Morgunblaðið - 06.08.1939, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 06.08.1939, Blaðsíða 8
8 JCnun&foafiue Afmæliskort Bókaverslun Sigurðar Kristjáns sonar, Bankastraeti 3. , Hyllupappir Bókaverslun Sigurðar Kristjáns sonar, Bankastræti 3. Glansmyndir Bókaverslun Sigurðar Kristjáns- sonar, Bankastræti 3. RABARBAR nýupptekinn daglega, 50 au. kg Strausykur 65 au. kg. Púður- sykur. Ðökkur Hellukandís. Vanillestengur. Melatin í pökk um og glösum. Atamon. Beta- mon. Vínsýra. Cellophan-papp- ír. Tappar. Syltuglös með skrúf uðu loki l/2 kg. og 1 kg. Niður suðuglös margar stærðir. — ÞORSTEINSBÚÐ, Grundarstíg stíg 12. Sími 3247. Hringbraut 61. Sími 2803. ISLENSKAR KARTÖFLUR stórar, 50 au. pr. kg. — Þor- steinsbúð, Hringbraut 61, sími 2803. Grundarstíg 12, sími 3247.___________________ MEÐALAGLÖS Fersólglös og Soyuglös, keypt daglega. Sparið milliliðina og komið beint til okkar ef þið ▼iljið fá hæsta verð fyrir glös- tn. Laugavegs Apótek. KALDHREINSAÐ þorskalýsi sent um allan bæ. — BJörn Jónsson, Vesturgötu 28. Sími 8594. _ ISLENSK FRlMERKI kaupir hæsta verði Giati Sig- arbjörnsson, Austurstrsti 12 #1. hæð). KAUPUM aluminium, blý og kopar hæsta verði. Flöskubúðin Bergstaða- ■træti 10. Simi 5395- 9hhui> TJÖLD, SÚLUR og SÓLSKÝLI. Verbúð 2, sími 1840 og 2731 TÖSKUVIÐGERÐIR Leðurgerðin h,f. — Sími 1555. OTTO B. ARNAR, löggiltur útvarpsvirki, Hafnar- stræti 19. Sími 2799. Uppsetn- ing og viðgerðir á útvarpstækj- um og loftnetum GERI VIÐ saumavjelar, skrár og allskonar heimilisvjeiar. H. Sandholt, Klapparstíg 11. Sími 2635. SOKKAVIÐGERÐIN, Hafnarstræti 19, gerir við kven- sokka. Fljót afgreiðsla. — Sími 2799. Sækjum sendum. HÚSMÆÐUR- Hreingerningamennimir Jón og Guðni, reynast ávalt best. — Pantið í síma 4967 eftir kl. 3. ROTTUM, MÚSUM og alskonar skaðlegum skor- kvikindum útrýmt úr húsum og skipúm. — Aðalsteinn Jóhanns- son, meindýraeyðir, sími 6056, Rvík. JSttorgttttMaM Sunnudagur 6.. ágúst 19391 ’**m5mW*****»*****»*4»**«*< Framhaldssaga — Þfer getið byrfail i dag r I i í 3 Hauða akurlilfan og rænda brúðurin •K"K,.K"K"K”K"K"K“>^K”>^<“>^'K“;"K“K“K'K"K”KMK"K“>M,>*Ki<,^í"!,o»K“K' ÞaS, sem skeð hefir i pögunni: Kernogan hertogi hefir, eftir stjóm- arbyltinguna í Frakklandi flúið til Eng- lands með Yvonne dóttur sína. Hún giftist þar á laun Anthony Dewhorst lávarði, sem er einkavinur Sir Percy Blakeney — BcmSu akurliljunnar. En hertoginn gabbar Yvonne frá eiginmanni sínum, telur1 hjónabandið ekki lögmætt, og ætlar að gifta hana Martin-Roget, bankastjóra frá Brest, í þeirri von, að hann fari með þau til Hollands og hjálpi konungssinnum. A leiðinni reynist M. It. vera óvinur Kernogans sem hefir látiS hengja föður hans, er hann var hertogi skamt frá Nantes. Þangað fer Martin-Roget með þau feðgin og hyggur á grimmilegar hefnd- ir. Fjelagi hans Chauvelin hefir þó var- að hann við Rauðu akurliljunni, er hann telur muni hjálpa hertogadóttur- inni; sem dvelur nú sem fangi hjá syst- 1 ur Martin-Rogets. Faðir hennar er geymdur í kránni „Dauða rottan“. Martin-Roget laut fram á hand- riðið og hrópaði: „Ilalló, þið þarna, borgarar úr liðssveit Marat!“ Einn þeirra leit hægt upp og spnrði , í ósvífnum róm: „Hvað viljið þjer, borgari?“ „Er það Paul Friehe?“, spurði Martin-Roget. „Já, borgari, hjer er jeg“, var svarað í hortugum en þó hæðníé- lega virðulegum róm. „Komið liingað. Jeg þarf að tala við yður!“ „Jeg get ©kki farið af verði, og fjelagar mínir ekki heldur“, svar aði Paul Friche. Martin-Rorget blótaði. „Bannsettir þrjótarnir — —“, tautaði hann. „Þei, þei“, hvíslaði Chauvelin. „Jeg fer niður. Þekkið þjer þenna Paul Friche. Er hægt að treysta honum?“ ■ „Jeg þekki hann, en hvort hægt er að treysta honum, veit jeg ekki. Hann er foringi í Marat-sveitinni og í irpklum metum hjá Fleury“. Hver sekúnda var dýrmæt, og Chauvelin var ekki vannr að eyða tímanum í óþarfa tal. Hann hljóp niður tröppurnar og .þegar hann kom niður, ljet einn af hermönn- nnnm svo lítið að hlusta á hann. „Hafið þið sjeð nokkra ókunn- uga menn ganga yfir torgið?“, hvíslaði hann. „Já, tvo!“, svaraði Friehe. Hann spýtti drýgindalega og bætti síðan við í illgirnislegum róm: „Aðals- menn, ekki satt? í fínnm fötum, eins og þjer sjálfur, borgari ___“ • „1 hvaða átt fóru þeir?“ „Niður Ruelle de Jacobines“. • „Hvenær ?‘ ‘ „Fyrir tveimur mínútum". „Hvers vegna veittuð þjer þeim ekki eftirför? Aðalsmenn og ....“ „Jeg hefði gert það, ef þjer hefðuð ekki kallað í mig og hindr- að það“, svaraði Paul Friche í ósvífnum róm. „Yeitið þeim eftirför, fljótt!“, sagði Chauvelin í skipunarróm. „Þeir geta ekki verið komnir langt. Þetta ern enskir njósnarar. Og góðum launum er heitið fyrir að ná í þá, borgari!" Maðurinn tautaði eitthvað. Lof- orð um laun hafði vakið áhuga hans. í einum svipan hafði hann kallað saman fjelaga sína og her- mennirnir þrír hlnpn niður torgið og hurfu út í myrkrið. Chauvelin horfði á eftir þeim, nns þeir voru horfnir úr augsýn. Þá fór hann aftur upp til Martin- Roget. Fótatak hermannanna heyrðist enn í fjarska og alt í einu endurómaði þessi einkenni- lega gáskafulli og fíflalegi hlátur um torgið. Þær fáu hræður, sem voru á ferli þarna, litu undrandi í kringum sig. Hver hafði geð í sjer til þess að hlæja á götum Nantesborgar á þessuin tímum? pj'imm mínútum síðar sáu þeir hermennina koma gangandi yfir torgið. Chauvelin hljóp strax til móts við þá. „Jæja?“, sagði hann ákafur. „Okkur var ómögulegt að sjá þá, þó að við heyrðum greinilega tal þeirra og hlátur og vissum, að þeir væru á leiðinni niður að höfn“, svaraði Friche. Blótsyrði hraut af vörum Chauvelins. „Kærið yður kollóttann um það, borgari“, sagði hinn. „Fjelagi minn fann þetta, þegar við vorum, að því er jeg held, rjett á hælunum á aðalsmönnunum“. Hann rjetti honum lítinn böggul, sem bundið var utan um með rauðu bandi. Hann hafði augsýnilega legið í forinni, því að hann var óhreinn að utan. Chauvelin tók græðgislega við honum. „Jeg vil fá þessi skjöl aftur“, sagði maðurinn. „Jeg afhendi þau engurn, nema Fleury kapteini". „Jeg skal sjálfur afhenda hon- um þau“, svaraði Chauvelin. „Og það er ráðlegast fyrir yður að vera kyr á verði“, bætti hann við, er maðurinn gerði sig líklegan til þass að elta hann. „Jeg tek ekki við skipunum frá neinum, nema ....“, maldaði hann í móinn. En Chauvelin tók fram í fyrir honum: „Farið strax á vörð, áðnr en jeg kæri yður fyrir að hafa ekki gert skyldu yðar!“ Að svo mæltu flýtti hann sjer upp tröppurnár til Martin-Rogets. Urðu þeir nokkurs vísari?“, spurði hann. „Nei“, svaraði Chauvelin stutt- ur í spuna. Hann kreisti böggul- inn fast í hendi sjer og var á báðum áttum, hvort hann ætti að sýna fjelaga sínum hann eða ekki. „Hvað sagði Friche?“, spurði Martin-Roget óþclinmóðlega. „Ekkert sjerstakt. Þeir fjelagar sáu ókunnu mennina og eltu þá niður að höfn, en mistu aftur af þeim í myrkrinu. Það var eins og jörðin og myrkrið hefði gleypt þá“. „Var það alt og sumt?“ „Já, það var alt og sumt“, svar- aði Chauvelin. „Mjer þætti gaman að vita“, bætti Martin-Roget við og hló, „hvort við — og Paul Friche reyndar líka —, höfum látið í- myndunaraflið hlaupa með okkur í gönur“. „Hver veit“, sagði Chaueelin þurrlega og ljet böggulinn renna niður í vasa sinn. „Þá getum við víst farið hjeðan. Eða ætlið þjer að segja mjer meira um „Rauðu akurliljuna“ ?“ • „Nei!“ „Og þjer viljið vera viðstaddur, þegar jeg geri ungfrúnni úrslita- kosti?“ „Já, með yðar leyfi“. „Komið þá“, sagði Martin-Rog- í i et. „Systir mín býr hjerna rjett hjá“. III. KAPÍTULI Fugl í búri. Til þess að komast þangað seni systir Martin-Rogets, eða rjettara sagt Pierre Adets, bjó, þurftu þeir að ganga meðfram allri byggingunni, spölkorn með- fram höfninni og niður litla götu beint á móti brúnni. Hún bjó í Carrefour de la Poissonnerie, í litln bakhúsi. Alt í kringum það voru hrör- legir húskof^r, sumt lítið annað en smáskúrar, sem lágu upp að múrveggnum á Le Bouffay. Að degi til var eyðilegt í Carre- four de la Poisonnerie. En á kvöldin kom einkennilega vofu- legt fólk á kreik þar, fátæklegir menn, konur og unglingar, er gengu hljóðlaust í forinni, oft á nöktum fótum. Eyðileg þögn ríkti i þessu myrkra ríki, þar sem næt- urhrafnarnir flögruðu um. Martin-Roget átti ekki erfitt með að rata í þessari dimmu götu. | Hann gekk rakleitt að húsinu, sem ( var enn óhreinna og íatæklegra| en húsin í kring. í kringum hús Louise Adet voru nokkrir menn á reiki. Þeir röltu þar í kring eða stóðu í skjóli upp við múr- veggina á næstu húsum. Þegar Martin-Roget og Chauve- lin nálguðust, var kallað til þeirra í hásum róm út úr myrkrinu: „Nemið staðar! Hver er þar?“ „Yinir!“, svaraði Martin-Roget. „Er Louise Adet borgari heima?“ „Já, hún er heima“, var svarað. „Afsakið, Adet borgari. Jeg þekti yður ekki í þessu bölvaða myrkri“. „Alt í lagi“, svaraði Martin- Roget. „Jeg er yður þakklátur fyr- ir gætni yðar“. „Þjer þurfið ekki að óttast, að fuglinn flögri ú? búrinu“, sagði hinn hlæjandi. „Við höfum strang- ar gætur á Kernogan-hyskinu“. Martin-Roget barði að 'dyrum með kreptum hnefa. jFj etta er veitingahúsið „Dauða rottan“, sagði hann og benti á 'hús vinstra megin við sig. „Það er óþægilegur nágranni fyr- ir systur mína, og hún hefir oft kvartað yfir því. En í kvöld er það þægilegt!“ Chauvelin hafði fylgt Martin- Roget þegjandi eins og hann var vanur, en fylgst vel með öllu. Honum var ljóst, að Louise hafði betri lífvörð en Carrier gat nokk- urntíma búist við að fá, því að þessir menn þóttust allir hafa einhvers að hefna á Kernogan. Eftir nokkra stund var hurðin opnuð hægt og varlega. . „Er það Louise?“, spurði Mart- in-Roget. . „Já, það er Louise“, var svarað í þreytulegum og kjökrandi róm. „Flýttu þjer að koma inn. Það er svo hvast og kalt. Hver er með þjer, Pierre?“ „Yinur“, svaraði Martin-Roget. „Okkur langar til þess að tala við stúlkuna' ‘. Louise hleypti þeim þegjandi inn og gekk á undan þeim inn níðadimman ganginn. Síðan opn- aði hún hurð, beint á móti úti- dyrahurðinni, og þau gengu öll inn í lítið herbergi, einskonar eld- hús, er upplýst var með litlum lampa. „Ykkur er óhætt að fara upp“, sagði hún stutt í spuna. Martin-Roget gekk 'upp lítinm hringstiga, sem lá upp úr eldhús- inu, og Chauvelin á eftir hormm.. Efst uppi var lítill pallur og hurð;. sitt 'hvorum megin. Martin-Roget spyrnti hurðinni til hægri upp með; fætinum. I herberginu, sem þái. var komið í, stóð trjeborð á miðju: gólfi, einn stóll og hálmfleti í einu horninu. Örlítill gluggi var á her- berginu, en engin rúða í honum, svo að ískaldur norðvestanstorm- urinn næddi inn. Á borðinu stóð logandi tólgarkerti, sem blakti 1 vindinum, þegar hurðin var opn- um, brotin kanna með vatni í, og mygluð brauðskorpa. Af dauðum hlutum var ekki annað að sjá í herberginu. En á stólnum við borð- ið sat Lady Yvonne Dewhurst. Og á þilinu fyrir ofan höfuð hennar- var skrifað með stórum og skæld— um bókstöfum: „Frelsi, jafnrjettÉ og bræðralag — eða dauðí!“ Framh. 3ajia$-furuU£ SVARTUR KVENHANSKI tapaðist í gærmorgun í mið- bænum. Uppl. í síma 2.128. PAKKI, merktur: Árbjörg Ólafsdóttir*. Götu í Holtum“ hefir tapast- Skilist gegn fundarlaunum £• Hellusund 7, uppi. VENUS SKÓGLJÁI mýkir leónð og gljáir sk6r:« af-< burða vel. VENUS-GÓLFGLJÁ! afburðagóður og fljótvirkur. — ÁTalt I næstu búð. BETANlA. Mánudaginn 7. þ. m. verður af-- menn samkoma kl. 8l/2 síðd... Ræðumenn; formaður sjómanna. trúboðsins norska, væntanlega,, Ólafur Ólafsson kristniboði og Jóhannes Sigurðsson. — Allir hjartanlega velkomnir. HJÁLPRÆÐISHERINN. Samkomur í dag kl. 11, 4 og 8 Yi- Kveðjusamkoma fyrir Adj. Lauritsen. Major Greger— sen stj. Velkomin! FILADELFIA Hverfisgötu 44. Samkoma í dag; kl. 5. Allir velkomnir. FRIGGBÓNIÐ FlNA, er bæjarins besta bón. SLYSAVARNAJELAGIÐ, skrifstofa Hafnarhúsinu við* Geirsgötu. Seld minningarkort,„ tekið móti gjöfum, áheitum, árs— tillögum o. fl. BESTI FISKSlMINN er 527 5. MINNINGARSPJÖLD fyrir Minningarsjóð Einara^ Helgasonar, garðyrkjustjóra fást á eftirtöldum stððumr. Gróðrarstöðinni, Búnaðarfjel Islands. Þingholtsstræti 33 Laugaveg 50 A. Túngötu 45, of afgreiðslu Morgunblaðsins. — I Hafnarfirði á Hverfisgötu 36» i

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.