Morgunblaðið - 21.05.1939, Side 2
2
Sunnudagur 21. maí 1939,
Y ''RGUNBLAÐIÐ
Breskt-rússneskt bandalag ?
Chamberlain
sagður vera að
láta undan al-
menningsálitinu
á
S'
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
UMIR þykjast nú sjá móta fyrir bresk-rúss-
nesku bandalagi. Á meðan á umræðunum stóð>
í breska þinginu í gær, kom svar Rússa við
síðustu tillögum Breta og var þeim hafnað, eins ag hin-
um fyrri. Þessar síðustu tillögur hafa aldrei verið birtar.
Rússar krefjast skilyrðislauss bandalags við Breta, eða
vilja enga ^amninga ella. f ræðu sinni í breska þinginu í
gær sagði Mr. Churchill, að hjá því yrði ekki komist að
horfast í augu við ástandið eins og það er í raun og sann-
leika, hversu óþægilegt sem það þætti.
Hann sagði, að sannleikurinn væri sá, að ómögulegt væri að
verjast á vesturvígstöðvunum, nema að austurvígstöðvarnar væru
trygðar fyrst. En þær yrðu ekki trygðar nema með aðstoð frá
Rússum.
Talið er þessvegna, að í hinum nýju tillögum, sem verið
er að undirbúa með aðstoð frá Frökkum, og lagðar verða fyrir
Rússa næstu daga, sje tekið tillit til þessa „raunverulega ástands“,
enda virðist almenningsálitið í Englandi hallast meir og meir
að bandalagi við Rússa.
BREYTT VIÐHORF
Þetta breytta viðhorf í Englandi — Bretar hafa jafn-
an verið andvígir öllum nánum samskiftum við Sovjet-stjórn-
ina — er bein afleiðing af skuldbindingunum, sem breska stjörn-
in hefir tekið í Austur-Evrópu. Stefnubreytingin í almennings-
álitinu virðist hafa haft áhrif á Mr. Chamberlain og dregið hokkuð
úr andúð þeirri, sem hann hefir haft á bresk-rússnesku bandalagi.
Halifax lávarður er nú kominn til Parísar, á leið sinni
tii Genf. Nokkrum klukkustundum áður en hann kom
þangað hjelt franska stjórnin þriggja klukkustunda ráðu-
neytisfund, og er talið að fundarmenn hafi samþykt í
einu hljóði málamiðlunartillögur, sem Bonnet ætiar að
leggja fyrir Halifax lávarð í kvöld.
í tillögum þessum er talið (skv. FÚ), að m. a. sje gert ráð
fyrir yfirlýsingu af hálfu Breta og Frakka, varðandi Eystrasalts-
ríkin (Lithauen, Lettland og Eistland), og loforð um aðstoð þeim
til handa, verði á þau ráðist. ______________________________
í London og París eru
stjórnmálamenn á eitt sátt-
ir um að það sem mestu
máli skifti nú sje hraði —
að fá sem fyrst úr því skor
ið, hvort samningar geta
tekist við Rússa.
1 London er þess jafnvel
■vænst, að Rússar muni hafa
samþykt eða hafnað hinum nýju
tillögum fyrir miðvikudaginn,
svo að hægt verði að leggja nið-
urstöðuna fyrir hinn vikulega
fund, sem breska stjórnin held-
ur þann dag.
MAISKY FARINN
London í gær. FÚ.
Maisky, rússneski sendiherr-
ann í London, er lagður af stað
til Genf, til þess að taka þátt í
ráðsfundi Þjóðabandalagsins.
Blöðin í Moskva hafa ekki birt
ræðu Chamberlains, er hann
hjelt í gær í breska þinginu um
samkomulagsumleitanirnar við
Rússa, nje heldur útdrátt úr
henni. Blöðin birta aðeins stutt
símskeyti frá London um það,
að umræður um utanríkismálin
hafi farið fram í þinginu.
Þýskar bifreiða-
brautir á Spáni:
Samkepni Brela
og Þjóðverja
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
1-^k JÓÐVERJAR gera sjer vonir um að fá bróð-
urpartmn af málmframleiðslu Spánverja, sem
Bretar hafa fengið að miklu leyti fram til
þessa. Þjóðverjar vilja selja Spánverjum iðnaðarvörur,
gegn því að fá í staðinn hráefni.
Meðal annars er búist við, að Þjóðverjar kaupi mikið af
ávöxtum og matvælum frá Spáni. Þeir virðast staðráðnir í því að
sleppa ekki hendinni af Spáni, þótt hersveitir þeirra og Itala fari
þaðan, og leyfa ekki að landið verði aftur hagsmunasvæði Breta
og Frakka.
; M. a. er fullyrt, að Þjóðverjar
hafi boðist til að réisá opinberar
byggingar fyrir spænsku stjórn-
ina og leggjá bifreiðabrautir/
dr. Speer, aðál ráðgjafi Hitlers
í byggingamálum, maðurinn sem
er að gjörbreyta útliti Berlínar-
borgar, og dr. Todt, verkfræS-
ingur, sem gert hefir bifreiða-
brautirnar þýsku, eru á förum
til Spánar.
Éftij" að þýsku hersveitirnar
höfðu gengið fyrir Franco í M'á-
drid í . gær, kallaði „el caudillo"
(þ. e. Franco: „foringinn“, sbr.
,,fúhrer“ í Þýskalandi og „il
duce“ í Ítalíu) á fyrirliða þeirra
og ljet hann standa á aðra hönd
sjer það, sem eftir var af her-
sýningunni. -
Gunnar Gunnarsson
heldur heimleiðis
Ciano farinn
til Berlínar
B
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
retar og Frakkar leggja
kapp á að hraða samning
unum við Rússa fyrst og fremst
vegna þess að þýsk-ítalska hern-
aðarbandalagið verður undirritað
1 Berlín eftir tvo daga. Viiðast
menn óttast að ástandið harðni
eitthvað eftir að samningar þess
ir hafa verið undirritaðir.
í því sambandi er vakin at-
hygli á, að frá því að samning-
urinn var gerður hafa Hitler og
og Mussolini verið á eftirlitsferð
hvor í sínu landi í varnarvirkj-
unum á vesturlandamærum sín-
um.
Ciano greifi lagði af stáð til
Berlín í dag. í för með honum
er Farsiani hershöfðingi og
nokkrir ítalskir blaðamenn.
Khöfn í gspr. FÚ.
Qunnar Gunnarsson lagði í
dag af stað með Lagar-
fossi til íslands, ásamt konu
sinni og elsta syni.
Kaupmannahafnarblöðin flytja
í dag þakklæti Gunnars til Dan-
merkur fyrir það, sem hún hefir
fyrir hann gert.
Sigfúsar Einars-
sonar minst
Khöfn í gær F.Ú.
I slenski söngvarinn Stefano Is-
■ landi syngur í hljómleika-
salnum í Tivoli íslenska og ít-
alska söngva.
Hljómsveit Tivoli mun minn-
ast Sigfúsar Einarssonar með
því að leika tónverk eftir hann,
og leikur Einar Sigfússon í hljóm
sveitinni.
Togarinn Surprise í Ilafnarfirði
kom af veiðum í gær með 116 föt
lifrar. Fiskmagnið var 126 smá-
lestir og hafði megnið af fiskinum
veiðst í aflahrotunni á Hornbanka
um síðustu helffi.
Valur leikur
I kvöld I óleyfi
K. R. R.
Talsverður styr hefir staðið um
kappleikinn, sem fram fer í
kvöld milli sjóliðanna af H. M. S.
Vindictive og Vals. Hafa átökin
orðið svo hörð, að Valur keppir í
kvöld án leyfis Knattspyrnuráðs
Reykjavíkur. Verður ekki að svo
stöddu sjeð hverjar afleiðingar
það kann að hafa, en það er á
valdi K. R. R. að dæma Val í sekt-
ir, eða útiloka fjelagið frá öllum
mótum í sumar.
Forsaga þessa máls er í stuttu
máli eftirfarandi:
Samkvæmt reglugerð K. R. R.
verða knattspyrnufjelögin að fá
sjerstakt leyfi hjá ráðinu ef þau
ætla að keppa við skipverja af
erlendum skipum og mega ekki
keppa nema AÚð lið af tveimur
skipum árlega. Er það ákvæði sett
til þess að leikir við erlenda flokka
komi sem jafnast niður á fjelögin.
Aður en „Vindictive“ kom fekk
Valur leyfi til að keppa við sjó-
liða af skipinu, ef þeir sjálfir
vildu leika hjer, en þá hafði ekk-
ert verið talað um það mál við
ensku sjóliðana.
Þegar svo „Víndictive" koln
voru sjóliðarnir fúsir til að keppa
hjer að minsta kosti tvo leiki. Á-
kvað form. K. R. R. þá að þessir
leikir skyldu skiftast jafnt milli
fjelaganna þannig, að K. R. og
Víkingur keptu einn leik, en Val-
ur og Fram annan.
Þessu vildu Valsmenn ekki hlýta
og hjeldu því fram, að það sem
K. R. R. væri búið að samþykkja
stæði. Formaður K. R. K., Guð-
mundur Ólafsson, hjelt því hins-
vegar fram, að Valur hefði fengið
leyfi til að keppa á föstudegi eða
raiðvikudegi, en ekki á sunnudegi,
eins og Valur fór fram á.
Mál þetta var tekið fyrir á fundi
FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐÚ
Grein f „Börsan“
iidi samband
Islands og
Danmerkur
Khöfn í gær. FÚ.
Kaupmannahafnarblaðið „Bör
sen“ flytur langa grein í
gærdag um samband Islands og
Danmerkur og möguleika á því,
að sambandslögunum verði sagt
upp á áskildum tíma.
Blaðið ílytur í þessu sambandi
ummæli Sveins Björnssonar sendi
herra í grein, er hann ritaði í
tímaritið „Le Nord“ um þjóð-
rjettarlega stöðu Islands, þar
sem hann sýnir fram á, að Is-
landi sje að öllu leyti frjálst
að segja upp sambandslögunum.
Blaðið „Börsen“ segir í þessu
sambandi, að á því geti enginn
vafi leikið, að þessi rjettur Is-
lands sje ótvíræður, og þar með
fái ísland fult sjálfsforræði án
aðstoðar annara ríkja. ísland
verði þá að koma upp sinni eig-
in utanríkismálaþjónustu, og þar
að auki falli niður sá rjettur til
atvinnu, sem íslenskir borgarar
hafi nú í Danmörku og hafi ver-
ið meira notaður af þeim en til-
svarandi ' rjettur danskra borg-
ara á íslandi.
I lok greinarinnar segir, að
hagsmunir þeir, sem Island njóti
samkvæmt sambandslögunum,
sjeu svo miklir, að það sje tæp-
lega við því að búast, að ísland
segi þeim upp, og að hvarvetna
á Norðurlöndum myndi það
verða álitið mikið tjón, ef ís-
land, með sinni merkilegu erfða-
menningu, gliðnaði úr tengslum
við hina norrænu samvinnu.
HANDAVINNA SJÚK-
LINGA Á LANDS-
SPÍTALANUM
T haust byrjaði stjórn Lands-
spítalans á því að fá sjúkl-
ingum, sem lengi hafa fegið, ým
iskonar handavinnu. Var það
gert til þess að þeir styttu sjer
hinar dapurlegu og löngu stund-
ir.
En jafnframt var hugsað um
að kenna þeim nytsöm verk, sem
þeir geti haldið áfram að stunda
þegar þeir losna af spítalanum.
Það er ósköp skiljanlegt, að
sjúklingur, sem hefir legið rúm-
fastur máske 2—3 ár og ekki
tekið hendi til neins, nema þá
bókar, muni lítt fallinn til að
vinna fyrir sjer, þegar hann fer
af spítalanum. En með þessu
móti er honum þó gefinn kostur
þess að iðja eitthvað, bæði sjer
ti? gagns og gamans.
Ýmsir af munum þeim, sem
sjúklingar í Landsspítalanum
hafa unnið í vetur eru til sýnis
í skemmuglugga Haraldar. Eftir
helgina verða þeir til sölu í
Hattaverslun Soffíu Pálma á
Laugaveg, og verða seldir mjög
ódýrt. Gleðjið sjúklingana með
því að kaupa handavinnu þeirra.