Morgunblaðið - 16.02.1937, Qupperneq 4
4
Þriðjudaginn 16. febr. 1937.
MORGUNBLAÐIÐ
HEIMDHLLUR . Æ5KRN OQ STJÓRNMrtLIN
5. Ú. 5.
Ólafnr Thorss
V
Avarp til ungra
Sjalfstæðismanna.
Ahrifa œskunnar á stjórnmálin hefir hvergi hjer á landi gætt
í jafn ríkum mæli sem innan Sjálfstæðisflokksins. Til þess
ber aðallega það tvent, að frjálslynd og þjóðleg stefna flokksins hefir
laðað æskuna að sjer og gefið henni olnbogarúm til athafna og að at-
gervismenn völdust þegar í öndverðu til forystu æskulýðshreyfingar-
innar innan flokksins.
Þegar Heimdallur nú lítur yfir 10 ára starfsemi, má hann vel
miklast af mörgu. Hann er elsta æskulýðsfjelag Sjálfstæðisflokksins,
þróttmesta, fjölmennasta og best menta æskulýðsfjelag landsins. —
Heimdellingar hafa stofnað mörg eða jafnvel flest æskulýðsfjelögin
innan flokksins. Heimdellingar áttu frumkvæði að stofnun Sambands
ungra Sjálfstæðismanna. Heimdellingar hafa fylkt miklum fjölda
kjósenda undir fána flokksins, markað djúp spor í stefnu hans og
lagt flokknum marga mikilhæfa frambjóðendur, bæði til bæjarstjórn-
ar Reykjavíkur og Alþingis, — menn sem miklar vonir standa til og
vel eru til forystu fallnir.
Frá gelgjuskeiðinu hefir Heimdallur að vonum eitthvað af van-
rækslusyndum á samviskunni. Um slíkt er eigi að sakast, enda verður
meðvitundin um þær aðeins hvatning til nýrra dáða. Nú er að horfa
fram á veginn, gera sjer sem gleggsta grein fyrir viðfangsefnunum,
«n stíga síðan á stokk og strengja þess heit, að unna sjer hvorki hvíld-
ar nje friðar fyr en settu marki er náð.
Pað er takmark Sjálfstæðisflokksins að koma hjer á þjóð-
skipulagi grundvölluðu á því, að ein lög gildi fyrir alla,
að sjerhver einstaklingur fái aðstöðu til að neyta orku sinnar eftir
því, sem hann hefir framtak til og, að ríkið tryggi afkomu þeirra,
sem af náttúrunnar hendi eru miður til baráttunnar búnir.
Ef þetta á að takast, verður að kollvarpa flestu í hafta- og banna-
löggjöf síðari ára, gerbreyta allri tilhögun á sviði framkvæmdavalds-
ins, en tryggja jafnframt með áræðnu framtaki inn á við, einurð og
festu út á við, að gteði landsins verði rjett hagnýtt og afraksturinn
geymdur landsins börnum einum.
Æskan á að erfa landið. Hún á það undir sjálfri sjer, hvort það
verður byggilegt og þjóðin sjálfstæð eða hvort hjer verður niðurnídd
«rlend nýlenda.
*
Islenskur æskulýður hefir orðið fyrir óhollum áhrifum erlendra
strauma, sem borist hafa að ströndum landsins. Þessa gætir
■eigi aðeins á sviði stjórnmálanna. í öllu viðhorfi æskunnar til lífsins
verður vart votts þeirrar lömunar, sem einkent hefir lífsbaráttu æsku-
lýðs ófriðarþjóðanna, alt frá lokum styrjaldarinnar miklu.
Vondapurt líf, þróttleysi, lífsleiði, áhugaleysi fyrir flestu öðru en
glaðværð líðandi stundar, — alt eru þetta vofur, sem ásækja æskulýð
landsins, í öllum stjórnmálaflokkum. Eitt stærsta viðfangsefni stjórn-
málalífsins er, að kveða niður þessa drauga og vekja þjóðarsálina til
nýs lífs.
Þegar nú Heimdellingar byrja annan áratuginn, eiga þeir að hefja
nýja herferð gegn spillingunni og vonleysinu. Þeir eiga að leiða æsk-
una í rjettan skilning þess, úr hvaða jarðvegi hún er sprottin. For-
feðurnir hafa tekist á við lífið og hjer verða allir að neyta sinna
krafta. Ungu stúlkurnar verða fríðar með því að hafa filmstjörnur til
fyrirmyndar. En fallegar verða þær ekki fyr en þær kunna að elda
og þvo þvott, og þykir sómi að hvorutveggja og æskumennirnir verða
ekki karlmenni, fyr en þeim vex andans þróttur til átaka.
Heimdellingar eiga að vekja nýja, volduga, þjóðlega frelsisöldu.
Þeir eiga að útbreiða nýja, þjóðlega menningu, — þeir eiga að efla
bjartsýni, sjálfstraust og rjettlátan metnað æskunnar, skapa henni
nýjan heim vona og hugsjóna, nýjan eldlegan áhuga, nýjan skilning á
•dýrmætustu verðmætum lífsins, nýja trú á land og þjóð, — nýja trú
á sjálft lífið.
¥
Húmdellingar! Vinnið heitin. Farið um landið eldi. Vekið úr
dróma ómælanlegt afl æskunnar, að hún megi forða sjer
mndan lamandi hönd deyfðar og vonleysis og óþjóðlegum, erlendum
áhrifum.
Berjist með eldmóti drengilegri baráttu, með djúpri virðingu fyrir
iHlu þjóðlegu, oz sannri og fölskvalausri ást til ættjarðarinnar.
(Ávarpil m akrifað fyrir afmselierit Heimdallar, sem kemur út á
btngardagia*)'
Heimdallur 10 ára í dag.
Öflugasla
stjórnmálafjelag
ungra
I I
anna.
Heimdallur er braut-
ryðjandinn í stjórn-
málaiífi fsl. æsku.
HEIMDALLUR, f jelag ungra sjálfstæð-
ismanna á 10 ára afmæli í dag. Stofn-
fundur f jelagsins var haldinn í Kaup-
þingssalnum 16. febrúar 1927, og sátu þann fund
um 40 ungir menn.
Heimdallur er fyrsta stjórnmálaf jelag ungra
manna hjer á landi. Ekkert þeirra pólitísku stjórn-
málafjelaga, sem síðan hafa verið stofnuð hafa
átt eins miklum vinsældum að fagna.
Heimdallur hefir haft mik-
il ahrif á framgang ýmsra
opinberra mála til hagsmuna
fyrir unga fólkið. T. d. tók
fjelagið snemma upp á stefnu-
skrá sína rýmkun kosninga-
rjettarins og átti sinn drjúga
þátt í að hann var lækkaður
í 21 ár.
Aðal hvatamenn að stofnun
Heimdallar voru nokkrir ungir
menn, áhugasamir um stjórnmál,
aðallega námsmenn, en eldri menn
innan íhaldsflokksins þáverandi
hvöttu mjög til stofnunar fjelags-
ins og voru ungu mönnunum til
aðstoðar. Einna fremstur í flokki
var þar Sigurþjörn Þorkelsson
kaupmaður.
1 byrjun febrúarmánaðar 1927
komu svo þessir áhugamenn sam-
an „til að urdirbúa fjelagsstofn-
un meðal ungra i.ianna, er fylgdu
fhaldsflokknum að málum“, en
þannig er það orðað í stofnfund-
argerðinni.
Stofnfundinn sátu, eins og áður
er sagt, um 40 ungir menn. Voru
þar samþykt lög fyrir fjelagið, en
e kki var ákveðið um núverandi
nafn þess fyr en síðar.
Önnur grein fjelagslaganna lýs-
ir betur en mörg orð hugsjón þess-
ara ungu manna og tilganginum
með stofnun fjelagsins. Þar segir
svo:
„Markmið fjelagsins er að
styðja víðsýna, þjóðlega og
varfærna umbótastefnu í lands
málum á grundvelli einstak-
lingsframtaksins án tillits til
stjettahagsmuna".
Þessari stefnu sinni hefir Heim-
dallur trúlega fylgt frá stofnun
fjelagsins og mun ekki frá henni
kvika á meðan nokkur fjelagi er
eftir. Þessi grein í lögum fjelags-
ins er hornsteinninn að öllu starfi
þess, enda hefir það verið svo að
þrátt fyrir ýmsan ágreining sem
upp hefir risið í fjelaginu á und-
anförnum árum, bæði um stefnu-
atriði og almenn fjelagsmál, eins
og oft vill verða í fjölmennum
fjelögum, hafa menn altaf verið
sammála um þessa grein fjelags-
laganna.
*
að var engin tilviljun að
ungir, framsýnir og áhuga-
samir ungir menn stofnuðu með
sjer stjórnmálafjelag einmitt um
það leyti sem Heimdallur var
stofnaður. Það var heldur ekkert
handahóf að þessir sömu menn á-
kváðu að fylgja íhaldsflokknum
að málum.
íhaldsflokkurinn hafði þá að-
eins setið 3 ár að völdum, en
samt tekist að rjetta við hinn
bágborna fjárhag ríkisins, eins vel
og valdatími hans frekast gat
leyft.
Þrátt fyrir hið mikla starf
þessa viðreisnarflokks urðu þær
raddir æ háværari, sem miskunn-
arlaust vidlu rífa alt niður sem
búið var að hyggja upp og þó
sjerstaklega ganga að einstaklings
framtakinu dauðu.
Fulltrúar erlendra öfga- og nið-
urrifsstefna voru þá að þyrja að
ná fótfestu í íslensku stjórnmála-
lífi.
Víðsýnir menn innan íhalds-
flokksins sáu hrátt, að þótt floklt-
urinn hefði í fyrstu eingöngu ver-
ið stofnaður til að rjetta við fjár-
hag ríkisins, þá beið hans nú mik-
ið starf í framtíðinni, en það var
að berjast gegn þessum óheilla-
stefnum. Þess vegna lagðist 1-
haldsflokkurinn ekki niður er
hann hafði lokið fyrsta hlutverki
sínu, að reisa við fjárhag ríkisins.
Forystumenn flokksins vissu að
aðalundirstaðan undir menningar-
legar og efnahagslegar framfarir
meðal þjóðarinnar var í því fólg-
in að einstaklingurinn fengi að
njóta krafta sinna sem óháðastur
af ríkisvaldinu, þeim var ljóst að
niðurrifsstefnur þær, sem farið
var að hóla nokkuð á, hlutu fyr
eða seinna að koma sjálfstæði
þjóðarinnar á knje, ef þær fengju
mótspyrnulaust að þróast og auka
fylgi sitt.
Ihaldsflokkurinn helt því áfram
að starfa undir merkjum „indi-
vidualismans" Hann gerðist hrjóst
vörn þjóðarinnar gegn erlendum
ómenningar- og haftastefnum.
Hinir ungu framsýnu æsku-
menn, sem stofnuðu Heimdall, sáu
hjer verkefni að vinna sem var
samboðið mönnum, sem hugsuðu
um framtíð þjóðar sinnar og þess
vegna fylktu þeir sjer undir merki
S j álf stæðisstef nunnar. Heimdalli
óx fljótt hrautargengi meðal
Samtal við
Gunnar Thoroddsen
í tilefui af 10 ára afmæli
Heimdallar hefir Morgunblað-
ið haft tal af Gunnar Thor-
oddsen alþingismanni, for-
manni fjelagsins, og skýrði
hann í stuttu máli frá fjelags-
starfseminni, eins og hún er
nú, og helstu fyrirætlunum
þeirra Heimdallarmanna.
Fjelagar í Heimdalli, eru nú,
segir Gunuar, um 900, og
mun Heimdallur því vera fjöl-
mennasta stjórnmálafjelag á land-
inu. Aldurstakmarkið er 35 ár.
Eldri menn fá ekki inngöngu í
fjelagið. En þeir fjelagsmenn, sem
eldri eru, geta vitanlega verið
styrktarfjelagar áfram, og notið
málfrelsis. En þeir hafa ekki at-
kvæðisrjett á fundum. Er með
þessu sjeð fyrir því fullkomlega,
að unga fólkið hafi þar öll völd
og ráði stefnu í þessu fyrsta
stjórnmálafjelagi ungra manna
hjer á landi.
Sem stendur er fjelagsstarf-
semin m. a. í því fólgin, að haldn-
ir eru fundir einu sinni til tvisvar
í mánuði og auk þess skemtifundir
með ræðuhöldum, við og við.
Auk þess starfar málfunda-
flokkur innan fjelagsins með leið-
beinanda. Á það að vera undan-
fari þess, að komið verði upp
stjórnmálaskóla. Ætlar fjelagið að
gangast fyrir því, að Sjálfstæðis-
flokkurinn bomi slíkum skóla á
fót.
Fánalið hefir fjelagið haft, til
að balda uppi reglii á fundum o.
þessh. En ekki hefir mikið kveðið
að starfsemi þess nú um skeið.
En nú er verið að skipuleggja það
að nýju.
Söngflokkur er nýstofnaður inn-
an fjelagsins og er söngstjóri
Bjarni Jónsson.
Og hvað er helst að segja um
stefnumál Heimdallar?
— Árið 1931 gaf Heimdallur út
sjerstaka stefnuskrá, er var mjög
ítarleg. Hefir húu gilt fyrir fje-
lagið síðan. En nú á að gera á
henni nokkrar breytingar, og
verður kosin nefnd í það mál á
aðalfundinum í dag.
Viðhorfið í stjórnmálum hefir
breyst svo mikið á þessum árum,
að nokkrar breytingar á starfs-
skránni eru nauðsynlegar, enda
hafa nú nokkur þeirra mála verið
til lykta leidd, sem fjelagið tók
upp á fyrstu árum sínum, svo
sem breyting á kosningarjettar-
aldri, er hann samkvæmt tillög-
um Heimdallar var færður niðnr
FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU.
FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU,