Morgunblaðið - 21.05.1939, Page 8
8
MORGUNBLAÐIÐ
Sunnudagur 21. maí 1939L
Jéaujts/Uyiuv
ÓDÝR BLÓM
Opið í dag kl. 10—4.
10% til Mæðrastyrksn.
KAKTUSBÚÐIN
^ Laugaveg 23. Sími 1295.
KÁLPLÖNTUR
ágætar tegundir. Plöntusala Elli-
og hjúkrunarheimilisins Grund.
STEINHÚS í MIÐBÆNUM
— tvær hæðir — til sölu milli-
liðalaust. Þrjú herbergi og eld-
hús á hæð og tvö íbúðarherbergi
í kjallara. A. v. á.
VIL KAUPA
notaða kolaeldavjel, meðal stærð.
Keima eftir kl. 8. — Ármann
Jónsson, Brávallagötu 22.
ORGEL
til sölu með tækifærisverði. —
Bragagötu 33A, miðhæð. — Til
sýnis eftir kl. 11 í dag.
FJÖGRA MANNA BÍLL
I góðu standi, til sölu. Til sýnis
á Mánagötu 8, kl. 10—12 árd. í
dag. Sími 3412.
KOPAR KETPTUR
í Landsmiðjunni.
LEGUBEKKIRNIR
eru bestir á Vatnsstíg 3. Hús-
fragnaverslun Reykjavfkur.
ISLENSK FRÍMERKI
kaupir hæsta verði Gísli Sig-
urbjörnsson, Austurstræti 12
<1. hæð).
RITZ KAFFIBÆTISDUFT
og Blöndahls kaffi fæst ávalt I
I»orsteinsbú0, Grundarstíg 12,
og Hringbraut 61. Munið blönd-
Unina: 1 skeið RITZ og 3 skeið-
ir kaffi.
ÞORSKALtSI
Laugavegs Apóteks viöurkendi
þorskalýsi i sterilum ílátun
kostar aðeins 90 aura heilflask
an. Sent um allan bæ. Slm
1616
HEILHVEITIBRAUÐ
og heilhveitikruður altaf ný-
bakað allan daginn. Jón Sím-
onarson, Bræðraborgarstíg 16.
KLÆÐASKÁPAR
tvísettir, fyrirliggjandi. — Hús-
gagnaverksm.' og verslun Guðm.
Grímssonar, Laugaveg 60.
EFTIRMIÐDAGSKJÓLAR
sumarkjólar og blúsur í úrvali.
Saumastofan Uppsölum, Aðalstr.
18. — Sími 2744.
QUILLAJABÖRKUR
bestur og ódýrastur í Lauga-
vegs Apóteki.
DÖMUFRAKKAR
ávalt fyrirliggjandi. Guðm. Guð
mundsson, klæðskeri, Kirkju-
hvóli. Sími 2796.
ÖSKUTUNNUR
með loki úr stáli á 12 kr., úr
jámi á 5 kr., fást á Laufásvegi
18 A.
KALDHREINSAÐ
þorskalýsi sent um allan bæ. —
Bjöm Jónsson, Vesturgötu 28.
Sími 8594.
NÝ ÝSA
Nýr færafiskur og rauðmagi.
Útvatnaðar kinnar o. fl. Fisk-
salan Björg, sími 4402.
NOTIÐ „PERO“,
ítór pakki aðeins 45 aura.
Saumastofan SMART
er flutt í Austurstræti 5.
BETANlA
Almenn samkoma í kvöld kl. S'/o-
Ræðumaður Markús Sigurðsson
og fleiri. — Allir hjartanlega vel
komnir!
HJÁLPRÆÐISHERINN
Samkomur í dag kl. 11 og kl.
SV2. — Útisamkoma kl. 4. Adj.
Kjæreng. Foringjar og liðsmenn.
Allir velkomnir!
ZION, Bergstaðastræti 12
Samkoma í kvöld kl. 8. 1 Hafnar
firði á Linnetstíg 2 kl. 4. —
Allir velkomnir.
t--------------------------
f FÍLADELFÍA
-Samkoma á sunnudaginn kl. 4
e. h. á Óðinstorgi, ef veður leyfir
og á Hverfisgötu 44 kl. 5 e. h.
Allir velkomnir!
Hrísgrjón.
Sig. Þ. Skjaldberg.
(Heildsalan).
Hraðferðir
lil Akureyrar
Bráðum byrjar STEINDÓR hraðferðir um Akranes
til Akureyrar, þrisvar í viku. Nánar auglýst síðar.
SM&tjnnÍntjcuf
Notið Venus
HÚSGAGNAGLJÁA,
efbragð* góður. Aðeinj kr. 1.50
glasið.
BESTI FISKSÍMINN
er 5 2 7 5.
MINNINGARSPJÖLD
fyrir Minningarsjóð Einars
Helgasonar garðyrkjustjóra,
fást á eftirtöldum stöðum:
Gróðrarstöðinni, Búnaðarfjel
Islands. Þingholtsstræti 33
Laugaveg 50 A. Túngötu 45 og
afgreiðslu Morgunblaðsins. —
I Hafnarfirði á Hverfisgötu 39.
I.O. G.T.
St. FRAMTÍÐIN nr. 173
Fundur í kvöld kl. sy2. —
íþaka heimsækir. Sjálfboðaliðar.
3EH
TJÖLD
og SÚLUR
Verbúð 2.
Sími 2731.
n----i[=ini=ii^=^=ii=i
TEK AÐ MJER
hreingerningar. Vönduð vinna^
Sími 5133.
OTTO B. ARNAR,
löggiltur útvarpsvirki. Hafnar-
stræti 19. Sími 2799. Uppsetn-
mg og viðgerðir á útvarpstækj-
um og loftnetum.
HREINGERNINGAR
í fullum gangi. Guðjón o ? Geiri
Sími 2499.
FRIGGBÓNIÐ FÍNA,
er bæjarins besta bón.
SLYSAVARNAFJELAGIÐ,
BkrifBtofa Hafnarhúsinu við
Geiragötu. Seld minningarkort,
tekið móti gjöfum, áheitum, árs
illögum o. fl.
HREINGERNINGAR.
Jón og Guðni. Sími 4967.
TEK AÐ MJER
að setja í stand lóðir og vinna í
igörðum. Til viðtals í síma 4612,
|kl. 6—8 í kvöld.
TEK AÐ MJER ÞVOTTA
eins og áður. Uppl. í síma 4710.
Lína Guðmunds.
VORHREINGERNIN G AR
í fullum gangi. Pantið í tíma
Helgi og Þráinn. Sími 2131.
HREINGERNING
er í gangi. Fagmenn að verki..
Munið hinn eina rjetta: Guðna?
G. Sigurdson, málara, Mánagötie
19. — Sími 2729.
GERI VIÐ
saumavjelar, skrár og allskonaff
heimilisvjelar. H. Sandholt,
Klapparstíg 11. Sími 2635.
SOKKAVIÐGERÐIN,
Hafnarartræti 19, gerir við kven-
>okka. Fljót afgreiðsla. — Síml
2799. Sækjum, ssndum.
0HABLE8 G. BOOTH.
Ctlagar í austri.
Og einn góðan veðurdag þreif hann keyrið úr hendi
liennar og sagði: „Nú er nóg komið! Jeg er fullorð-
inn maður“.
I fyrsta sinn sá hún nú, hversu hann hafði þrosk-
ast, og hjarta hennar var að springa af móðurstolti.
En hún sagði aðeins:
„Farðu þá úr húsi mínu og sýndu það, að þú sjert
maður“.
* /'
Síðan fór Yang upp með Yangtze ánni og gerðist
dráttarkarl með mörgum tugum annara manna, lágt
settra, er drógu hina þungu báta upp strauminn.
Á hverju kvöldi borðaði hann rís sitt með káli,
steiktu í feiti, og stundum svínakjöt eða fisk, og
horfði með fyrirlitningu á fjelaga sína, sem reyktu
ópíumpípur.
Og hann komst brátt leogra og lengra, uns hann
varð skinstjóri á fljótsbáti. Síðan varð hann eigandi
að öðrnm bát, sem vakti öfund allra fjelaga bans.
Hann sendi móður sinni gylta hringí, silkistranga og
poka með silfurpeningum. Og hún keypti sjer skó
með hælum og setti hár sitt upp eins og hefðarkonur
í Peking.
„Sonnr minn er sannarlega mikill maður“, sagði
hún.
Brátt fóru menn að óttast Yang, Gulu blettirnir í
augum hans skutu fólki skelk í bringu og gerðu
menn mállausa. Við tíunda mann rændi hann nótt
eina flutningaskip, sem Soong kaupmaður átti og
hafði strandað fyrir neðan Sui Fu. Síðar rændi hann
fleiri flntningaskip. En þegar lögreglan sá hann við yf-
irheyrsluna, fjetllust henni hendur. Og sannanir vant-
aði.
Eftir það var farið að kalla hann „sjóræningjann“.
Einn góðan veðurdag seldi hann skip sitt kaup-
manni frá Shanghai fyrir þrisvar sinnnm hærra verð
en það átti að kosta.
Það var ofnr auðvelt.
Wong, fvlgisveinn Yangs, lijelt hnífi við háls kanp-
manns, uns viðskiftin voru útkljáð og peningarnir
greiddir.
Síðan fór Yang með menn sína og eigur upp til
fialla, en fyrst semli Itann móður sinni blævæng úr
páfuglafjöðrum og dýrindis roðasteinshring.
Gamla lconan hengdi þessi merki um velmegun sína
npp til skrauts og smurði líkama sinn angandi olíum.
„Sonnr minn er orðinn mikill maður“, sagði hún.
*
Fólk kallaði Yang ræningja, en gamla konan leit
öðruvísi á það mál. Þegar maður liefir yfir að ráða
20 þúsund hermönnum með þýskar byssur um öxl, og
hefir nnnið þrjár borgir, ])á er liann mikill lierfor-
ingi. Og liermenn haus höfðu altaf nóg silfur og rís,
og frægð Yangs fór vaxandi. Brátt hafði hann 50
þúsund hermenn í þjónustu sinni, og heilt lijerað
greiddi honum skatt.
„Sonnr minn er það, sem jeg hefi gert hann að, og
nú getur sál mín feng-ið hvild“, sagði móðir hans, og
skömmu síðar andaðist hún.
Yang Ijet jarða hana með meiri viðhöfn en þekst
hafði síðan á dögum g-ömlu konungsættarinnar. Hann
hygði altari til minningar um hana og brendi reyk-
elsi fyrir þan goð, sem hún hafði dýrkað. Og með
þessu ávann hann sjer virðingu goða og manna.
Eftir greftrnnina fór hann aftur til Shen Si, hugs-
aði um hlutverk sitt og vann eina borg í viðbót.
Einu sinni var komið með gamlan Englending fyrir
Yang. Hann var kennari, og Wong vildi slcjóta hann.
En Yang skipaði Wong að fara út og talaði einslega
við manninn. Hann sagðist vilja læra mál haus og gaf
honum hálft ár til þess að kenna sjer það. Ef hann
væri ekki orðinn nógu fær í málinu þá, sagðist hann
myndu skera úr honum hjartað með eigin hendi, en
ef hann væri búinn að læra það nógu vel, ætlaði hann
að launa honum vel og lofa honum að fara.,
Sex mánuðum síðar kunni Yang ensku og gamli
maðurinn fór leiðar sinnar með dýrindis kring ái
fingri.
Yang fjekk orð fyrir að efna lofoiA sítt, ef hann.'
á annað borð lofaði einhverju.
Lífvörður hans var nú orðinn nærri því eins fræg-
ur og hann sjálfur. í honum voru 50 menn, hraustir
og trúir Yang. Snmir liöfðu verið með lionum á fljót-
inu, og aðrir síðar feugið tækifæri að sýna, hvað þeir
gátu..
En þeir urðu að hafa fleiri eiginleika en hreysti.
Hermenn Yangs voru dnglegir af því að þeir fengu:
góð stígvjel, nóg rís og peninga. En lífvarðarsveitin;
var öðruvísi. Þeir vorn eins og verkfæri, sem átti að
gera hin guðdómlegu örlög Yangs að veruleika. Þeir
tilheyrðu honnm andlega og: líkamiega. Hann: liafðii
komið inn hjá þeim hngmyndinni um mikilleik sihni-
eins og móðir hans hafði' rótfest haua hjá honum. Og
þeir vissu, að ef dauðinn tæki hann, myndi þeim auðn-
ast að deyja líka.
Miklar sögur fóru af Yang, í Peking, Nankingj..
Shanghai og jafnvel í Canton. Fingurskrúfnr hans og
hyssustingir voru orðnir eins og hver önnur plága, og
í Nanking var hann gerður útlægur og fje sett til
höfuðs honum. Keppinautur lians einn úr norðurhluta
landsins gerði tilraun til þess að múta hermönnum
lians og fá þá í lið með sjer. En Yang trúði á forlög
sín, og einn góðan veðurdag leiddu þau hann inn í’
herbergi Marcelles’ á Hotel Pierre Conti
„Fyrst verðið þjer að finna hinn hundhm“, sagðii
O’Hare.
„Ef til vill horfi jeg á hann núna“, sagði Yang.
„Það verður erfitt að sánna það“.
„Við sjáum hvernig yfirheyrslan fer“.
„Hvaða yfirheyrsla ?“