Morgunblaðið - 05.01.1938, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 5. jan. 1938.
MORGUNBLAÐIÐ
3
flannsókn á hag
Strætisvagna-
fjelagsins
Strætisvagnarnir fara ekki
út í dag, og óvíst hvort
þeir fara út á morgan, eða
næstu daga.
Rannsókn á að fara fram
í dag á hag Strætisvagnaf jel.
og verður henni e. t. v. ekki
Iokið fyr en á morgun. Þessi
rannsókn á að leiða í Ijós
hvort fjelagið er starfhæft.
I samningum í gær kom
það fram, að ef ekk' strand-
ar á öðru, mun geta tekist
fult samkomulag milll b’f-
reiðastjórafjelagsins „Hreyf-
ill“ og Strætisvagnaf jelags-
ins.
*
Þessar ráðstafanir miða í
rjetta átt, og eru svo langt
sem þær ná í samræmi við
kröfur Morgunblaðsins i gær.
En aðgerðum í málinu verður
að hraða. Ríkisstjórnin, sem
hefir úrslita ráðin í þessum
málum, verður að sjá um, að |
sem allra minst töf verði á ,
ferðum strætisvagnanna.
Þessu takmarki hlýtur að
mega ná, þó að Strætisvagna
fjelaginu sje sýnd full sann-
girni, og er það allra hagur,
að málinu sje hið fyrsta kipt
í betra horf en nú er. Það er
skylda ríkisstjórnarinnar að
sjá um að svo verði.
Sljjs á B.v. ,Gulltoppi‘
Togarinn ,,Gulltoppur“ kom
til Flateyrar á önundar-
firði í fyrradag með slasaðan
mann. Hafði hann brotnað á
framhandlegg.
Maðurinn, sem er háseti á
skipinu, Þorbergur Jónsson að
nafni, varð eftir á Flateyri.
Stúlkan á Akureyri
komin fram
Stúlkan á Akureyri, sem hvarf
á nýársdag og óttast var
um, svo að farið var að slæða
eftir líki hennar í höfninni, er
komin fram.
Stúlkan hafði farið fram í
fjörð og var ekkert að henni er
hún fanst.
Óttast var um afdrif stúlkunn-
ar vegna þess, að hún hafði látið
þau orð falla við vinkonur sín-
ar, að hún myndi stytta sjer
aldur.
BARIST VIÐ TERUEL.
London í gær. FÚ.
dag eru liðnar þrjár vikur
síðan bardaginn um Teruel
höfst og enn hefir hvorugur að-
ili unnið þar úrslitasigur.
Angljóst er, að þetta stafar að
nokkru leyti af óhagstæðri veðr-
áttu, þar sem herflutningar hafa
tafist vegna snjókomu og kulda.
———----Roosevell-------
og helsln ráðunautar hans
Roosevelt t. v. Næstur til hægri við Rooseveit er Mr. Cordell Hull utanríkismálaráðherra
en til vinstri við Roosevelt, Morgenthau fjármálaráðherra. Kvenmaðurinn er Mrs. Perkins,
verkamálaráðherra.
Klukkustundar
skíðakvikmynd
í. R.
Síðastliðinn fimtudag sýndi
íþróttafjelag Reykjavíkur
blaðamönnum og fleirum skíða
kvikmynd sem fjelagið er ný-
búið að fá. Kvikmynd þessi er
tekin í ölpunum af „Agfa“
og er kenslukvikmynd og hún
er í 8 köflum. Sýning stendur
yfir í tæpa klukkustund.
1. kafli sýnir fyrst mismun-
andi göngulag, þvínæst hvernig
á að ganga upp brekku og síð-
ast hvernig á að snúa við á
jafnsljettu og í halla.
2. kafli sýnir hvernig á að
renna beint áfram niður
brekku, síðan beygjur, plóg og
plógbeygjur.
3. kafli sýnir ,,Stemsving“.
4. kafli sýnir „Stemkrist-
jania“.
5. kafli sýnir „Tempósving".
6. kafli sýnir útbúnað skíða-
mannsins.
7. kafli sýnir ýmsar þjálfun-
aræfingar.
8. kafli. Þar sýna æfðir skíða
menn listir sínar.
Myndin er mjög skír og vel
tekin og fer ítarlega út í hin
einstöku atriði, sem allir skíða-
unnendur óska eftir að læra. —
Það er mikill fengur fyrir skíða
fólk þessa bæjar, að fá slíka
mynd sem þessa og á 1. R.
þakkir skilið fyrir forgöngu
sína í þessu máli.
Nú á næstunni ætlar fjelagið
að sýna myndina opinberlega,
og er gott að geta notað tím-
ann meðan snjóinn vantar, til
að læra og undirbúa sig undir
væntanlegar skíðaferðir.
Einnig var sýnd kvikmynd
sem í. R. Ijet taka af skíða-
námskeiði sínu að Kolviðarhóli
síðastliðinn vetur.
Línuveiðarinn Ólafur Bjarna
son fór á veiðar í gær.
OKi hællir
blaðasölu
ALLIR Reykvíkingar kannast
við ungan, fjörlegan pilt,
sem í fjöldamörg ár undanfarið
hefir verið á sífeldum hlaupum
um Austurstræti og boðið til
kaups með nokkuð hásri en þó
skýrri röddu öll blöð, sem út
koma í bænum.
Það er Otti — en í dag hæftir
Otti að hlaupa um Austurstræti.
Hann er að verða fullvaxinn karl-
maður og farinn að hugsa um
framtíðina. Fyrst í stað tekur
| hann sjer hvíld, en síðan ætlar
hann að afla sjer einhverrar
mentunar.
Otti byrjaði ungur að selja
blöð hjer á götunum, eins og títt
er um marga bæjardrengi, en eng-
inn mun hafa selt eins lengi blöð
og gert það starf að aðalatvinnu
hjer á landi, nema Otti.
Otti átti orðið fleiri fasta við-
skiftamenn en nokkur annar í
hans atvinnugrein, enda er hann
svo mannglöggur og minnugur,
að hann mundi brátt hvaða blöð
þessi eða hinn keypti og hafði
þau tilbúin, er maðurinn birtist.
Ótítt mun það vera um blaða-
sala, að þeir reki lánsverslun, en
Otti lánaði mörgum dag frá degi.
! Einu sinni spurði jeg hann, hvort
hann skrifaði það hjá sjer og
livort hann tapaði ekki á láns-
versluninni.
— Nei, sagði Otti, jeg man alt
sem jeg lána og tapa litlu, því
menn skammast sín fyrir að
svíkjast um að borga 15 aura
' skuld.
, Um leið og Otti Sæmundsson
sagði mjer í gær, að þetta væri
síðasti dagurinn, sem hann seldi
blöð á götunum, bað hann mig
að skila kveðju til allra við-
skiftamanna sinna og þakka þeim
kærlega fyrir viðskiftin á liðn-
um árum. Vivax.
Otti Sæmundsson.
Viðskiftaörðugleikarn-
ir I Bandaríkjunum
London í gær. Ftí.
nóvember og desember
siðastliðnum jókst tala
atvinnuleysingja í Bandarikj-
unum um hálfa aðra miljón og
er það meiri aukning, en á þess-
um mánuðum 1929.
Framsóknarmenn
bjóða fram í Vest-
mannaeyjum
Framsóknarfl okkurinn hefir á-
kveðið að bjóða fram til
bæjarstjórnarkosninga í Vest-
mannaeyjum. Þetta var tilkynt á
útbreiðslufundi, sem þeir Jónas
Jónsson og Eysteinn Jónsson
hjeldu í Eyjum í gærkvÖldi.
Margt manna mætti á þessum
útbreiðslufundi, aðallega þó fyr-
ir forvitnissakir, sem sýndi sig
best á því, að er stofna átti
Framsóknarf jelag að fundinum
loknum, fóru allir af fundi nema
um 20 manns.
Boðað hefir verið til almenns
stjórnmálafundar í Eyjum í
kvöld, þar sem þeir munu mæta
fyrir sinn flokk, Jónas og Ey-
steinu.
Piltur játar á sig
þrjú rán hjer
i bænum
j Stal peningaveskj-
um af konum
Lögreglan náði í gær í 18
ára gamlan pilt, sem
játaði á sig þrjú rán á göt-
um bæjarins. Hefir piltur-
inn rænt peningatöskum af
konum, sem verið hafa ein-
ar á gangi.
Ránin framdi pilturinn með
þeim hætti, að bann hjólaði fast
upp að þeim, sem hann ætlaði að
ræna, og þreif síðan peninga-
veskin og hjólaði burt.
Fyrsta ránið, sem pilturinn
framdi, var á Þorláksmessu. Þreif
hann þá pakka af konu á Lauf-
ásveginum. í pakka þessum var
lítið verðmæti.
Seiuna sama dag rændi hann
peningaveski af konu, sem var
á gangi á Skólavörðustíg. Eyddi
hann peningunum, sem í því veski
voru, en fleygði veskinu frá sjer
Fanst það síðar tómt.
Síðasta og þriðja ránið, sem
pilturinn játaði á sig, framdi
hann 30. desember. Rjeðist hann
þá á konu eina á Grettisgötu og
þreif af henni veski. Tók hann
það sem honum fanst vera fje-
mætt í veskinu, og kastaði vesk-
inu síðan í sjóinn.
Fyrstu tvö ránin framdi pilt-
urinn nokkru eftir að ráðist
var á konuna í Fischersundi, sem
sendisveinn Vetrarhjálpariunar
kom til aðstoðar. Kona þessi hef-
ir þó ekki gefið si^ fram við lög-
regluna, þrátt fyrir ítrekaðar til-
raunir til að ná í hana.
Pilturinn, sem játaði á sig árás-
irnar í gær, neitar að vera vald-
ur að árásinni í Fischersundi.
ANNA BORG
í AÐALHLUTVERKI.
Khöfn í gær. FÚ.
Næstkomandi fimtudag kl.
18 síðdegis, eftir íslensk-
um tíma verður leikrit danska
káldsins og prestsins Kai
Munk, er hann nefnir „Cant“,
leikið í danska útvarpið.
Fjallar það um Hinrik VIII.
Englandskonung og konur hans.
Anna Bor" leikur aðal-kven-
’utverkið í þessum leik, önnu
Boleyn, eina af drotningum
Hinriks VIII.
Dauðaslys á þýskum togara.
Togarinn Rosemarie frá Weser-
miinde kom til Seyðisfjarðar á
nýársdag með maun, sem látist
hafði af slysförum, Friedrieh
•Walther kyndara. Hafði hann
dottið ofan í vjelarúm skipsins
og beðið bana. Maðurinn var
jarðsettur á Seyðisfirði.
Frá Dalvík er símað, að á Völl-
um í Svarfaðardal sjeu blóm ný-
útsprungin. Blómin eru stjúp-
móðir og bellis. (FÚ).
Síldveiði er enn góð á Aust-
fjörðum. Byrjað var í gær að
vinna úr 3—4 þúsund málum
síldar, sem safnast höfðu saman
í þróm síldarverksmiðjunnar á
Seyðisfirði yfir helgina.