Morgunblaðið - 22.01.1937, Blaðsíða 7
Föstudagur 22. janúar 1937.
7
Ekkert samkomulag
milli Tyrkja og Frakka
Málið keraur fyrir
Þjóðabandalaga-
fundinn.
London 21. jan. FÚ.
fundi Þjóðabandalagsráðs-
ins, sem hófst í dag, taka
þátt utanríkisráðherrar flestra
þeirra ríkja, sem fulltrúa eiga
í ráðinu. Anthony Eden og del
Vayo (utanrikisráðherra Val-
enciastjórnarinnar) komu til
Genf í morgun.
Sandler, utanríkisráðherra
Svía, hefir nú samið skýrslu
nm deilumál Frakka og Tyrkja
út af Alexandretta, og verður
hún lögð fyrir fundinn.
Fulltrúar Frakklands og
Tyrkl&nds hafa átt við-
rasður undanfarna 2 daga,
en samkomulagstilraunir
eru sagðar hafa farið út
um þúfur.
Minningarorð um
Þórð Narfason
trjesmið.
í dag verður til moldar borinn
einn af elstu borgurum bæjar-
ins, Þórður Narfason trjesmiður,
er átti heima á Nýlendugötu 23.
Hann var fæddur 4. júlí 1858 að
Stíflisdal, sonúr hjónanna Þjóð-
bjargar Þórðardóttur og Narfa
kreppstjóra Þorsteinssonar. Hing-
að fil bæjarins fluttist hann 1884
og tók þá þegar að nema trje-
smíði,, er > hann stundaði ætíð síð-
an. Tók hann að sjer smíði fjölda
húsa hjer og vann einnig að smíði
flestra hinna stærri bygginga,
svo sem fríkirkjunni, Lands-
bankahúsinu gamla o. ±1. En þeg-
ar byggingu timburhúsa tók að
fækka, vann hann mest að skipa-
smíði, alt til þess að hann var
orðinn 75 ára.
Þórður gaf sig lítt að opinber-
um málum, en ljet sig töluvert
skifta hin ýmsu framfarámáí síns
tíma, var hann t. d. meðlimur
Goodtemplararegluniiar, einn af
stofnendum fríkirkjusafnaðarins,
í stjórn ellistyrktarsjóðsins lengi
og fátækrafulltrúi í mörg ár. Við
ýms fleiri málefni bæjarins var
hann riðinn og þótti hann ráðholl
ur í besta lagi og hverjum manni
lijálpfúsari. Hann var giftur Guð-
riinu Jóhannsdóttur, en misti
bana eftir 28 ára sambúð. Börn
þeirra eru: Þjóðbjörg, gift Jör-
undi Brynjólfssyni alþm. Geir-
laug, er sá fyrir búi föður síns,
Johanna bankafulltrúi, Torfi
stjórnarráðsritari og Narfi trje-
smiður.
Þórður hjelt óskertum líkams-
kröftum fram á síðasta ár, en
sjóndepra þjáði hann allmikið,
ekki síst vegna ]>ess, að hann var
maður bókhneigður og mjög víð-
lesinn, enda átti hanu bókasafn
gott. Hann andaðist 10. þ. m., og
varð æðakölkun honum að aldur-
tila.
GOLFKLÚBBURINN:
SÁ SEM HNEYKSL-
UNUM OLLI
FRAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU.
málum? Ilingað til hefir það ver-
ið álit manna, að bærinn ætti að
koma upp leikvöllum handa börn
um, en ekki einstaklíngar, sem
svo seldu aðgang.
Eftir langar og á ýmsan hátt
hneykslanlegar umræður um
þetta mál, fóru leikar svo, að til-
laga borgarstjóra (um ábyrgð
fyrir Golfkl.) var feld með 7:6
atkv., en tillaga sósíalistanna
(um ábyrgð til að koma upp æf-
ingarvöllum til knattspyrnu og
leikvöllum) var samþ. með 7:5
atkv.
Sá sem hneykslun-
um olli.
Morgunblaðið átti í gærkvöldi
tal við formann Golfklúbbs Is-
lands, Gunnlaug EinarsSon lækni,
og var hann undrandi er hann
heyrði um það, sem fram hafði
farið á fundi bæjarstjórnar, því
að ummælin hitta ekki aðeins
inarga ágæta borgara þessa bæj-
ar, úr öllum flokkum, heldur einn
ig erlenda embættismenn, sagði
G. E.
En tilefni hinna miður vingjarn
legu ummæla bæjarfulltrúa Guðm.
R. Oddssonar munu vera þau,
sagði Gunnlaugur Einarsson, að
í fyrrasumar kom mjög drukkinn
utanfjelagsmaður inn í hús það,
sem klúbburinn hafði á æfinga-
vellinum, og ljet þar allskonar ill
um látum, vildi brjóta alt og
bramla. Varð að lokum að taka
manninn og bera hann með valdi
út í bíl. Bæjarfullarúi Guðm. R.
Oddsson hafði verið sjónarvott-
ur þessa.
En jeg vil í þessu sambandi
geta þess, bætir G. E. við, að í
fyrrasumar ljet stjórn G. I. það
óátalið, að fjelagsmenn hefðu vín
um hönd í húsi klúbbsins, en
vegna þess að þetta varð til að
draga þangað drukna utanfjelags
menn var þetta með öllu bannað
nú í sumar.
Ekki vildi G. E. segja Mbl.
hver hinn drukni utanfjelagsmað
ur var, sem komið hefir þessu ó-
orði á klúbbinn og sem klúbbur-
inn verður nú að gjalda, en úr
annari átt frjetti blaðið, hver
maðurinn var. Getur blaðið frætt
Guðm. R. Oddsson um það, að
þessi maður er háttsettur í liði
stjórnarflokkanna og átrúnaðar-
goð ríkisstjórnarinnar. Gæti blað-
ið einnig frætt G. R. 0. um hverj
ir voru í fylgd með þessum dánu
manni, ef hann óskaði þess.
EJNAR MUNKSGAARD
HELDUR YEISLU.
Khöfn 21. jan. FÚ.
Danski bókaútgefandinn Ein-
er Munksgaard hjelt í gær
veislu fyrir forseta bóksalafje-
lagsins breska Stanley Unwin
sem nú er staddur í Khöfn
í tilefni af 100 ára afmæli
Danska bóksalafjelagsins.
Meðal gestanna var Sveinn
B.jörnsson sendiherra og ýmsir
rithöfundar íslenskir, og dansk-
i?, sem bækur hafa verið gefn-
ar út eftir á ensku.
MuilGUNBLAtíil'
□agbófe.
I.O.O.F. 1 = 1181228V* =
Veðrið í gær (fimtud. kl. 17):
SA-hvassviðri og 5—6 st. hiti um
alt land. Djúp lægð suðvestur af
Reykjanesi á hreyfingu norðvest-
ur eftir. Onnur lægð vestur af
Irlandi hreyfist norður eftir og
veldur sennilega vaxandi A-átt
hjer sunnanlands innan skams.
Veðurútlit í Reykjavík í dag:
Hægviðri fyrst og síðan vaxandi
austanátt. Þíðviðri.
Guðspekifjelagar. Munið fund-
inn í Septimu í kvöld kl. 8,30.
Spegillinn kemur út laugardag-
inn 30. þ. m.
Fiskmarkaðurinn í Grimsby í
gær: Besti sólkoli 98 sh. pr. box,
rauðspetta 80 sh. pr. box, stór ýsa
36 sh. pr. box, miðlungs ýsa 35
sh. pr. box, frálagður þorskur 42
sh. pr. 20 stk., stór þorskur 20 sh.
pr. box og smáþorskur 19 sh. pr.
box. (Tilk. frá Fiskimálanefnd.
FB.).
Jarðarför. í gær var jarðsung-
inn á Akranesi Sigurður Hall-
dórsson í Akbraut. Hann var 71
árs að aldri, orðlagður atorku-
og dugnaðarmaður. Harm ól allan
aldur sinn á Akranesi. Var það
stefna hans í lífinu, að heimta
fyrst og fremst af sjálfum sjer,
en síður af öðrum. Hann misti
föður sinn, er hann vár 12 ára og
varð, er honum óx fiskur um
hrygg, fyrirviúna hjá móður
sinni. Sjálfur byrjaði hann bú-
skap með tvær hendur tómar, en
með sparsemi og dugnaði komst
hann vel af, reisti t. d. myndar-
legt steinsteypuhús af eigin
rammleik. Hann Ijet éftir sig
ekkju og fjögur uppkomin börn.
Eru tvö þeirra, Sigurjón og
Svanlaug, ógift á Akranesi, en
tvö í Hafnarfirði, Matíhiídur og
Guðmundur.
Lög'reglan tók í gær 17 ára
ára gamlan pilt hjer í bænum,
sem hafði stolið miklu af kvon- *
undirfötum, aðallega úr þvotta-
húsum víðsvegar um bæinn. Af
þýfinu var búið að skila á lög-
reglustöðina 11 silkiundirkjólum,
mörgum pörum af sokkum, skóm
og kjólum, ásamt fleiru.
Exelsior, sænskt flutningaskip
fór hjeðan fyrir 5 sólarhringum
óg ætlaði til Vestmannaeyja. Skip
ið kom hingað aftur í gær. Hafði
því ekki tekist að .komast inn r
höfn í Vestmannaeyjum, en mi:
akkerið við Eyjar.
Af veiðum komu í gær Tryggv,
gamli og Baldur með um 2500
körfur hvor. Skipin eru bæði far
in áleiðis til Englands
B.v. Otur kom í gær og hafði
aflað um 1800 körfur. Togarinn
fer aftur út á veiðar áður en hann
fer til Englands.
Barnastúkan „Æskan“ nr. 1
hefir í hyggju að halda hluta-
veltu núna um helgina til ágóða
fyrir starfsemi sína. „Æskan“
hefir starfað af miklum áhuga og
fjöri í vetur undir stjórn gæslu-
manns síns, Guðmundar Pálsson-
ar. Barnastúkur eru afar þarfur
barnafjelagsskapur, sem kennir
börnunum ýmislegt fagurt og nyt-
samt, sem þau annars vart mundu
læra. En það er með barnastúk-
ur ekki síður en annan fjelags-
skap af slíku tægi, að til þess að
starfið geti borið einhvern árang-
ur, þarf nokkurt fje. Æskusyst-
kinin, sem sýnt hafa þenna frá-
bæra áhuga fyrir starfi sínu, ættu
skilið að menn sýndu þeim vel-
vild og skilning í þessari tilraun
þeirra til að skapa enn fjölþætt-
ara fjelagslíf.
Firðritarinn, blað islenskra
loftskeytamanna, er komið út,
janúar—febrúar heftið. Meðal
greina í blaðinu er tekið til um-
ræðu varnarskjal vitamálastjóra
út af radióvita á Reykjanesi.
Engels teflir í .Mentaskólanum
á Akureyri. Þann 19. þ. m. tefldi
skákmeistarinn Engels við 23
nemendur og kennara í Menta-
skólanum á Akureyri. Engels
vann 17 skákir, tapaði 3 og gerði
3 jafntefli. (FÚ)
Umferðin er nú smátt og smátt
að komast í sj.mt lag aftur eftir
snjókomuna ' dSgunum. Um bæ-
inn verður nú komist hindrunar-
laust. Hafnarfjarðarferðir hófust
aftur í gærdag kl. 3. Hafði snjón-
um verið mokað á veginum. í gær
braust bíll upp að Álafossi, en
færð þangað var slæm.
Útvarpið:
Föstudaginn 22. janúar.
8.00 Morgunleikfimi.
8.15 Islenskukensla.
8.40 Þýskukensla.
12.00 Hádegisútvarp.
15.00 Veðurfregnir.
19.10 Veðurfregnir.
19.20 Hljómplötur: Ljett lög.
19.30 Erindi Búnaðarfjelagsins-.
Sauðf járpestin og varnarráð-
stafanir gegn henni (Ásgeir
Einarsson dýralæknir).
20.00 Frjettir.
20.30 Stjórnmálaumræður ungra
manna.
Skinnauppboð Grænlands-
verslunarinnar.
FÚ 21 .jan.
Skinnauppboð Grænlands-
verslunarinnar dönsku hefst í
Khöfn 17. febr. Þar verða seld
alt að 3000 grænlensk blárefa-
skinn, 1825 hvítrefaskinn græn
lensk og 97 bjarnarfeldir*
Er þetta nokkru meira en
selt var á uppboði Grænlands-
verslunarinnar í febrúar í fyrra
— Verðið var í fyrra stórum
hærra en á uppboðinu 1935.
Til dæmis hækkuðu blárefa-
skinn um alt að 70%.
• -'g öiTav 01
Friðarmálin.
Það er engum vafa undirorpið.
að hægt er að koma-á alls-,.
herjar friði — ef ekki á jörðunni,
þá að minsta kosti 3 áinir niðri í
moldinni.
t............................ ’ ’ ........... *
!
;
4
?
4
4
?
?
x
i
4
?
I
í
I
I
?
?
1
t
I
?
I
I
♦ *
Hertoginn af Windsor.
1. des. og þangað
til konungur sagði
af sjer, fylgdist
hann daglega með
rás viðburðanna
og átti margsinnis tal við konunginn og frúna á
Fort Belvedere.
Þetta er frægasta ástarsaga veraldarinnar, og
kostaði aðalpersónuna stærsta ríki í heimi.----
Hún birtist í næstu tíu blöðum.
Fyrsta greinin bútist í fyrramálið.
Fylgist með frá byrjun! — Gerist áskrifendur!
Sannleikurinn um
Edward og frú Simpson.
Frásögn af viðburðunum, sem leiddu til falls
Edwards Bretakonungs, staðfest af konungin-
um og frú Simpson, verður birt í næstu 10 blöðum.
Greinaflokkur þessi er ritaður af blaðamanninum
NEWBOLD NOYES, sem er giftur náfrænku frú
Simpson og gerði sjer ferð til London, samkvæmt
beiðni hennar. Frá
Vikublaðið
Wallis Simpson.
Sölubörn kom*
ið og seljið!
X
i
Vesturbæingur.