Morgunblaðið - 05.01.1938, Blaðsíða 7

Morgunblaðið - 05.01.1938, Blaðsíða 7
Miðvikudagur 5. jan. 1938. MORGUNBkAÖIÐ 7 Guðnj Jonsson. Neðanjarðarborg í Tibet Minningarorð um Hólmfríði Sigurðardóttur ann 29. okt. s.l. andaðist frú ' og érxiðissama ævi. sem hú Hólmfríður Sigurðardótt-! að baki. ■ 1 hcn: • ir á heimili tengdasonar sins, . > rt ■ Nieljohníuss Ólafssonar, Vest- ■ i, urgötu 26 C hjer í bæ. Hún„vax . hviida’’ ' -x n, • með elstu konum þessa bæjar, 93 ára og átta mánuðum betur, en í Rvík hafði hún átt heima í o ... , • um 50 ára skeið. Frú Hðimfríð-! ár og vt, r, ., ; , ■ . ur var fædd að Tjaldbrekku í samveruna. Hraunhreppi í Mýrasýslu, þ. 24. febr. 1844. Foreldrar hennar voru Sigurður Jónsson hreppstj. í Hraunhreppi og kona hans, Hólmfríður Eiríksdóttir. Reistu þau hjón nýbýli að Tjaldbrekku og bjuggu þar allan sinn bú- skap, eignuðust 12 börn, og komust 8 þeirra til fullorðinsára. Þrír sýnir þeirra fóru til Ame- ríku, Eiríkur, Kristján og Dan- íel, og er mikil ætt komin frá þeim.vestra. Dóttir þeirra hjóna ein var frú Margrjet, seinni kona síra Þorsteins Hjálmar- sens, prófasts í Hítardal. Árið 1869 giftist frú Hólm- fríður Sigurði Jónssyni bónda frá Hjörsey, Sigurðssonar í Hjörsey, Ólafssonar í Hjörsey, Sigurðssonar sýslumanns í Mýrasýslu (d. 1765), Högna- sonar í Straumfirði, Halldórs- sonar prests á Ökrum (d. 1655), Marteinssonar á Álftanesi, Halldórssonar á Álftanesi, Mar- teinssonar biskups í Skálholti (d. 1576), Einarssonar prests á Staðastað (ölduhryggjar- skálds), Snorrasonar. Þau Sig- urður og Hólmfríður bjuggu að Skiphyl í Hraunhreppi, en brugðu búi 1882 eftir harðinda- árin miklu og fluttust þá að Ár- túnum í Mosfellsveit, en 1890 til Rvíkur. Bjuggu þau þar síð- an, þar til Sigurður ljest þ. 27. mars 1915. Sigurður var hinn drengilegasti maður bæði í sjón og raun. Stundaði hann mest sjómensku, eftir að þau hjón fluttust hingað til bæjarins, og farnaðist jafnan vel. Höfðu þau heimili, sem opið var gesti og ganganda, því að gestrisni þeirra bjóna var við brugðið. — Þau eignuðust 9 börn, en 4 þeirra dóu í æsku. Þau sem upp komust voru þessi: Guðrún, gift Guðmundi Ólafssyni bónda frá Fjalli á Skeiðum, Sigurður, dó af slysförum í New York, var kvæntur sænskri konu. Geir skipstjóri í Rvík, kvæntur Jón- ínu Ámundadóttur frá Hlíðar- húsum, hún dó í spönsltu veik- inni 1918, Sigríður, ógift, og Ólöf, kon^> Nieljohniuss Ólafs- ^onar verslunarmanns í Rvík. Dvaldist frú Hólmfríður á heim- ili þeirra hjóna hin síðustu árin. Vel kunnugur maður ljet svo um mælt um frú Hólmfríði í grein um hana, er hún varð 85 ára að aldri: „Hólmfríður er hin gáfaðasta kona, er jeg hefi kynst, en jeg hefi þekt hana, síðan jeg var barn. Hún er hiig- mælt vel og lætur enn fjúka í kviðlingum. Fáar munu þær kon ur, er veitt hafa íslenskri nátt- úru jafnmikla eftirtekt sem hún. Vartmun það blóm eða gras til hjer á landi, að hún þekki það ekki, geti lýst náttúru þess eða kunni ekki um það vísu. Ótelj- andi eru þær vísur, sem hún get- ur farið með“. Frú mfríður bar vel ell- ina. 1 hfljið væri orðið hvítt Qg c-.var hún altaf ljett á fæti b. ik í spori, meðan hún hafði xerlivist, en það hafði hún alt fram undir það síðasta. Sálarþróttur hennar virtist með öllu óskertur. Hun las bækur og blöð og fylgdist vel með því, er gerðist fram á síðustu mánuð- ina sem hún lifði. Ber slíkt vott um fágætt þrek eftir svo langa Dagbók. □ Edda 5ð38166 — H.‘. & V.\ St.\ Fyrl. R.\ ,M-\ Listi í,Q og hjá SMtii kl. 6 í kvöld. I. 0. 0. F. 11915. Spilakvöld. m Fyrirlestur hr. Theodore Illion, 29. f. m. í Guðspekifje- lagshúsinu um neðanjarðar- borgina í Tibet, var mjög fjol- sóttur og urðu margir frá að hverfa. Fyrir því hefir fyrirles- arinn ákveðið að endurtaka fyrirlesturinn í kvöld, klukkan 9, á sama stað. Að fyrirlestrin- um loknum mun hann svara spurningum eins og í fyrra skiftið. Hr. Illion er skemtilegur fyr- rlesari, algjörlega yfirlætis- laus, og hefir frá mörgum hlut- um furðulegum að segja. Gef- ur því margt í frásögn hans til- efni til spurninga, enda fór svo, að á eftir fyrirlestri hans 29. f. m. bárust honum um 40 spurn- ingar. Fyrirlestur sá, sem hjer er um að ræða, fjallar um efni, sem neyðir hugsandi menn til þess að endurmeta lífsskoðanir sínar að sumu leyti, og er því mikið meira en venjuleg ferða- saga eða frásögn um menn og atburði. — Fyrirlesarinn hefir líka ákveðinn boðskap að fyltja, sem að mínum dómi er hollur, og eru lýsingar hans á lífi manna og landsháttum í Tibet, þótt merkilegar sjeu, í raun og veru ekki annað en einskonar umgjörð utan um þann boðskap, — eins og rammi utan um mynd. Grétar Fells. flillllHIIIiilflllTiTO Frú Rannveig Vigfúsdóttir, Austurgötu 40 í Hafnarfirði á fertugsafmœli í dag. Veðurútlit í Reykjavík í dag: Hvass SA. Rigning. Veðrið í gær (þriðjud. kl. 17): Norðvestanlands er hæg NA-átt með dálítilli snjókomu. Annars er V-læg átt urn alt land og þíð- viðri. Suður af Grænlandi er ný lægð, sem mun hreyfast til NA og hafa í för með sjer hvassa SA-A-átt hjer á landi á morgun. Næturlæknir er í nótt Kjartan Ólafsson, Lækjargötu 6 B. Sími 2614. Næturvörður er í Ingólfs Apó- teki og Laugavegs Apóteki. Eimskip. Gullfoss fór frá Vest- mannaeýjum í gærmorgun áleið- is til Leith. Goðafoss er í Ham- borg. Bruarfoss er í Kaupm.höfn. Dettifoss er í Hamborg. Lagar- foss er í Kaupmannahöfn. Sel- foss er í Reykjavík. Hjónaband. Nýlega voru gefin saman í hjónaband af bæjarfóget- anum í Hafnarfirði ungfrú Vig- dís Nýborg og cand. pharm. Er- ling Bruun-Madsen. Heimili þeirra er á Bergstaðastræti 50 hjer í bænum. Hjónaefni. Trúlofun sína hafa opinberað ungfrú Anna Lilja Guðjónsdóttir og Gúðni Guð- mundsson, Bergþórugötu 6 B. Fyrsta póstskip frá útlöndum á þessu ári er „Dr. Alexandrine“, sem er væntanleg n.k. sunnu- dagskvöld. Hjónaefni. Nýlega hafa opin- berað trúlofun sína ungfrú Hjör- leif Jónsdóttir og Þórður II. Hannesson, Njálsgötu 4B. Hvöt. Fundur sá,. er Sjálfstæð- iskvennafjelagið Hvöt ætlaði að halda í kvöld, fellur niðUr. Hjónaefni. Á gamlársdag op- inberuðu trúlofun sína ungfrú Lára Guðmundsdóttir, Veghúsa- stíg 1 og Hreiðar Guðjónsson málari, Lindargötu 8 A. „Sumargjöfin“ fær arf. Göm- ul kona, Ketilríðux Guðmunds- dóttir, Bjargarstíg 3, sem nýlega er látin, arfleiddi barnavinafje- lagið „Sumargjöf“ að 1000 krón- um í arfleiðsluskrá sinni. Verðlaunamyndgátan, sem birt- ist í síðustu Lesbók, hefir vakið mikla eftirtekt meðal lesenda blaðsins, eftir því sem ráða má af fyrirspurnum þeim, sem blað- ið hefir fengið út af henni. — Nokkrar ráðningar eru komnar til blaðsins, en fleiri munu það yera, sem brotið hafa heilann um gátuna, án þess að liafa enn ráð- ið fram lir henni. Sjerstaklega veitist mönnum erfitt að glöggva sig á því, hvaða merkingu á að leggja í myndina, sem er síðast í efstu línu, sem sýnir menn vera að láta bagga upp á hest. Til frekari skýringar er rjett að geta þess, að merking myndar þeirr- ar skal miðuð við það eitt, að það þyngist á hestinum, þegar bagg- arnir eru settir á hann. IJtvarpiS: 19.50 Frjettir. 20.15 Bækur og menn (Vilhj. Þ. Gíslason). 20.30 Kvöldvaka: a) dr. Einar Ól. Sveinsson: Ævisöguþættir, III. b) Guðbrandur Jónsson próf.: Þjóðsögur. c) sra. Sigurður Einarsson: Upplestur. Ennfremur eönglög og harmón- íkulög. I matinn; Kjöt af fullorðnu á 45 au. V2 kg. Saltkjöt af- bratfðsvott, Hangikjöt. Svið. Hvítkál. Rauðróf- ur o. m. fl. Jóh. Jóhannsson Qrnndarstiff 2. Sími 4181. I. O. G. T. ÁRAMÓTAFAGNAÐUR templ- ara verður haldiim að Hótel ísland laugardaginn 8. þ. m. og hefst með sameiginlegu borðhaldi kl. 8 síðdegis stundvíslega. - Þátttakendur gefi sig fram í dag eða á morgun. Áskriftarlistar í Hanskagerðinni, Austurstræti 5, versl. Bristol og í verslun Guðm. Gunnlaugssonar, Njálsg. 65Í. — /sÐEINS FYRIR TEMPLARA. Vélin hans er SORALAUS | bví hann notar hina soralausu| Gargoyle Mobiloil ÞÓRDÍS SIGURÐAR- DÓTTIR FRÁ SKILD- INGANESI. F. 22. maí 1879. D. 4. nór. 1967. Kveðja frá vinkonn. Ein af þeim fáu óskabörnum, sem lifði í sátt við samtíð alla. Hinn gullna meðalveg megnaði að þræða, elskuð og virt til æfiloka. Sakna þín vinir, að vonum nú og ættingjar ekki síður, en það sæmir ■jálfstæðri þjóð, að eignast og misia aðrar eins dætur. Ágústa Eyjólfsdóttir. Tungumálanámskeið Þórhails Þorgilssonar Öldugötn 25. — Sími 2848. SPÆNSKA I. *Þórhallur Þorgilsson: Kenslubók t spænsku. Framburtrar, lestur, útleggiag og æfingar. *The Linguaphone SpanisM Conversation'al Course (öll orð, sem íjr- ir koma í þeirri bók, finnast í orð#r- safni kenslubókarinnar). Samtalsæfing- ar. — Carré: El vocabulario castellano. Æfingar á viðurheitum, samheitum, orðaröð o. s. frr. II. *Palacio Valdés: La hermana Sam Sulpicio. Lestur og útlegging. Samtal*- efni tekin úr Pitollet: Hispania (saga, þjóðarhættir og atvinnuvegir Spán- verja og lýsing Spánar), 1930. Ver*l- unarbréfaskriftir (með hliðsjón af La- borde: Nuevo manual de correspon- dcncia comercial). FRANSKA I. ; . *Kenslubók Páls Sveinssonar ett* Bödkers & Hösts. Til heimalesturs og útieggitígár. Th. Rosset: Exercices pra- tiques d’articvlalion et de diction (Gren- ohle 1923). Hljóðfræði og framburð- aræfingar. *The Linguaphone Frenchi Gonversational Course. Samtalsæfingar. i II. Lesin verður einhver skáldsaga, smá- sögur eða verslunarbréf*) eftir sam- komulagi. Málfræði- og stílæfingar íeknar úr Claude Augé: Grammaire. Coúrs súpéríeur, en samtalsæfingar úr *A. Ðepras: Le frangais de tous Itt jours, I—II. ÍTALSKA I. *Þórhallur Þorgilsson: Italskir les- kaflar m. ítalsk-isl. orffasafni (Rrík 1937). Lestur, útlegging. *Sami: ítalsh- ísl. samtalskaflar og málfrœðiœfingar. Við talæfingar verður einnig notuð Tht Linguaphone Italian Conversationat 'Course. *Þórhallur Þorgilsson: ítöith málfrœöi (1932). II. Lesin verður einhver skáldsaga eftir samkomulagi. Við stílæfingar verðuí höfð Massoul dk Mazzoni: Méthode d* langue italienne, I—II og Burkard: Úbungsbueh (1926). Verslunarbréf*- skriftir með hliðsjón af G. Frisoni: Corrispondcnza commerciale, 1931). PORTÚGALSKA *Ey-Nogueira: Grammáire portu- gaise (Méthode Gaspey-Otto-Sauer). ■ Bækur þær, sem merktar eru með stjörnu, þurfa nemendur að eiga. I#) Heiíri Page: Correspondanoe commerciale, 1928.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.