Morgunblaðið - 13.08.1939, Síða 3
Sunnudagur 13. ágúst 1939.
M 0 R G U NBLAÐIÐ
3
Síldveiðihorf-
ur glæðast
Á Siglufirði var söltunin
i gær orðin 47115 tunnur
Bræðslusíld þar 237.000:
mál, í fyrra 289.000
ÞEGAR BLAÐIÐ hafði samband við Siglufjörð
í gærkvöldi var heldur betra hljóð í mönnum
þar viðvíkjandi síldveiðinni en verið hefir und-
anfarna daga. Ein 10—20 skip voru á leiðinni þangað,
sem frjest hafði til, með nokkra veiði.
Ekki er þess getið hvar hún veiddist. En þetta áttu þó að verða
nokkur þúsund tunnur til að salta í nótt.
Ganga hinnar feitu síldar, er fyrst veiddist, er farin hjá, segja
síldveiðimenn. Hún er ekki eins feit sú sem nú veiðist. Það þykir
heldur benda til þess, að sú ganga, sem nú er, standi lengur við.
En hve mikil verður hún. Það
er um þessar mundir sem menn
hafa vonast eftir síldinni, úr því
hún kom ekki um mánaðamótin
síðustu. Sumir segja, að vantað
hafi rækilegan norðangarð til þess
að reka síldina saman, eða nær
landinu. Þó síldveiðiveður hafi
ekki verið síðari hluta vikunnar,
þá var veðrið aldrei verulega vont.
Alls hafa verið saltaðar á Siglu-
firði í sumar 47115 tunnur, eftir
því sem frjettaritari hlaðsins sím-
ar. Á sama tíma í fyrra var söltun
þar orðin 131.000 tunnur. En 12.
ágúst árið 1937 var söltun á Siglu-
firði ekki nema 29772 tunnur.
Bræðslusíldarafli ríkisverksmiðj-
anna var í gær orðinn 237 þús.
mál, en var í fyrra á sama tíma
289 þús. mál. Skiftist aflinn milli
verksmiðjanna sem hjer segir:
Siglufjarðarverksmiðjanna 181
þús., Raufarhafnar 44 þús. Húsa-
víkur 8 þús. Sólbakka 2600.
La Guardia
um island
íða.stliðinn fimtudag flutti
La Guardia borgarstjóri
í New York ræðu í viðurvist
mikils mannf jölda. Komst liann
meðal annars svo að orði, að
sýningar Lebanon og íslands á
Heimssýningunni hafi skarað
fram úr flestum öðrum, að því
leyti, að þær hefði borið mestri
andagift vitni.
Island er sjálfstætt ríki, sagði
La Guardia, og afrek smáþjóð-
arinnar, sem Island byggir eru
slík, að það ætti að draga úr
sjálfsþótta sumra hinna yngri
þjóða.
Þá mintist La Guardia á, að
íslendingar hefði fyrstir stofn-
að þing á lýðræðisgrundvelli.
Ræðu La Guardia er getið í
öllum helstu blöðum landsins og
sum þeirra birta hana í heild.
(Skv. skeyti frá Chicago til
Frjettastofu útvarpsins).
Skoðanir fiarða
um landnámið:
Frásögn „Poli-
tikon“
Kaupmannahaf narblaðinu
„Politiken“ er nokkuru ítar-
legar getið fyrirlesturs Barða
Guðmundssonar þjóðskjalavarð-
ar um landnám íslands.
Blaðið segir, að það hafi kvis-
ast áður en sjöundi norræni
sagnfræðingafundurinn hófst í
Khöfn að þjóðskjalavörð-
urinn mundi hrófla mjög þeirri
sagnfræðilegú erfikenningu, að
það hafi aðallega verið Norð-
menn sem fluttust til íslands á
landnámsöld og námu þar land.
Þjóðskjalavörðurinn eignar Dan
mörku að verulegu leyti heið-
urinn af að hafa sett svip sinn
a landnámið.
I frásögn í frjettablaði er ekki unt
að fara nákvæmlega út í hinar vís-
indalegu skýringar, glæsilega fram born
ar, á þeirri nihurstöðu, sem hann hefir
komist aö.
í höfuðatriöum hnígur röksemda-
færsla hans í þá átt, að sagnaritunin,
sem erfikenningin um landnám Norð-
manna á íslandi byggist á, sje ekki
eldri en frá 13. öld, og við nútíma sögu
rannsóknir sje ekki hægt að viðurkenna
hana sem alveg áreiðanlega.
„DÖNSK TUNGA".
Það liggja engar sannanir fyrir um
það, að Norðmenn hafi verið öllu ráð-
andi í Noregi á landnámstíð. En margt
bendii' á, að mikill innflutningur fólks
hafi átt sjer stað til Þrændalaga frá
Svíþjóð, og einkum frá Danmörku. Það
eru þessír innflytjendur, að áliti Barða
Guðmundssonar, sem síðar hafi farið
til Islands, þegar sameining hins
norska ríkis átti sjer stað og erlendir
Fyrir 25 árum
Þessi mynd er tekin úr gömlu myndasafni, frá því fyr'r 25 árum. Hún sýnir þýska
herdeild á leið til vígstöðvanna í Frakklandi. Fagnaðaróp og blóm fylgdu hermönnun-
um þegar þeir heldu að heiman. Engan óraði þá fyrir þeim hörmungum sem dundu yfir
þjoðimar næstu 4 ár. Og nú, 25 árum síðar, er ekki annað að sjá, en að margir hinir
sömu menn hafi gleymt þeim.
Druknun
í Jökulsá
í Jökuldal
FRAMH. Á BJÖTTU SÍÐU
¥ fyrradag1 druknaði í Jökulsá á
Jökuldal, Kristrún Ágústsdótt-
ir frá Gnýsstöðum í Vopnafirði,
síðast til heimilis í Reykjavík.
Slysið varð með þeim hætti, að
fjöl bilaði, sem hjelt dráttarreipi
í kláf, sem hafður er til fólks-
flutnings yfir ána. Var kláfurinn
þá komiim að landi.
En hann kastaðist til baka og
fjell hún þá í ána og hefir ekki
fundist.
Dráttur þessi er undan Teiga-
seli á Jökulsá. (FÚ.).
Landsmótinu lokftð
Fram og Vfkingur
gáfu loka-leikinn
L okaleikir Landsmóts I. fl. áttu
að fara fram í dag milli
Fram og K. R. og Vals og Vík-
ings. Fyrirfram var þá vitað um
úrslitin, að ísfirðingar unnu mótið.
Fram og Víkingur g'áfu sig upp
sém sigraða í lokaleikjum án
kepni, þar sem þessir leikir gætu
ekki haft nein áhrif á úrslit móts-
ins..
Leikar hafa þá farið svo á mót-
inu:
ísfirðingar fengu 7 stig, Valur
6, K. R. 4, Víkingur 2 og Fram
1 stig.
Knattspyrnumót II. fl. liefst á
þriðjudaginn n.k.
Samtal við Mr. J. Divine þjáiíara Vals
Einn knattspyrnu-
þjálfara fyrir öll
fjelögin
ÞJÁLFARI VALS, Mr. Joe Divine, fer af landi
burt með Goðafossi annað kvöld. Hjeldu Vals-
ungar honum skilnaðarsamsæti í Oddfellow-
höllinni í gærkvöldi.
Mr. Divine hefir dvalið hjer í bæ í rúma þrjá mánuði og
aflað sjer almennra vinsælda meðal fjelaga sinna. Hefir Valur
haft mjög gott af kenslu hans og mun árangurinn af dvöl hans
hjer koma fram hjá yngri flokkum fjelagsins.
Hjálpræðisherinn. Samkomur í
dag kl. 11, 4 og 8y2. Kapt. Andre-
sen. Kapt. Solhaug o. fl. Allir vel-
komnir!
Joe Divine er atvinnuknatt-
spyrnumaður og hefir m. a. leik-
ið með atvinnumannakappliði
Chesterfield Sunderland o. fl.
Hann þótti ágætur knattspyrnu-
maður, en er að mestu hættur
vegna þess að hann hefir tví-
vegis fótbrotnað.
Jeg hitti Mr. Divine að máli
í gær og spurði hann um álit
hans á knattspyrnu hjer hjá
okkur.
Mr. Joe Divine.
Knattspyrnunni hefir farið
mikið fram hjer á landi í sum-
ar og knattspyrnan var miklu
betri heldur en jeg hjelt
er jeg kom hingað. En íslensk-
um knattspyrnumönnum gæti
farið mikið meira fram með
bættum skilyrðum og góðri
þjálfun. Að mínum dómi ætti
að leggja meiri áherslu á að
æfa yngri flokkana. Nú er það
svo, að alt snýst um meistara-
flokkana. En það þarf að þjálfa
knattspyrnumann frá blautu
barnsbeini. Einnig þyrftu reyk-t
vískir knattspyrnumenn sem
fyrst að fá grasvelli til æfinga.
Jeg hefi heyrt, segir Mr. Di-
vine, að áhugi sje fyrir að fá
hingað enskan atvinnumanna-
flokk, en hræddur er jeg um að
þeir fengjust ekki til að leika
hjer á þessum velli. Þeim yrði
blátt áfram bannað það af vá-
tryggingarfjelögum vegna þess
hve slysahætta er mikil á malar-
völlum.
FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU.