Morgunblaðið - 28.12.1937, Page 7

Morgunblaðið - 28.12.1937, Page 7
Þriðjudagur 28. des. 1937. MORGUNBLABIÐ Togarastrandið FKAMH. AT ÞRIÐJU íteU. ▼atni. Stórgrýtt er þarna. Jók jþað og áhættuna, því öldurnar gátu beinlínis skelt stólnum og mönnunum við grjót og slasað þá. En þetta gekk alt saman atórslysalaust. 1 hvert sinn sem búið var að draga einn skip- verja í skerið, var hann flutt- ur á bát yfir lónið til lands. Þeir voru að vísu allmikið þjakaðir, sem úr stólnum komu, og kald- ir mjög, einkum einn þeirra, vjelstjóri togarans, aldraður maður. Var hann þunnklæddur, og afar kaldur er í land kom. Hann var fluttur til Guðmund- ar Þórðarsonar og hjúkrað þar. Tók það alllangan tíma að hressa hann við, og jafnvel talið tvísýnt í upphafi hvort það myndi takast. Aðrir þeir, sem dregnir voru á bjarglín- unni voru fluttir heim að Jaðri, sem er næsti bær við strand- staðinn, og hjúkrað þar. En þegar fjórum skipverjum hafði verið bjargað með þessu móti, fór að lýsa af degi. Um sama leyti lægði sjóinn heldur, og sá björgunarsveitin þá, að fært myndi að komast á bát alla leið að hinu strandaða skipi. Var nú bátur mannaður til að fara út að togaranum og gekk sú ferð vel. Var 9 manns bjargað á þann hátt í land. En alls voru skipverjar 13. Skipshöfnin var síðan flutt hingað til Reykjavíkur á jóla- dag. Mjög róma þeir skipverjar ötula og djarflega framgöngu björgunarsveitarinnar við björg unarstarfið. Forstjóra Slysavarnafjelags- ins, Jóni Bergsveinssyni var þegar gert aðvart í síma um strandið. Hann náði í síma- stöðvarstjórann í Keflavík, Sverri Júlíusson, en Sverrir vakti vjelbátaformenn til þess að bátar yrðu til taks þaðan, ef á aðstoð þeirra þyrfti að halda. En þess þurfti ekki. Verður togaranum náð? Varðskipið Þór fór á jóla- dag á strandstaðinn til þess að reyna að bjarga togaranum af skerinu. Það þykir ekki von- laust. En Þór var kallaður burtu þaðan á 2. jóladag, að sögn til að flytja Finn Jónsson vestur á Isafjörð. Þá var Ægir sendur á strand- staðinn. En för hans tafðist víst eitthvað, svo ekki var hægt að ljúka við að dæla úr togar- anum fyrir hádegisflóðið í gær. Ægir var syðra í gærkvöldi. Hafi veður ekki spilst í nótt, er talið að komið geti til mála að skipið náist út í dag. Á aðfangadagskvöld um kl. 12 varð Stefán Jóhannsson skipstjóri fyrir bifreiðinni R 620 rjett fyrir utan B. S. R. Kom bifreiðin ak- andi vestur Ansturstræti. Stefán var þegar fluttur á Landspítal- ann og reyndist hann töluvert mikið meiddur á baki og með brákuð rif. Ekki er enn vitað með vissu, með bverjum hætt.i slysið vildi til, en lögreglan hefir málið til rannsóknar. Dagbók. □ Edda 593712285 — Jólatrje að Hótel Borg. Aðgöngumiða sje vitjað strax til S.'. M.'. Veðurútlit í Rvík í dag: SV- eða S-kaldi. Smáskúrir. Veðrið (mánudagskvöld kl. 5) : SV-átt um alt land, sumstaðar all- hvasst vestan lands. Hiti er 3—4 stig um alt land. Smáskúrir eða slyddujel vestan lands, en bjart- viðri austan lands og norðan. Grunn lægð á milli Vestfjarða og Grænlands á liægri hreyfingu NA- eftir. Næturvörður er í Reykjavíkur Apóteki og Lyfjabúðinni Iðunn. Hjónaefni. A aðfangadag opin- beruðu trúlofun sína ungfrú Guð- laug Ó. Bjarnadóttir frá Norðfirði og Þórður Gíslason frá Hvaleyri. Hjúskapur. Á jóladag voru gef- in saman í hjónaband af síra Bjarna Jónssyni ungfrú Helga Þ. Finnsdóttir og Bergþór Jónsson trjesmíðameistari. Heimili þeirra er á Grettisgötu 82, Reykjavík. 67 ára varð á aðfangadag ekkj- an Guðný Sigfúsdóttir Kröyer frá Snjóholti, nú til heimilis á Lauf- ásveg 57 hjer í bænum. Karlakór iðnaðarmanna. Munið að mæta allir á æfingu í kvöld klukkan 8. Stúdentar halda dansleik á Garði á gamlárskvöld. Hjónaefni. Á aðfangadag jóla opinberuðu trúlofun sína ungfrú Laufey Ilelgadóttir frá Vík í Mýrdal og Sigurður Ólafsson Lárussonar læknis í Vestmanna- eyjum. Ríkisskip. Suðin fór frá Blyth gær áleiðis til Vestmannaeyja og Reykjavíkur. Ódýrar vðrur: Matardiskar dj. og gr. 0.50 Bollapör postulín 0.65 Matskeiðar og gafflar 0.75 Sykursett postulín 1.50 KaffisteU 6 manna 15.00 KaffisteU 12 manna 23.50 MatarsteU 6 manna 19.50 Ávaxtastell 6 manna 4.50 VínsteU 6 manna 6.50 Ölsett 6 manna 8.50 Vínglös 0.50 o. n?i. fleira ódýrt. K. Einarsson 8: Björnsson Hjónaefni. Nýlega hafa opin- berað trúlofun sína ungfrú Dúdda Elíasdóttir, Raufarhöfn og Krist- ján J. Einarsson verkstj., Hafn- arfirði. M.s. Dronnitng Alexandrine er í Kaupmannahöfn og fer þaðan á- leiðis til íslands 5. janúar. Kolaskipið „Ingerto“ var vænt- anlegt hingað í nótt. Hjónaefni. Á jóladag opinber- uðu trúlofun sína Ásta Þorkels- dóttir, Laugaveg 74 og Hilbert Björnsson sjóm., sonur Björns Bjarnasonar verkstj. í Viðey. Togarar fara á veiðar. í fyrra- dag fóru á veiðar Karlsefni, Max Pemberton, Hannes ráðherra, Baldur og Belgaum. Á veiðar bú- ast nú hjer í Reykjavík, Júpíter, Venus og Snorri goði. Til Vetrarhjálparinnar, afhent Morgunblaðinu • K. 10 kr., í. J. 10 kr., N. N. 10 kr., Sjöfn 10 kr., N. N. 5 kr., Auður 3 kr. Þorsteinn Þorsteinsson alþm. sýslumaður Dalamanna fer í dag ásamt frú sinni heimleiðis. Eimskip. Gullfoss er í Reykja- vík. Goðafoss fór frá Vestmanna- eyjum í gær áleiðis til IIull. Brú- arfoss er í Kaupmannahöfn. Detti- foss er í Hamborg. Lagarfoss er í Kaupmannahöfn. Selfoss er í Reykjavík. Trúlofun. Á jóladaginn opin- beruðu trúlofun sína ungfrú Kristbjörg Jónsdóttir, Hvalsnesi og Gunnlaugur Einarsson, Hól- koti á Miðnesi. Dómnefndin á heimssýningunni í París hefir úthlutað doktor Ejn- ar Munksgaard hæstu verðlaunum sem veitt eru fyrir þátttöku í sýningunni og eru þau veitt fyrir hina íslensku fornritaútgáfu hans. (FÚ.). Jón Eyþórsson og smjörið. í útvarpserindi í gærkvöldi komst Jón Eyþórsson að orði á þá leið, að meðan viðskiftahöftin væru í heiminum, yrðu þjóðirnar að búa að sínu. Hjer yrðu menn því t. d. að hafa smjör í stað ávaxta. Einn af lesendum blaðsins, sem kvaðst hafa hlustað á þetta, en sem reynt hefir árangurslaust að fá smjör hjer í borginni, bað blað- ið að skjóta þeirri fyrirspurn til Jóns, hvar hann helst gæti fengið smjör í ávaxta stað. „Rafsuða“ nefnist handhægt kver, sem Rafmagnsveita Reykja- víkur hefir gefið út og er það leiðarvísir um „nútíma matreiðslu við rafmagn' * handa heimilum. Kverið er samið af P. Haukaas Malde, verkfræðing við rafmagns- veituna í Stavangri. Skýringar allar í kverinu eru stuttar og skýrar, og verða því svo hand- hægar í notkun, að rafsuðan lær- ist fljótt, en það er lærdómur sem svarar fljótt kostnaði, þar sem á annað borð er eldað við rafmagn. f bókinni er fjöldi góðra og skemtilegra mjmda. Þeir, sem vilja kynna sjer rafsuðu, geta fengið bókina ókeypis á skrif- stofu Rafmagnsveitunnar. Útrarpið: 20.15 Leikrit: „Konungsefnin“, eftir Ibsen; fyrri hluti. Nikulás erkibiskup (Leikstj.: Ragnar E. Kvaran). Knalðspyraufjel. Vikingur. Aðgöngumiðar að áramótadansleik fjelagsins verða afhentir á skrifstofu Gísla Sigurbjörnssonar, Lækjartorgi 1, í dag (þriðjudag) og á morgun kl. 6—8 e. h. Þeir, sem óska að taka þátt í borðhaldinu, gefi sig fram í Oddfellow í síðasta lagi kl. 4 á gamlársdag. STJÓRNIN. Aramótadansleik heldur Knattspyrnufjelagið Fram að Hótel ísland á gaml- árskvöld. Matur verður framreiddur fyrir þá er þess óska frá kl. 19—22. — Menn eru vinsamlega beðnir að tilkynna þátttöku sína í borðhaldinu á skrifstofu hótelsins eigi síð- ar en á hádegi næstkomandi fimtudag. Aðgöngumiðar verða seldir hjá Liverpool útbú, Hverf- isgötu 59, og Gefjun, Aðalstræti. NEFNDIN. Mðlverkasýning Mentamðlarððs er í Markaðsskálanum. Opið klukkan 10—10. --- Aðgangur 1 króna. Sími 1380. LtTLA BILSTOÐIN Er nokkuð stór. Opin allan sólarhringinn. Konan mín og móðir okkar, Margrjet Tómasdóttir Stephensen, andaðist í Landspítalanum 27. þ. mán. Hans ö. Stephensen og synir. Hjer með tilkynnist að móðir og tengdamóðir okkar, Sigrún Sigurðardóttir, ljest á Elliheimilinu Grund þ. 26. desember. Jarðarförin tilkynt síðar. Jón Tómasson. Pjetur Pjetursson. Fyrirligg jandi; HRÍSGRJÓN — HAFRAMJÖL HRlSMJÖL — KARTÖFLUMJÖL FLÓRSYKUR — KANDIS KÓKOSMJÖL — SÚKKAT. Eggert Kristfánsson &€o. Sími 1400. Maðurinn minn, Jón Gunnarsson, fyrv. samábyrgðarstj óri, andaðist annan jóladag. Elísabet Gunnarsson. Þaði tilkynnist að jarðarför Pjeturs Ottesen, Bergstaðastræti 33, sem andaðist að Landakotsspítala 18. des- ember, fer fram frá dómkirkjunni miðvikudaginn 29. desem- ber og hefst með bæn á heimili mínu, Hringhraut 184, kl. 1 eftir hádegi. Athöfninni verður útvarpað frá kirkjunni. Fyrir mína hönd og systkina hins látna. Þorlákur G. Ottesen. Kærar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vináttu við andlát og útför Rannveigar Helgadóttur, frá Vogi. Vandamenn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.