Morgunblaðið - 29.09.1936, Blaðsíða 3
3
Þriðjudagur 29. sept. 1936.
MORGUNBLAÐIÐ
Grunsamleg bókaviöskiftí meöal
heimilisvina Eysteins Jónssonar.
Vasabókin ófundin.
EN ÖNNUR BOK
KOMIN í LEITIRNAR
Yfirheyrslur hjeldu áfram í gær út af
hvarfi vasabókar Eysteins Jónssonar,
. en ekkert upplýstist frekar um það, hvar
bókin væri niðurkomin eða á hvern hátt hún hafði
komist í hendur nazistanna.
Mennirnir þrír, sem settir voru í gæsluvarð-
hald á föstudagskvöld voru leystir úr varðhaldi í
gær, en enga breytingu gerðu þeir á fyrri fram-
burði sínum.
Auk gæslufanganna 'voru í gær
yfirheyrðir Eysteinn ráðlierra og
]>rlr nazistar. En lögreglan varð
einskis vísari um bókina.
Ekkert hefir verið upplýst um
það ennþá, hverskonar leyndar-
dóm vasabókin hefir að geyma,
sem svo er mikils varðandi, að
komið hefir af stað mörgum hús
rannsóknum, fangelsun þriggja
manna og því, að blað er gert
upptækt. En leyndardómurinn í
hinu bannaða og upptæka blaði
var þó ekki meiri en það, að sjálft
Alþýðublaðið, aðalmálgagn stjórn
arinnar birti allan leyndardóm-
inn, eftir að lögreglan hafði gert
blað nazistanna upptækt og bann
að því að birta leyndardóminn!
Þessi aðferð út af fyrir sig er
mönnum lítt skiljanleg.
Önnur dularfull
bók.
Morgunblaðið heyrði getið um
aðra dularfulla bók, sem verið
hafði í vörslu Eysteins fjármála-
ráðherra og síðar komist til
fornbóksala.
Saga þessarar bókar er þann-
ig, eftir því sem Morgunblaðið
veit sannast og rjettast:
Þann 24. ágúst í sumar kom
maður með nokkrar bækur til
Guðmundar Gamalíelssonar bók-
sala og býður honum til kaups.
Þegar Guðmundur hefir at-
hugað bækurnar sjer hann, að
þær muni ekki allar vera vel
fengnar. Hann vill því ekki
kaupa bækurnar og hann vill
ebki sleppa þeim aftur í hendur
mannsins, sem sækir það all-fast
að selja bækurnar.
Guðmundur býðst til að taka
bækurnar í umboðssölu, en það
vill hinn ekki, því að hann þurfi
nauðsynlega að fá nokkrar krón-
ur strax. En vegna þess að Guðm.
vildi ekki sleppa bókunum aftur,
lætiu hann manninn fá nokkrar
krónur og semst svo um, að hann
taki bækurnar í umboðssölu.
Kvittar svo komumaður fyrir af-
hending bókanna á verðskráning-
arlista og er nafnið Steinþór
Steinsson.
Ein þessara bóka var með
nafni Jónasar Jónssonar frá
Hriflu. Guðmundur hringir strax
.næsta dag til Jónasar, en hann
var þá ekki í bænum. Hann hitt-
ir dóttur Jónasar og segir henni
frá, bókinni. Hún biður Guðmund
að geyma bókina þar til Jónas
komi heim.
Þegar Jónas kemur heim segir
dóttir hans hónum frá bókinni og
stóð það þá heima: bókin var
ekki með hans vitund eða vilja
boðin til sölu. Jónas fór strax aft-
ur úr bænum, en dóttir lians kom
og vitjaði bókarinnar. Pekk Guð-
mundur þá vitneskju um það, að
þessi bók hefði verið í láni hjá
Eysteini fjármálaráðherra.
Nú víkur sögunni til lögregl-
unnar. Hún fekk nýlega vitneskju
um þessa bók.
Morgunblaðið spurði í gær
Ragnar Jónsson fulltrúa, livers
lögreglan hefði orðið vísari um
þessa bók. Svaraði fulltrúinn því,
að hann hefði spurt Eystein hvort
bók þessi liefði nokkurn tíma ver
ið í hans vörslu og mintist ráð-
herrann þess ekki. Þessvegna
kvaðst fulltrúinn ekki hafa rann-
sakað þetta frekar í sambandi við
vasabókar-hvarfið, en vísaði að
öðru leyti til Sveins Sæmundsson
ar, sem hafði rannsakað málið.
Sneri þá Morgunblaðið sjer til
Sveins Sæmundssonar. Eftir því
sem hann upplýsti, mun Jónas
hafa lánað Eysteini bókina. Og
Sveinn segir, að bókin hafi síðar
komist í hendur þessara manna:
Guðmundar Pjeturssonar símrit-
ara, Ásgeirs Pjeturssonar, bróður
Guðmundar símritara, Arna Á-
gústssonar og Steinþórs Steins-
sonar.
Menn munu hjer reka augu í
það, að þegar fulltrúi lögreglu-
stjóra spyr Eystein ráðherra um
þessa dularfullu bók, m'an ráð-
herrann ekki til að hann hafi
haft bókina í sinni vörslu. En
Sveinn Sæmundsson, sem- rann-
sakar málið, kemst að þeirri nið
urstöðu, að bókin hafi verið í
vörslu ráðherrans.
Mönnum verður á að spyrja:
Er hjer eitthvað, sem þarf að
dylja?
'jMÍJ*#'
Sálumessan w§
í Landakotskirkju
í fyrramálið.
Athöfnin hefst kl. 8 f. h.
O álumessan í Landa-
^ koti, eða kveð.iuat-
höfn þeirra 22, sem
druknuðu af Pourquoi
pas? og furidist hafa,
fer fram í Landakoti á
miðvikudagsmorgun kl.
8 f. h.
Þá standa líkkisturnar í röð
fyrir framan Landakotsspítal-
ann. Athöfnin hefst með því, að
fylking skáta með 12 fánum
kemur þar að og myndar heið-
ursvörð fyrir framan kirkjuna.
Þá kemur Meulenberg bisk-
up, prestar og kórdrengir að
sækja líkin í kirkjuna, en 88
hermenn af L’Audacieux bera
þau í kirkju. Eru 11 kistur
bornar í einu.
Kistunum verður raðað um
þvert kirkjugólf.
Þegar þær eru þangað komn-
ar, hefst biskupssálumessa. —
Ræðan verður flutt á frönsku.
Henni verður útvarpað gegnum
stuttbylgjustöðina til Frakk-
lands, en útvarpsstöðin í París
útvarpar henni til hlustenda í
Frakklandi.
Sex hermenn standa heiðurs-
vörð fyrir framan kór, svo og
sveit skátanna fram eftir
kirkjugólfinu. En aðrir sex her-
menn standa heiðursvörð utan
við kirkjudyr.
Páll Isólfsson stjórnar kirkju
söngnum.
Að messugerðinni lokinni
gengur skátasveitin fyrst úr
kirkjunni, þá kórdrengir, prest-
ar og biskup. Þá verða líkin
borin úr kirkju, og látin á lík-
vagna. Líkkista dr. Charcots
fyrst, og verður hún ein á
vagni. En tvær kistur verða á
hvorum hinna vagnanna.
Frá kirkjunni til skips ganga
skátar fyrstir, þá Lúðrasveit
Reykjavíkur, þá kórdrengir,
prestar og biskup. Þá koma lík-
vagnarnir, og ganga hermenn
með hverjum vagni. Síðan kem-
ur líkfylgdin.
Engum verður leyfður að-
gangur að Lahdakotskirkjunni,
nema þeim, sem hafa aðgöngu-
kort. Hefir fránski ræðismað-
urinn boðið ýmsum bæjarbúum,
embættismönnum og ræðis-
mönnum o. fl. að vera viðstadd-
ir. Allir sem í kirkjuna koma
verða í viðhafnarbúningi.
Kirkjuklukkum er hringt
meðan verið er að bera líkin i
kirkju. Einnig verður hringt
þegar kisturnar eru bornar úr
kirkju. En um leið og síðasta
kistan er komin í kirkju byrjar
kirkjusöngurinn.
Líkin verða flutt út í flutn-
ingaskipið ,,Aude“, sem senni-
lega liggur þá við Sprengisand,
og flytur það skip líkin til
Frakklands.
Skip það kom hingað í gær.
Tekin verður kvikmynd af
allri athöfninni í Landakoti, og
verður kvikmyndin send til
Frakklands.
Athöfn þessi mun vekja
mikla athygli í Frakklandi, eins
og sjest best á því, að aðalút-
varpið þeirra í París, útvarpar
athöfninni.
Fr j ettastof an franska „Ag-
ence Havas“ hefir sent hingað
einn af ritstjórum sínum, Jean
Jay, að nafni, til þess að senda
skeyti um athöfn þessa.
Kom hann hingað með ,,Aude“
í gær.
Verslanir og skrifstofur í
'bænum loka framan af degin-
um meðan á athöfn þessari
stendur, og vafalaust verða
fánar dregnir á hálfa stöng um
allan bæinn.
SKRIÐUHLAUP
að Snæhvammi
í Stöðvarfirði.
1 stórrigningunni aðfaranótt 16.
þ. m. vaknaði fólkið að Snæ-
hvammi í Stöðvarfirði við gný
mikinn. Klæddist það í skyndi og
varð þess vart, þótt dimt væri, að
skriða fjell niður beggja megin
bæjarins og flæddi vatnið og aur-
leðjan yfir hlaðið. Taldi fólkið
sig ekki óhult í bænum og fór
niður í fjárhús, sem stendur neð-
an í hól á túninu rjett niður af
bæmim, og hafðist þar við það
.sem eftir var nætur. Skriðuhlaup-
in hjeldu áfram alla nóttina og
fram undir birtingu, og var af
þeim gnýr mikill. Þegar birti kom
í ljós, að fullur helmingur af tún-
inu lá undir skriðunni. (FÚ)
Glímufjelagið Ármann byrjar
nú um næstu helgi vetrarstarf-
semi sína í öllum flokkum. Fje-
lagsmenn, sem hafa áður æft, og
þeir, sem hafa í hyggju að byrja
æfingar hjá fjelaginu, þurfa að
láta innrita sig fyrir æfingar. —
Skrifstofa fjelagsins er í fþrótta-
húsinu, og er hún opin fyrst um
sinn kl. 8—10 að kvöldinu. Sími
3356.
—10 stiga —
frost i Mið-Evrópu!
í Englandi hefir snjóað, og
í París og Berlín er talsvert
frost. Mest er frostið i Mið-
Evrópu í dag í Slesíu, 10 stig.
Eftir veðurfregnum að
dæma, má búast við því, að
keppendumir í kappfluginu
frá Portsmouth til Höfða-
borgar þurfi að fljúga eitt-
hvað af leiðinni í gegnum
hríðarveður, en kappflugið
hefst í fyrramálið (þriðju-
dagsmorgun) f rá Ports-
m.outh.
(Samkv. FÚ).
Wennerström er ekki
í samsteypuráðu-
neytinu i Svíþjóð,
8 sósíalistar og
4 bændaflokks-
menn.
Ihinu nýja ráðuneyti
Per Albin Hanson í
Svíþjóð, vekur athygli
að Ivar Wennerström
hefir ’ ekkert ráðuneyti
fengið. Landvarnaráð-
herrann er bændaflokks
maður.
1 ráðuneytinu, Sem er sam-
steypuráðuneyti, eru 8 sósíal-
istar og 4 bændaflokksmenn.
Pehrson, fyrv. forsætisráðherra
er nú landbúnaðarráðherra.
Þar sem rauðu flokkarnir
höfðu sameiginlega meirihluta
allra atkvæða í neðri deild
sænska þingsins, eftir kosning-
arnar um daginn, er sam-
steypuráðuneytið með stuðr.ingi
bændaflokksins talið benda til
þess að stefna Per Albin Hah-
son muni vera að forðast allar
gerbyltingar í þjóðskipulagi
Svia.
BROTIST INN
í tvö matsöluhús
um helgina,
Tvö innbrot voru framin hjer í
bænum í fyrrinótt. Brotist var
inn í Gafe Royal, Vallarstrætis-
megin og stolið miklu af sígar-
ettum og sviðum. Einnig var brot
ist inn í kaffihtisið við Kalkofns-
veg, hjá Vörubílastöðinni Þrótt;
þar var stolið vínarbrauðum og
einhverju af peningum. Ekkert
hefir enn orðið upplýst um hverj-
ir muni valdir vera.
Síldaraflinn. Til Keflavíkur
komu þessir bátar í gær: Björg-
vin úr Sandgerði með 27 tunnur,
Ingólfur 60, Goðfaoss 14, Svanur
20, Ólafur Magnússon 50, Skóga-
foss 25, Bjarni Ólafsson 6, Víðir
40, Árni Árnason 44 tunnur. —
Til Sandgerðis komu 5 bátar með
samtals 80 tunnur. Allir bátar
reru þar syðra í gærkvöldi.