Morgunblaðið - 20.02.1938, Qupperneq 5
Stmnudagur 20. febr. 1988.
MORGUNBLAÐIÐ
— JRorijtmBIaAiö-------------------------------
Útgef.: H.f. Árvakur, Reykjavík.
Ritstjórar: J6n Kjartansson og Valtýr Stefánsson (ábyrgTSarmatSur).
Auglýsingar: Árni Óla.
R.itstjórn, auglýsingar og afgreiTSsla: Austurstræti 8. Sími 1600.
Áskriftargjald: kr. 3,00 á mánuíSi.
í lausasölu: 15 aura eintakiTS — 25 aura meTS Lesbók.
LÝÐRÆÐI EÐA EINRÆÐI
PEGAR Framsóknarflokkur-
inn og Alþýðuflokkurinn
sömdu til bráðabirgða, á síð-
asta þingi, um stjórnarsam-
vinnuna, höfðu þessir tveir
flokkar 27 þingmönnum á að
skipa í þinginu. Þeir höfðu því
öruggan meirihluta í báðum
'þingdeildum, og gátu einir ráð-
ið öllu.
En þótt þingmannatala'
:stjórnarflokka.nna væri svona
há, vantaði mikið upp á, að
þessir flokkar hefðu meiri-
hluta kjósenda landsins að
haki sjer. Þeir höfðu aðeins
43,9% kjósenda að baki sjer
og var því stjórnin, sem þessir
flokkar mynduðu raunverulega
minnihlutastjóm, þótt meiri-
hluta hefði á Alþingi. Þetta út
aí fyrir sig sýnir, að eitthvað
meira en lítið er bogið við
hað kosningafyrirkomulag, sem
við nu búum við. Og það getur
ekki verið í anda lýðræðisins,
að viðhalda slíku ranglæti.
Nú liggur við borð, að þessir
;sömu flokkar semji enn á ný
um framhaldandi stjórnarsam-
^vinnu. Ef til vill eru samning-
ar þegar fullgerðir, en ekki
hafa þeir enn verið birtir al-
menningi.
En hvernig er umhorfs á
ætjórnmálasviðinu nú, þegar
st j ómarf lokkarnir taka upp
samninga um stjórn landsins?
Alþýðuflókkurinn hefir ein-
um þingmanni færra en hann
hafði á síðasta þingi, þar sem
síðan hefir það skeð, að Hjeð-
inn Valdimarsson hefir verið
rekinn úr flokknum. Að vísu
hefir Hjeðinn ekki viðurkent
það sjálfur, að brottrekstur
hans væri lögmætur. En flokks-
menn hans á þingi hafa svift
hann öllum trúnaðarstörfum
fyrir flokhinn, og þeir líta ekki
iá hann lengur sem verandi í
flokknum.
Það er að vlsu svo, að þing-
meirihlutinn verður nægur eft-
ir sem .áður, þótt einn hverfi
íír Alþýðuflokknum.Eftir verða
26 þingmenn í stjórnarflokkun-
um, og er það öruggur meiri-
hluti í báðum deildum.
"En hjer kemur líka annað til
greina. Innan Alþýðuflokksins
eru nú háð hörð átök um það,
hvaða stefna eigi að verða ráð-
.andi í flokknum. Annarsvegar
eru menn, sem vilja sameinast
kommúnistum og er Hjeðinn
þeirra foringi. Hinsvegar er
Jón Baldvinsson, og þeir sem
honum fylgja, en þeir vilja
ekki sameinast kommúnistum.
Enn verður að vísu ekki sjeð
hverir ofan á verða, Hjeðins-
eða Jóns-menn. Þó bendir ým-
islegt til þess, að kjósendur Al-
þ)ýðuflokksins sjeu alment því
fylffjandi, að flokkurinn sam-
einist kommúnistum. Ýms fje-
Iög innan Alþýðusambandsins
hafa þegar mótmælt brott-
rekstri Hjeðins og krafist þess,
að meirihluti sambandsstjórnar
vinni að fullkominni samein-
ingu við kommúnista.
Þessi átök, sem nú eiga sjer
stað innan Alþýðuflokksins eru
svo alvarleg, að það væri ófor-
svaranlegt af Framsóknar-
flokknum, að taka ekkert til-
lit til þeirra nú, þegar ákvörð-
un er tekin um stjórn landsins.
Ef Hjeðinn verður ofan á í
þessari viðureign, getur vitan-
lega svo farið, að þeir þing-
menn Alþýðuflokksins, sem
Framsókn ætlar nú að semja
við, stæðu uppi með kjörbrjef-
in ein í vasanum, en hefðu
nga kjósendur að baki. Myndi
ekki lítill lýðræðissvipur verða
á slíkri stjórn? >
Framsóknarflokkurinn hafði
við síðustu alþingiskosningar
aðeins 24.9% kjósenda lands-
ins, eða tæplega fjórðung
þeirra. Það væri svo freklegt
brot á lýðræðinu, ef flokkur
með ekki meira fylgi að baki
sjer, færi að stjórna landinu,
að óhugsandi er, að aðrir en
einræðisflokkar Ijetu sjer slíkt
til hugar koma.
Það er vissulega ekki nóg
fyrir Framsóknarflokkinn, eins
og nú er í pottinn búið, að
benda á hina 26 þingmenn og
segja: Hjer er meirihlutinn.
— Ábyrgur stjórnmálaflokkur,
sem þar að auki vill vera í tölu
lýðræðisflokka, getur ekki lok-
að augunum fyrir þeim atburð-
um, sem nú eru að ske innan
Alþýðuflokksins. Hann verður
að ganga úr skugga um, hvað
ofan á verður í Alþýðuflokkn-
um, áður en ákvörðun er tekin
um stjórn landsins.
Til þess að ganga úr skugga
um þetta, getur Framsókn
krafist þess, að þing Alþýðu-
sambandsins verði kvatt saman,
því að það er æðsta ráð Al-
þýðuflokksins. Fáist það ekki,
er eina leiðin að rjúfa Alþingi
og láta kosningar fara fram
á næstkomandi vori.
Ef að ekki á að stefna með
stjórn landsins beint inn á ein-
ræðisbrautina, verður nú þegar
að fá úr því skorið, hvar lcjós-
endur Alþýðuflokksins standa i
fylkingunni.
30 BÁTAR GANGA FRÁ
GRINDAAÍK í VETUR.
Grindavík í gær.
dag rjeru 26 bátar hjeðan úr
Grindavík. Afli var sæmileg-
ur, frá 2 til 8 skippund.
Alls munu verða gerðir út um
30 bátar hjeðan í vetur. Flest eru
það opnir vjelbátar frá 3 til 6
tonn, en þá eru 5 þilbátar.
f gær og dag hefir verið flutt
hingað salt úr saltskipinu Diana,
sem affermir nú í Keflavík.
Eiríkur.
5
Veðráttan.
venjuleg veðurblíða hefir ver
ið um alt laud alla síðast-
liðna viku, með 7—8 gráðu liita
oft hjer sunnanlands og vestan, en
hitinn hefir komist upp í 13 stig
á Norður- og Austurlandi. Frá
frosta- og hríðarkaflanum sem
gerði frá 25. jan. til 12. febr. var
komin allmikil fönn. En nú er
orðið örísa að kalla á Suðvest-
urlandi, og fönn að mestu tekin
upp í öðrum sveitum landsins.
Háþrýstisvæði er hjer nú um
landið, og loftþrýsting óvenju-
lega mikil. Sýndi loftvog í Yest-
mannaeyjum í dag 784 mm. Segir
Veðurstofan að um þetta leyti
árs sje slíkt háþrýstisvæði oft suð-
ur við Azoreyjar, en liefir nú
færst þetta norður á bóginn.
Minnir þetta óvenjulega veður-
lag á veðráttuna 1929. En þá var
hjer háþrýstisvæði og hlýindi um
þetta leyti, og hjeldust þíður óslit
ið til páska, með lxægviðrum, þó
veðráttan spilti síðar mjög gróðri,
er menn gerður sjer óvenjulegar
vonir um, sakir þess hve snemma
byrjaði að gróa.
Afli og fiskverslun.
fli var kominn á land þ. 15.
febrúar 1300 smálestir, er
var ofurlítið meira en á sama
tíma í fyrra. Að munurinn var
ekki meiri, er talið fremur stafa
af gæftaleysi en hinu, að fisk sje
lítinn að fá úr sjó eins og í fyrra,
Saltfiskur óverkaður hefir selst
jafnóðum að kalla, fyrir hærra
verð en í fyrra fyrsta sprettinn.
Fer Hekla bráðiega með 300 smá-
lestir til Englands af óverkuðum
fiski. ítalskt skip er hjer að taka
síðustu leifarnar af fyrra árs fiski.
Þrír togarar stunda nú upsa-
veiðar og hefir afli þeirra verið
sæmilegur.
Þingið.
á er Alþingi sest á rökstóla,
til að framlengja skatta- og
tollalöggjöfina, svo stjórnarsam-
fylkingin geti fleytt sjer áfram
eitt árið til. Undirbúningurinn
fyrsti undir þá samvinnu var það,
er Alþýðusambandsstjórnin vipp-
aði Hjeðni Valdimarssyni fyrir
borð.
Alþýðuflokksbroddarnir voru
sem sje smeykir um, að bænda-
þingmönnum Framsóknarflokks-
ins myndi finnast vera kominn
helst til mikill kommúnistaþefur
í flatsængina eftir bæjar- og
hreppsnefndarkosningarnar, ef
eigi færi fram einhverskonar
„hreinsun“ fyrir þing. „Hreins-
unin“ var svo látin fara fram með
þeim hætti, að Hjeðinn var rek-
inn. Það þykir aldrei prýði að
honum í samstarfi livort sem er.
Samlyndi og eindrægni fer sjald-
an vaxandi þar sem hann er.
Hjeldu sósíalistabroddar að þeim
yrði Ijettir að því að losna við
hann. Og þetta er að vissu leyti
rjett. Loftið hreinast í íslenskri
pólitík, við þessa úthremsun Al-
þýðuflokksins.
Æfisaga.
Isambandi við brottrekstur
Hjeðins hefir Jónas Jóns-
son bj’rjað á „framlialdssögu" um
hann í Tímadagblaðinu. Ber það
skrif hans, sem ýms önnur í seinni
tíð, vott um live tiltölulega ungir
menn lijer geta verið gamlaðir
í hugsun og langt á eftir tíman-
um. Því J. J. heldur sýnilega, að
fylgi það, sem Hjeðinn sýnilega
hefir meðal alþýðu manna í Al-
þýðuflokknum, sje persónufylgi.
Það sjeu mannkostir og foryst'U-
hæfileikar Hjeðins, sem ráði því.
Og síðan heldur þessi gamli dálka
fyllir, að hann geti reitt af Hjeðni
þessar ímynduðu fjaðrir.
En í raun og sannleika er það
svo, að þessa hæfileika, sem J. J.
ætlar að skyggja á með skrifum
sínum, hefir Hjeðinn aldrei átt.
En þó svo væri, þá gæti J. J. eng-
in áhrif haft á það hvernig þeir
notuðust. Nú eru áhrifin af slíku
æfisöguskrifi þau ein, að menn í
fjarsveitum, sem minst þekkja til
hjer, geta haldið að Hjeðinn Valdi
marsson sje miklum kostum bú-
inn, af því J. J. spandérer upp á
hann langloku mikilli.
Ef J. J. skilur ekki svona ein-
faldan hlut, ef hin langa reynsla
hans hefir ekki getað kent hon-
um, að meginstraumar stjórnmál-
anna fara ekki eftir einstökum
persónum og að skrif hans um
Hjeðinn Valdimarsson eru úrelt
blaðamenska, þá verða menn að
líta svo á, að liann sje beinlínis
farinn að ganga í barndóm.
Bíó-fundurinn.
sögu íslenskrar verkalýðshreyf-
ingar er fundurinn í Nýja
Bíó á sunnudaginn var merkisat-
burður. Á þeim fundi var höfuðs-
manni hins íslenska sósíalisma,
Jóni Baldvinssyni, sparkað út úr
fjölmennasta verkalýðsfjelagi
landsins, með þeim ópum og ó-
hljóðum, að slíks eru fá dæmi á
mannfundum hjer á landi. Hann
sá fram á, að hann átti ekki leng-
ur samleið með verulegum hluta
af reykvískum verkalýð. Og hon-
um var sýnt fram á það, með
þeim hætti, sem á ekkert skylt við
neina kurteisi.
Innan um sköllin og hávaðann,
skammirnar og ókvæðisorðin, sem
fundarmenn ljetu dynja á forseta
Alþýðusambands Islands, heyrðist
hann tala um það, að hann hefði
margoft sagt þeim flokksbræðr-
um sínum, að Alþýðuflokkurinn
ætti aldrei að hugsa sjer sam-
vinnu til vinstri. Ef hann gerði
svo, þá þýddi það ekki annað en
það, að hann yrði eilíflega áhrifa-
laus minnihlutaflokkur.
Fundarmenn hlógu að áminn-
ingum og fortölum Jóns, og höfðu
ræðu hans að háði. Haraldur Guð-
mundsson ráðherra, er var stadd-
'ur á fundinum, reyndi að koma
fundarmönnum í skilning um, að
ástandið í Alþýðuflokknum væri
ekkert aðhlátursefni. Og meðferð
sú, sem frumherji Alþýðuflokksins
fengi, væri það ekki heldur.
Togarastöðvunin.
ogararnir eru nú flestir
bundnir í höfn. Meðan ís-
fiskveiðar voru stundaðar, voru
þeir flestir að veiðum, og það
enda þótt yfirlýst verkfall væri.
Þeir fóru út fyrir áramót, og
komu ekki hingað fyrir en að af-
loknum ísfiskveiðum. IJin langa
útivera þeirra var vitanlega í fullu
samræmi við vilja sjómannanna.
Þannig bókstaflega flúðu þeir
undan svonefndri forsjá „verka-
lýðsleiðtoganna“ hjer í Reykja-
vík, sem með kauptaxtaauglýs-
ingu sinni um áramót gerðu sitt
til að svifta þá atvinnu í janúar
og fram í febrúar.
Það er kannske ekki undarlegt,
þó stjórnmálaflokkur, sem byggir
tilveru sína á verkfallapólitík, í
óþökk verkamannanna sjálfra,
eigi dálítið erfitt uppdráttar.
Nú líður að saltfisksvertíð.
Sáttasemjari hefir málið til með-
ferðar. Oefað vinnur hann að
lausn deilunnar eftir fremsta
megni, j
Ólafur Thors hefir lagt fram
ákveðna tillögu í málinu og fært
liin Ijósustu rök fyrir rjettmæti
hennar. Að sætt verði gerð upp á
það, að sjómenn hafi sama kaup
og áður.
En hvað gerir Alþ.bl.? Birtir
svívirðingar um Ólaf og tillögu
hans. Og ríkisstjórnin lieldur að
sjer höndum, daufheyrist við öll-
um málaleitunum útgerðarinnar,
eins og málefni hennar komi ísl.
ríkisstjórninni harla lítið við.
Hve lengi þolir þjóðin slíkan
sofandaskap í aðkallandi vanda-
málum ?
Lífsmerki.
kylt er þó í þessu sambandi
að geta þess, að stjórnar-
flokkarnir hafa komið sjer sam-
an um frumvarp til vinnulöggjaf-
ar, sem stjórnarblöðin segja að
sje sniðið eftir slíkri löggjöf og
fyrirkomulagi á Norðurlöndum.
Sje þetta rjett, og verði nokkur
alvara í því að koma frumvarpi
þessu gegnum þingið, þá er það
spor í rjetta átt, sem stjórnar-
flokkarnir hafa vissulega trassað
helst til lengi að stíga. fc
En rjett er að gera sjer ekki
alt of miklar vonir um röggsemi
stjórnarliða í máli þessu, ef að
vanda lætur.
Endurskoðun.
It bendir til þess að þing það,
sem nú er nýkomið saman,
verði snautt af nýjungum frá
stjórnarfylkingunni. Að þar verði
enn á ný lagt út í að leggja sömu
drápsklyfjar skatta og tolla á
þjóðina. Að þeir, sem með völdin
fara, hugsi sjer enn sem fyrr, að
loka augunum fyrir þeim fjár-
hagsvoða,. sem yfir þjóðinni vofir,
og beinlínis revna að gylla á-
standið eftir föngum.
En ef þjóð vorri á að auðnast
að brjótast út úr örðugleikunum,
þá verður fyrsta boðorðið að vera
FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU. ,