Morgunblaðið - 21.05.1939, Page 7
Simnudagur 21. maí 1939.
MORGrUNBLAÐSÐ
Ué
FLUG TF — SUX
í FEAMH AF ÞEIÐJU SÍÐU.
aði af sjer pósti og tók póst.
Þaðan til Vopnafjarðar og: henti
niður pósti. Ætlaði flugmaðurinn
að lenda þar en hætti við vegna
þoku. Á Djúpavogi tók flugvjel-
in farþega til Hornafjarðar og
flaug svo í einum áfanga frá
Hornafirði til Reykjavíkur.
Með TF-SUX frá Iiornafirði
var Þorleifur Jónsson bóndi að
Hólum. Þorleifur er á áttræðis-
aldri.
Á suðurleið var veður hvast og
sandrok mikið á Söndunum. Var
svo dimt af sandrokinu sem þoka
væri og varð flugmaðurinn að
átta sig og fljúga eftir brimlöðr-
inu við ströndina. En þó var bót
í máli, að vindurinn var á eftir
og var flugtíminn frá Hornafirði
ekki nema 2 kl.st. og 20 mín.
Strætisvagnafjelag Reykjavíkur
h.f. hefir tekið npp aftur Lögbergs
ferðir. Verður farið 'fimm. sinnum
á dag, fyrst Utá sinn. Fyrsta ferð-
in .er klukkan 7 á morgnana og
síðasta ferðin kl. 9*4 síðd.
ILiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiHiiiiimtiiuiuiu
—
Ólafur Dorgrímsson |
lögfræðingur.
Viðtalstími; 10—12 og 3—5. 1
Austurstræti 14. Simi 5332. I
Málflutningur. Fasteignakaup §
Verðbrjefakaup. Skipakaup. |
Samningagerðir.
liiiiiiiiiiiiniiiiimiiiiiiiiimuuiiiiimiimimiuiuuiiinimDÍ
Sítrónur
nýkomnar.
vmn
Lauffaveg: 1.
Útbú Fjölnisvegi 2.
Valur og ensbu
sjóliðarnir
FRAMH. AF ANNARI SÍÐU
K. R. R. í gærkvöldi. Fulltrúi
Vals, Einar Björnsson, fór fram á
að Val yrði leyfður leikurinn. For-
maður ráðsins kom þá með tillögu
úm að K. R. R. lijeldi sig við
fyrri samþyktir, og ef að Valur
þættist misrjetti beittur gæti hann
snúið sjer til I. S. I. með kæru.
Inn á þetta vildu fulltrúar Vík-
ings (Guðjón Einarsson) og Fram
(Jón Magnússon) ekki ganga og
töldu K. R. R. einfært að ráða
sínum málum.
Fulltrúi Víkings, Guðjón Einars-,
son, bar nú fram málamiðlunartil-
lögu, sem var á þá leið, að K. R.
R. Íeyfði Val leikinn við Englend-
ingana, en ágóða leiksins yrði skift
í 5 hluta; fengju öll knattspyrnu-
fjelögin sinn hlutann hvert og K.
R. R. þann fimta.
Var gengið til atkvæða um þá
tillögu og viðhaft nafnakall. Var
tillagan feld með 1 atkvæði gegn
1. Með tillögunni greiddi Guðjón
Einarsson atkvæði, en Jón Magn-
risson greiddi atkvæði á móti. Guð-
mundur Ólafsson og Einar Björns-
son, fulltrúi Vals, sátu hjá við'
atkvæðagreiðsluna, en fulltrúi K.
R., Hans Kragh, var farinn af
fundi.
Þannig stendur málið nn.
Valur er ákveðinn í að keppa
við Englendingana án léyfis K. R.
R. og eiga á hættu sektir eða úti-
lokun frá kepni í sumar.
Enginn dómur skal á það lagð-
ur hjer, hvor hefir á rjettu að
standa í þessu máli, aðeins bent á.
að fjelagakriturinn milli íþrótta-
fjelaganna hjer í bænum er að
verða óþolandi og í engu samræini
við þann anda og hugarfar, sem
á að einkenna íþróttamenn.
★
En burt sjeð frá öllum deilum.
í kvöld verður án efa skemtileg-
ur leikur á vellinum, sem enginn
knattspyrnuunnandi vill missa af
að sjá. Klukkan 8 leikur hljóm-
sveit frá skipinu og gengur kring-
um völlinn að hermanna sið. Mun
margur hafa gaman af að sjá það.
Vívax.
Fimtugsafmæli á á morgun frú
Lilja Brandsdóttir, Grettisgötu 72
Silfurbrúðkaup eiga í dag frú
Halldóra Jónsdóttir og Grímur Kr.
Jósefsson járnsmlður, Njarðargötu
27. —
Rúðugler.
Útvegum allar teg. af rúðugleri frá Belgíu
eða Þýskalandi.
Eggert Kristjánssou & Co.
Til tækifærisgjafa
Schramberger heimsfræga kunst KERAMIK.
Handunninn KRISTALL.
K. Einarsson & Björnsson.
Bankastræti 11.
EF LOFTUR GETUR ÞAP EKKI — — ÞÁ HVERÍ
Dagbok.
I. O. O.F. 3 =1215228 =
Helgidagslæknir er í nótt Kjart-
an Ólafsson, Lækjargötu 6 B. Sími
2614.
Næturlæknir er Grímur Magn-
iisson, Hringbraut 202. Sími 3974.
Næturvörður er í Ingólfs Apó-
teki og Laugavegs Apóteki.
Lágafellskirkja. Messað í dag
kl. 12.45. (Ferming. Síra Hálfdan
Helgason.
86 ára varð 19. þ. m. ékkjan Þór-
laug Sigurðardóttir frá Reyni á
Akranesi. Hún dvelur nú á Elli-
heimilinu Grund.
3 þúsund handsðpustykki,
góð tegund, er lætur örlítið ásjá vegna geymslu í raka, en
að öðru leyti algerlega óskemd, verður seld á morgun frá
kl. 9—7 í portinu við Túngötu 5. /. i j
Kassi með 48 stykkjum kr. 10.00.
Vegna jarðarfarar
verða ikrtfstofur vorar
lokaðar allan daginn
á morgun.
Þúrður Sveinsson & Co. h.f,
82 ára verður í dag Sophus
Holm, Njálsgötu. 52 A. Hann mun
vera elsti Daninn sem hjer er bú-
settur. Hann fluttist hingað fyrir
69 árum, til ísafjarðar. Hjér í
Reykjavík hefir hann dvalið síð-
astá, áratuginn. Hann hefir ekki
sjeð ættland sitt síðastliðin 47 ár.
En nú í sumar ér hann að hugsa
um að skreppa heim til Danmerk-
ur, og sjá æskustöðvar sínar — ef
hann fær gjaldeyri til ferðarinnar.
Hjúskapur. í gær voru 'gefin
saman í hjónabánd 'af lögmanni
tmgfrú Halldóra Björnsdöttir frá-
Blönduósi og Hermann Búason.
Heimili þeirra verður á Fálkagötu
2, Grímsstaðaliolti.
Hjúskapur. 13. þ. m. voru gefin
saman í hjónaband af síra Sigur-
jóni Árnasyni ungfrú Elísabet
Kristjánsdóttir, Framnesveg 8, og
Jón Stefánsson bifreiðarstjóri,
Marargötu 12.
Blóm Mæðradagsins eru merki
dagsins.
Skólakepnin í frjálsuiA íþ'fóttum
milli Mentaskólans og Háskólans
liefst í dag kl. 1 e. h.
Skemtanir Mæðradagsins eru
góðar skemtanir.
Barnastúkurnar Svava og Díana
halda sameiginlega vorskemtun í
dag kl. 1.20 í Góðtemplarahúsinu.
. Leikfjelag Reykjavíkur sýnir
gamanleikinn Tengdapabha í kvöld
E.s. Katla fór norður um land
í gær.
B.v. Júpíter kom í gær með nýj
an fisk til herslu.
Útvarpið:
9.45 Morguntónleikar (plötur) :
Symfónía nr. 6, eftir Tschai-
ko^vsky.
14.00 Messa í Fríkirkjunni (sjera
Árni Sigurðsson).
15.30 Miðdegistónleikar frá Ilótel
Borg.
20.20 „Mæðradagurinn“:
a) Tónleikar.
b) Ræða: Sveitakonan (ungfrú
Inga Lárusdóttir),.
e) Ræða: Reykjavíkurkonan
(frú Marta Indriðadóttir).
d) Tónleikar.
e) Ræða: Mæðrarjettur (ungfrú
Laufey Yaldimarsdóttir).
f) Erindi: Heilsuvernd mæðra
(Katrín Tlioroddsen læknir).
g) Tónleikar.
smf'
Það tilkynnist vinum og vandamönnum, að hjartkær
kona mín
GUÐRÍÐUR EYÓLFSDÓTTIR
andaðist á sjúkrahúsi Hvítabandsins í gærmorgun.
Jón Steinason.
Hjer með tilkynnist, að
JÓN SIGURÐSSON,
bóndi í Skutulsey á Mýrum, andaðist á Landspítalanum þ.
17. þ. mán.
Kveðjuathöfn verður í fríkirkjunni mánudaginn 22. þ.
m. kl. 4^2 síðdecis. Síðan verður líkið flutt að Ökrum á Mýr-
um og jarðsett þar.
Vandamenn.
Jarðarför móður og tengdamóður okkar
GUÐRÍÐAR GUÐMUNDSDÓTTUR
fer fram frá dómkirkjunni þriðjudaginn 23, þ. m. og hefst
með bæn á heimili hennar, Rauðarárstíg 13 B, klukkan 1 e. h.
Jarðað verður í gamla kirkjugarðinum.
Sigurlaug Guðmundsdóttir. Guðjón Þórarinsson.
Jónas Guðmundsson. Guðmundur Guðmundsson.
Jarðarför mannsins míns
ÞÓRÐAR SYEINSSONAR bankabókara
fer fram frá dómkirkjunni mánudaginn 22. þ. m. kl. 1% e. h.
Óskað er, að blóm verði ekki send.
Ólafía Bjarnadóttir.
Hjartans þakkir fyrir auðsýnda samúð og hjálp við fráfall
og jarðarför konu minnar og móður okkar,
HELGU S. KRISTJÓNSDÓTTUR
frá Súgandafirði.
Jón S. Steinþórsson.
Finnhorg Salóme Jónsdóttir. Steinþór Erlingur Jónsson.
J
Innilegar þakkir fyrir vináttu og samúð við andlát og
og útför
GUÐRÍÐAR ÁRNADÓTTUR
frænku okkar.
Anna Benediktsson.
Áslaug Ágústsdóttir. Guðrún Ágústsdóttir.
Innilegt þakklæti vottum við öllum þeim, sem sýndu
hjálp og hluttekningu við andlát og jarðarför
HILDAR BJARNADÓTTUR.
Fyrir hönd mína og annara vandamanna
Magnús Kristjánsson.