Morgunblaðið - 10.02.1938, Blaðsíða 7
Fimtudagur 10. febr. 1938.
MORGUNB L AÐItí
7
Dagbók.
I. 0. 0. F. 5. = 1192108y2 — 9.0.
Xjettskýjað.
Veðrið (miðvikudagskv. kl. 5):
NA- eða N-kaldi um alt land með
1—4 st. frosti. Sumst. snjójel norð
an lands, en úrkomulaust syðra.
Lægð við SA-strönd landsins á
hreyfingu austur eftir.
Næturlæknir er í nótt Halldór
Stefánsson, Ránargötu 12. Sími
2234.
Næturvörður er í Reykjavíkur
Apóteki og Lyfjabúðinni Iðunn.
Sextugsafmæli á í dag Arnbjörg
Cruðmundsdóttir, Iíörpugötu 13,
Skerjafirði.
Hjúskapur. S.l. laugardag voru
gefin saman í hjónaband Iðunn
Geirdal og Þórður Ásgeirsson lög-
regluþjónn. Heimili þeirra er á
Ránargötu 10.
Kristniboðsfjelag kvenna held-
nr aðalfund sinn í dag kl. 4.30
á venjulegum stað.
Spegillinn kemur út á morgun.
E.s. Hekla kom í fyrrakvöld.
B.v. Maí frá Hafnarfirði kom
liingað í gær til viðgerðar.
ísfisksala. Gulltoppur seldi afla
sinn í Hull í fyrradag, 1873 vætt-
ir, fyrir 1808 sterlingspund.
Síldarsöltunarstöð Sauðárkróks
er nú áuglýst til leigu fyrir næstu
síldarvertíð.
„Fyrirvinnan“, sjónleikur sá
sem Leikfjelag Reykjavíkur sýnir
í 3. sinn í kvöld.
Anglia heldur aðalfund sinn að
Hótel Borg kl. 8% í kvöld. Þar
flytur prófessor A. Lodewyckx
fyrirlestur um landnám Ástralíu.
Að lokum verður dans.
En?skip. Gullfoss kom til
Reykjavíkur í gærkvöldi kl. 9.
Goðafoss var á Siglufirði í gær-
morgun. Brúarfoss er á leið til
Leith frá Kaupmannahöfn. Detti-
fess er á leið til Hamborgar frá
Grimsby. Lagarfoss er í Reykja-
vík. Selfoss er væntanlegur til
Reykjavíkur í dag.
Frá Vestmannaeyjum reru um
30 bátar í gær. Afli var tregur;
hæst 800 á bát.
K. F. U. M. A. D.-fundur í
kvöld kl. 8V2. Síra Priðrik Frið-
riksson talar. Allir karlmenn vel-
komnir.
Skemtifund halda Sjálfstæðis-
fjelögin Vörður, Heimdallur og
Hvöt n.k. þriðjudag fyrir þá sem
ttnnu fyrir Sjálfstæðisflokkinn við
bæjarstjórnarkosningarnar. — Til
skemtunar verður: Kaffidrykkja,
ræðuhöld, söngur og dans. Fje-
lögin bjóða starfsfólkinu á skemti-
fundi þessa. Aðgöngumiða á að
vitja á skrifstofu Sjálfstæðis-
flokksins í Mjólkurfjelagshúsinu
fyrir klukkan 7 á laúgardags-
kvöld.
Ferðafjelag íslands hjelt skemti
fund að Hótel Borg á þriðjudags-
kvöldið. Guðmundur Einarsson
myndhöggvari flutti mjög fróð-
legt erindi um sumar- og vetrar-
ferðalög í Alpafjöllum, klif á hina
bröttu tinda og skíðaferðir. Þá
sýndi hann fjölda skuggamynda
til skýringar erindi sínu. Var frá-
sögn hans hin skemtilegasta og
gerður ágætur rómur að. Á skemt
uninni voru nær 300 manns og
var dans stiginn til kl. 1.
Aðaldansleik Skíða- og skauta-
fjelags Hafnarfjarðar, er haldinn
skyldi 12. þ. m., verður frestað.
Nánar auglýst síðar.
Ríkisskip. Esja var væntanleg
til Norðfjarðar kl. 8 í gærkvöldi.
Peningagjafir til Vetrarhjálpar-
innar. Starfsf. hjá Kolaversl. Sig.
Ólafssonar 20 kr., starfsf. á Skatt-
stofunni 45 kr., starfsf. hjá Efna-
gerð Reykjavíkur 50 kr., starfsf.
hjá Raftækjaversl. Jóns Sigurðs-
sonar 15 kr., starfsfólk á Hótel
Borg. 89 kr., starfsf. hjá Litir og
Lökk 22 kr., starfsf. hjá Lands-
banka íslands kr. 156.50, Hljóm-
sveit K. R.-hússins, ágóði af dans-
leik 9. jan., 50 kr., S. Þ. & G. P.
12 kr., starfsf. á borgarstjóraskrif-
stofunni 125 kr., starfsmenn hjá
Jóni Halldórssyni & Co. 30 kr.,
ágóði. af dansleik í G. T.-húsinu
15. jan. 1938 kr. 88.50, starfsf.
hjá þvottahúsinu „Drífa“ 17 kr.,
starfsf. "hjá Álafoss Þingh.st. 2 20
kr„ starfsf. hjá prentsmiðjunni
Edda 8 kr., starfsf. hjá Alþýðu-
brauðgerðinni 20 kr., áheit 20 kr.,
M. R. 30 kr., starfsf. í Laugavegs
Apóteki 54 kr., starfsf. hjá Versl.
Edinborg 38 kr. Kærar þakkir. F.
h. Vetrarhjálparinnar. Stefán A.
Pálsson.
ÚtvarpiS:
Fimtudagur 10. febróar.
8.30 Dönskukensla.
10.00 Veðurfregnir.
12.00 Iládegisútvarp.
15.00 Veðurfregnir.
18.45 Þýskukensla.
19.10 Veðurfregnir.
19.20 Lesin dagskrá næstu viku.
19.30 Hljómplötur: Lúðrasveitar-
lög.
19.50 Frjettir.
20.15 Erindi; Shakespeare og leik-
listin á hans dögum, I. (Har-
aldur Björnsson leikari).
20.40 Hljómplötur: Píanólög.
21.00 Frá útlöndum.
21.15 Útvarpshljómsveitin leikur.
21.45 Hljómplötur: Andleg tón-
list.
FIMM ÚTVARPSKVÖLD
NORRÆNA FJELAGSINS
Norræna f jelagið hefir ákveðið að
gangast fyrir 5 útvarpskvöldum í
vetur, eitt kvöld fyrir hvert land,
og var fyrsta útvarpskvöldið fyrir
nokkru síðan, danskt kvöld. Á
öllum þessum útvarpskvöldum
flytja sendiherrar eða ræðismenn
landanna ávörp. þektir fræðimenn
flytja erindi, endurvarp verður
frá hinum löndunum í tilefni af
þessum útvarpskvöldum, þá verð-
ur íslenskur karlakórssÖngur og
norræn nuisík. Síðasta kvöldið
verður íslenskt kvöld, sem sniðið
verður til endurvarps um öll hin
Norðurlöndin.
Loks gangast fjelögin fyrir
blaðamannamóti í Stokkhólmi í
maí og verður 2—3 ísl. blaða-
mönnuni boðið þangað.
Vðrðar - Ileimdallur - Hvðl
Sjálfstæðisfjelðgin I Reykjavfk
bjóða öllum þeim, sem unnu fyrir Sjálfstæðisflokkinn við
bæjarstjórnarkosningarnar, á
skemlifund,
aem haldinn verður að Hótel Borg og Hótel ísland n.k.
þriðjudagskvöld kl. 8y2.
Aðgöngumiða sje vitjað á skrifstofu Sjálístæðisflokks-
ins í Mjólkurfjelagshúsinu fyrir kl. 7 á laugardagskvöld.
STJÓRNIR FJELAGANNA.
Sími 1380. LITLA BILSTflBIH Er nokkuð stór.
Opin allan sóiarhringmn.
m fefmiNi ÍOl
Sauðárkróks
fæst á leigu næsta sumar. Allar upyíýsingar gefur •
HAFNARNEFND SAUÐÁRKRÓKS |
og skulu leigutilboð send henni fyrir 10. mars n.k. ;
Stefnir F. V. S.
Hafnarfirðl
heldur aðalfund í kvöld kl. 8V2 að Hótel Hafnarfjörður.
FUND AREFNI:
1. Inntaka nýrra fjelaga.
2. Aðalfundarstörf samkvæmt fjelagslögum.
3. Ýms mál.
Skorað er á fjelaga að fjölmenna.
Æskumenn! Eflið samtök ungra Sjálfstæðismanna og
gangið í fjelagið á fundinum í kvöld.
STJÓRNIN.
Hessian, 7Z og 50”
Binðigarn og saumgarn
5altpokar
ávalt fyrirliggjandi.
ÓLAFUR CÍSLASONC) cr/Á
Sími 1370. (S-AjoJZ/f
REYKJAVÍK
I — —
Jón Snorri Árnason
fyrrum kaupmaður á Isafirði andaðist á Elliheimilinu þ. 9. þ. m.
Aðstandendur.
Jarðarför konunnar minnar og móður okkar,
Ingibjargar Jónsdóttur,
Kiðafelli í Kjós, sem andaðist 1. febr., fer fram laugardaginn
12. febr. nJt. Hefst með húskveðju kl. 11. fyrir hádegi.
Ólafur Ólafsson og böm.
Jarðarför mannsins míns, föður okkar og tengdaföður,
Jónasar Jónssonar,
fer fram föstudaginn 11. febrúar og hefst með húskveðju að
heimili hans, Hverfisgötu 66, kl. 1 e. hád. Jarðað verður í gamla
kirk jugarðinum.
Margrjet Magnúsdóttir.
Guðlaug Jónasdóttir. Þorlákur Guðmundsson.
Jarðarför móður minnar og tengdamóður,
Elínar Jónsdóttur,
frá Oddgeirshólnm, fer fram frá fríkirkjnnni föstudaginn 11.
febrúar og hefst með húskveðju að heimili hennar, Austurgötu
4, Hafnarfirði, kl. 1 eftir hádegi.
Jarðað verður að Görðum.
Athöfninni í kirkjnnni verður útvarpað.
Ágústa Jónsdóttir, Guðmnndur Hróbjartsson og systkim.
Þökkum hjartanlega sýnda hluttekningu við fráfall og
jarðarför,
Björns Hjálmarssonar,
Hallveigarstíg 6.
Aðstandendur.
i