Morgunblaðið - 06.08.1939, Page 3
Sunnudagur 6. ágúst 1939.
MQRGUSBLAÐIÐ
Hitaveitan: Götupíp-
urnar verða 45 km.
Vikur verður
einangrunarefni
Byrjað er nú fyrir nokkrum dögum að vinna í
hitaveitunni. Er það 40 manna flokkur, sem
vinnur þar að fyrstu framkvæmdunum.
Vinna þeir að undirstöðnnni undir aðalleiðsluna, sem liggja á
milli Reykja og Öskjuhlíðar. Sú undirstaða er úr grjóti.
Ofan á hana kemur leiðslan, er síðan yerður byrgð með 'mold.
1 En nokkur bið verður á því að framkvæmdir hefjist í stór-
um stíl.
Sennilega verðar ekkert byrjað
á því að reisa geymana á Öskju-
hlíð fyr en að sumri. Og aðalæð-
lna að Reykjum er ekki liægt að
leggja fyr en seinna. Því fyrst
Þarf að gera pípurnar. Þær eru
gerðar í verksmiðju Höjgaard &
Schultz í Höfn.
Verið er nú að ganga frá út-
heðum á því sem kaupa þarf til
^eitunnar, t. d. stálpípunum, sem
* að nota í innanbæjarkerfið.
Stálpípur þessar verða í steypt-
^ rennum, sem lagðar verða í
göturnar. Verður unnið að þess-
rennugerð í vetur. Er verið að
gera tilraunir með það inn á Bar-
onsstíg, hvernig þægilegast er að
Fara til Þýskalands
i knaltspyrnufAr
úr bænum
um helgina
Skemlun að
Eiði I dag
iiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiii
koma
sJer fyrir við það verk,
hvernig steypumótin eiga að vera
þessh.
Búist er við að vikur verði not
aður til þess að einangra stálpíp-
örnar í bæjarkerfinu. Alls verða
þessar götuleiðsiur um 45 kfló-
metrar á lengd. En rennurnar,
^eni steyptar verða, til þess að
leggja pípurnar ', verða í mörg-
0111 götum ekki nema um 30 senti-
nretrar á breidd.
Lnndgaard verkfræðingur
stjórnar hjer verkinu fyrir Höj-
Saard & Schultz ásamt Langvad
^erkfræðingi, er var við Sogs-
Tlrkjunina. Lundgaard er fluttur
bingað. Langvad er á leið hingað.
SLrifstofa firmans verður 1.
ektóber og framvegis í húsi Ein-
ars Rjeturssonar í Miðstræti.
Kveðja
frá Stauning
Q t^uning, forsætisráðh. Dana,
hefir beðið íslensk blöð að
»uta eftirfarandi:
”Nú er jeg held burtu frá ís-
^Hi, sendi jeg hjartanlega
kveð.íu til íslensku ríkisstjórnar-.
mnar 0g íslensku þjóðarinnar,
^ueð þakklæti fyrir vingjarnlega
gestrisni 0g fyrir bróðurhug, sem
^ujer hefir verið sýndur“.
t ®tauning for til útlanda með
Lullfossi í fyrrakvöld. Hann er
gestur Eimskipaf jelags íslands um
borð.
v. Tschammer u. Osten.
Lrúlofun. í gær opinberuðu trú
°fnn sína frk. Guðrún Johnson,
r'Jettaritari Útvarpsins, Framnes-
eg 23 og Benjamín Einarsson
erslunarmaður, Öldugötu 30 A.
toginn gefur
okkur knatt-
spyrnubikar
Nýlega hefir verið staðfest
sú góða fregn, að rík-
isíþróttaleiðtogi Þýskalands,
v. Tschammer u. Osten, hefir
gefið bikar handa knattspyrnu
mönnunum hjer í bœ, til þess
að keppa um. — Kemur bikar
þessi hingað til lands einhvern
næstu daga.
v. Tschammer und Osten er
í aðalstjórn „Nordische Gesell-
schaft“, en það vinnur sem
lcunnugt er, mikið og gott starf
til þess að efla menningarlega
samvinnu Þjóðverja við Norð-1
urlönd. — Hefir ríkisíþrótta-
leiðtoginn og ávalt sýnt sjer-
staka velvild í garð Islands og
íslendinga — og munu þátttek-
endur knattspyrnufararinnar
til Þýskalands árið 1935 muna
eftir því.
Gjöf ríkisíþróttaleiðtogans
til handa íslenskum knatt-
spyrnumönnum verður væntan-
lega til þess að treysta þau
bönd vináttu og samstarfs á
sviði knattspyrnunnar, sem tek
Veðurfregnirnar eru ekki eins
góðar í dag og æskilegt hefði
verið. Spáð er dálítilli rigningu
eða skúrum.
Það er óhætt að fullyrða,
að mörg þúsund manns hafi
leitað burtu úr bæjarrykinu út
um landið í gær og í fyrradag.
Og þó töldu bifreiðastöðvarnar
hjer í bænum í gær, að ekki
væri enn komin mikil hreyfing
á fólkið — það myndi ekki
verða fyr en dag — ef veður
leyfir.
Á VEGUM V. R.
Á vegum Verslunarmanna-
fjelags Reykjavíkur eru um 500
—600 manns í Vestmannaeyjum
og í Borgarfirði. Laxfoss fór
um miðjan dag í gær til Borg-
arness, alveg fullskipaður, vafa-
laust með um' eða yfir 300
manns.
í gærkvöldi var dansleikur í
Borgarnesi og í dag er skemtj
un í Þverárrjett. Verða ef-
laust margir Reýkvíkingar þar.
FRÁ BIFREIÐA-
STÖÐVUNUM.
Frá bifreiðastöðvunum fór
fjöldi manns auSt\!r um sveit-
ir. Ellefu stórir1 almennings-
vagnar fóru frá Bifreiðastöð Is-!
lands austur fyrir fjall — eða
á þriðja hundrað manns.< Fjöldi
manns fór frá Steindóri austur
á Þingvöll.
Með Ferðafjelagi íslands fóru
60—70 manns austur að Kerl-
ingarfjöllum og að Hveravöll-
um. í
Frá bifreiðastöðinni Geysi
fóru um 50 manns austur í
Biskupstungur og fjöldi manns
að Kleifarvatni.
Frá Bifreiðastöð Reykjavík^
ur fóru um| eða yfir 50 manns
austur í Fljótshlíð og austur
undir Eyjafjöll.
Frá Litlu bílstöðinni fór
margt í .lengrj og skemmri
ferðir.
verður án
efa
FRAMH. Á SJÖUNDU Sfi)U.
AÐ EIÐI.
I dag
margt manna að Eiði.
Friðþjófur O. Johnson, for-
maður Verslunarmannafjelags
Reykjavíkur setur hátíðina kl.
3 í dag. En áður leikur Lúðra-
sveitin Svanur nokkur lög,— frá
jkl. 21/2• Þarna verða ræðuhöld
(Eyjólfur Jóhanusson og Gunn-
lllllllliiiillllilliiniii
Þýskalandsfararnir úr Val 0g Víking. Sitjandi eru m. a. Buchloh,
þjálfarinn og Gísli Sigurbjörnsson, fararstjórinn. (Sjá grein
bls. 6).
Síldih: „Góðar frjettir
af miðunum“
0 í _______
Bræðslusíldaraflinn heldur
meiri en í fyrra
Síðustu frjettir af miðunum eru góðar“, símar
frjettaritari -vor á Siglufirði í gærkvöldi.
„Fjöldinn í bátum og nokkur skip eru lögð
af stað til hafnar með 100—300 tunnur til söltunar“.
Veiðiveður er nú ágætt, hiti og logn.
Skipin eru allflest á vestanverðu síldarsvæðinu. Voru jjau
að streyma þangað í alla fyrrinótt og í gær(
Fjöldi erlendra reknetaveiðiskipa voru í höfn á Siglufirði í
gær og höfðu margir góðan afla.
FRAMH. Á SJÖTTU S&)U
Þjóðhátíðin
í Eyjum
Af jórða ? þúsund manns
sækja þjóðhátíðina í Eyj-
mn, sem sett var í gær.
I gærmorgun komu þangað
rúmlega 400 Reykvíkingar
með e.s. Gullfoss. Hafði ferðin
gengið vel, þótt sjóveður hafi
ekki verið gott.
I Herjólfsdal hafa verið sett
upp á fjórða hundrað tjöld.
Veður er gott, sólskin síð-
degis í gær.
Reykvíklngarnjr fara heim,-
leiðis með „Lyru“ í kvöld
(sunnudag) og með Brúarfossi
á morgun.
Úrslit í íþróttum, sem kept
var í 1 gær, urðu þessi:
1 kappróðri vann Týr.
I 50 metra sundi frjáis aðferð
(kept um þjóðhátíðarbikarinn)
vann Vigfús Jónsson.
I 3000 m. hlaupi vann Sigur-
geir Ársælsson (Ármann) á 9
mín. 47,fl4sek.
1 stangarstökki: 1) Þorsteinn
Magnússon (K.R.) stökk 3,25
m. 2) Anton Björnsson (K.R.)
3,17 m. 3) Anton Bjarnason
(K.V.) 2.90 m.
I handbolta kvenna vann
Týr með 4:1.
Til verksmiðjanna á Siglufirði
komu í gær og í fyrrinótt 35 skip
með 7500 mál, alt gamalt.
Alls höfðu ríkisverksmiðjurnar
fengið í gær 235.292 mál, sem
skiftist þannig; Siglufjörður
179.700 mál, Raufarhöfn 44.286,
Húsavík 8.800 og Sólbakki 2506.
Á sama tíma í fyrra höfðu rík-
isverksmiðjurnar fengið: Siglu-
fjörður 170.756 mál, Raufarhöfn'
12.427 og Húsavík 4324.
Er aflinn í hræðslu samkvæmt
þessu enn nokkuð meiri en á sama
tíma í fyrra.
Söltun á Siglufirði frá því síð-
degis á föstudag, þar til síðdegis
í gær 1298 tunnur, þar af 360 tn.
úr herpinót. Hæsta söltun á einni
stöð var hjá h.f. Sunna 1260 tn.
í gær lestaði e.s. Hekla tojöl
frá ríksiverksmiðjunnm til út-
flutnings.
Hjalteyri.
Nokkur skip hafa komið þang-
að með gamla slatta.
í gær var verksmiðjan á Hjalt-
eyri húin að fá rösk 100 þús. niál
— á sama tíma í fyrra 105 þús.
mál.
Djúpavík.
Þar voru í gær komin á land
rúmlega 50 þús. mál. Er það svip-
að og um sama leyti í fyrra, eða
heldur minna (í fyrra: 51.800
mál).
FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU,