Morgunblaðið - 29.06.1939, Page 7
Fimtudagur 29. júní 1939.
MORGUNBLAÐIÐ
%
f
f
y
l
Hveiti
5 kg. pokivm á 2.25.
❖ .
^♦1
Y
| í lausri vigt 40 au. pr. kg.
f
❖ í 50 kg. pokum 16.60.
f
| Heilhveiti í 10 lbs. pok. 2.00. %
Ý
X í lausri vigt 40 au. pr. kg.
f
f
I Þorsteinsbáð
£ Hringbraut 61. — Sími 2803.
£ Grundarstíg 12. — Sími 3247. •»*
f f
Áællu narf erðir
Akranes-Borgarnes
AUa þriðjudaga og föstudaga
strax eftir komu Pagraness að
morgni. ,— Frá Borgamesi sömu
daga kl. 1 e. h. — Fagranesið fer
þriðjudaga kl. 9 s.d. til Reykja-
víkur.
Ma^nús Gunnlaugss.
bifreiðarstjóri.
Austurferðfr
Vesturferðir
í Ölfus, Grímsnes, Biskupstungur,
að Geysi í Haukadal, til Þrasta-
lundar, Laugavatns; til Borgar-
fjarðar hvern mánudag, til baka
hvern þriðjudag.
Höfum ennfremuv til leigu í lengri
ferðir 18 manna bíla.
Bilreiðastoöin Geysir
Sími 1633 og 1216.
Böglasmjör
ágætt.
vísm
Laugaveg 1.
Útbú Fjölnisvegi 2.
Svefnpokar
frá Magna
«ru ómissandi í feróalðg.
ÍFimm gerðir fyrirliggjandi.
Einnig hlífðardúkar.
HF===U=1 r-—-inr=i 0 EH==3t=l g====filJ
j Gisllhúsið |
| i Norðiungu
t tekor á móti gestum tM sum- !
j ardvalar eins og að uudan- 0
m—=gn=u.TTTT^-mt=ini---=it=i<i—=.in
MÍLÁFLUTNINGSSpFSTOF*
\ Pjetur Magnússon.
' Einar B. Guðmundsson.
Guðlaugur Þorláksson.
Símar 3602, 3202, 2002.
Austurstrœti 7.
:• Skrifstofutími kl. 10—12 og 1—0.
Árni Pálsson
áttræður
¥ dag er hann 80 ára að aldri, og
49 ára hrepp;;tjóri. Fæddur er
hann að Þingskálum á Rangár-
völlum. Faðir hans, Páll Guð-
mundsson óðalsbónda á Keldum
bjó þar þá, en síðar á Selalæk og
var hreppstj. á Rangárv. Móðir
Árna var Þuríður Þorgilsdóttir b.
á Rauðnefsstöðum.
Foreldra sína misti Árni, þá
hann var 11 ára (með 1 l/í mán.
millibili — taugaveiki). Eftir það
ólst hann upp hjá móðursystur
sinni Höllu og Markúsi í Flögu
í Flóa, og var svo hjá þeim
vinnumaður til 23 ára aldurs. Fór
hann síðan ráðsmaður til vel efn-
aðs bónda þar í nágrenni, Magn-
úsar Gíslasonar á Hurðarbaki.
Hann bjó þar með hústýru, barn-
iaiis ekkjumaður og örvasa. Gekk
Árni honum í sonar stað, svo vel
og trulega, að Magnús arfleiddi
ha-nn að hálfurn eignum sínum.
Magnús andaðist 17. apríl 1886,
93 ára. Þannig eignaðist Árni
jörðiöa Hurðarbak, og bjó þar
síðan góðu búi vfir 40 ár. Giftist
vorið 1887 Guðrúnu Sigurðardótt-
ur (d. 1915) bónda í Vælugerði
(Þingdal), þar í sveit. Bignuðust
þau 13 b'örn og ólu upp 12 þeirra,
9 syni og 3 dætur. Eru þáu öll
gift og eiga börn, nema bræður
tveir.. Dyelur Árni nú í elli sinni
hjá börnum sínum, belst Magnúsi
bónda í Flögu. :
Árni Pálsson hefir hvarvetna
verið sómi sinnar stjettar. Greind-
ur í besta lagi, og greiðvikinn,
grandvar, forsjáll og ráðhollur,
skilviss og áreiðanlegur í öllum
víðskiftum. Þessir góðu kostir
hans hafa Hka verið notaðir hlífð-
arlaust: Hreppsstjórn i Viilinga-
holtshreppi samfleytt í 49 ár og
sýslunefndarstörf nokkuð færri
ár, en varð að sleppa þeím í fyrra,
sÖkum hnignan.l; heyrnar. Þessi
og önnur störf hefir hann rækt
með dngnaði, kappi og forsjá.
Sökum brjóstmæði á hann nú orð-
ið erfitt um gang, en her ólotinn
líkama og sát.
í mwningar og þakklætisskyni
hjeídu sveittmgar Árna honum
veglegt samsæti (um 150 manns)
á heimili hans, Flögu, s.l. sunnu-
dag. Voru þar ræður fluttar, ljóð
ort og sungin og gjafir afhentar.
í dag • unu og margir hugsa til
hans hlýlega með árnaðaróskum.
V G.
Snmarskóli guðspekinema hefst
í dag í Þrastaluudi. I.agt af stað
kl. 6 síðd. frá Steindórsstöð.
Á síldveiðar fór í gær b.v. Kári.
1 dag mimu margir togarar fara
norður.
01
Qagbófe.
Háflóð er í dag um kl. 5.30.
Sjávarliitinn í Skerjafirði í gær-
dag um flóð var um 15 stig við
land ög 14 stig úti í firðinum.
Fjöldi manns notar. sjóimi og sól-
skinið þessa dagana. .
Næturlæknir er í nótt Halldór
Stefánsson, Ránargötu ' 12. Sími
2234.
Næturvörður er í Reykjavíkur
Apóteki og Lyfjabúðinni Iðunn.
Jónas Ámason yjelstjóri, Berg-
staðastræti 6 B, verður sextugur í
dag. '•
Frú Arnfríður Ámadóttir (kona
Jóns frá Hvoli), Sóleyjargötu 15,
er 55 ára í dag.
Spegillinn kemur út á morgun.
Eimskip. Gullfoss fór til Vest-
fjarða og Breiðafjarðar í gær-
kvöldi kl. 8. Goðafoss er á leið til
Vestinannaeyja frá Hull: 'Brúar-
foss er í Kaupmannahöfn. Detti-
foss er í Reykjavík, Lpgarfoss er
í Kaupmannahöfn. Sejfoss er í
Antwerpen.
Ferðafjelag íslands ráðgerir að
fara^ 2 skemtiferðir nm næstu
helgi. Þjórsárdalsför: Lagt á stað
kl. 4 síðdegis á laugardag og ekið
í bílúlp að Ásólfsstöðnm og gist
þar. Sunnudagsmorgun verður
haldið inn í Dal, fyrst að Hjálp-
arfosjsi og sem leið liggur inn í
Gjá. Þegar búið er að skoða hana
verður lialdið áfram upp Spreugi-
sandsveg að afrjettargirðingum
og þar úr bílunum. Þá farið gang-
andi að Háafoss'i (414 f.) og frá
fossinum með Fossá niður fyrir
Staiigarfjall og þar í bílana. Þjórs
árdalur hefir mikla fjölbreýtni og
margskonar fegurð að þjóða. Þar
er liæsti fos landsins, HáifosS, ann--
ar vatnsmésti fossin, Þjófafb'ss; og
einn fegursti fossinu, Hjálparfoss.
Þá er Gjáin eitt af úndrum'lands-
ins. Hyergi er HekTa fallegri. en
sjeð frá Ásólfsstöðum. — Gengið
á Eyjaf jallajökul: Lagt á stað kl.
4 síðdegis á laugardag og ekið að
Stóru-Mörk ungir Eyjafjöllum 0g
gist þar. Sunnudagsmorgun
snemma verður lagt á jökulinn frá
Stóru-Mörk og gengið upp að
Goðasteini (1580 m.). Jökulgang-
an er ekki erfið, en tekur 8—9
tíraa. Eyjafjallajökul] er eitt feg-
ursta fjell á íslandi og útsýní frá
Goðásteini er óviðjafnanlegt. —
Áskriftarlisti og tarmiðar seldir á
skrifstofu Kr. O. Skagfjörðs, Tún-
götU; 5, til föatudagskyölds kl. 7.
Ný bók. 1 tileíni af 50 ára af-
mæ'i kennarasamtakanna á ís-
landi hefir Samband ísl. barna-
kennara gefið út hátíðarit, „Sögu
alþýðufræðslunmtr", eftir Gunnar
M Magnúss. Er þetta mikil bók,
320 bls., og prýdd fjölda mynda.
Frágangur hókitrinnar er hinn
vandaðasti.
Póstferðir á morrgun Frá Rvík t
Mosfellssveitar, Kjalarness, Reykja
ness, Olfuss og Flóapó.star, Þing-
vellir,. Þrastalundur, Háfnarfjörð-
ur, Fljótshtíðarpóstur, Austahpóst-
úr, Akranes, Borgarnes, Snæfells-
neepóstur, ' Stykkishólmspóstur,
Dalitsýslupóstur. Til'Rvíkur: Mos-
felissveitar, Kjalarness, Reykja-
iiess, Ölfuss og Flóapóstar, Þing-
vellir, Þrastalundur, Hafnarfjörð-
ur, Meðallands og Kirkjubæjar-
klausturspóstur, Akranes. Borgar-
nes, Norðanpóstnr.
Útvarpið í dag :
19.45 Frjettir.
■20.20 Hljómplötur; Gamlir dansar
20.30 Frá útlöndum.
20.55 IIIjómplötur: Ljett lög.
21.00 Útvarp fró útbreiðslufundi
Stórstúku f. 0. G. T.: Ræður,
upplestur, söngur.
Hraðferðir S(eindór§:
Allar okkar hraðferðir til Akureyrar eru um Akranes.
FRÁ REYKJAVÍK: alla mánudaga, miðvikudaga, föstudaga. — —
FRÁ AKUREYRI: mánudaga, fimtudaga, laugardaga. —-
M.s. Fagranes annast sjóleiðina.-Nýjar upphitaðar bifreiðar
með útvarpi.
Steindór Sími 1580, 1581, 1582, 1583, 1584.
_______ * ii
- - LITLA BILSTQÐIH Er nokkað stór.
UDphitaðir bílar. Opin allan sólarhringinn.
Morgunblaðlö með msrgunkaffinu
Jarðarför manusins núns,
KARLS JOHNSONS bankaritara,
fer fram frá Dómlarkjmuú föstudaginn 30. júni, og befst með
bæn að Sjafuargötu 7 kl. 1 e. h.
Sigriður Kr. Johnson.
Jarðarför konuunar minnar og móður okkar,
KRISTÍNAR OLAFll BRYNA>LFSDOTTUR,
sem andaðist 22. þ, m., fer fnjin laugardaginn 1. júlí n.k. og
hefst með húskveðju að heimili okkar, Litla-Hólmi, Leiru, kl.
lJ/2 ©. h. — Jarðað verður í Keflavík.
Bílferð frá Steirdóri.
Sigurjón Eínarsson og börn.
Jarðarför móður og tengdamóður okkar,
ekkjunnar GUDRÚNAR BJÖRNSDOTTUR,
fer fram laugardaginn 1. júlí og hefst með húskveðju kl. 11
f. h. á heimiH hennar, Laugumesveg 38.
. Jarðað verður á Eyrarbakka kl. 3 sama dag.
Kristín Guðmundsdóttir og Kristinn Hróbjartsson.