Morgunblaðið - 05.01.1938, Side 2
MORGUNBLAÐIÐ
Miðvikudagur 5. jan. 1938.
------Evrópuráðstefna-----------------
um viðskiftamál
Khöfn í gær. FÚ.
VAN Zeeland fyrverandi forsœtisráðherra Belgíu hefir birt
opinbera tilkynningu þar sem hann lýsir yfir því, að
hann hafi undanfarið unnið að því að koma á ráðstefnu milii
Evrópuríkjanna til þess að rœða um möguleika á því að auka
millilandaviðskifti á þeim grundvelli, sem lagður er í samningi
Oslo-veldanna.
Segist hann hafa fengið góðar undirtektir undir það mál
víðsvegar um Evrópu með því að öllum sje ljós nauðsynin á
að koma á greiðari viðskiftum.
Þessa ráðstefnu vill van Zeeland láta halda í vor og ef
hún ber tilætlaðan árangur vill hann láta kveðja til alþjóða-
ráðstefnu um viðskiftamál eins fljótt og verða má.
><>00000000000000000000000000000000000
0
0
0
0
0
0
0
0
Foringi Járnvarðanna
í Rúmeníu
0
0
0
0
0
0
Ræða Roosevelts:
Gremja i Italíu
og Þýskalandi
FRÁ FRJETTARITARA VORIJM.
KAUPMANNAHÖFN I GÆR.
Nýársboðskapur Roosevelts hefir vakið
fögnuð í Bretlandi og Frakklandi. 1
Þýskalandi og Ítalíu hefir boðskapur-
inn eins og vænta mátti, vakið gremju.
Itölsk blöð voru látin sleppa þéim kafla ræð-
unnar, þar sem Roosevelt fordæmir einræðisstefn-
una í heiminum, og lýðræðinu er sungið lof og
dýrð.
Franska blaðið „OEUVRE“ segir að Roosevelt hafi leitt ein-
ræðisríkin í allan sannleika um það, að öflugrar mótstöðu væri
að vænta frá Bandaríkjunum, ef þau freistuðust út í einhver
meiriháttar ævintýr.
„PETIT JOURNAL“ segir að margir Bandaríkjamenn hafi
hug á að stofnað verði bandalag Washington—London—París
gegn Róm—Berlín—Tokio bandalaginu.
r. __ ___________
ÁRÁS Á ROOSEVELT
Kínverjar
taka *
Hangchow
London í gær. FÚ.
Fregnir frá Shanghai herma
að Kínverjar hafi náð
Hangchow aftur úr höndum
Japana. Japanir tóku Hangkow
fyrir rúmri viku.
Japanir birta í dag þá frjett
að þeir hafi tekið Choo-hu, fæð-
ingarbæ Konfusiusar.
1 þessum bæ er niðji Konfus-
iusar sagður eiga heima, og er
sagt að Japanir hafi síðastlið-
inn ágúst boðið honum keisara-
dæmið í Kína, en að hann hafi
neitað því.
KRISTJÁN KONUNGUR
VIÐSTADDUR ÚT-
FÖRINA.
Kalundborg í gær. FÚ.
I tlag var H. N. Andersen,
forstjóri Austur-Asíufje-
lagsins danska jarðsettur að
Vestre-Kirkegaard í Danmörku.
Kristján konungur X. og
Valdimar prins vörU báðir við-
staddir, en hvorugur í einkenn-
isbúningi, með því að þeir
mættu sem einkavinir heimilis-
ins og hins látna.
London í gær. FÚ.
Italski ritstjórinn Signor
Gayda ræðst í dag á
Roosevelt í grein í „Gi-
ornale d’ltalia“ og ber þar
á móti því að einræðisstjóm
ir sjeu óvinveittar friðnum
eða að friðinum stafi
nokkur hætta af stefnu
þeirra ríkja þar sem ein-
ræðisstjórn situr við völd.
Hann segir það tálvon, að
lýðræðisríki nútímans fái stað-
ist, en að hin fascistisku ríki
íði undir lok.
ÞÝSKALAND:
Þá er einnig í þýskum blöð-
um mótmælt þeim staðhæfing-
um Roosevelts, að stjórnir ein-
ræðislandanna virði samninga
að vettugi og stofni
friðinum í hættu.
BÖRSEN ZEITUNG segir að
forsetinn hafi ekki ætlast til að
þessi staðhæfing væri tekin al-
varlega utan sjálfra Bandaríkj-
anna, og að orð hans hafi ekki
verið til þess fallin að auka
traust og vináttu þjóða á milli,
heldur hið gagnstæða.
VIÐSJÁR í EGYPTA-
LANDI.
Miklar viðsjár eru enn í
Egyptalandi út af frá-
vikningu Nahas Pasha.
í gær var háreysti mikið í
egyptska þinginu og var Nahas
Pasha varnað að taka til máls.
C'orneliu O'odreann, foringi Jámvarðanna í Rúmsníu, í þjóðbún-
ingi Rúmena.
Mussolini
sakar Breta
um rof á
samningi
Útvarpað á
Arabisku í gær
FRÁ FRJETTARITARA
VORUM.
KHÖFN í 6ÆR.
Italska útbreiðslumáia
ráðuneytíð er sagt
hafa hlustað ákafast
eftir útvarpi breska út-
varpsins á arabísku í
gær. Utvarpað var sjer-
stökum kveðjum og síð-
an frjettum.
Útvarpið heyrðist á-
gætlega um öll Austur-
Iönd og voru margir Ar-
abar, sem á hlýddu.
I ItaÍíu —- og einnig í
Þýskalandi er mikið úr því
gert að Mussolini ljet afar
vinsælan arabískan söngv-
ara syngja í útvarpið í
Bari um sama leyti og
breska útvarpið fór fram.
Er sagt að Arabar hafi
heldur kosið að hlýða á
söngvarann en útvarp
Breta.
Herstyrkur
Breta í
Austur-Asíu
BYLGJUR OG
„STUTTBYLGJUR“
Útvarp Breta á arabíska
tungu hefir vakið feiknar
gremju í ítalíu. „Régime Fas-
cista“, fer um það mörgum orð-
um að ofan á áróður breska
þingsins og breskra blaða gegn
ítölum, bætist nú áróður breska
útvarpsins.
I stað breska söngsins „Bri-
tannia rules the waves“ ætti
að setja nýjan söng „Britannia
rules the shortwaves".
FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU.
■ "ésaar-
Stórfeld hersýning
við Singapore
London í gær. FÚ.
Stórkostlegar heræfingnar
eiga að fara fram í
Singapore í siðari hiuta fe-
brúarmánaðar og eiga að
taka þátt í þeim 10 þúsund
hermenn, þar á meðai sveit-
ir frá Indlandi og Hong
Kong.
Einnig verða sendar þrjár
deildir sprengiflugvjela og
flugvjelamóðurskipa tilSinga
pore í viðbót við flotann sem
þar er fyrir.
í samhandi við ráðstafanir
vegna þessara heræfinga er
ckýrt frá því að í Singapore
sjeu 15 failbyssustæði útbú-
in átján þumlungafallbyssum
og er það fyrsta upplýsingin
sem birt hefir verið um
byssustærð virkjanna.
SJERSTÖK SJÁVAR-
AFURÐASÝNING.
Khöfn í "ær. FÚ.
jórn heimssýningarinnar í
New York hefir ákveðið
ið efna til sjerstakrar sýning-
rdeildar fyrir fiskveiðar og
fiskiafurðir frá öllum löndum
í heimi, sem þar eiga sjerstak-
lega hlut að máli.
Af þessu tilefni hafa Norð-
menn skipað sjerstaka menn til
þess að annast um þátttöku
þeirra í þessari sýningu.
Hjónaband. Á nýársdag voru
gefin saman í hjónaband af síra
Garðarj Þorsteinssyni ungfrú
Bergrós Jónasdóttir frá Efri-
Kvíhóhna við Éyjafjöll og Ey-
þór Erlendsson frá Helgastöðum
í Biskupstungum. Heimili þeirra
#r að Merkurgötu 14, Hafnarfitði.
Rúmenla
óróamiöstöD
f Evrópu
' •
Fer von Ribbentrop
til Bukarest?
FRÁ FRJETTARITARA
VORUM.
KHÖFN í GÆR.
p.FTIR að hin hálf-
fascistiska stjórn
Gogas tók við völdum í
Rúmeníu, er óttast að
Rúmenía verði alvarleg-
asta óróasvæðið í Ev-
rópu, á næsta ári.
Lausafregnir herma
að Þjóðverjar ætli að
senda vón Ribbentrop
til Rúmeníu til þess að
koma á fullum sættum
milli „Járnvarðanna“,
sem eru hinn eiginlegi
fascistaflokkur Rúmena
og flokks Gogas.
örðugasti hjallinn, sem
von Ribbentrop yrðí að
yfirstíga til þess að fá
„Járnverðina“ til þess að
taka þátt í stjórnarmynd-
un í Rúmeníu, væri, að
sætta „Járnverðina“ og
Madame Lupescu, hjá-
konu Karols konungs.
GYÐINGA-
OFSÓKNIR
Þar sem Madame Lupescu er
Gyðingur, telja sumir að óhjá-
kvæmilegt sje að árekstur verði
milli Goga og hennar, þar sem
Goga hefir, að þýskri fyrirmynd
hafið árásir á Gyðinga. Hann
er sagður ætla að taka jarð-
eignir Gyðinga eignarnámi.
Hin and-kapitalistiska stjórn-
málastefna Goga hefir þegar
leitt til all-verulegs gengishruns
á kauphöllinni í Búkarest.
FRÖNSK BLÖÐ
BÖNNUÐ
London í gær. FÚ.
Ekki hefir enn tekist að
kveða niður þann orðróm, að
Frakkar hafi stöðvað allar her-
gagnasendingar til Rúmeníu.
Eins er því enn haldið fram að
Rússar ætli að segja upp rú-
mensk-rússneska vináttusátt-
málanum.
Fimtán frönsk blöð hafa ver-
ið gerð upptæk í Búkarest
vegna árása á stjórn Goga.
Nú um nýárið sendi Goga
forsætisráðherra Adolf Hitler
símskeyti, þar sem hann lýsir
yfir vináttu sinni í garð Hitlers
og stefnu hans.
Til Ítalíu.
í dag komu 1500 ferðamenm
frá Rúmeníu til Rómaborgar, em
fascistáflokkurinn hefir sjeð ura
ferðaáætlunina. í dag lögðu ferðá
mennirnir sveig á leiði hins 6-
þekta hermanns, og síðar gengn
þeir til hallar Mussolini og hyltm
hann.