna Tryggva
heitinn Þórhallsson, sem var
fulltrúi á Búnaðarþingi 1919—
1925, og formaður fjelagsins
frá 1925 til dauðadags, 31. júlí
1935. Ef honum hefði enst ald-
ur til, hefði hann staðið í þeim
sporum, sem jeg stend nú.
Þá mintist M. G. fáum orð-
um á æfistarf Tryggva Þórhalls-
sonar og sagði m. a. að um það
líefðu allir verið sammála, hvar
í flokki sem þeir stæðu, að
Tryggvi hefði alla æfi verið ein-
lægur bændavinur og \iljað.
helga landbúnaðarmálum krafta
sína.
Þá mintist M. G. Halldórs
heitins Vilhjálmssonar, hins
mikilvæga starfs, sem hann
hefði innt af hendi fyrir ísl.
bændastjett, sem skólastjóri. —
Og að lokum mintist hann Egg-
erts Briem, hæstarjettardóm-
ara, sem í 10 ár var í stjórn
Búnaðarfjelags íslands, frá
1909—1919.
Fulltrúar og aðrir viðstaddir
vottuðu minning þessara þriggja
manna lotningu sína.
Því næst var kosin kjör-
brjefanefnd og fundi frestað til
kl. 41/2.
Kl. 41/2 var fundinum haldið
áfram.
Hermann Jónasson talaði þar
um hin nýju jarðræktarlög, og
,er vonandi að hann komi ræð-
unni orðrjettri á prent, en hún
var áreiðanlega þess virði fyr-
ir andstæðinga hans, að henni
verði veitt eftirtekt.
Ræðan átti að vera greinar-
gerð fyrir Jarðræktarlögunum,
þeim atriðum þeirra, er ágrein-
ingi hafa valdið, og því sem
sjerstaklega jsnertir Búnaðar-
þing og Búnaðarfjelag íslands.
Er H. J. hafði lokið máli sínu
var kosin 5 manna nefnd í mál-
ið og hlutu þessir kosningu:
Ólafur Jónsson, Jón á Reyni-
stað, Jakob Líndal, Jón Hann-
esson og Sveinn Jónsson.
Var málinu því næst vísað
til 2. umræðu.
Næsti fundur verður ekki fyr
en nefndin hefir skilað áliti.
75 ára varð 7. seþt. Guðmundur
Kr. Guðmundsson, Tjarnargötn 7
í Keflavík. Haun er fæddur í
Keflavík og hefir dvalið þar all-
an sinn aldur. Hann var sjómað-
ur meðan aldur og heilsa leyfði,
og formaður á opnum skipum í
mörg ár. Síðan hefir hann verið
fiskimatsmaður í rúmlega 30 ár.
Hann hefir verið giftur í nál. 50
ár og eignast 5 syni í hjónaband-
inu, og liafá þau hjón komið þeim
vel til manns af dugnaði sínum,
en lengst af litlum efnnm.
unum.