Morgunblaðið - 15.10.1938, Page 5
>
Laugardagur 15. okt. 1938.
Útgef.: H.f. Árvakur, Reykjavík.
Ritstjórar: Jón Kjartansson og Valtýr Stefánsson (ábyrgtSarmaður).
Auglýsingar: Árni Óla.
Ritstjórn, auglýsingar og afgreiðsla: Austurstræti 8. — Sími 1600.
Áskriftargjald: kr. 3,00 á mánuöi. -
í lausasölu: 15 aura eintakitS — 25 aura metS Lesbók.
KOMMÚNISTAR VÍSA TIL VEGAR
MORGUNBLAÐIÐ 5
Opólitísk
stjettarfjelög
Eftir Sigurð Halldðrsson
HVERNIG stendur á því, að
innflutningshöftunum er
beitt alt öðru vísi hjer á landi
en í nokkru öðru landi, sem
til þekkist? Ekki einu sinni,
heldur margsinnis, hefir verið
skorað á valdhafana að svara
Jþessari spurningu. En spurn-t
ingunni er ósvarað. Við vitum,
að innflutningshöft eru ekkert
sjerstakt einkenni á íslensku
viðskiftalífi. En við vitum hins
vegar, að hjer á landi hafa ver-
ið fundnar upp reglur um út-
hlutun innflutningsins, sem
hvergi þekkjast, þar sem frjáls
atvinnurekstur er viðurkendur.
Það er eðlilegt að okkur verði
litið til nágrannalandanna um
samanburð í þessu efni. Tökum
til dæmis Danmörk. Þar er
starfandi ríkisstofnun, sem ann-
ast úthlutun innflutningsins.
Danir eru taldir einhver
fremsta samvinnuþjóð heimsins.
Þar í landi hafa sósíalistar set-
ið að völdum um langt skeið.
Þeir eru hlyntir samvinnustefn-
i nni. Væri ekki líklegt, að só-
síalistastjórnin danska notaði
sjer innflutningshöftin til að
draga taum kaupfjelaganna á
kostnað verslunarstjettarinnar?
Danska sósíalistastjórnin
,-gerir þetta ekly. Henni hefir
ekki hugkvæmst það snjallræði,
að nota viðskiftahömlurnar til
þess að ,,hjálpa um“ innflutn-
ing, þeim sem henni eru þókn-
anlegir, á kostnað annara borg-
ara þjóðfjelagsins. Hún lætur
eitt yfir alla ganga. Hlutafje-
lög, einstaklingar, kaupfjelög.
Allir þeir, sem innflutnipgs-
verslun stunduðu, þegar höftin
gengu í gildi, verða að sætta
sig við takmörkun einstakra
vörutegunda í rjettu hlutfalli
"við takmörkun heildarinnflutn-
ingsins til landsins — hvorki
meira nje minna.
Danska stjórnin hefir ekki
fremur en nokkur önnur lýð-
ræðisstjórn, sem til þekkist ut-
an Islands, skift þeim, sem við-
skiftin annast í hafra og sauði.
Hún ætlar þeim jafnan rjett,
hvort sem um er að ræða kaup-
mannaverslun eða kaupfjelaga-
verslun. Hún forðast að nota
stundarráðstafanir til þess að
raska byggingu þjóðfjelagsins.
Hún telur sig þess ekki um-
komna að „hjálpa um“ forrjett-
indi þeirri stefnunni, sem henni
er þókiianlegri, en skerða rjett
hinnar stefnunnar að sama
skapi. Kaupfjelög og kaup-
menn. Báðir aðiljar eru, hvað
innflutning snertir, jafn rjett-
háir í Danmörku, Noregi, Sví-
þjóð — hvar sem til þekkist í
lýðrqsðislöndum utan íslands.
Hjer er í skjóli innflutnings-
haftanna unnið að því, að út-
rýma einni stjett úr þjóðfjelag-
inu. Hvaðan er sú alda runn-
in?
Fyrir þremur árum, haustið
1935, hjelt Kommúnistaflokkur
Islands 3. þing sitt. Nokkru
síðar birtust „þingtíðindi“
þessa móts í bæklingi, sem
nefnist „Eining alþýðunnar".
Þar stendur skýrum stöfum:
„Takmark okkar er sósíal-
isminn, Sovjet-ísland“.
Því er lýst, að fylling tímans
sje ekki enn komin. Alþýðan
sje ekki enn orðin nógu bylt-
ingasinnuð. En huggunin er sú,
að þótt ,,verklýðsbyltingin“
verði ekki framkvæmd í svip,
þá sjeu til ýmsar leiðir að þessu
takmarki, sem „stjettarfjelagar
í Alþýðuflokknum og Fram-
sóknarflokknum" geti orðið
kommúnistum samferða.
Og svo eru gefnar nokkrar
„umferðareglur“ handa píla-
grímum, sem vilja slást með
í förina til, hins fyrirheitna Sov-
jet-íslands.
Um fyrirkomulag innflutn-
ingsins eru sett sjerstök fyrir-
mæli. „Burt með núverandi fyr-
irkomulag . . “ —
„Pöntunarf jelögin og önnur
alþýðukaupf jelög njóti sjer-
stakra hlunni,nda“.
„Kommúnistaflokkurinn vís-
ar leiðina“ stendur í þessum
sama bæklingi. Kommúnista-
flokkurinn hefir vísað leiðina
í þessum málum. Kommúnista-
flokkurinn vísar leiðina að loka-
takmarki sínu. Fyrsti sigurinn
í stjettabaráttunni á að vera
útrýming verslunarstjettarinn-'
ar. Síðan kemur röðin að öðr-
um. „Öflugasta útbreiðslutæki
Stalins“ á fjármálaráðherra
íslands í hópi forvígismanna
sinna. Það nýtur „sjerstakra
hlunninda“.
Ráðherrar nágrannalandanna
fara aðra leið. Þeir vita að út-
fýming einstakra stjetta þjóð-
fjelagsins táknar sigur komm-
únismans, Sovjet-Danmörk,
Sovjet-Noreg, Sovjet-Svíþjóð.
Þessvegna útrýma þeir ekki
þjóðf jelagsstjettunum, heldur
komúnismanum.
Allar leturbr. Morgbl.
Umræðuefnið í dag:
Flugsamgöngur.
Stúdentakór. Mikill áhugi er
fyrir því meðal stúdenta, að stú-
dentakór verði stofnaður á kom-
andi vetri. Bæði Stúdentaráð og
Stúdentafjelag Reykjavíkur
lireyfðu þessu máli s.l. vetur, en
ekkert varð þó úr framkvæmd
um. — Vissulega hafa stúdentar
nægum söngkröftum á að skipa
til slíkrar kórstofnunar, ef þeir
einungis hafa ötulleik til þess að
koma henni á laggirnar. Er stú-
dentum oft vansi að því, að eiga
ekki kór, er haldið geti uppi söng
í liófum þeirra. Má því vænta, að
allir stúdentar, eldri og yngri,
sameinist um stofnun stúdenta-
kórs. (Blað lýðræðissinn. stúd.)
Undanfarna daga hafa
blöð rauðliða gert mjög
að umtalsefni tillögu þá, er
Hjeðinn Valdimarsson bar
fram á síðasta Dagsbrúnar-
fundi, um að breyta Alþýðu-
sambandinu í faglegt sam-
band, skipulagsleva óháð öll-
urn stjórnmálaflokkum og
með fullu lýðræði, þar sem
allir fjelagsmenn hefðu jafn-
an kosningarjett og kjör-
gengi til allra trúnaðarstarfa
sambandsins.
En þó er það einkum afstaða
okkar Sjálfstæðismanna innan
Dagsbrúnar, sem hlevpt hefir öll-
um þessum eldmóði pg hita í skrif-
finna vinstri flokkanna. Má segja
að þar belgji sig hver sem betur
getur og segja J)ó fáir satt.
★
Síðastliðinn föstudag birtir Nýtt
land svohljóðándi klausu: „Nýlega
gerði stjórn Alþýðuflokksfjelags-
ins boð eftir formanni Óðins og
kvað hafa verið rætt við hann um
samfylkingu, ef til atkv.greiðslu
kynni að koma í Dagsbrún og í
væntanlegum kosningum í fjelag-
inu í vetur“. Á fundi Dagsbrúnar,
sem haldinn var um kvöldið þess
sama dags og blaðið kom ineð
þessar frjettir, lýsti jeg því yfir,
að þessi ummæli blaðsins liefðu
við ekkert að stýðjast nema óttía
Samfylkingarmánna fyrir því, áð
verða uhHíí’ í baVáttunni innan
Dagsbrúnar, eins og sýndi sig svo
greinilega í kosningunum í fjelag-
inu í vor.
En hvort heldur er um að kenrta
óvönduðuin frjettaburði eða óvið-
ráðanlegúm ótta þeirra manna,
sem framleiða slíkar blaðagreinar,,
þá liefir hugmyndin um fylgi okk-
ar Óðinsmanna innan Dagsbrúnar,
gripið ritstjórann, Sigfús Sigur-
hjartarson, svo óskaþlegum tök-
um, að hann jafnvel bl.ygðast sín
ekki fyrir það, að fara með hinn
herfilegasta atvinnuróg á liendur
mjer og einum af fjelögum mín-
um í stjórn Málfundafjelagsins
Óðinn. Sýnir það hvað best hug
ritstjórans til hins vinnandí
manns, að liann gerir alt, sem í
hans valdi stendur, til þess að
rægja verkamenn úr þeirri sumar-
vinnu, sem þeir hafa verið svo
hepnir að fá, eftir að hafa gengið
atvinnulausir í átta mánuði. Hann
finnur nautn í því, að kalla verka-
menn liðleskjur, þó að hann þekki
þá ekki í sjón, hvað þá að honum
sje kunnugt um afköst þeirra í
vinnu. — Hvað mundu rauðliðar
hafa sagt um slík skrif hjá Morg-
imblaðinu eða Vísi?
★
En heift ritstjórans nær þó fyrst
hámarki sínu, þegar Jiann upp-
götvar þá ósvinnu!! að jeg er svo
lánsamur, að eiga þá konu, sem
átt hefir dugnað og fórnfýsi til
þess, að Ijetta af mjer fjárhags-
legum áhyggjum í fátækt minni,
með því að leggja á sig ómetan-
legt erfiði. Jeg harma það, að ís-
lenska þjóðin skuli vera svo ólán-
söm, að hafa alið svo giftulítinn
mann eins og þessi grein Sigfúsar
Sigurhjartarsönar ber vott um.
Manni, sem haft hefir sex, vel
launuð embætti ferst ekki að tala
um of háar tekjur hjá atvinnu-
litlum verkafnönnum í Reykjavík.
Og honum ferst lieldur ekki að
fyllast heilagri vandlætingarsemi,
þó að konur verliamanna hafi ein-
hverja lítilfjörlega atvinnu, á með-
an hann lætur það óátalið, að
konur hálaunaðra forstjóra, eins
og .Jens Figveds og Jónasar Þor-
bergssonar, sitja í alt að tvöfalt
betur launaðri atvinnu.
Til þess nú að rjettlæta þessi
úíðskrif sín, reynir Sigfús að telja
lesendum sínum trú um það, að
eitthvað óskaplegt leynisamband
sje á milli Ráðningastofu Reykja-
víkur og Málfundafjelagsins
inn. En allir þeir, sem gera sjer
nokkuð far um að fylgjast með
því sem er að gerast, vita að þetta
er ekki annað en heilaspuni rit-
stjórans og löngun hans til að
mannskemma þá, sem standa á
öndverðum meið við hann í stjórn-
málum. En þessi ágiskun ritstjór-
ans sýnir liins vegar glögt, livern-
ig hann mundi nota sjer samskon-
ar aðstöðu og forstjóri Ráningar-
stofunnar hefir.
★
í grein S. S. í Nýju landi má
lesa eftirfarandi: Það er og upp-
lýst, að forstjóri Ráðningarstof-
unnar spyrst fyrir um það, hvort
verkamennirnir, sem leita eftir
bæjarvinnu, sjeu í Óðni, og að
hann kefir eggjað menn, sem leit-
að hafa eftir vinnu hjá lionum, til
að ganga í fjelagið“. Sigfús Sig-
urhjartarson veit að þessi um-
mæli lians eru ósannindi af verstu
tegund, enda gerir hann ekki
minstu tilraun til að rökstyðja
þau. Það skal ráðlagt S. S., að
gera ekki tilraun til þess í fram-
tíðinni, að kasta skugga á mann-
gildi forstjóra Ráðningarstofunn-
ar, og síst þar sem verkamenn
heyra til. Yið verkamenn höfum
nú fengið nægilega reynslu af
þessum mönnum báðum til þess,
að draga af því okkar álit um þá
En það sem. einkum aðskilur
þessa tvo menn er þetta: 'Gunnar
E. Benediktsson hefir allan hug
og vilja á því, að útvega atvinnu-
lausum og fátækum verkamönn-
um atvinnu, á meðan Sigfús Sig-
urhjartarson gerir alt sem að vit
hans og kraftar leyfa til þess, að
ofsækja þá verkamenn, sem at-
vinnu hafa. — Af ávöxtunum
skuluð þið þekkja þá.
En svo að jeg snúi mjer nú
aftur að deilunum u m AlþýÓu-
sambandið, þá gat jeg þess á síð-
asta Dagsbrúnarfundi, að við Sjálf
stæðismenn mundum fylgja því
fast eftir, að Alþýðusambandinu
yrði breytt í faglegt samband,
skipulagslega óháð öllum stjórn-
málaflokkum. í þessu sambandi
gat jeg þess einnig við fundár-
menn, að Þorsteinn Pjetursson
hefði óskað eítir viðtali við mig
Út af þessu máli, og að jeg hefði
í því viðtali bent honum á, að-
Samfylkingarmenn væru þarna
komnir inn á stefnu Sjálfstæðis-
manna, hvað þetta mál snerti. En
jafnframt ljet jeg það ákveðið
uppi við Þ. P., sem og alla fund-
armenn, að jeg liefði megnústu
vantrú á heilindum Samiýlkingar-
manna í þessu máli. En það sem
Alþýðublaðið er að dylgja með,
að jeg hafi gert einhverja ógur-
lega samninga við Þ- P- í þessu
sambandi, á við álíka rök að styðj-
ast og skrif S. S. í Nýju landi
um viðtal það, sem jeg á þar að
hafa átt við stjórn Al])ýðuflpkks-
fjelagsins.
Annars skal báðum þessum að-
ilum sagt það, að jeg mundi hvor-
ugum þeirra treysta þó að um
sriflega samninga væri að ræða,
hvað þá munnlega; og mundi jeg
persónulega aldrei leggja mig nið-
ur við að semja við jafn óheiðar-
lega menn í öllum málaflutningi.
— Við sem erum í Óðni vitum að
þá langar báða til að liafa okkur
á sínu bandi, en þora livorugur að
viðurkenna þann breiskleika, svo
að eltki er nú von á að sálar-
ástandið sje gott. En til þess'nú
að stilla dálítið liið órólega skap
þessara manna, skal þeim sagt
það hjer í eitt skifti fyrir öllT að
við Óðinsmenn munum taka af-
stöðu til verklýðsmálanna eftir því
sem sannfæíingin býður okkur í
það og það skiftið, án tillits til
þess hvor þessara aðila á þar hlnt.
að Mfláli. En við munum altaf
standa með þeim tillögum innan
Dagsbrúnar, sem iniða að því að
auka lýðræðið innan verkalýðs-
hreyfingarinnar.
★
Það er næsta broslegt, að sjá
það feitletrað í Alþýðublaðinu,
mjer til álitslinekkis, að jeg hafi
einu sinni verið kommúrtisti, þar
sem vitað er að allir þeir menn,
sem þiggja laun við að skrifa Al-
þýðublaðið, liafa eigi alls fyrir
löngu verið flokksbundnir komm-
únistar, að ritstjóranum einnm
undanskildum. Eiu ser það frem-
ur hjákátlegt lijá þessu sama
blaði, að telja andstæðinga sína
flokksbundna í einhverjum stjórn-
málaflokkum, sem enginn hefir
rekist á lífsmark lijá svo árum
siftir.
Allar dylgjur og óliróðursgrein-
ar rauðliða um Málfundafjelagið
Óðinn, gera það eitt að verkum,
að auka á álit og virðingu allra
hugsandi manna fyrir þeim fje-
lagsskap og kann jeg því and-
stæðingum: mínum þakkir fyrir
það.
Reykjavík, 6. október 1938.
Sigurður Halldórsson.
Oð-