Morgunblaðið - 12.02.1938, Blaðsíða 7
Laugardagur 12. febr. 1938.
MORGUNB LAÐIi)
7
Á 12 klst. milli
Hafnarfjarðar og
Reykjavíkur!
Versta hríðarveður af austri
gerði hjer í bænum og um-
hverfi hans í fyrrakvöld. Hlóð
svo mikið niður af snjó, að
bílaumferð stöðvaðist í bænum.
Einnig varð vegurinn milli Hafn
arfjarðar og Reykjavíkur ófær
bílum. Voru nolckrir almennings
vagnar frá Hafnarfirði á leh'-
inni til Reykjavíkur, er hríðin
skall á og sátu þeir fastir.
Farþegarnir urðu að hafast
við í bílunum, en sumt komst
heim á bæi. Voru t. d. um 40
mans í Arnarnesi um nóttina.
Margir fóru gangandi, er veðr-
inu slotaði, og sumt fólk, sem
fór úr Hafnarfirði í fyrrakvöld
kl. 10, komst ekki í bæinn fyrr
•en á hádegi í gær.
Er þetta eitt hið versta veður,
sem hjer hefir komið lengi.
Útsala
Aðalstræti 10
Eftir áramótavörutalmngn,
höfum við ákveðið að selja
eftirtaldar vörur með mikið
lækkuðu verði, sumar alt að
hálf virði:
Spínat í dósum.
Gúrkur í dósxun.
Hunangslíki.
Hnetur.
Sardínur í tómat.
Sardínur í ediki.
Fíkjur í pökkum.
Grænar baunir í 1. v.
Succat.
Sinnep í pökkum.
Salt í pökkum.
Maccaroni.
Ostur (gammel).
Sósur
og ýmislegt fleira.
Framleiðam:
Skíðalúffur, Skinnlúffur,
Hanska, Belti,
Veski, Töskur,
Svefnpoka, Vattteppi,
Kerrupoka o. fl.
- Seljum aðeins í heildsölu. -
Magni h.f.
Bjargarstíg 2. Sími 2088.
Tedrykkjan einskonar
dauðadómur
Maður að nafni Barmin var
um skeið sendisveitarritari
við rússnesku sendisveitina í
Aþenu. Hann er nú flóttamaður,
og hefir aðsetur sitt í París.
Hann komst i tölu rússneskra
flóttamanna með þeim hætti, að
því er „The Times“ skýrir frá.
í höfninni í Piræus var rúss-
neskt herskip. Skipherrann hauð
Barmin út í skipið til tedrykkju.
Hann hafði fallið í ónáð sovjet-
yfirvaldanna, en var þó ekki bein-
línis fyrir skipað að koma heim
til Rússlands.
En er hann fekk hoðið til te-
drykkjunnar í hinu rússneska
skipi, ljet hann kurteislega í ljós
þá skoðun sína, að hann teldi það
betur fara að skipherrann kæmi
heldur í heimsókn til sín í landi.
En þegar ekki var við það kom-
andi, og hann átti nauðugur vilj-
ugur að fara út í skipið, tók hann
til fótanna og bað frönsku sendi-
sveitina um vegabrjef til Frakk-
lands.
Því hann leit svo á, að tedrykkj
an úti í hinu rússneska skipi yrði
sama sem að ganga *út í opinn
dauðann.
Fyrir
50 árum
ísafold 4. jan. 1888: — Þessir
fjórir voru kosnir í bæjarstjórn
hjer í gær af flokki hinna liærri
gjaldenda til 6 ára:
Halldór Kr. Friðriksson yfir-
kennari (endurkosinn) með 69
atkv.
Dr. J. Jónassen hjeraðslæknir
með 52 atkv.
Síra Þórhallur Bjarnason presta
skólakennari með 51 atkv.
Guðhr. Finnhogason konsúll
með 46 atkv.
Þar næst hlaut Kristján Jóns-
son yfirdómari 35 atkv. og Ind-
riði Einarsson revisor 26 atkv.,
en Kr. Ó. Þorgrímsson (fyrrum
bæjarfulltrúi) 12. — Þar af ann-
aðhvort eitt eða tvö í heyranda
hljóði, en hin öll með „innskrift“,
þ. e. skrifuðum seðlum, er annars
voru æðimikið tíðkaðir við allar
kosningarnar.
Síra Eiríkur Briem prestaskóla-
kennari afsagði fyrirfram að
taka á móti kosningu, en hlaut
þó 9—10 atkv.
Yfirdómari L. E. Sveinbjarn-
arson mótmælti kjörgengi dr. J.
Jónassens, af því að hann væri
í niðnrjöfnunarnefnd, en kjör-
stjórnin úrskurðaði á hinn veg-
inn.
Bæjarstjórnarkosniug þessi verð
ur líkast til einhvern tíma talin
merkileg í sögu landsins, fyrir
það, að það mun liafa verið í
fyrsta skifti, er kona hefir hag-
nýtt sjer kosningarrjett þann til
sveitarstjórnar, sem konum hjer
á landi var veittur með lögum
fyrir nær 6 árum og frægt er orð-
ið víða. Þær stóðu nú 10—12 á
kjörskrá hjer sem áður. Ein hafði
nú loks einurð á að koma á kjör-
fund.
Þessi eina, sem á kjörfund
kom og atkvæði greiddi, var hús-
frú Kristín Bjarnadóttir frá
Esjubergi.
Dagbók.
□ Edda 59382157 — Fyrl. Atkv.
Veðurútlit í Rvík í dag: Mink-
andi NV-átt. Úrkomulaust að
rrestu.
Veðrið (föstudagskvöld kl. 5):
Vestan lands er NV-átt með snörp
um skúrum eða jeljum og 1—3
st. hita. Austan lands er V-kaldi
og bjart veður. Alldjúp lægð fyrir
norðan land og austan á hreyfingu
austur eftir.
Næturlæknir er í nótt Kjartan
Ólafsson, Lækjargötu 6 B. Sími
2614.
Næturvörður er í Reykjavíkur
Apóteki og Lyfjabúðinni Iðunn.
Messur í dómkirkjunni á morg-
un — sjómannadagurinn: Kl. 11,
síra Bjarni Jónsson; kl. 2, harna-
guðsþjónnsta (sr. Fr. H.); kl. 5,
síra Friðrik Hallgrímsson. Við
guðsþjónusturnar verður tekið á
móti gjöfnm til starfsins á Sjó-
mannastofunni.
Messað í fríkirkjunni á morgun
(sjómannaguðsþjónusta), sr. Árni
Sigurðsson.
Sjómannamessa í Laugarnes-
skóla á morgun kl. 2, síra Garðar
Svavarsson.
Barnaguðsþjónusta í Laugarnes
skóla á morgun kl. 10.30.
Messað í Hafnarfjarðarkirkju á
morgun kl. 5, síra Garðar Þor-
steinsson.
Messað í fríkirkjunni í Ilafn-
arfirði á mórgun kl. 5 (sjómanna-
dagur), síra Jón Auðuns.
Bamaguðsþjónusta í fríkirkj-
unni í Hafnarfirði á morgun kl.
2, síra Jón Auðuus.
Messað í Aðventkirkjunni sunnu
daginn 13. febr. kl. 8.30 síðd. O.
J. Olsen.
B.v. Tryggvi gamli kom af upsa
veiðum í gær. Afli var rúmlega
100 smálestir.
Olíuskip kom í gær með farm
til Olíuverslunar íslands.
Árshátíð sína halda í kvöld
Fjelag íslenskra símamanna og
Póstmannafjelag íslands að Hótel
Borg.
ísfisksala. Haukanes seldi afla
sinn í Grimsby í gær, 1890 vættir,
fyrir 1338 sterlingspund.
Dansleik heldur fjelag harmon-
ikuleikara í K. R.-húsinu annað
kvöld.
Bjarni Björnsson gamanleikari
heldur þriðju skemtun sína í
Gamla Bíó í kvöld kl. 7.15. Tvær
fyrri skemtanir Bjarna voru svo
vel sóttar að aðgöngumiðar seld-
ust, upp á örstuttum tíma. Má
buast við jafnmikilli aðsókn nú.
Farþegar með Lagarfossi í gær
frá Reykjavík til Austfjarða og
Vestmannaeyja voru: Jón Gunn-
arsson, Herm. Hermannsson toll-
þjón, Vilhelmína Guðmundsdóttir,
Sigríður Ingólfsdóttir, Kristján
Jónsson og fni, Björgvin Pálsson,
Sigurður Jónsson, Ólöf Einars-
dóttir, Jóna Jónsdóttir, Jóna Ei-
ríksdóttir.
Ketill Ólafsson skíðakappi frá
Siglufirði, sem Reykvíkingar
munu kannast við frá landsmót-
inu í fyrra, er nýkominn til bæj-
arins á vegum „Ármanns“. Ætlar
Ketill að annast skíðakenslu í
skála Ármenninga í Jósefsdal.
Öllum þeim fjelagsmönnum, sem
tök hafa á, er gefinn kostur á að
dvelja í skálanum og njóta til-
sagnar Ketils ókeypis. Upplýsing-
ar geta menn fengið á skrifstofu
fjelagsins, sími 3356.
Hjónaefni. Nýlega hafa birt
trúlofun sína ungfrú Þorbjörg
Jónsdóttir, Reykjavík, og dr.
Bruno Schweiger, Dussen Ammer-
see, sem mörgum íslendingum er
kunnur bæði frá Miinchen og eins
frá ferðum hans hjer á landi.
Útvarpið:
20.15 Erindi: Shakespeare og leik
listin á hans dögum, II. (Har-
aldur Björnsson leikari).
20.40 Þættir úr „Storminum", leik
riti Shakespeares (Haraldur
Björnsson o. fl.).
„í LANDI ELDVAÐENDA
OG HINNA LANGLÍFU“.
„í landi eldvaðenda og hinna
langlífu". Fyrir lestur sá, er Ivan
Krestanoff, búlgarski rithöfundur-
inn, ætlaði að halda um ofanskráð
efni síðastliðinn sunnudag, fórst
fyrir vegna veðurs. Annað kvöld
(sunnudagskvöld 13. þ. m.) mun
hann flytja þanna sama fyrirlest-
ur í Guðspekifjelagshúsinu kl. 9.
Búlgaría er, eins og kunnugt er,
land hinna Langlífu, og verða þar
rnargir 100 ára og þar yfir. Þar
eru einnig konur, sem vaða eld.
Herra Krestanoff mun segja frá
þessu, og auk þess mun hann
segja frá ýmsum andlegum stefn-
um og hreyfingum, er láta til sín
taka í Búlgaríu. Hann mun yfir-
leitt segja frá ýmsum hlutum
furðulegum, og ekki spillir það,
að hann mun og sýna skugga-
myndir. Herra Krestanoff er sann-
mentaðnr maður, þar af leiðandi
yfirlætislaus og hugþekkur, og
hefir yfirsýn hins víðförla heims-
borgara yfir menn og málefni. —
Slíkir menn eru góðir gestir og
þess verðir, að á þá sje hlustað.
Grjetar Fells.
SJÓMANNABÓKASAFN
I SANDGERÐI.
Hr. ritstj.
ótt ótrúlegt sje, þá er ekkert
bókasafn í Sandgerði fyrir
sjómenn, þó að tugir fiskibáta
stundi þar veiðar á hverri vetr-
arvertíð — eða 3—4 hundruð
manns víðsvegar að af landinu —
að sunnan og vestan, norðan og
austan.
Nú er þegar byrjað á því, að
safna tillögum meðal skipshafna
hjer til þess að stofna „Bóka-
safn sjómanna í Sandgerði", og
hefir það fengið góðar undir-
tektir, og byrjar safnið vonandi
að starfa fyrir miðjan þennan
mánuð. En betur má ef duga skal,
og þarf að fara fleiri leiðir til
þess að afla bókasafninu fjár og
lesefnis. Sótt mun verða um lít-
ilsháttar styrk til Alþingis, í því
skyni, í eitt skifti fyrir öll.
Það þarf ekki að eyða orðum
um nauðsyn þessa máls. Svona
langvanrækt málefni þarf skjótra
aðgerða og stuðning áhugasamra
manna, sem bera hlýjan hug til
sjómanna og vilja vel til þeirra*
gera. Og það vilja víst flestir
gera, að minsta kosti á sjómanna-
sunnudaginn.
Þeir, sem standa hak við þetta
málefni ásamt undirrituðum, eru
oddvitinn og hreppstjórinn hjer
í Miðneshreppi.
Ef einstakir áhugamenn og
velunnarar sjómanna vildu
styrkja þetta fyrirtæki með bóka-,
tímarita- eða hlaðasendingum, þá
þurfa menn í Reykjavík ekki ann
að en árita það til „Bókasafns
sjómanna, Sandgerði“, og biðja
fyrir það á Steindórsstöð eða
Mjólkurbílastöðinni, og kemst
það þá örugglega sendanda að
kostnaðarlausu til skila.
Stutt skilagrein um safnið mun
verða hirt í einu eða fleirum
dagblöðunum, að lokinni vertíð.
Heill góðu málefni.
Valdimar össurarson
' ’ i’ H \ l I '
Það tilkynnist vinum og ættingjum, að konan mín, móðir
okkar og tengdamóðir,
Halldóra Loftsdóttir,
andaðist hjer í Reykjavík 10. þessa mánaðar.
Guðmundur Helgason, böm og tengdabörn.
Faðir minn og tengdafaðir,
Jón Magnússon Melsteð,
andaðist í gær.
Ólafur L. Jónsson, Guðrún Karvelsdóttir, Ránargötu 6.
Hjer með tilkynnist að maðurinn minn,
Árni Gíslason,
frá Miðdal, andaðist í Landspítalanum í gærmorgun.
Guðrún Magnúsdóttir.
Jarðarför okkar hjartkæru dóttur og systur,
Jóhönnu Filippusdóttur,
fer fram frá dómkirkjunni mánudaginn 14. þ. mán. kl. V/2.
Jarðað verður í gamla kirkjugarðinum.
Guðrún Pjetursdóttir. Filippus Jóhannsson.
Ingveldur S. Filippusdóttir.
Hugheilar þakkir fyrir sýnda hluttekningu við jarðarför
mannsins míns og föður okkar,
Jóns Kristjánssonar.
Guðbjörg S. Jónsdóttir og böm.