Morgunblaðið - 17.08.1939, Page 2
2
MORGUNBLAÐÍÐ
Fimtudagur 17. ágúst 1939
Engin hrossakaup um
Danzig og pólska hiiðið,
— segja þýsku blöðin
ískyggilegri horfur en
í september í fyrra
- segir blað Ciano greifa
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
Halifax lávarður, utanríkismálaráðherra Breta,
var í sumarleyfi í Yorkshire þegar Burc-
hardt fór á fund Hitlers, en kom til London
um helgina til þess að taka á móti skýrslu Burchardts og
athuga hana. Því er enn haldið algerlega ieyndu hvað í
skýrslunni hafi staðið, en það er helst giskað á, að Burch-
ardt hafi ekki komið fram með neinar ákveðnar tillögur
um lausn Danzig-deilunnar.
Halifax lávarður er nú aftur farinn til sumarbústað-
ar síns, en mun koma til London um næstu helgi. Chamb-
erlain forsætisráðherra, sem nú dvelst í sumarleyfi í Skot-
landi, mun þá líka koma til London.
Röksemdir Barða
„snjallar og sann-
færandi"
Khöfn í gær. FÚ.
Kaupmannahafnarblöðin í
dag birta greinar um út-
varpsfyrirlestra Sigurðar Ein-
arssonar og Barða Guðmunds-
sonar •þjóðskjalavarðar.
,,Socialdemokraten“ segir, að
það sje athyglisvert hve íslend-
ingarnir sje sjálfstæðir og frjáls
legir í hugsun, Sigurður Einars-
son hafi í glöggu yfirliti rætt
af skarpri gagnrýni um alþjóða-
málin á yfirstandandi tíma, en
röksemdir Barða Guðmundsson-
ar segir blaðið snjallar og sann-
færandi.
1 viðtali, sem ,,Tidens Tegn“
hefir átt við Stefán Jóh. Ste-1
f ánsson fj elagsmálaráðherra,
kemst ráðherrann svo að orði,
að engin óvinsemd sje ríkjandi
í garð Norðmanna á Islandi. —
Ráðherrann neitar þeim stað-
hæfingum norskra blaða, að
Barði Guðmundsson þjóðskjala-
vörður sje óvinveittur Norð-
mönnum.
Islendingar höfðu
boð inni fyrir þing-
mannaráðið
Khöfn í gær. FÚ.
fundi norræna þingmanna-
ráðsins ljet fulltrúi Norð-
manna í ljós mikla gleði yfir
því, að ísland tæki þátt í fund-
inum sem hið fimta af Norð-
urlöndum. Formaður ráðsins,
Stefán Jóh. Stefánsson fjelags-
málaráðherra, bauð fulltrúana
velkomna, og þakkaði hina
miklu gestrisni Norðmanna og
Jhöfðinglegar móttökur þeirra.
Islensku fulltrúarnir buðu
hinum fulltrúunum til hádegis-
verðar eftir fundinn.
Næsti þingmannafundurinn í
Reykjavík fær til meðferðar
verslunarmál og viðskifta- og
fjárhagsmál yfirleitt, framhald
á menningarlegri samvinnu
Norðurlanda, hlutleysi Norður-
landa og vernd þess o. s. frv.
Falin hergðgn
fundin i Haifa
London í gær. FÚ.
ögreglan í Haifa fann í dag
þýskar og tyrkneskar vopna
birgðir, sem talið er að hafi
verið faldar á Heimsstyrjaldar-
árunum. — Hergagnabirgðirnar
fundust undir skrifstofum hjer-
aðsstjórans, þegar verið var að
grafa þar fyrir neðanjarðar-
byrgi, sem ætlað er til notkunar
í loftárásum.
Símskeyti til „Times“ frá Ber-
lín segir, að með furðulega þög-
ulli eftirvæntingu sje þess biðið í
Þýskalandi, hver verða muni
árangurinn af fundi þeirra Ciano
greifa og Ribbentrops í Salzburg.
Enginn efist um það, að mikils-
verðar ákvarðanir hafi verið tekn-
ar þar, en óvissan um það, hverj-
ar þær hafi verið, auki mjög
kvíða manna fvrir því, hvað ger-
ast kunni í nánustu framtíð.
Blað Ciano greifa segir, að
horfurnar sje nú ískyggilegri
heldur en þær voru í septem-
ber í fyrra, og það geti farið
svo, að ítalir fái ekki nema
fárra mínútna svigrúm til þess
að taka ákvarðanir sínar.
Þýsku blöðin ieggja áherslu á
það, að hrein skyndijausn á mál-
inu sje1 nauðsynleg, því áð alt hik
geti orðið stórhættulegt.
Blöði'n, sem komu út um hádegi
í dag, eru alveg- á móti því að
ráðstefnj/ verði haldin- um Danzig-
málið og einhver tyllíboð gerð.
Þau segja að alt tal um það, að
Þýskaland vilji að efnt sje til ráð-
stefnu, sje uppspuni ævintýra-
. sirtiða Vesturríkjanna. Það sje
hlægilegt og fjarri öllum sanni að
nokkur lifandi rnaður skuli láta
sjer detta það í húg, að Þjóðverj-
ar muni ganga inn á það að bræða
málið, eða hafa einhver hrossa-
kaup um, Danzig og pólska hliðið
Óþolandi staðreynd eins og
sú, að Pólverjar hafi hliðið,
verði ekki löguð nje leiðrjett
með hrossakaupum.
Þessi ummæli þýsku blað-
anna um pólska hliðið vekja
nú langmesta athygli af öllu
því, sem sagt er um málið.
f FÚ-fregn frá Ósló segir, að
Hamilton Fish, leiðtogi Republik-
ana í Bandaríkjunum, sje nú
staddur þar, nýkominn frá Þýska-
landi, þar sem hann var gestur
von Ribbentrops í hádegisverðar-
boði á mánudaginn var. Mr. Fish
hefir lýst yfir því, að hann hafi
stungið upp á því, að Evrópuþjóð
irnar iáti allar deilur falla niður
í einn mánuð, og }>ví næst yrði
fjögurra daga alþjóðaráðstefna
haldin til þess að ráða fram úr
deilumálunum, en tillögunni liefði
ekki verið vel tekið í Washing-
ton.
í fregn frá Varsjá ; segir, að
þýsku yfirvöldin hafi lokað nokk-
urum hluta landamæra Póllands
og Sljesíu og ekkert, talsím.asam-
band sje á þfessu svæði. Ennfrem-
ur, að Þjóðverjar hafi lokað all:
mörgum pólskum búðum í' Slesíu,
og er því borið við, að eigendurn-
ir fari ekki að fyrirmælum þýskra
vfirvalda.
Landamæravörður frá Danzig
skaut til bana kl. 3 í nótt pólsk-
an landamæravörð. í tilkyryiingu
um þetta segir, að pólski landa-
mæravörðurinn hafi verið 15 metra
innan landamæranna Danzigmegin,
en nánari upplýsingar um. þetta
er enn ekki unt að fá í Varsjá.
Herkönnun
í Póllandi
Andi Pilsudskis
ræður í hernum.
London í gær. FÚ.
ersýningar fóru fram um
gjörvalt Pólland í gær, en
þá var hinn árlegi frídagur, sem
helgaður er pólska hernum.
í Vilna framkvæmdi Mos-
chichi ríkisforseti mikla her-
skoðun, og í veislu, sem haldin
var um kvöldið, sagði ríkisfor-
setinn að andi Pilsudski mar-
skálks, frelsishetju Póllands í
seinustu frelsisbaráttu þeirra,
lifði í hverjum einasta pólsk-
um hermanni. Mundi pólski her
inn með óbifandi hugrekki herj-
ast til þess að koma í veg fyrir,
að rjettindi Póllands væri skert.
Japanar færa
sig nær Bretum
Herða á eftirliti með flutn-
ingum til Kína.
London í gær. FÚ.
apanskar hersveitir settust að
í dag nálægt landamærum
svæðis þess, sem Bretar hafa á
leigu frá Kína, gegnt Hong-
Kong, og hertóku kínverskt
iþorp, sem stendur við litla á
þarna á landamærunum. '
Japanar segja, að þetta sje
ein af þeim ráðstöfunum, sem
þeir sjeu að gera til þess að
hrekja kínverskar hersveitir á
brott af þessu svæði. Ennfrem-
ur segja þeir, að herstjórn Kín-
ver.ja hafi að undanförnu fengið
hergögn frá stað skamt frá
Hong-Kong. Þessa hergagna-
flutninga ætla Japanar sjer að
stöðva. Þá segja Japanar, að
Ensk koná handtekin
og sektuð á Spáni
lyrir að heilsa ekki
með íasistakveðju
London í gær. FÚ.
andstjórinn í Gibraltar hef-
ir gefið út fyrirskipun, þar
sem varnarliðinu breska, starfs-
mönnum við höfnina og öðrum
embættismönnum, konum þeirra
og börnum og öðru skylduliði,
er bannað að fara í heimsókn
til Spánar. í tilkynningunni um
þessa fyrirskipan, er var gefin
út í gær, segir að kona eins
setuliðsyfirforingjans, hafi ver-
ið handtekin og sett í fangelsi
í Algeciras, og látin þar búa
við hin smánarlegustu skilyrði,
meðan hún var í fangelsinu. —
Bannið við heimsóknarferðum
til Spánar helst þar til land-
stjóriún telilr örugt, að slíkir
atburðir endurtaki sig ekki.
Konan, sem um er að ræða,
er eiginkona Maley majórs, og
hún var handtekin af spænskri
lögreglu síðastliðinn sunnudag,
er hún var viðstödd nautaat,
en það, sem hún var sökuð um,
var, að hún hafði ekki heilsað
með fasistakveðju. Hún var lát-
in laus, er hún hafði greitt sekt.
'k
Tveir fyrverandi leiðtogar lýð
veldishersins á Spá á hafa kom-
ist til Gibraltar dulklæddir sem
verkamenn. Þeir eru hershöfð-
ingi fimta herfylkisins undir
Miaja og einn af dómurum al-
þýðpdómstólsins í Madrid.
Andreas Holdö stórþingsmaður
og forst.jóri síldarvérksm. Ægis í
Króssanesi, varð ■ sextugur ’ á
])riðjudag. J því tilefni beimsóttu
hann ýmsir vinir hans. Árnuðu
þeir honum heilla og færðu hon-
um að gjöf málverk af Siglufirði
eftir Jón Þorleifsson. Steingrímur
Jónsson fyrrmn bæjarfógeti hafði
orð fyrir gestunúm. Bernharð
Stefánsson alþingismaður ávarpaði
þeir hafi fyiir nokkru tilkynt ]foldö í umboði forsætisráðherra
breskum yfirvöldum, að her- 0<v tjáði honum þakkir fyrir braut-
fiutningar stæði fyrir dyrum á ryðjandastarf í síldariðnaði hjer á
þessu svæði. 'llandi. (FlV)
Breska flutningaskipið ,,Yunnan“, sem hefir að engu haft hafnbann .Japana í Kína og er komjð til
liafnar í Tientsin. Fremst á myndinni sjást japanskir eftirlitsmenn með siglingum á fljótinu vera
að horfa á skipið.