Morgunblaðið - 12.02.1938, Qupperneq 3
Laugardagur 12. febr. 1938.
MORGUNBLAÐIÐ
3
000000000000000000000000<xx>000000000'
*
Krónprinsinn sagður
flúinn frá Þýskalandi
Vilhjálmur krónprins kona hans og barnabarn.
Tiu gráðum heitara
valn í vestari sprung-
unni á Reykjum
Ivetur þegar stjórnarblöðin gerðu síðustu árás sína
á hitaveituna frá Reykjum, og slógu því fram,
að þar myndi aldrei fást nægilegur jarðhiti, rit-
aði Helgi Sigurðsson verkfræðingur greinargerð hjer í
blaðið um það mál, þar sem hann m. a. skýrði frá, að
sprungurnar eru tvær á Reykjum, en ekki var þá farið að
hreyfa við vestari sprungunni, til þess að fá þar vatn í
hitaveituna.
Utanríkisversl-
unin í janúar
Utflutningurinn varð tæpri
miljón krónum minni í
janúar í ár, en í fyrra, en inn-
flutningurinn tæpri miljón krón
um meiri en í fyrra. Útkoman
hefir því orðið sú, að í stað
tæpl. 700 þús. króna hagstæðs
verslunarjafnaðar í jan í fyrra,
er verslunarjöfnuðurinn nú ó-
hagstæður um rúml. miljón kr.
(Innflutt pr. 31. jan. kr. 2.555.-
830, útflutt 1.418.860).
Rýrnunin stafar fyrst og
fremst af minni saltfisksútflutn-
ingi (í fyrra 1.2 milj. krónur,
í ár 400 þús. krónur). ísfiskur
hafði verið fluttur úr fyrir
539.520 en var heldur meira í
fyrra.
Fiskbirgðir voru 31. janúar
2.317 tonn, 1937: 6925, 1935:
16.747.
PÓSTÞJÓFNAÐURINN
í LYRU.
óstmálastjórninni barst skeyti
í gær frá póstmeistarannm
í Bergen um það, að í vérðpóst-
pokanúm, sem stolið var úr Lyru,
hafi verið 74 ábyrgðarbrjef og' 4
þeningabrjef. Pokinn var 7 kg. að
þyngd.
Ekkert liefir upplýstst hver
valdur er að hvarfi pokans.
Nú er fyrsta borholan í vestari
sprungunni komin í 260—270
metra dýpi. Er það gamli borinn,
sem notaður hefir verið við þá
holu.
Fyrir nokkrum dögum byrjaði
að koma vatn upp úr þeirri holu,
og fer enn vaxandi. Var vatns-
magnið þegar það var mælt síð-
ast 4Ú2 lítri á sekúndú.
En það sem merkilegast
þykir við þetta nýja vatn er,
að það er 95° heitt. Meðal-
hiti í borholunum í austari
sprungunni er 85°, svo þarna
sýnir sig, að í vestari sprung-
unni er jarðhitinn meiri, en
í hinni austari.
Vatnsrennslið rir þessari liolu
hefir engin áhrif haft á rennslið
úr liinum eldri holum. Enda eru
engin líkindi til þess, þar sem
milli sprungnanna er basalt-„gang
ur“.
Stóri borinn er nú í svipuðu
dýpi og sá minni. .Upp úr þeirri
holu koma nú rúmlega 10 litr.ar
á sekúndu.
Alls koma nú úr borholunum
á Reykjum 132 lítrar á sekúndu.
Ur yfirboðsuppsprettum fást 40
lítrar af fullheitu vatni. Svo vatns
mágn til hitaveitu er nú þar efra
172 sekúndu-lítrar.
K. F. U. M. Almenn samkoma
annað kvöld kl. 8V2- Magnús Run
ólfsson talar. Efni: Er trúin opí-
um fyrir fólkiðf Allir velkomnir.
Er Haraldur Guðmundsson
með eða móti mjólkur-
hækkuninni? Tllllr Thors Mur
Verkamannaheimilin
óska svars
að er ekki til neins fyrir Alþýðublaðið, að vera
að neita þeirri staðreynd, að það var Haraldur
* Guðmundsson, ráðherra Alþýðuflokksins, sem
á síðasta þingi samdi um hækkun mjólkurverðsins og
trygði þar með sinn ráðherradóm enn um stund.
Haraldur Guðmunds^pp hafði að vísu sjálfur neitað
þessu opinberlega fyrir bæjarstjórnarkosningarnar, en þá
neitun tók enginn alvarlega.
Nú hefir hinsvegar Haraldur Gúðmundsson ágætt tækifæri til að
sýna í verki, að það sje gegn hans vilja að mjólkin hækki. Hann ev
ráðherra ennþá og hefir þ. a. 1. mikil völd. Ef það er virkilega þannig,
eins og Alþýðublaðið vill vera láta, að Haraldur öuðmundsson og Al-
þýðuflokkurinn sjeu á móti mjólkurhækluininni, þá er það
skylda Haralds Guðmundssonar, að mótmæla þessu með því að
segja tafarlaust af sjer, fái hg.nn ekki á annan hátt komið í veg
fyrir hækkunina.
Haraldur öuðmundsson getur ekki skotið sjer hjer undir það, að
þetta sje honum óviðkomandi, því að málið heyri undir landbúnaðar-
ráðherrann, en ekki hann.
Róðherra getur á hvaða tima
sem er gripið inn í afgreiðslu
máls, sem að forminú til heyrir
undir hans starfsbróður. Og þyki
ráðherra málið það mikils virði,
að hann telji afgreiðsluna óvið-
unandi, þá er það ekki aðeins
rjettur hans, að grípa inn í, held-
ur hrein og bein skylda.
Þetta ihál, hækkun mjólknrinn-
ar, snertir mjög tilfinnanlegá
hvern einasta íbúa Reykjávíkur
og Hafnarfjarðar. Og málið er
þannig vaxið, að það kemur lang-
samlega harðast niður einmitt á
því fólki, sein Haraldur öuð-
mundsson hefir alveg sjerstaklega
talið sig málssvara fyrir, og því
er það vitanlega alveg sjerstök
skylda hans, að grípa í taumana.
Verkamaiinaheimilin í Reykja-
vík og Hafnarfirði geta þesstegíia
nú sjálf tekið Harald öuðmunds-
son undir próf.
Ef Haraldur Guðmundsson er á
móti þeirri hækkun mjólkurinnar,
sem nú er ákveðin, ber honum
skylda til að svara því með lausn-
arbeiðni þegar í stað,
öeri ráðherrann það ekki, þá
hlýtur állur almenningur að sann
færast um það, að Haraldur Guð-
mundsson hafi á síðasta þihgi
samið um hækkunina, eins og
Morgunblaðið hefir altaf sagt.
Stenst Haraldur GuðmundssÖn
]>rófið?
Það er vitanlega ekki til neins
fyrir Alþýðublaðið, að vera að
vitna til Guðmundar R. Oddsson-
ar, sem greiddi atkvæði gegn
hækkuninni í Mjólkurverðlags-
nefnd, af þeirri einföldu ástæðu,
að hans atkvæði þurfti ekki með,
þar sem 3 Framsóknarmenn voru
fyrir í nefndinni, Þessi sami Guð-
mundui' Oddgson vann dagana á
undan með sömu Framsóknar-
mönnum í Mjólkursölunefnd, þar
sem verðhækkun mjólkurinnar var
undirbúin og frá henni gengið að
öllu leyti. Og þessi sami öuð-
mundnr sýndi best hug sinn til
málsins, þar sem það valt einmitt
á hans atkvæði í Mjólkurverðlags
nefnd, að því var neitað að verð-
haikkunin skyldi ganga til fram-
leiðenda neyslumjólkurinnar.
En nú er best að híða og sjá
hvort Haraldui' stenst prófið.
Skákþingið
8. umferll
Attunda umferð á Bkákþingi ís-
lendinga var tefld í fyrra-
kvöld.
Meistaraflokkur: Einar Þor-
valdsson 1, Asmundur Ásgeirsson
0; Baldur Möller og Guðbjartur
Vigfússon biðskák; Eggert Gilfer
og Steingrímur Guðmundssön hið-
skák.
Ásmuiídur háfði svart og ljek
konungs-indveHSkt. Einar hóf sókn
snemma í miðtaflinu og helt
henni skákina á enda. Stáðan
varð mjög flókin, vandasöm og
tímafrek. Ásmundur fekk einn
leik tækifæri til að ná jafntefli
en notfærði sjer það ekki og varð
mát íiokkriim leikjum seinna.
Guðbjartur hafði svart og» ljek
drotningar-indverskt. Baldur fekk
snemma betri stöðu og mun eiga
unna hiðskák.
Steingríniur hafði svart og ljek
drotningar-indvérskt. Fekk lak-
ari stöðu upp úr byrjuninni og
tapaði tveim peðum.
I. flokkur: Jón Þorvaldsson V2,
Sigurður Lárussoii Sæmundur
Olafsson og Jón Guðmundsson
biðskák.
Biðskákir úr öllurn flokkúm
verða tefldar ó morgun frá kl. 1.
Tíunda og síðasta umferð verð-
ur tefld annað kvöld frá kl. 8.
sýningarráðsins:
r Þór fram-
kvæmdarstjóri
Sýningarráð það, sem kösið
var um daginn, til að ann-
ast íslensku sýninguna í New
York, hefir nú kosið sjer for-
mann úr sínum hóp, Thor Thors
alþm, og Guðmund Vilhjálmsson
varafórmaim, Héfir verið ákveðið
verksvið ráðsins, m. a. ' áð’Tþáð
hafi yfirráð yfir fjármálum sýn-
ingariúnar. Ritarar hafa þeir ver-
ið kosnir Steingrímnr Steinþórs-
son og Emil Jónsson alþingismenn.
Sýningarráðið á að ákveða fyr-
irkomulag sýningarinnar í aðal-
dráttum.
Framkvæmdastjóri hefir verið
ráðinn Vilhjálmur Þór, og með
houum í framkvæmdastjórn Har-
aldur Árnason og Ragnar E.
Kvaran.
Vilhjálmur Þór er væntanlegur
til Reykjavíkur næstu daga.
l**l* **^*+l+*&l+*l**l* ******
f
T
Í
I
I
X
X
Skíðarferðir
á morguh
Ríkisskip. Esja var væntanleg
til Reykjavíkur í morgun.
Skíðafjelag Reykjavíkur fer í
skíðaferð að Lögbergi á moirgun
kl. 9 f. li. ef veður of færi leyfir.
í dag kl. 10y2 f. h. fer fyrsti nám
skeiðshópurinn austur í skíða-
skála og vei’ður norski skíða-
kennariun Otto Rollnes með í för-
inni.
í, R.-ingar fara í skíðaferð að
Lögbergi í fyrramálið ef veður og
færi leyfir. Fer þar fram úti-
kensla, sem átti að vera s.l. sunnu-
dag. Þátttakenduv eru miiitir á
að hafa með sjer flokkSmerki ög
skírteini. Aðgöngumiðar fást í
Stálhúsgögn, Laugaveg 11, til kl.
6 í kvöld. Eugir farmiðar vgrða
seldir við bílana.
Ármann fer í skíðaferð um helg
inu. Verður farið í dag kl. 4V2
og kl. 8 í kvöld. Ennfremur í
fyrramálið kl. 9. Farmiðar í
Brynju og skrifstofu fjelagsins
kl. 6—9 í kvöld. Engir farmiðar
verða seldir að morgni. Fýrir-
spurnum um ferðina el’ ekki svar-
að í síma í Brynju.
íþróttafjelag’ kvenna efnir til
skíðaferðar á morgun. Lagt af
stað frá Gamla Bíó ld. 9 árd.
Þátttaka tilkynnist ú síma 3140
kl. 6-—7 í kvöld.
Danmörk og Noregur hafa
gert með sjer nýjan verslunar-
samning. Eru í samningnum ýms
ákvæði sem ætluð eru til þess
að auka viðskifti milli þessara
landa. Meðal annars skuldbind-
ur Danmörk sig til þess að veita
meiri gjaldeyri til kaupa á
norskri framleiðslu. Sjerstak-
lega hvalolíu.