Morgunblaðið - 12.02.1938, Blaðsíða 2
2
Laugardagur 12. febr. 1938.
MORGUNBLAÐiÐ
Hvað er að gerast í Þýskalanði?
Hernaðar-
eiiiræði í
Rúmeníu
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
T7' aroi konungur neyddi
“ Octavian Goga,
skáld og fasista-forsæt-
isráðherra Rúmena til
þess að biðjast lausnar
í gærkvöldi vegna þess
að hæstir jettur hafi kveð
ið upp þann úrskurð að
Gyðingalöggjöf hans
væri ósamrýmanleg
hinni rúmensku stjórnar-
skrá. En auk þess hafa
Gyðingaofsóknir undan-
farinna mánaða laimað
utanríkisverslun Rúm-
ena.
Karol konungur kvaddi Mir-
on patriark til þess að mynda
nýja stjórn. Samtímis lýsti
konungur yfir hernaðarein-
rœði og alt landið í hernaðar-
ástand. Herinn verður látinn
taka að sjer stjórn allra innan-
landsmála.
Það kemur ekki á óvart, að
hernaðareinræði skuli hafa ver
ið stofnað. Eftir að Goga tók
við völdum fyrir nokkrum mán-
uðum, hefir hvað eftir annað
verið rætt um að stjórn hans
væri aðeins undanfari einræð-
is konungs. Kosningar eiga að
fara fram í Rúmeníu í byrjun
næsta mánaðar.
Miðflokkastjórn.
London í gær. PÚ.
Frjettaritari Reuters lýsir
nýju stjórninni sem miðflokka-
stjórn, sem hneigist til hægri.
Varaforsætisráðherra og ut-
anríkisráðherra er Tatarescu,
fyrverandi forsætisráðherra.
Auk þess eiga sæti í stjórninni
allir fyrv. forsætisráðherrar
nema Goga og Codreanu, for-
maður „járnvarðanna".
Hvarf rússneska
sendiherrans.
Frjettaritari -Reuters í Buk-
jharest heldur því fram, að á-
stæðan til þess, að Goga var
látinn fara frá völdum, hafi ver
ið mjög harðort mótmælaskjal
sem rússnesku stjórninni barst í
fyrradag frá stjórn Sovjet-Rúss-
lands, út af hvarfi rússneska
sendiherrans í Bukarest.
(Rússneski sendiherrann í
Bukarest hvarf fyrir nokkrum
dögum og hefir ekkert til hans
spurst. Fasistar hafa haldið því
fram, að rússneska leynilögregl
an (G.P.U.) hafi rænt honum,
en aðrir segja, að rúmenskir
fasistar hafi myrt hann).
London í gær. FÚ.
Georg Bretakonungur tilkynti
í gær, að hann myndi ekki fara
til Indlands, til þess að láta
krýna sig á þessu ári, eins og
áður hafði verið gert ráð fyrir,
Octavian Goga,
Viðvörun Japana
til Rossevelts
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
Reuter-skeyti frá Shanghai
hermir, að fundist hafi fyr
ir utan dyr hermálasjerfræð-
ings Bandaríkjamanna þar af-
höggvið höfuð Kínverja með
þessari áletrun:
„Viðvörun til óvina Japana“.
Sakaruppgjöf.
Lóndon í gær. FÚ.
Þrjú hundruð þúsund mönn-
um sem setið hafa í fangabúð-
um í Japan fyrir pólitískar sak-
ir, hafa verið gefnar upp sakir
í dag, í tilefni af því að liðin
eru 50 ár síðan hin nýja stjórn-
arskrá gekk í gildi.
SÆBJÖRG LEGGUR AF
STAÐ HEIM í DAG.
Khöfn í gær. FÚ.
r r
Tslensk áhöfn hefir nú tekið
við björgunarskútunni „Sæ-
björg“ og er gert ráð fyrir, að
skipið leggi af stað heimleiðis
í dag.
Þorsteinn skipstjóri Þor-
steinsson í Þórshamri í Reykja-
vík, sem sjeð hefir um smíði
segir í viðtali við Ber-
linske Tidende, að Slysavarna-
fjelag íslands myndi fúslega
vilja láta smíða annað skip í
Danmörku.
En hann taldi þó líklegt að
ekki gæti af því orðið. Fyrst
og fremst af gjaldeyris ástæð-
um, með því að viðskiftajöfn-
uður íslands Danmerkur
væri íslandi svo mjög óhag-
stæður.
Orðrómur um uppreisn
og flótta herforingja:
Þýski krónprinsinn
vegabrjefslaus í Italíu
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
Þrátt fyrir stöðug mótmæli af hálfu hins
opinbera í Þýskalandi, hefir ekki tek-
ist áð kveða niður þann orðróm, að
alvarleg óánægja ríki innan þýska hersins út af
breytingu þeirri, sem gerð hefir verið á yfirstjórn
hans. Er á það bent, að öllurn fregnum um vænt-
anlegt valdaafsal von Blombergs var mótmælt,
þar til valdaafsalið var orðin staðreynd.
Lausafregnir ganga um það, að foringjar
hersins í Pommern og Austur-Prússlandi hafi
gert uppreisn og neitað að hlýða hinni nýju her-
stjórn þar.
Margir herforingjanna voru teknir fast-
is, en sumir komust undan á flótta til Póllands.
Það fylgdi fregninni, að landamæraverðir hafi
skotið herforingja á flótta.
Italíuferðalag krónprinsins.
önnur fregn hermir, að Vilhjálmur krónprins, (sonur Vil-
hjálms II.) hafi flúið til ítalíu.
Krónprinsinn fór í ferðalag til Norður-ftalíu 2.
febrúar, án þess að hafa með sjer vegabrjef. Hann neit-
ar því þá að hann hafi flúið og segir að einn af þjónum
hans hafi gleymt vegabrjefinu heima!
Breska frjettastofan „Exchange Telegraph“ skýrir frá því
að Gestapo menn (Gestapo er ríkisleynilögregla Hitlers) hafi
undanfarið gert húsleit hjá herforingjum í Rínarhjeruðunum,
sem ekki eru nazistar og hjá vinum þeirra. Margir hafa verið
teknir fastir. Frjettastofan heldur því fram, að margir her-
foringjar og stóriðnaðarmenn hafi flúið til útlanda, þ. á. m.
sex herforingjar til Austurríkis.
Eimskip. Gullfoss er í Reykja-
vík. Goðafoss er á leið til ísa-
fjarðar frá Siglufirði. Brúarfoss
fór frá Leith í gær áleiðis til
Vestmannaeyja. Dettifoss er í
Hamborg. Lagarfoss fór austur
um land til útlanda í gærkvöldi
kl. 8. Selfoss er í Reykjavík.
Ekkert af þessum frjettum
hefir fengist staðfest, þvert á
móti, þeim er öllum mótmælt
og fullyrt að þær sjeu t unn-
ar undan rifjum Gyðinga í
Póllandi.
Ekki uppreisn —
Þeir sem kunnugir eru, telja
fregnina um uppreisn herfor-
ingjanna í Pommern og Austur-
Prússlandi rangar, en viður-
kenna að breytingar þær, sem
gerðár hafa verið á stjórn hers-
ins, mælist mjög illa fyrir með-
al hinna tiginbornu herforingja
í þessum hjeruðum. Þetta er að
viðurkent meðal þýskra nazista.
von Blomberg var áður en hann
gerðist hermálaráðherra, setu-
liðsforingi í Königsberg í Aust-
ur-Prússlandi.
Hreinsunin
heldur áfram.
En þessi andstaða hefir engin
óhrif haft á stjórnina. Frjetta-
ritari Berlingske Tidende 1
Khöfn símar að „hreinsunin"
innan hersins haldi áfram, og
að þvi sje stefnt með fullum
krafti að gera alla foringja hers
ins að nazistum. Gestapomenn
og S. S. foringjar rannsaka ná-
kvæmlega skrána yfir starfandi
herforingja og þeir sem ekki
eru nazistar eru annaðhvort
reknir úr embættum, eða fluttir
á hernaðarlega lítilvæga staði.
I stað foringjanna, sein sagt
— Þjóðverjar —
og ítalir
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
Skeyti til „The Times“ frá
Múnchen segir að „Verein
Deutschtums im Ausland“
(fjelag þjóðverja erlendis)
hafi sett upp götuspjöld þar
sem letrað er: „Trúið ekki
lygum Itala. ftalir ofsækja
Þjóðverja í Suður-Tyrol“.
Enginn liðs-
samdráttur.
London í gær. FÚ.
I Róm hefir verið tilkynt
opinberlega, að frjett sem
barst út frá Vínarborg í gær,
um að ítalska stjórnin hefði
sent herlið til norður landa-
mæranna, hefði ekki við neitl
að styðjast.
NORSKT SKIP SENT
TIL AÐSTOÐAR fS-
JAKA-RÚSSUNUM.
Khöfn í gær. FÚ.
Norski landvarnarmálaráð-
herrann hefir gefið fyrir-
skipun um að eftirlitsskipið
Frithjof Nansen skuli leitast við
að koma Papininleiðangurs-
mönnunum til hjálpar, þar sem
þeir eru á reki á ísnum. Hugs-
anlegt er einnig að fleiri norsk
skip sem eru á veiðum í nánd
við ísland geri tilraun til þess
að hjálpa leiðangursmönnun-
um.
er upp, er búist við að settir
verði foringjar S. S. (svart-
stakka) fjelaginu.
„Gamli skólinn“.
Loudon í gær. FÚ.
Nokkrir embættismenn Naz-
istaflokksins hafa kannast við
það fyrir blaðamönnum, að
„hreingemingarstarfsemi“ ætti
sjer stað meðal embættismanna
þýska hersins og að nokkrir
þeirra, sem væru „af gamla
skólanum“ hefðu reynst erfið-
ir upp á síðkastið.
Blöð í Þýskalandi birta annars
ekkert um orðróminn um mót-
þróa innan hersins, nje um skrif
erlendra blaða í gær.
En í gær birti eitt af helstu
blöðum Þýskalands utan Ber-
línar grein um afstöðu hersins
til þjóðfjelagsheildarinnar, þar
segir, að ópólitískur her sje
gagnbyltingartæki. Herinn hafi
enga þá sjerstöðu í þjóðfjelag-
inu, sem rjettlæti það, að hann
hafi sín eigin lög. Her Þýska-
lands hljóti að vera nazistaher
og lúta flokkslögunum.
Til þess að kveða niður fregn-
irnar í erlendum blöðum um á-
standið í Þýskalandi kallaði
fulltrúi dr. Göbbels í þýska ut-
nríkisráðuneytinu dr. Bernt(?)
í dag á fund sinn alla erlenda
EKKERT ÁKVEÐIÐ
UM FLUG FRÁ NOR-
EGI TIL ÍSLANDS.
Khöfn í gær. FÚ.
C tj órn norska f lugf j elagsins
^ skýrir frjettaritara útvarps
ins í Kaupmannahöfn frá því,
að ennþá sje ekkert afráðið um
það, hvenæv flug geti hafist á
milli Noregs og Islands og lætur
þess getið um leið, að þetta. mál
hafi ennþá ekki verið rætt í
fullri alvöru milli fulltrúa frá
fjelaginu og íslenskra stjórnar-
valda.
Hinsvegar hljóti samvinna
Danmerkur og Islands að hafa
mjög mikla þýðingu fyrir fram-
gang málsins.
ÓSIGUR DE VALERA.
FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU.
London í gær. FÚ.
Qtjórn Craigavons lávarðar í
Norður-Irlandi hefir hlotið
yfirgnæfandi meirihluta í þing-
kosningunum sem fóru fram í
fyrradag. Enn er ófrjett úr fjór-
um kjördæmum, en fyrri þing-
menn þeirra voru allir úr flokki
Craigavons.
Auk þess hefir flokkurinn
hlotið 35 þingsæti af 52.
Árshátíð sína heldur St. Verð-
andi í kvöld í G. T.-húsinu. Hefst
hun kl. 8y2. Verður þar ýmislegt
til skemtunar haft, svo s|m kvart-
ettsöngur, gamanvísnásongur, leik
sýning og dans.