Morgunblaðið - 13.03.1937, Page 2
2
MORGU^BLAÐíÐ
Laugardag 13. mars 1937.
Útg-ef.: H.f. Árvakur, Reykjarík.
Ritstjórar: .T6n KjurtanBBon og
Yaltýr StefánBBon •—
ábyrgtiarmaOur.
Ritetjórn og afgreiBsIa:
Austurstrœti 8.—Sfaii lt##.
Heimasfmar:
J6n Kjartansson, nr. 874?
yaltýr Stefánsson, «r. 482».
Árni Óla, nr. 8045.
Áskriftagjald: kr. 8.00 á mánufi.
í lausasölu: 15 aura elntakitf.
25 aura nsefi Lesbök.
Lýðræðið.
Báðir stjórnarflokkarnir hafa
fyrir skömmu haldið flokksþing
hjer í bænum, og hafa þar mætt
fulltrúar hvaðanæfa að af land-
inn.
Ýmsar samþyktir og ályktanir
voru gerðar á flokksþingunum og
þær síðan birtar.
Á báðum flokksþingunum hafa
komið fram skýrar yfirlýsingar og
ótvíræðar samþyktir gerðar, þar
sem því er yfir lýst, að báðir
flokkarnir sjeu lýðræðisflokkar.
Morgunblaðið sjer nú ekki á-
stæðu tíl að vefengja, að í raun
og sannleika vaki það fyrir a. m.
k. mörgúm af leiðandi mönnum
stjórnarflökkanna, að reynast trú
ir lýðræðishugsjóninni. En fyrir
þá menn er sjerstök ástæða til að
Hta um öxl og athuga, hvað þeir
í verkunum hafa gert til þess að
sanna þá hollustu.
í því sambandi er þeim holt að
líta' til ýmsra ríkja í Evrópu og
athuga, hvað veldur því að gaml-
ar lýðræðisþjóðir hafa kastað frá
sjer lýðræðinu og gripið til -ein-
ræðisins.
*
Hjá öllum þessum þjóðum má
rekja einræðið til sömu róta. Og
því verður ekki neitað, að margt
eða flest þeirra fyrirbrigða á
sviði stjórnmálalífsins, sem ann-
arsstaðar hafa rutt einræðisbraut-
ina, hafa í ískyggilegum rnæli
gert vart við sig í okkar þjóð-
lífi.
Lítum rjett sem snöggvast á á-
standið:
Skattaánauð, athafnabann,
skerðing og afnám eignarrjettar,
samfara taumlausri ofsókn á hend
ur andstæðingunum, eru þekt fyr
irbrigði í íslensku þjóðlífi. Og
jafnframt þessu hafa einstaka
stjórnmálamenn tekið upp þá bar
dagaaðferð, að ljúga og rægja svo
svívirðiléga, að hrekklaus almenn-
ingur trúir því vart að nokkur
mannskepna sje til, er beiti slík-
um vopnutti á pólitíska andstæð-
inga.
*
Ef stjórnarflokkarnir unna lýð
ræðinu, mega þeir ekki gleyma
því, að fyrsta skilyrðið til þess að
þjóðin virði lýðræðið er, að ríkj-
andi meirihluti á hverjum tíma,
taki hæfilegt tillit til minnihlut-
ans, og sýni honum fullkomið
rjettlæti, svo að einu og sömu lög
gangi yfir alla þegna þjóðfje-
lagsins.
Hv.er sú stjórn sem brýtur
þessi boðorð, spanar beinlínis til
heiftar, og gerir sitt til að ryðja
braut ofbeldi og einræði.
Núverandi þingmeirihluti og
ríkisstjórn yita oíur vel, að þeirra
sekt er þung hvað þetta snertir.
ÚTLENDINGAHERSVEITIR
VERJA GUADALJARA.
„Verja Guadaljara, hvað sem það kostar“, segir Miaja.
Hersveitir Franco
5 kílómetra
frá borginni.
Slæmt veður tefur
sóknina.
FRÁ FRJETTARITARA VORUM:
KAUPMANNAHÖFN t GÆR.
Miaja hershöfðingi hefir kallað tvær út-
lendingahersveitir af Jarama-víg-
stöðvunum og sent þær til Guadal-
jara og skipað þeim að verja borgina hvað sem
það kosti.
Hersveitir Francos sækja nú fram í þrennu
lagi fyrir norðaustan Madrid. Ein fylkingin stefn-
ir beint í vestur til Guadarama-vígstöðvanna,
önnur sækir í suður til Jarama-vígstöðvanna, en
sú þriðja til borgarinnar Guadaljara.
Uppreisnarmenn segjast (skv. Lundúnafregn F.Ú.) hafa
tekið þorpið Brihuesca í morgun, en það er tæpum 5 kílómetr-
um fyrir austan Guadaljara.
Við Guadaljara skiftist vegurinn frá Madrid og liggur
önnur álma hans til austurstrandarinnar (skv. Lundúna-
fregn F.U.). Það er þessi vegur, sem stjóminni ríður á
að halda opnum.
(Vegur þessi, sem liggur um Cuenca er ekki talinn til að-
alvega á Spáni, en er mjög þýðingarmikill fyrir stjómina, ef
takast skyldi að loka Valenciaveginum, þótt ekki væri nema í
bili. Nú eru ekki opnir nema þessi vegur og Valenciavegurinn,
af þjóðleiðum til Madrid).
Síðan á mánudaginn segj-
ast uppreisnarmenn hafa
sótt fram um 45 km.
Segja þeir að framsókn
þeirra gangi með afbrigðum vel.
í morgun varð Madrid fyrir
ákafri skothríð og voru sjúkra-
vagnar stöðugt á ferðinni.
f dag hefir veður farið versn-
andi við Madrid, og hafa bar-
dagar því verið minni en und-
anfarið.
Þátttaka Itala.
London í gær F.Ú.
Spanska ráðuneytið ákvað á
fundi sínum í gærkvöldi, að
draga athygli Þjóðabandalags-
ins að því, að ítalskar hersveit-
ir sjeu í þjónustu uppreisnar-
manna og hafi því ítalir gerst
brotlegir við hlutleysissamning-
inn.
Stjómin heldur því fram,
að 25.000 ítalskir her-
menn berjist nú í liði upp-
reisnarmanna norðaustan
við Madrid.
Á háða bóga.
De Llano fór í gærkvöldi í út-
varpserindi sínu háðulegum orð-
um um það, sem hann nefndi
„veður út af fjórum ítölskum
föngum“ (frjettir herma að
fjórir ítalskir foringjar hafi
verið teknir höndum á Guadal-
jara vígstöðvunum).
Hann sagði, að meðal fanga
þeirra sem uppreisnarmenn
hefðu tekið á Guadaljaravíg-
stöðvunum hafi verið Norð-
menn og Tjekkar, og sanni
þetta, að það sjeu engu síður
útlendingar í liði stjórnari>?nar
en uppreisnarmanna.
Uppreisnarmenn segjast enn-
fremur hafa tekið til fanga
ítalska kommúnista, sem verið
hafi undirforingjar í her
spönsku stjórnarinnar.
Við Oviedo.
De Llano sagði í Sevilla-út-
varpinu í gærkvöldi, að upp-
reisnarmenn hefðu valdið miklu
manntjóni í liði stjórnarinnar
við Oviedo. Stjórnin tilkynnir
áframhaldandi sigra hersveita
sinna á þessum stöðvum.
Fiskmarkaðurinn í Grimsby í
gær; Besti sólkoli 78 sh. pr. box,
rauðspetta 55 sh. pr. hox, stór ýsa
22 sh. pr. hox, miðlungs ýsa 22
sh. pr. box, frálagður þorskur 12
sh. pr. 20 stk., stór þorskur 4 sh.
3 penee pr. box og smáþorskur 4
sh. pr. box. (Tilk. frá Fiskimála-
nefnd. — FB).
Miaja.
— Italir —
nota brynbifhjól,
Útbreiðslumálaskrifstofa Ma-
dridborgar skýrir frá því, að
frá ítalíu hafi nú verið send
til Spánar fjögur heil herfylki
(division) ítalska hersins, eða
alls 60 þús. manna lið. Skv. FÚ.
*
Frjettaritari vor í Khöfn sím
ar, að á vígstöðvunum fyrir
norð-austan Madrid noti ítalir
nýja vopnategund, brynvarin
bifhjól.
•'ý//jn'ý5 AtitruS'
\Túrr*U)uMA
7iua.tf.Uu>
lAORIDyú
mm
, iÁi *a.tcsrheno
rnn * " ^
Kortið sýnir veginn frá Gudalajara til Cuenza
Mussolini tekið?eins
og rómverskum
sigurvegara.
Libyuforin til að
ögra Brefum?
FRÁ FRJETTARITARA
VORUM.
KHÖFN 1 GÆR.
ör Mussolini til Libyu
er alment álitin
vera farin til ögrunar
Bretum.
Þegar Mussolini steig
á land í Tripolis í dag,
var hleypt af 31 heiðurs-
skotum við allar her-
stöðvar í nýlendunni.
Balbo, landstjóri í Libyu
hafði látið gera heiðurs-
boga að forn-rómverskri
gerð. í heiðursbogann voru
skornar lágmyndir sem
sýna sigra Itala frá því í
fornöld, þar til í Abyssiniu-
stríðinu.
Á súlum eru áletranir, sem
hefja Mussolini til skýjanna.
FRAIHS. Á 8JÖ*ND¥ StÐV.
Franska lánið
gekk út á
skömmum
tíma.
Verkföll yfir-
vofandi.
London 12. mars F.Ú.
Frakklandi vofa nú
yfir verkföll, vegna
aukinnar dýrtíðar í land-
inu, sem leitt hefir af
verðfellingu frankans.
Starfsfólk við leikhús
í Parísarborg, og við gas
stöðvar borgarinnar, og
ennfremur starfsfólk við
efnabirgðir símafjelags-
ins, á nú í deilum við
vinnuveitendur sína.
Franska stjórnin bauð í
morgun út vígbúnaðar-
láns-skuldabrjef sín, og
var eftirspum svo mikil,
að þau seldust upp á
skömm.um tíma. Skulda-
brjefin eru þegar komin
yfir nafnverð.