Morgunblaðið - 22.01.1937, Page 2
2
M 0 fv G o xn BLAÐlD
Föstudagur 22. janúar 1937.
JSHorjgttttBla&tft
Útgeí.: H.t. Áryakur, Reykjavlk.
Rltatjðrar: J6n KJartansson og
Valtýr Stefánsson —
ábyrgöarmaCur.
Ritstjörn og afgreiBsla:
Austurstræti 8.—Slml 1600.
Auglýsingastjöri: E. Hafberg.
Helmaslmar:
J6n KJartansson, nr. 3742
Valtýr Stefánsson, nr. 4220.
Árni Óla, nr. 3045.
Áskrlftagjald: kr. 8.00 á mánuBl.
í lausaaölu: 15 aura elntakiB
16 aura meB Leabök.
Jálning.
Þeir seku hafa meðgengið.
Loksins. Alþýðublaðið hefir gert
sjer tíðrætt um stórútgerðina að
tindanförnu — einkum Kveldúlf.
Moi-gunblaðið hefir sagt: „Mað-
tfr líttu þjer nær“, og blaðales-
endur hafa alment skilið, að þeir,
sem ábyrgð bera á og verja í líf
cíg blóð Samvinnufjelag ísfirðinga
qfig Bæjarútgerð Hafnarfjarðar,
g'át.u ekki verið ákærendur
Kveldúlfs. Þeirra hlutskifti er
hlutskifti sakborningsins, sem
ekki gat ráðist á aðra, en reynir
að koma vörnum fyrir sjálfan
sig. 0g nú reyna þeir að tefla
fram á þessum málsbótum:
jSamvinnufjelag ísfirðinga og
l|æjarútgerðin í Hafnarfirði eru
„átyinnubótafyrirtæki“. Frá þeim
hefir auk þess ekkert runnið í
önnur fyrirtæki. En Kveldúlfur
hefir bygt > upp búrekstur Thor
Jensen, . bygt „villur“ Thors-
bræðra/ keypt „veiðiár“, kostað
margar dýrar fjölskyldur o. s.
frv.
Segjum það. En hvað segir þá
það?
Það er sannað, að Finnur
skuldaði 319 þús. krónur umfram
eignir, greiddi 12y2 þús. kr. upp
í 250 þús. kr. skuldir og þáði auk
þess 147 þús. kr. uppgjöf veð-
skulda.
Það er sannað, að Bæjarútgerð-
iií í Hafnarfirði á ekki nema 40%
upp í skuldir.
Er þetta nokkuð frækilegri
&frammistaða, þó því sje bætt við,
að allur afraksturinn af „yfir-
burðym“ forstjóranna hafi orðið
kyr í fjelögunum, og lýsi sjer ó-
skertur í fullri dýrð í þessum
tölulegu niðurstöðum?
Þá væri betra að þau hefðu
getað staðið undir því, sem þau
telja Kveldúlfi til lasts, sjerstak-
lega ef þau þá gætu sýnt eignir
og ábyrgðir upp í allar skuldirn-
ar, eins og Kveldúlfur getur, og
auk þess stært sig af því að hafa
greitt sjómönnum og verkamönn-
um 50—60 milj. króna, eins og
Kveldúlfur.
En um ást Finns og Bæjarút-
gerðarinnar á almenningi, og það,
að skip þeirra sjeu rekin eftir
þörfum almennings, er það að
segja, að óhætt mun Kveldúlfi að
bjóða rannsókn á tekjum sjó-
manna á skipum hans annarsveg-
ar, og Finns skipum og Bæjarút-
gerðarinnar hinsvegar.
Síðasti vottur umhyggju Finns
er sá, að öll skip hans hafa leg-
ið bundin í höfn síðustu 5 mán-
uði.
Sjómenn lians líða skort. Sjálf-
ur hefst hann víst sæmilega við
af 11 þúsund krónunum, sem
hann þáði í sumar af aimannafje
fyrir 60 daga vinnu.
45 manns
hafa farist
af tveim
skipum.
Stórhríð í Norð-
ursjónum.
FRÁ FRJETTARITARA
VORUM.
KHÖFN í GÆR.
„Við erum strandaðir
við Sognvaar“ — var hið
síðasta, sem heyrðist frá
2700 smálesta skipinu
Savonmaa (finskt), sem,
fórst í ofviðrinu í gaer, ná-
lægt Kristiansand. — Á
skipinu voru 20 manns,
sem allir munu hafa
druknað.
Strax eftir að neyðar-
ópið var sent, var hafin
leit að skipinu í grend við
Sognvaar, en leitin bar
engan árangur. En tveim
sjómílum vestar fundu
norskir fiskimenn flakið
af Savonmaa.Skutur skips-
ins lá uppi á skeri.
Fjögur lík af áhöfn
skipsins hefir þegar rekið.
*
— Þýska tilraunaskipið
,,WelIes“ (eign þýska
flotans) sem sökk í gær
með 25 manna áhöfn vest-
ur af Femern, var á leið-
inni til hjálpar tveim skip-
um öðrum, sem, einnig
voru þýsk og voru í sjáv-
arháska. Stórhríð var er
„Welles“ sökk.
100 manns ;
bjargað af 400.
Frá Kína koma frjettir
um 2 sjóslys. í Kína-hafi
hefir s tórt farþegaskip
strandað á skeri. Farþeg-
ar eru ekki taldir í neinni
hættu, en litlar líkur til
þess að skipið náist út.
Sjóliðar af bresku beiti-
skipi hafa farið um borð
til að verja skipið gegn
sjóræningjum, og er annað
skip á leiðinni til strand-
staðarins til þess að flytja
farþega í land. (FO)
*
Kínverskst skip rakst á
sker um 30 mílur frá Can-
ton og sökk. Á skipinu
voru 400 manns, og þegar
síðast frjettist höfðu að
eins um 100 bjargast.
(FÚ)
Breiðfiröingamót verður lialdið
í kvöld í Hótel Borg og liefst þaö
með borðhaldi kl. 8.
11» KX K& þoldl
ekkl mállð.
Hirota, forsætisráðh. Japana.
Sprengingar
f Lissabon: 14
manns hand-
teknir.
FRÁ FRJETTARITARA
VORUM:
KIIÖFN í GÆR.
jórtán manns hafa verið
teknir fastir í Lrasabon
(Portúgal) grunaðir um að
hafa verið valdir að spreng-
ingum, sem urðu í sendiherra-
bústað Francos, í útvarpsstöð
Radio-klúbbsins og í húsakynn-
um mentamálaráðuneytisins í
Lissabon í dag. Meðal þeirra,
sem teknir hafa verið fastir
eru nokkrir Spánverjar.
Tveim sprengjum hafði verið
komið fyrir í sendiherrabú-
staðnum, en sín hvor á hinum
stöðunum.
— í mentamálaráðuneytinu
kviknaði út frá sprengjunni og
urðu skemdir á húsinu all-
miklar.
Stjórnin heldur því fram að
kommúnistar standi að spell-
virk.jum þessum.
20 þús. manns husnæðis-
lausir af völdum flóða.
London 21. jan. FÚ.
í miðríkjum og suð-austur
ríkjum Bandaríkjanna eru nú
mikil flóð vegna hláku, og er
á einum stað 5 fetum lægra
í Mississippi fljóti en þegar
stórflóðin urðu 1922, og ollu
mestu fnanntjóni.
Um 20 þúsund manns eru nú
húsnæðislausir vegna flóðanna.
Mestu tjóni hafa flóðin valdið
í Ohio.
Japanska stjórn-
in völt i sessi.
_ •
Þingfundum
frestað.
Ráðherrann hstti
í miðjum kliðum.
London í gær. FÚ
miðjum klíðum hæfcti
. . Hirota f orsætisráð-
herra Japana ræðu
sinni um stefnu stjórn-
ar sinnar í japanska
þinginu í dag og rauk
í bræði ofan af ræðu-
pallinum og á fund Jap-
anskeisara. — Keisari
veitti honum leyfi til að
fresta þingfundum í 2
daga.
Þessi tíðindi gerð-
ust í neðri málstofu
japanska þingsins. Þau
bregða ljósi yfir óá-
nægju þá, sem ríkir í
japanska þinginu yfir
stefnu Hirotastjórnar-
innar, einkum í fjármál-
um og utanríkismálum.
Hirota lás boðskap sinn í
báðum málstofum þingsins. í
efri málstöfunni ríkti þögn —
en það var þögn algerðrar fyr-
irlitningar.
En í neðri málstofunni var
hvað eftir annað tekið fram í
fyrir forsætisráðherranum,
kastað til hans háðsglósum, og
hlegið að honum, uns hann
misti þolinmæðina.
í fjárlögunum er gert ráð
fyrir 170 miljón sterlingspundá
útgjöldum. Stjórnin hygst, m.
a. að endurbæta og auka land-
varnirnar, hækka skólaskyldu-
aldur, gera endurbætur á
skattalöggjöfinni, og á ýmis-
konar tryggingarlögum, svo
sem ellistyrk, atvinnubótum o.
s. frv.
Þá ætlar stjórnin að flytja
enn fleira fólk til Manchukuo
en á síðastliðnu ári og leggja
meira fje í fyrirtæki þar í
landi.
Viðsjárnar í heiminum
kendar kommúnistum.
Utanríkisráðherra Japana,
Arita, sagði í ræðu sem hann
flutti í gær í japanska þing-
inu, að Japan stefndi að því
að efla viðskiftalega samvinnu
milli Kyrrahafslandanna. —
Hann mælti mjög með afnámi
á hverskonar verslunar höml-
um.
— HiTLER —
ætlar að svaia
Anthony Eden.
London 21. jan. FÚ.
Mælt er, að Adolf Hitler
muni ætla að svara á opin-
berurn vettvangi ræðu þeirri
er Anthony Eden flutti í
breska þinginu á þriðjudag-
inn, og ætlað, að hann muni
velja til þess fund Ríkisdags-
ins, en Rikisþingið á að koma
saman 30. jan.
Þýska blaðið Berliner Bör-
sen Zeitung dregur dár að
Eden fyrir að gefa s skyn að
Þýskaland eigi að taka hönd-
um saman við Rússa.
ftölsk blöð taka sama |
streng. Þau segja að ftalir
sjeu fúsir til samvinnu við
allar hinar Evrópuþjóðirnar,
en með Sovjet-Rússlandi eigi
þeir ekkert sameiginlegt.
Á fundi ríkisþingsins 30.
jan. er talið að Hitler muni
fara að dæmi Breta og
Frakka og gefa Belgum op-
inbert loforð um að Þjóð-
verjar muni virða hlutleysi
þeirra.
23 klukkutfma
eftir ðætlun
á 5 klst. leið!
FRÁ FRJETTARITARA
VORUM
KHÖFN í gær.
ilið er, að stórhríðin, sem
gengið hefir undanfarna
daga í Danmörku, hafi felt 60
þúsund trje í skóginum ,,Rold-
,skov“ einum.
Jámbrautir eru nú farnar
að komast leiðar sinnar, en
ennþá er langt frá því að þær
haldi áætlun. — Hjer er eitt
dæmi.
Leiðin frá Esbjerg til Kaup-
mannahafnar með hraðlest
(Lyntog) er venjulega farin á 5
klukkustundum. I gær fór lest-
in þessa leið — ekki á 5 klst.
— heldur 28 klukkustundum:
23 klukkutíma seinkun.
Rússar taka japauskt
skip.
London 21. jan. FÚ.
Slæm líðan páfa.
London 21. jan. FÚ.
Læknar páfans tilkyntu í
morgun, að hann hafði sofið
illa síðastliðna nótt, og að
heilsu hans hrakaði enn.
Einkanlega amaðist hann við
því, að stórveldin lokuðu mörk-
uðum nýlendanna fyrir öðrum
þjóðum.
Viðsjár þær, sem nú ættu
sjer stað víðsvegar um heim,
sagði Arita að mætti rekja til
kommúnismans.
f Japan ríkir mikil gremja
út af því, að sagt er að Sovjet
stjórnin hafi sett fast japanskt
skip í Vladivostok, og tekið
stjórnmálaleg skjöl sem send
höfðu verið með skipinu til jap
anska ræðismannsins þar í borg
inni.