Morgunblaðið - 10.02.1937, Síða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 10. febr. 1937.
85 ára:
Frú Sigríður Jónsson.
Prú Sigríður Jónsson
«r í dag' 85 ára. Hún er t'ædd 10.
i'ebr. 1852 í Reykjavík, dóttir
Halldórs Kr. Friðrikssonar yfir-
kennara og konu hans Leopoldine
f. Degen. Hún ólst upp hjá for-
elrura síiíubí . og giftist 1877
frænda sínum síra Janusi Jóns-
syni, sejn þá var prestur á Hesti
í Borgarfirði. Þau \-oru að öðrum
og þriðja. Á Hesti voru þau til
1884 og þá í Holti í Önundarfirði
24 ár. En 1908 J.jet hann af prests-
skap og var eftir það kenitari við
Flensborgarskóla í Hafnarfirði
rneðan heilsa entist. Hann andað-
ist 1922 og haí'ði .nokkrum xnissir-
um áður vegna Héilsu sinnar látið
uf kennarastarfi. Hann var ágæt-
ur kennari og kennimaður, og
þjóðkunnur fræðimaðui'. Æfiat-
riða hans er minst í Óðni 1923.
Eftirv'lát manmfesíns hefir frú
Sigríður búið í Hafnarfirði nema
2 síðustu árin lijer í Reykjayík.
Þau hjón * eignúðtist eigi börn,
en ólu upp tvö börn að mestu eða
öllu og- mörg biini voru lengur
og skemur í fóstrí hjá þeim og
þóttu vel mannast.
í Holti bjuggu þau rausnarbúi
við góð efni, gestrisni og örlæti,
og voru þar samtaka. ráðdeild
hans og atorka og skorungsskapur
hennar, svo sem hún átti ætt til.
Ilún ætlaðist til starfs af öðrum
og gekk þar sjáli' f\Tst á undan,
og átti fyrir það virðing og vin-
áttu hjúa sinna sem ekki slitnaði
síðan.
Við störfum utan heimilis og
almenningsmálum hefir hún ekki
gefið sig, en helgað krafta sína
heimilinu og þeim sem þar áttu
góðs að njóta. Hún er einörð og
hrein í lund og hefir verið virt
og mikils metin, þar sem hún hef-
ir verið, af sveitungum og öllum
sem t.il þektu.
Þrátt fyrir þennan háa aldur
sinn býr hún enn yfír mikilli orku
og getur farið ferða sinna, sjeð
mn sitt og heimsótt f viðlögum
ættingja og vini, sem á þessum
tímamótum árna henni innilega
allra heilla, biðja guð að blessa
æfikvöld hennar og gera það sem
bjartast. Einn þeirra.
SANDLER FARINN
TIL LONDON.
Opinberlega er tilkynt í gær
í Stokkhólmi, að Sandler utan-
r'kismálaráðherra Svía muni
f vra til London um miðjan
* lars, til þess að raeða við
reska stjórnmálamenn um
ðskiftasamband Svíþjóðar og
Bretlands. (FÚ.).
Skuldir Reykjavíkur
strikaðar út.
FRAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU.
af útistandandi skuldum bæj-
arsjóðs, eru forkólfar stjórn-
arflokkanna að gala um það á
gatnamótum, á mannfundum, í
útvarpi og í blöðum, að Reykja-
víkurbær ramli á barmi gjald-
þrots!
Nú mætti spyrja: Eru þá
þessir menn, með aðgerðum
sínum, vitandi vits að stofna
fjárhag Reykjavíkurbæjar í
voða?
*
Almenningi í Reykjavíkurbæ
er það nú fullljóst orðið, að
forráðamenn núverandi stjórn-
arflokka eru fjandmenn bæjar-
ins. Þeir láta ekkert tækifæri
ónotað til þess að níðast á
Reykjavík og íbúum bæjarins.
Þessa afstöðu hafa forráða-
menn stjórnarflokkanna tekið,
sumpart vegna þess að það eru
pólitískir andstæðingar þeirra
sem ráða málum Reykjavíkur-
bæjar, og sumpart í þeirri von,
að sveitafólkið kunni vel slík-
um aðförum.
í fyrra tilfellinu feta stjórn-
arflokkarnir í fótspor einræð-
isflokka annara landa, sem
misbeita lögum og valdi til að
níðast á pólitískum andstæð-
ingum.
En í síðara tilfellinu mis-
reikna stjórnarflokkarnir sig
herfilega. Sveitafólkið, alment
tekið, ber engan kala til
Reykjavíkur. Það skilur og veit
vel, að hrun Reykjavíkurbæj-
ar þýðir hrun allrar þjóðarinn-
ar. Það veit hvaða þýðingu
Reykjavík hefir fyrir sveitirnar
og þjóðina í heild, ekki aðeins
sem höfuðborg landsins, heldur
einnig sem stærsti og besti
markaðurinn, sem til er fyrir
afurðir landbúnaðarins.
Reykjavíkurbær og íbúar
höfuðstaðarins óska einskis
frekar en góðrar samvinnu við
sveitarfjelögin og fólkið í sveit-
unum. Slík samvinna er áreið-
anlega öllum fyrir bestu, og
hún er beinlínis lífsskilyrði fyr-
ir þjóðarheildina.
En Reykvíkingar treysta því,
að fólkið í sveitunum stuðli að
framhaldandi góðri samvinnu,
á þann hátt, að hrinda af hönd-
um sjer þeim stjómmálamönn-
um, sem byggja tilveru sína á
því að ala á úlfúð og illindum
milli íbúa borgarinnar og
þeirra sem í sveitunum búa.
Slíkir menn eru illgresi í okk
ar þjóðlífi, sem eiga að upp-
rætast.
Rjettur til 80 nota
ísl. einkaleyfi nr. 40
á „Kæliáhaldi“, Frosted Foods
Company Inc., Dover, Delaware,
II. S. A., getur fengist. Einnig
getm einkaleyfið fengist keypt.
Menn snúi sjer til
Budde, Schou & Co.,
Yestre Bouleward 4. Köbenhavn.
NÝfa Bfó.
»Undir fánum
tveggja þjóða*.
Utlendingahersveit Frakka í
Norður-Afríku er rómuð
fyrir margt, en þó fyrst og fremst
fyrir óbilandi hetjuskap hermann-
anna sem í henni eru. í öðru lagi
fyrir, að þangað safnast æfintýra-
menn úr öllum heiminum.
Menn, sem hafa brotið lög í
heimalandi sínu og flúið refsivönd
laganna, menn, sem hafa orðið
fyrir vonbrigðum í ástamálum,
eða af iiðrum ástæðum en orðnir
leiðir á lífinu. Þessir menn óttast
ekki dauða sinn, enda er hreystj
þeirra annáluð.
Nýja Bíó sýndi í gærkvöldi
ameríska kvikmynd, sem segir frá
lífi hermannanna í frönsku út-
lendingahersveitinni. Myndin er
nefnd „Undir fána tveggja þjóða“
— Under two flag —.
Kvikmyndin gerist um aldamót-
in síðustu er Frakkar áttu í sí-
feldum skærum við Arabana í
Marokko. Engin grið eru gefin á
hvorugan bóginn, það er barist
uns yfir lýkúr, og oft kemur það
fyrir að heilar herdeildir af út-
lendingahersveitini eru brytjaðar
niður.
Orustusýningarnar eru stórkost-
legar og vel teknar.
Að öðru leyti er efni myndar-
innar þetta:
Oigarette (Claudette Colbert)
ér úng stúlka, glaðlynd og npp-
áhald 5. herdeildar útlendinga-
sveitarinnar. Herdöildarforinginn
(Yictor Mac Laglen) er ástfang-
inn af Cigarette og gérir alt sem
hún biður hann um. Þá kemúr
fram á sjónarsviðið ungur Eng-
lendiugur, Victor liðþjálfi (Ron-
ald Colmanii). Hann hefir sýnt
frábæra hreysti í orustunum við
Arabana og þótt Cigarette og
honum semjist illa í byrjun fer
svo að hún verður ástfangin af
lionum. En Victor liðþjálfi verður
aftur á móti ástfauginn af enskri
hefðai'ina:r, sem er þarna á ferða
lagi. Herdeildarforinginn, sem er
hræddur um að liðþjálfmn sje að
taka Cigarette frá sjer, sendir
hann oft út í opinn dauðann, en
liðþjálfinn stenst hverja raun.
Kvikmyndin „Undir fánum
tveggja þjóða“ er þeirrar tegund-
ar sem einna best falla í smekk
Reykvíkinga og mun því án efa
verða vel sótt.
HÆTTAN UM GARÐ
GENGIN.
London 9. febr. F.Ú.
atnsflóðið í Missisippi-ánni
náði hámarki sínu í
gær við Memphis í Tennessee.
Hvassviðri var, og skullu öld-
urnar á bi’ún flóðgarðanna, en
flóðgarðarnir reyndust traust-
ir, og er nú hættan talin um
garð gengin.
Bandaríkjaþing hefir veitt
695 miljónir dollara til líknar
bágstöddum á flóðasvæðinu, en
þar hafa þúsundir manna tap-
að aleigu sinni.
fsfiskssala. Hafsteinu seldi afla
sinn í Grimsby í gær, 1100 vættir
7fyrir 629 sterlingspund.
BLEKKIN G AR-
VOTTORÐIÐ.
FRAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU.
orð frá framkvæmdastjórum S. í.
F„ með ósk um að vottorðið verði
birt. Gerir blaðið það með á-
nægju, og er vottorðið svohljóð-
andi:
Sölusamband íslenskra
fiskframleiðenda.
Það vottast hjer með samkvæmt
beiðni, að vjer afhendum bönkun-
um (Landsbankanum og TJtvegs-
bankanum) allan erlendan gjald-
eyri, sem kemur inn fyrir útflutt-
an saltfisk Sambandskaupfjelag-
anna, sem vjer seljum, þar á með-
al einnig fyrir saltfisk Kaupfje-
lags Eyfirðinga, en þessi fjelög
eru öll þátttakendur í S. í. F„ og
hafa verið það frá stofnun þess.
Reykjavík, 5. febr. 1937.
Sölusamband ísl. fiskframleiðenda.
Ó. Proppé. Kr. Einarsson.
Thor Thors.
Morgunblaðið leyfði sjer að feit-
letra 3 orð í vottorðinu, orðin
„sem vjer seljum“, því að þau
segja í raun og veru alt.
Því hefir aldrei verið haldið
fram í MbL, að gjaldeyri sá, sem
inn kemui’ fyrir fislc þann sem
S. I. F. selur fyrir Sambands-
kaupfjelögin færi ekki gegn um
bankana hjer.
Hinu hefir hins vegar verið
haldið fram hjer í blaðinu — og
frá því verður ekki vikið — að
Sambandskaupfjelögin og þ. á. m.
K. E. A. selji all-mikið af blaut-
fiski sjálf, og njóti sjerrjettinda
með þann gjaldeyri.
Fyrst Mbl. gerir nú formanni
K. E. A. þann greiða, að birta
vottorðið frá framkvæmdastjórum
S. í. F„ væntir blaðið að herra
Einar Árnason geri bann greiða
á móti, að birta opinberlega
skýrslu yfir þær fiskssölur sem
Sambandið og K. E. A. hafa tvö
síðustu árin selt sjálf og ÁN
milligöngu S. í. F., og jafnframt
gera grein fyrir hvert ráðstafað
hefir verið gjaldeyri þeim, sem
inn kom fyrir fiskinn.
TUTTUGU OG FIMM
ÁRA RÍKISSTJÓRN-
ARAFMÆLI
KRISTJÁNS X.
Kalundborg 9. febr. F.Ú.
úið er að ákveða með
hverjum hætti 25 ára
ríkisstjórnarafmæli Kristjáns
konungs X. verður haldið há-
tíðlegt í vor. Hátíðahöldin hefj-
,ast 15. maí, með því að kon-
ungur ekur um götur Kaup-
mannahafnar.
Síðan verður guðsþjónusta í
hallarkirkjunni, og því næst
hádegisveisla fyrir nánústu
venslamenn konungs. Um kvöld
ið verður fjölmenn veisla á
'Christiansborgarhöll, fyrir
þingmenn og embættismenn.
17. maí tekur konungur á móti,
í Christiansborjgarhöll, og þá
um kvöldið verður hátíðasýn-
ing í Konunglega leikhúsinu.
Max Pemberton kom af veiðum
í gær með 2400 körfur og fór af
stað til Englands með aflann.
Snorri goði kom af veiðum í
gær með rúml. 2000 körfur og fór
áleiðis til Englands.
Gylfi frá Patreksfirði kom í
gær til að fá kol.
RÚSSNESKA BYLT-
INGIN EYÐIR
SJÁLFRI SJER.
FRAMH. AF FIMTU SÍÐU.
úr frönsku stjórnarbyltingunni,
þegar hann var á leiðinni á
höggstokkinn, „eyða þær sjálf-
um sjer“. Það er skift um
leiksvið: harmleikurinn er
hinn sami. Rússneska byltingin
er að eyða sjálfri sjer eins og
franska byltingin á átjándu
öldinni.
Nú eru tæplega eftir fleiri af
fjelögum Lenins en Stalin og
Trotsky; allir hinir hafa farið
sömu leið. í gær voru það
Sinovjeff og Kameneff, í dag
eru það Radek og Sokolnikoff;
á morgun bíða Rykoffs og
Bukharins sömu örlög.
Flestir þessara manna eyddu
mörgum árum í útlegð á flótta
undan ofsóknum þeirar stjórn-
ar, sem þeir áttu óaflátanlega í
höggi við. Stefna þeirra sigr-
aði; og hver urðu laun þeirra?
Þeir hafa staðið berir að því,
samkvæmt eigin játningum, að
hafa bruggað launráð gegn því
málefni, sem þeir börðust fyrir
áður með öllum þeim þjáning-
um, sem fylgdu baráttunni.
*
Voru þeir í rauxí og vertt
sekir? Ef til vill. Ef til vill voru
launráð orðinn svo ríkur þátt-
ur í eðli þeirra, að þeir brugg-
uðu að lokum launráð gegn
sjálfum sjer. En hvort sem þeir
eru sekir eða saklausir, þá
hefir byltingin, sem þeir sjálf-
ir stóðu fyrir, tortímt þeim; hún
er búin að eta upp óvini sína,
og er nú íarin að eta upp
sjálfa sig.
Bænduf!
Jeg kaupi nautakjöt, svína-
kjöt og kálfakjöt ásamt
garnmör’ óhreinsuðum innan
úr nautum, svínum, kindum.
Staðvreiðsla.
Milners Kfötbúð.
Leifsgötu 32. Sími 3416.
Vertu
hraustur
aftur.
Auðvitað
kemur hann heitn brosandi að
kvöldi, hraustur og ljettur í lund,
þrátt fyrir ei'fiði dagsins. Neytir
matar síns hraustlega og sefur
eins og steinn alla nóttina, ef
hann gætir þess að neyta daglega
Kellogg’s All-Bran í mjólk eða
rjóma, sem inniheldur B-vitamin
og heldur meltingunni í lagi.
Farið að dæmi hans og neytið
All-Bran helst daglega.
Óþarft að sjóða.
'llMvyý6
ALL-BRAN
yv
Dásamleg fæða.