Morgunblaðið - 03.11.1937, Blaðsíða 7
111111111
Miðvikudagiu* 3. nóv. 1937.
MORGUNBLAÐIÐ
Oíiuiyktin
sem fylgir notkun hins lje-
lega gólfgljáa,, er óþolandi
í hverju húsi.
Forðist þessa viðbjóðs-
legu olíulykt með því að
aota
Fljótvirkur. — Drjúgur.
Lyktarlaus.
I Saumastofu |
= kefi jeg undirrituð opnað á I
| Vesturgötu 12, uppi. Sauma f
| aðallega samkvæmiskjóla, |
| einnig aðra kjóla og blússur. \
1 Hefi í mörg ár saumað hjá |
| þektustu saumastofum í \
| Kaupmannahöfn (Foimesbech |
og Magasin du Nord).
| Sara S. Finnbogadóttir. \
HinffitnutiiuiimitmHmttMmmuuiiiimiiiiiimmnimt
1 eða 2 herbergi
til leiífu í Aðalstræti 9. Upp-
lýsingar hjá Þórarni Jóns-
syni. sama stað, eða í síma
1297.
lill
1ELTING ARLEYSI
hefði ekki háð henni.
Góðar gáfur koma yður ekki að neinu
laldi, ef þjer hafið eigi kraft í yður
il að nota þær. Þess vegna hefir melt
ngarleysi orðið svo mörgum gáfu
nanni að tjóni, þvi að það eyðilegg
ír starfsþrekið.
Kellogg’s All Bran er örugt að bæta
ir meltingarleysinu. Það er náttúrleg
nýkjandi fæða, og mörgum sinnum
jetra en „pillur“ og lyf. Borðið af því
;vær matskeiðar á dag með mjólk eða
■jóma, en með hverri máltíð, ef melt-
ngin hefir lengri verið í ólagi. Öþarft
ið sjóða.
All Bran hreinsar meltingarfærin og
B-fjötefnið og járnið, sem í því er,
iressir taugarnar og gefuv nýjan
craft. Fæst alstaðar.
lALL-BRAM
J
ALL-BRAN
Hin eSlilega
hreinsandi fseöa.
Dagbók.
Veðurútlit í Kvík í d&g: Hvass
A og rigning en síðan minkandi
SA-átt.
Veðrið (þriðjudagskvöld kl. 5) :
Djúp lægðarmiðja um 1000 km.
suður af Beykjauesi á hreyfingu
norðaustur eftir. Lítur út fyrir
vaxandi A-átt um alt land með
morgninum. Nú er A-átt um alt
land með 3—5 st. hita. Rigning
austan lands og sumst. á Norður-
landi.
Næturlæknir er í nótt Axel
Blöndal, D-götn 1. Sími 3951.
Næturvörður er í Reykjavíkur
Apóteki og Lyfjahúðinni Iðunn.
Kolaverð. í auglýsingu frá H.f.
Kol & Salt í blaðinu í gær varð
misprentun á tveimur stöðum.
Firmað selur 250 kg. á kr. 13.50
og 50 kg. á 3 krónur.
Júlíus Havsteen, sýslumaður á
Húsavík, og kona hans, frú Þór-
unn Havsteen, komu liingað til
bæjarins með Esju síðast, og munu
dvelja hjer um tíma.
Brunasamskotin: í. J. 10 kr., E.
D. 10 kr., Hnlda 5 ki\, Farbor 5
kr., S. 1 lcr., F. 5 kr., starfsmenn
á trjesmíðavinnustofu Magnúsar
Jónssonar, Vitastíg 10, 50 kr., Á.
5 kr., M. G. 2 kr., N. 5 kr., í. J.
5 kr.
Rottuútrýming. Enn á ný á að
hefja herför gegn rottunum í bæn-
um. Allir, sem varir hafa oi’ðið
við rottur, eru borgaralega skyldii*
til að láta skrifstofu heilbrigðis
fulltrúa vita um það (sírni 3210).
Með eitruninni á undaiiförnum
árum hefir tekist að draga mjög
rnikið úr rottuplágunui. Gróðinn
af því verður ekki reiknaður, en
hann er geisilega mikill, mörgum
sinnum meiri en tilkostnaðurinn.
Og svo er það líka menningarmál
að losa hæinn við rottufarganið.
Saumastofu fyrir kvenfólk hefir
Sara S. Fiimbogadóttir opnað á
Vesturgötu 12. Hún hefir í mörg
ár unnið á saumastofum Fonnes-
bech og Magasin du Nord í Kaup-
mannahöfn.
Minnismerki Jóns ThoToddsens
skálds, sem Peter Schannong hefir
gefið, var afhjúpað í lestrarsal
Landsbókasafnsins kl. 2 í gær, og
voru þar meðal annara viðstaddir
margir afkomendur skáldsins og
vaudamenn þeirra. Fr. de Fou-
tenay sendiherra Danaflutti stutta
og snjalla ræðu og afhjúpaði minn
ismerkið, en Þórður læknir Thor-
oddsen þakkaði gjöfina fyrir ætt-
arinnar hönd, en landshókavörður
þakkaði af hálfu safnsins.
Skemtun verður haldin í kvöld
í Oddfélhv-húsinu og standa þrjú
fjelög að skeintuninni: Normands-
laget, Leikfjelag Reykjavíkur og
Norræna fjelagið. Skemtunin er
einskonar kveðjusamsæti fyrir frú
Botten Soot og son hennar, Svend
von During, en þaú mæðginin ætla
að skemta á meðan setið er við
kaffidrykkju.
Hlutaveltu ætlar knattspyrnu-
fjelagið Valur að halda á sunnu-
daginn kemur. Verður hún stór og
fjölbreytt eins og hlutaveltur Vals
eru. vanar að vera.
Vinning'ar voru dregnir út í
happdrætti Sveinasainbands byg’g-
ingamanua hjá lögmanni í gær.
Þessi númer komu upp: 1051 mat-
arforði, 799 ókeypis sængurlega,
2577 málverk eftir E. Laxdal, 3391
öll brjef Jóns Sigurðssonar, 2753
lirafntinna, 570 Radering eftir G.
Einarsson, 3600 hrafntinna. Vinn-
inganna sje vitjað á skrifstofu
Sveinasambands byggingamanna,
Suðurgötu 3.
Eimskip. Gullfoss fór til útlanda
í gærkvöldi kl. 8. Goðafoss er í
Hamborg. Brúarfoss fór frá Þórs-
höfn í gær til Kópaskers. Detti-
foss er á Borðeyri. Lagarfoss er í
Kaupniannahöfn. Selfoss er á leið
til Rotterdam frá Siglnfirði.
Háskólafyrirlestrar á sænsku. í
kvöld kl. 8.Ö5 flytur Sven Jans-
son seudikeimari næsta háskóla-
fyrirlestur sinn og talar enn um
Hjalmar Bergman. Öllum heimill
aðgangur.
Útvarpið:
Miðvikudagur 3. nóvember.
8.30 Enskukensla.
10.00 Veðurfregnir.
12.00 Hádegisútvarp.
15.00 Veðurfregnir.
18.45 Islenskukensla.
19.10 Veðurfregnir.
19.20 Þingfrjettir.
19.50 Frjettir.
20.15 Bækur og menn (Vilhj- Þ.
Gíslason).
20.30 Kvöldvaka:
a. Guðmundur G. Hagalín rit-
höf.: Upplestur.
b. Úr Örvar-Oddssögu, I. (Vilhj.
Þ. Gíslason).
e. Óscar Clausen kaúpm.: IJm
Saura-Gísla.
Ennfremur sönglög.
22.00 Dagskrárlok.
1
Nýtl
1 laavKtakföt.
i KLEIN,
Baldursgötu 14. Sími 3073.
AV-
rvr
ctttT
F3
Es|n
burtfei frestað til föstu-
dagskvölkvölds kl. 9.
Harðllsknr,
Rlkllngnr.
¥ísir,
Lau^aveg 1.
ÚTBÚ, Fjölnisveg 2.
Sallkjðt
í 1/1, 1/2 og 1/4 tunnum.
Domaffarðar-
karföflnr
í sekkjum og lausri vigt.
Cítrónnr
og margt fleira.
Jóh. Jóhannsson
Grundarstíg: 2. Sími 4131.
Góð kol - Odýr kol.
Vjer eigum enn nokkuð óselt af kolum
á þessu verði:
1000 kg. .
500 kg. .
250 kg. .
100 kg. .
. Kr. 54.00
. Kr. 27.00
. Kr. 13.50
Kr. 0.00
Auk þess höfum vjer fyrirliggjandi hinar al-
kunnu pólsku og ensku kolategundir.
Yfir 20 ára reynsla skapar oss aðstöðu til að
gera viðskiftamenn vora ánægða.
Leitið upplýsinga hjá oss, ef kolanotkun yðar
er óeðlilega mikil.
H.F. KOL & SALT.
Sími 1120.
i m
• Ttiivlbia.rwersluxi •
| P. W. Jscobsen & Sðn. |
($ Stofmið 1824. ^
0 Símnefm: G-rasfuru - Cfarl-Londsgade, Köbenhavn G. fjjfr
0 Selnr timbnr í stærri og smærri sendingtun frá Kaup- #
m mannahöfn. --- Eik til skipasmíða. - Einnig heila ®
skipsfarma frá Svíþjóð. ®
;|, Mefi verslað við Island í meir en 80 ár.
Jarðarför mannsins míns
Ögmundar Sigurðssonar
fyrverandi skólastjóra
fer fram frá heimili hans, Gerði í Hafnarfirði, föstudaginn
5. þ. mán. og hefst kl. iy2 e. hád.
Guðbjörg Kristjánsdóttir.
Jarðarför elskulegu móður minnar,
Marie Hansen, fædd Bernhöft,
fer fram föstudaginn 5. nóv. kl. 2 frá dómkirkjunni.
Jarðað verður í gamla kirkjugarðinum.
Fyrir hönd aðstandenda.
Johanrie L. Hansen.
gsP
Maðurinn minn og fósturfaðir okkar,
Sigurjón Oddsson,
framkvæmdastjóri frá Akureyri, verður jarðsunginn fimtudag-
inn 4. þ. m. kl. 2 e. h. frá dómkirkjunni,
Athöfninni verður útvarpað.
María Jónsdóttir og fósturbörn.
v*'. v'