Morgunblaðið - 05.01.1938, Síða 5

Morgunblaðið - 05.01.1938, Síða 5
Miðvikudagur 5. jan. 1938. MORGUNBLAÐIÐ 5 Útgef.: H.f. Arvakur, Reykjavík. Ritstjórar: Jón Kjartansson og Valtýr Stefánsson (ábyrgT5armaður). Auglýsingar: Árni Óla. Ritstjórn, auglýsingar og afgrei?5sla: Austurstræti 8. — Sími 1600. Áskriftargjald: kr. 3,00 á mánuM. í lausasöiu: 16 aura eintakift — 26 aura me?5 Lesbók. VERKFALLS-VOPNIÐ Alþýðuflokkurinn hefir bygt tilveru sína á verkföllum. Hjer á árum áður gátu ýms •atvinnufyrirtæki greitt hærra kaup en greitt var. Rekstur 'þeirra þoldi kauphækkun, án :þess til tapreksturs kæmi. Þetta vissi fólkið, sem við fyrirtækin vann. Eigendur fyrirtækjanna aftur á móti vildu auka fjár- ®aagn sitt, starfræksluna, veita fieira og fleira fólki atvinnu, auka framleiðslu sína, og ljetu sumir þeirrra sig litlu skifta, iþótt það kaup, sem þeir greiddu væri ekki nákvæmlega það hæsta, sem fyrirtækin ,'þoldu. Alþýðuflokkurinn stofnaði til 'samtaka verkafólksins. Hann ttólc upp verkfallsvopnið. Meðan su hreyfing var ung hjer á landi undu ýmsir menn henni ákaf- lega illa, svo til úlfúðar kom og illinda og fulls fjandskapar. I hvert sinn sem iliindi mögn- uðust, brostu forvígismenn Al- þýðuflokksins í kampinn. Þeir sáu stjettarhatrið loga, hatrið, sem átti að efla verkfallssam- tökin, og skara eld að köku Alþýðuflokksbroddanna. Þeir •sáu í anda hið ísl. þjóðfjelag skift í sundurleitar stjettir, sem okkert gat sameinað, og vonað- ist eftir, að því glaðara sem stjettarhatrið logaði, þeim mun erfiðari yrði afkoma alls al- mennings, þeim mun fjölmenn- •ari yrði „öreigastjettin“, sem skoðaði verkfallsvopnið sitt aðalbjargráð gegnum erfiðleika lífsins. * Tímarnir breytast. Meðan til voru þau fyrirtæki í landinu og þær atvinnugreinar, sem greiddu óhæfilega lágt kaup, unnu verklýðssamtök þau, sem Alþýðuflokkurinn stjórnar, þarft verk. Það er öllum lands- lýð fyrir bestu að kaupgjaldið geti verið sem hæst, án þess það skerði möguleika atvinnu- veganna til heilbrigðrar fram- þróunar. En þegar ,,verkfallsvopnið“ var einu sinni komið á loft, ■og það hafði veitt nokkrum flokksforingjum Alþýðuflokks- ins pólitískt brautargengi, þá var haldið áfram að^beita þeim hinum sömu aðferðum, alveg án þillits til þess, hvort atvinnu- vegir þeir, sem átt var í höggi við, gætu staðist kaupkröfurn- ar. Nú hefir stjórn setið hjer að völdum um skeið, sem hækkað hefir ríkisútgjöldin um eina miljón á ári að meðaltali. í tíu ár hefir sú hækkun átt sjer stað. Þessar 10 miljónir verður framleiðsla landsmanna að bera beinlinis og óbeinlínis, um fram það, sem hún bar 1927. Því er haldið fram að þetta fje sje af þjóðinni tekið, til þess að hjálpa henni, atvinnuvegun- um og öllu bágstöddu fólki í landinu. Hjálpin, sem fæst fyrir þessar 10 miljónir virðast vera með svipuðum hætti, og ef mað- ur væri flettur klæðum, fötin klipt í pjötlur og rifrildi af skjólflíkunum síðan saumað hjer og þar inn í bjórinn. * En geta má nærri, að þegar ríkisstjórn hefir hækkað svo gífurlega kröfur sínar til lands- fólksins, er getan minni til þess að standast kröfur um hækkað kaup en áður var. Jafnframt aukast vandræði íls almennings í landinu vegna sívaxandi dýrtíðar, er stafar af hækkandi tollum og sköttum. ¥ Undir þessum kringumstæð- um er verkfallsvopnið ekki lengur „sverð og skjöldur“ verkalýðsins í landinu, og síst meðan því er beitt eins og tíðk- ast hefir. Alt fram á þennan dag hafa foringjar Alþýðuflokksins efnt til verkfalla með slíkum forsend um, að það sje rjett eins og þeir blandi saman árum og dögum, og mánuð hvern telji þeir heila mannsæfi. Því verkföllin miða þeir alt af við það, hvað hver maður skuli bera úr býtum þær ■agstundir, sem hann vinnur, án þess að það komi málinu nokkra minstu vitund við, hve miklar tekjur menn geta fengið yfir árið. Yið fiskiveiðar miðar því starf verkfallsmanna að því, að stytta veiðitíma skipanna. Og við alla atvinnu á landi sem sjó, verða hinar einhæfu kaup- hækkunarkröfur til þess að fækka atvinnudögum, fjölga at- vinnuleysingjum, lengja atvinnu leysistímann og auka yfirleitt á vandræði þjóðarinnar og bág- indi fólksins. Því síðan Hambros banki tók fjármálaráðherrann okkur í bóndabeygju verður tap reksturinn ekki jafnaður með erlendum lánum. Um tíma urðu úrslitin betri í þessum viðureignum fyrir Al- þýðuflokksbroddana, en efni stóðu raunverulega til. Því þó mörg atvinnufyrirtæki lands- manna, og þá einkum sjávar- útvegurinn, væri rekinn í tap- rekstri, þá var hallinn jafnaður í bili, með því að veita erlendu lánsfje óspart inn í landið. Með þessu erlenda lánsfje var tapið .greitt. Listi Sjálfstæðismanna og ó- háðra borgara við bæjarstjórnar- kosningarnar á Akureyri, er nú fullskipaður. I gær var sagt frá 6 efstu mönnum listans. Hinir eru: Jón Guðlaugsson fulltrúi, Jónas Jensson símritari, Elinborg Jónsdóttir frú, Jón Solnæs banka ritari, Guðmundur Pjetursson út- gerðarmaður og Gunnlaugur Tr. Jónsson bólcsali. Hvernig byrjaði borgarasty rjöld i n O álft annað ár hefir * ■* styrjöld geisað á Spáni. Styrjöldin hófst 17. júlí 1936, er fascist- ar og konungssinnar gerðu sameiginlega upp reisn gegn hinu ,,flekk- lausa“ lýðveldi, sem svo var kallað vegna þess, að það hafði verið sett á stofn án bióðsúthell- inga. Blóðbaðið, er síð- an hefir gengið yfir spönsku þjóðina hefir þó jafnað metin og það margfaít. Hjer verður ekki farið lengra aftur í tímann til þess að rekja upptökin að spönsku styrjöldinni en til febrúar 1936. Það er auðvitað hægt að rekja orsakir byltingarinnar miklu lengra aftur í tímann. Frá því að hið „flekklausa“ lýðveldi var sett á stofn 1931 og þar til 1936, blossuðu hvað eftir ann- að blóðugar óeirðir, ýmist gegn vinstri stjórn eða hægri stjórn, eftir því hvor með völdin fór, víðsvegar um Spán. Haustið 1934 stóðu blóðugar orustur milli hægri stjórnar og vinstri- uppreisnarmanna í Madrid og fleiri stórborgum á Spáni. * Það hefir stundum verið á það bent, að ástandið á Spáni hafi verið svipað árið 1931 og í Frakklandi árið 1789, þegar franska byltingin hófst. Ógur- legt djúp var staðfest milli auðugra jarðeigenda cg landlausra bænda, ríkra kirkju höfðingja og presta, sem ekki höfðu málungi matar, hálaun- aðra hershöfðingja og liðsfor- ingja, sem ekki höfðu nægileg laun til þess að íæða sig og klæða. Helmingur þjóðarinnar kunni hvorki að lesa nje skrifa. í Frakklandi var ráðið frarn úr þessu misræmi með blóðugri byltingu: jörðum var skift upp meðal bænda, forrjettindin voru þurkuð út, og rjettlætið sett í hásæti. Á Spáni var einn- ig gerð bylting — en án blóðs- úthellinga og hið nýja lýðveldi vann það eitt að gera hina ríku óánægða, án þess að gera hina fátælcu ánægða, svo að engir töldu óskum sínum fullnægt með hinu nýja stjórnarfari. * 1 febrúar 1936 söfnuðust hin andstæðu öfl, sem börðust um völdin á Spáni, hvort undir sitt merki til úrslitabaráttu: hægri- okkarnir undir merki fascism- ans og konungdóms, og vinstri- flokkarnir í alþýðufylkingu. — Almennar kosningar til spánska þingsins áttu að fara fram 12. febrúar. Sotelo, foringi konungs sinna sagði rjett fyrir kosning- arnar að „lýðræði á Spáni hlyti óhjákvæmilega að leiða til kom 1 múnisma". á Spáni? Til þess að skilja utanríkismál, þarf að fylgjast með þeim. frá byrjun. Margir hafa gleymt því, eða aldrei fylgst með því, hvernig styrjöldin á Spáni braust út. Hjer er grein úr ensku blaði, sem lýsir því, hvernig Spánarstyrjöldin hófst. Frá fyrstu dögum styrjaldarinnar, Myndin í horninu er af Sotelo. Kosningarnar fóru þannig að alþýðufylldngin — lýðræðið • — sigraði. Uppreisnarmenn á Spáni | halda því jafnan fram, að gíi-| urleg svik hafi verið í cafli í kosningunum og því hafi verið ■ þannig fyrir komið að hægri- flokkarnir hefðu aldrei getað' unnið. En hvað um það : alþýðu ! fylkingin myndaði stjórn. En í mars kom það strax; fram að andstöðuflokkarnir j ætluðu ekki að fella sig við dóm 1 kosninganna, hvort sem hann I nú var rjettur eða falsaður. ■— Það fór að bera á morðum og , óeirðum. Notaðar voru stiga-1 mannaaðferðir, skotið var á 1 fólk með vjelbyssum úr bif-1 reiðum á hraðri ferð. Einu sinni var gerð tilraun til að mvrða i spánska þingmanninn Asua á! þenna hátt. Asua komst undan, en vinur hans var drepinn. Önnur dæmi mætti nefna um það að sósíalistar hafi myrt málsmetandi menn innan hægri flokkanna. Það varð liósara með degi hverjum að alþýðu- fylkingarstjórnin gat ekki hald- ið uppi lögum og reglu. í apríl fóru að heyrast radd- ir um það, að í undirbúningi væri að setja á stofn hernaðar- einræði á Spáni. Daginn fyrir afmælisdag spánska lýðveldis- ins (12. apríl) var setudóm- arinn, sem átti að dæma í máli þeirra manna, sem ákærðir vor.u um að hafa myrt vin Asua, myrtur. Til hefnda, rjeðust and fascistar á aðalbækistöö fas- cista í Madrid og myrtu þá, sem þar voru fyrir. Um miðjan júní uppgötvaði stjórnin að spánskir hershöfð- ingjar höfðu mikinn undirbún- ing undir að taka völdin í sín- ar hendur. Vopnum hafði verið smyglað í stórum stíl og liðs- foringjar, sem ekki höfðu á sjer gott orð um trúnað við al- þýðufylkinguna höfðu verið settir í hernaðarlega mikilvæg- ar stöður. Til vinstri ríkti megn óá- nægja, sem blásið var af anar- kistum; 250 þúsund verkamenn gerðu verkfall og jók það mjög á erfiðileika stjórnarinnar. * ’TT'ólfta júlí sást fyrsta leiftrið á fj himnuin, sem boðaði óveðr- ið. Castillo liðsforingi, sem var vinsæll foringi meðal and-fascista, var myrtur þann dag. Sex klukku stundum síðar var Calvo Sotelo, foringi hægrimanna myrtur. Hann var lokkaður frá heimili sínu undir því yfirskyni, að lögregl- an gerði boð eftir honum, og myrtur á víðavangi. í spánska þinginu tók spánska stjórnin svari morðingjanna, þar sem So- I telo liafi verið myrtur í liefnd- ! arskyni fyrir morðið á Castillo. I Þegar þessir tveir menn voru bornir til grafar, var alt með ; kyrrum kjörum í Madrid. En það i var aðeins lognið, áður en óveðr- ■ ið skall á. ' Seytjánda júlí hófst byltingin | fyrst í Ceúta og Manilla í ' spánska Marokko og á Kanarí- j : eyjum. I FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.