Morgunblaðið - 20.02.1938, Side 7
Sunnudagur 20. febr. 1938.
MORGUNBLAÐID
7
Happdrætti
Háskóla íslands
Vegna vaxandi sölu eru nú í
umferð allir miðar, sem leyfi-
legt er að gefa út samkvæmt
happdrættislögunum. Á síð-
astliðnu ári voru greiddar
nál. 750,000 krónur í vinn-
ínga.
Frá starfsemi
Happdrættisins
4. GóS brúðargjöf.
í 8. flokki 1936 vann ung stúlka
1000 kr. Hún ætlaði að gifta sig
10. október, en af sjerstökiun á-
stæðum gifti hún sig 9. október. —
Þetta mátti því kallast góð brúðar-
gjöf-
5. Verður er verkamaður
launanna — og happdrættis-
gróða.
1936 í 2. flokk vann fátækur
verkamaður í Reykjavík 5000 kr.
6. Lækni dreymir fyrir
vinning.
Umboðsmaður skrifar: N. N.
læknir kom til mín 1935 og kvað sig
hafa dreymt, að hann myndi vinna
hjá mjer á heilmiða. Jeg átti marga
heilmiða óselda og ljet hanii draga
úr hrúgunni. Miðann keypti hann
29. mars og vann á hann í næsta
drætti 10. apríl 100 krónur, en síð-
an ekki. Berdreyminn er hann. —
Geta má þess, að þá (10. apríl) kom
enginn vinningur A hina heilmiðana,
sem mjer höfðu verið sendir.
7. Peningar fátækju ekkj-
unnar.
Pátæk ekkja meö fimm böm
hafði fengið sjer fjórðungsmiða, en
vann ekki á hann. Hún ætlaði sjer
ekki að endurnýja miðann, en sner-
ist hugur á síðustu stundu. Um leið
og umboðsmaður var að skila afl
sjer á dráttardegi kom lítil telpa
og endumýjaði miðann. Hann kom
upp með 20,000 krónur.
Oft ea? mfór
stafur tll mik-
flllar gæfu.
Umboðsmenn í Beykjavík eru:
Frú Anna Ásmundsdóttir & frú
Guðrún Björnsdóttir, Túngötu 3,
sími 4380.
Dagbjartur Sigurðsson, kaupm.,
Vesturgötu 45, sími 2814.
Einar Eyjólfsson, kaupm., Týs-
götu 1, sími 3586.
Elís Jónsson, kaupm., Reykja-
víkurveg 5, sími 4970.
ITelgi Sivertsen, Austurstræti 12,
sími 3582.
Jörgen Hansen, Laufásvegi 61,
sími 3484.
Frú Maren Pjetursdóttir, Lauga-
veg 66, sími 4010.
Pjetur Halldórsson, Alþýðuhúsinu.
Stefán A. Pálsson & Ármann,
Varðarhúsinu, sími 3244.
Umboðsmenn í Hafnarfirði eru:
Valdimar Long, kaupm., sími
9288.
Verslun Þorvalds Bjarnasonar,
sími 9310.
Qagbófc,
□ Edda 59382227 — 1.
Veðurútlit í Reykjavík í dag:
Hæg S- eða SV-átt. Úrkomulaust.
Veðrið í gær (laugard. kl. 17):
Yfir Islandi er óvenju há loft-
þrýsting, en mest fyrir sunnan
land, um 784 mm. Veður er víðast
kyrt og þurt hjer á landi, en ekki
eins hlýtt og undanfarið, hiti er
nú 2—7 stig.
Helgidagslæknir er í dag Berg-
sveinn Ólafsson, Hávallagötu 47.
Sími 4985. Næturlæknir er í nótt
Katrín Thoroddsen, Egilsgötu 12.
Sími 4561.
Næturvörðúr er í Reykjavíkur
Apóteki og Lyfjabúðinni Iðunn.
Hjónaband. í dag verða gefin
saman í hjónahand af síra Garð-
ari Þorsteinssyni Stefán Þorsteins
son hjeraðsráðunautur og Liv
Sanden hárgreiðsludama. Heimili
þeirra verður á Amtmannsstíg 4.
Barnastúkan Æskan nr. 1.
Fræðsla í dag á venjulegum fund-
artíma. Stud. theol. Ragnar Bene-
diktsson o. f!.
Póstferðir mánudaginn 21. fehr.
Frá Reykjavík: Mosfellssveitar-,
Kjalarness-, Kjósar-, Reykjaness-,
Ölfuss- og Flóa-póstar. Hafnar-
fjörður. Seltjarnarnes. Fagranes
til Akraness. Dr. Alexandrine vest
ur og norður til Akureyrar. — Til
Reykjavíkur: Mosfellssveitar-,
Kjósar-, Reykjaness-, Olfuss- óg
Flóapóstar. Hafnarf jörður. Sel-
tjarnarnes. Fagranes frá Akranesi.
Laxfoss frá Breiðafirði. Grímsness
og Biskupstungnapóstar.
Póstferðir þriðjudaginn 22. febr.
Frá Reykjavík: Mosfellssveitar-,
Kjalarness, Kjósar, Reykjaness,
Olfuss- og Flóapóstar. Hafnarfjörð
ur. Seltjarnarnes. Laxfoss til Akra
ness og Borgarness. Fagranes til
Akraness. Til Reykjavíkur: Mos-
fellssveitar, Kjalarness, Kjósar,
Reykjaness, Olfuss og Flóapóstar.
Ilafnarfjörður. Seltjarnarnes.
Fagranes frá Akranesi.
Elisabet Göhlsdorf les upp göm-
ul og ný þýsk skemtikvæði í Há-
skólanum annað kvöld kl. 9. Að-
gangur er ókeypis.
Fjelagsblað knattspyrnufjelags-
ins Fram kom út í gær í tilefni af
30 ára afmæli fjelagsins, sem hald
ið var hátíðlegt í gær, þó afmælið
sje í rauuinni ekki fvr en 1. maí
í vor. Margar ágætar greinar eru
í fjelagsblaðinu og skemtilegar
myndir.
Dánarfregn, f fyrrinótt andað-
ist að heimili dóttur sinnar, Lauga
veg 147 Sigurður Jónsson frá
Bygðarenda, rúmlega níræður að
aldri. Hann hafði aldrei kent sjer
neins meins alla sína löngu ævi,
fyr en nú í haust, að hann fór að
fá höfuðveikisköst, og fyrir fimm
dögum fjekk hann aðkenningu af
heilablóðfalli.
Eimskip. Gullfoss kom til Kaup
maniiahafnar í gærmorgun. Goða-
foss er á leið til Hull frá Vest-
mannaeyjum. Brviarfoss var á Pat
reksfirði í gærmorgun. Dettifoss
kom frá útlöndum kl. 2 í gær.
Lagarfoss kom til Kaupmanna-
hafnar í gær. Selfoss fór frá Rvík
kl. 12 á hádegi í gær á leið til út-
landa.
GAMLA Bfó:
Rauði hersliöfðinginn
Rauði hershöfðinginn heitir
kvikmynd, sem Gamla Bíó
sýnir í fyrsta skifti í kvöld. —
Aðalleikandinn er hinn þekti
og vinsæli leikari Hans Albers.
Efni þessarar kvikmyndar er
tekið úr heimsstyrjöldinni og
rússnesku byltingunni. — Leik-
ur Hans Albers þýskan flug-
mann og sjálfboðaliða í rúss-
nesku byltingunni. Kemst hann
í ótal æfintýri svo hver viðburð-
urinn rekur annan.
Erlend blöð lofa kvikmynd
þessa mjög mikið, enda er hún
spennandi og vel leikin.
Sundhöllin verður lokuð alla
þessa viku, frá mánudegi til sunnu
dags, vegna hreingerningar. Þeir,
sem missa úr sundtíma vegna
þessa, fá það bætt upp seinna.
Útvarpið:
Sunnudagur 20. febrúar.
9.45 Morguntónleikar: Kvartett,
Op. 131, eftir Beethoven (plöt-
ur).
10.40 Veðurfregnir.
11.00 Messa í Dómkirkjunni (sjera
Friðrik Hallgrímsson).
12.15 Hádegisútvarp.
13.00 Enskukensla, 3. fl.
13.25 fslenskukensla, 3. fl.
15.30 Miðdegstónleikar frá Hótel
ísland.
17.10 Esperantókensla.
17.40 Útvarp til útlanda (24.52m).
18.30 Barnatími.
19.10 Veðurfregnir.
19.20 Hljómplötur; Dansar frá 17.
oig 18. öld.
19.50 Frjettir.
20.15 Norræn kvöld, II. Finn-
land:
a) Ávarp (Vilhj. Þ. Gíslason).
b) Ræða (Aðalræðismaður
Finna, Ludvig Andersen).
c) (20.30) Finsk tónlist (plöt-
ur).
d) (21.00) Erindi (Ásgeir Ás-
geirsson alþíngism.).
e) Finsk tónlist (plötur).
f) IJpplestur (Sigurður Skúla-
son magister).
g) „Finlandia", eftir Sibelius
(plötur).
22.15 Danslög.
Mánudagur 21. febrúar.
8.30 Enskukensla.
10.00 Veðurfregnir.
12.00 Hádegisútvarp.
15.00 Veðurfregnir.
18.45 íslenskukensla.
19.10 Veðurfregnir.
19.20 Þingfrjettir.
19.50 Frjettir.
20.15 Erindi: Um veðurspár
(Björn L. Jónsson veðurfræð-
ingur).
20.40 Einsömgur: Óperettulög
(Gunnar Pálsson).
21.00 Um daginn og veginn.
21.15 Utvarpshljómsveitin leikur
alþýðulög.
21.45 Hljómplötur: Cellólög.
Aðalfundur Sendisveinafjelags
Reykjavíkur verður . háídinn
þriðjudaginn 22. þ. m. kl. 8^2 e-
h. í Alþýðuhúsinu við Hverfis-
götu. Dagskrá: Fjelagsmál. Venju-
leg aðalfundarstörf. Önnur mál.
Sendisveinar eru ámintir um að
fjölmenna og mæta stundvíslega.
Timbarverslun
| ?. W. lacobBen & 5ön Fí.s.
Stofnuð 1824.
^ Símnefni: Granfuru — 40 Uplandsgade, Köbenhavn S.
| Selur timbur í stærri og smærri sendingum frá Kaup-
| mannahöfn. -- Eik til skipasmíða. - Einnig heila
skipsfarma frá Svíþjóð og Finnlandi.
Hefi verslað við ísland í circa 100 ár.
Það tilkynnist vinum og vandamönnum, að faðir minn og
afi okkar
Sigurður Jónsson frá Bygðarenda
andaðist að heimili sínu aðfaranótt 19. febr.
Fyrir hönd mína og barna minna
Sigríður Sigurðardóttir.
Hjer með tilkynnist vinum og vandamönnum, að
Halldór Þorláksson
sjómaður frá Reynivöllum andaðist hjer á heimilinu í dag.
Reykjavík 19. febrúar 1938.
F. h. Elli- og hjúkrunarheimilisins Grund,
* Gísli Sigurbjörnsson.
Jarðarför konu minnar, móður okkar, systur og dóttur
Ásthildar Höllu Guðmundsdóttur
og litlu dóttur okkar
Ásthildar Höllu
fer fram frá dómkirkjunni næstk. þriðjudag 22. þ. mán. og
hefst með húskveðju á heimili okkar, Vitastíg 10 kl. 1 e. m.
Athöfninni í kirkjunni verður útvarpað. Jarðað verður í
gamla kirkjugarðinum.
Eig'inmaður, dætur, foreldrar og systkini hinna látnu.
Þökkum hjartanlega alla samúð við.andlát og jarðarför
mannsins míns og föður
Jóns Snorra Árnasonar. #
Valgerður Sæmundsdóttir. Soffía Jónsdóttir.