Morgunblaðið - 17.08.1939, Blaðsíða 3
Ffrntudagur 17. ágúst 1939.
MORGUNBLAÐIÐ
3
Ágætt veiðiveð-
ur - en mjðg
treg veiði
Mjög lítið hefir komið af síld
til söltunar og engin í
hræðslu þenna sólarhring, símar
frjettaritari Morgunblaðsins á
Siglufirði í gær.
Þó feilgu nokkur skip smáköst,
þetta frá 100—160 tunnur.
Álls'var saltað í Siglufirði síð-
asta sólarhringimi í 6567 tn., þar
af- úr reknetum 1197 tn. Rekneta-
Veiði liéfir verið nijög treg hjá
flestum skipunum. Veiðiveður var
gott í gær, vestan kaldi og sljett-
ur sjór.
Djúpavík.
Þangað komu í fyrrinótt og í
gær nokkur skip með slatta. Skip-
in voru: Þórólfur 202 mál, Haf-
steinn 748, Kári 740, ÍSindri 789,
Garðar 752 inál.
Tuiinulaust var í Djúpuvík og'
fór því öll sildin í bræðslu. Von
var á tumiuskipi í gærkvöldi eða
nótt.
Hjalteyri.
Þaðan er sama sagan, engin
síkl. Missögn var það, sem frá var
sagt í blaðinu í gær, að engin
síld hefði borist til Hjalteyrar síð-
asta hálfan mánuðinn. Hefir verk
smiðjan fengið 15 þiis. mál á því
thnabili, senx er sáralítið frá öll-
um flóítanum, sem leggur þar upp
síld.
Söltun á Hólmavík.
A Hólmavík var síldarsöltun
frá því á sunnudagskvölcf og fram
til nóns í gær iim 3.800 tunnur. Áf
þessum afla höfðu: vjelbáturinn
Jón Þorláksson 420 tunnur, Þórir
415 og’ Þorsteinn og Björgvin 390
tunnur hvor. Næstum alt vinnu-
fært fólk í þorpínu hefir starfað
að’þessari söltun og nokkrir menn
voru fengnir frá næstu bæjum.
Fólksekla
í Þýskalandi
Pegar Hitler tók við völdum
í Þýskalandi var talið að þar
væri rúmlega 6 miljónir atvinnu-
leysingja. Nú er svo koxnið, að
fólksekla er orðin í Þýskalandi,
og verða Þjóðverjar að leita til
annara landa, jafnvel Islands., lil
þess að fá verkafólk. Og. nóg er
til af atvimiulausu fólki í flestúm
löndum, sem er fúst á það að fara
til Þýskalands. Danska blaðið „Öst
sjællands Folkeblad“ seg-ir t. d.
frá því, að í júhí'og júlí hafi rúm-
lega 2000 Danir farið til Þýska-
lands, og búist sje við, að margir
fari þangað á næstunni.
Þessir menn liafa aðallega feng’-
ið atvinnu í Norður-Þýskalandi, í
iðnhjeruðunum og' í sveitunum
kring uni Hamborg og Bremen. I
verksmiðjunni, sem á að smíða nýu
almenningsbifreiðamar, vinna nú
rúmlegá 500 Danir.
Sr. Árni Sigurðsson fríkirkju-
prestur er kominn heim til bæj-
arins úr sumarleyfi sínu.
Raftækjaeinkasalan lögð niður
frá næstu áramótum
Sfðasta opna
hðkarlaskipið
Fleiri einkasölur þyrftu
að fara sömu leiðina
Fjármálaráðherra hefir ákveðið, að Raftækja-
einkasala ríkisins skuli lögð niður frá *næstu
áramótum að telja, og hefir öllu starfsfólki
einkasölunnar verið sagt upp frá þeim tíma.
Raftækjaemkásalaii' var stófnuð samkvæmt heimild í lögum frá
193Ú og var einn ávöxturiiin af stjúriiáfsámviiiiiú^"sfósíalista og Fram-
„Ófeigur“, síðasta opna hákarlaskipið. (Sjá grein á bls. 6).
Blaðamennirnir:
Eyjaf jörður sýndi sig
í sinuiKi mesfa skrúða
Eyjafjörður sýndi sig blaðamönnunum í sínum
mesta skrúða og þótti hinum erlendu gestum
mikið til um fegurð hans.
Áður en lagt var af stað frá. Blönduós í gærmorgun, var
skoðað refabú, sem er við brúna á Blöndu. Er þetta fjelagsbú
og einkar snyrtilega frá öllu gengið. Páll Kolka sýndi búið.
■sóknart'lokksi.ns.
Húsakynní fiá
14. öld grafin
upp að Stöng
I Þjðrsárdal
Eftirfarandi upplýsingar eru
fengnar hjá Kristjáiii Ekl-
járn um rannsóknii’nar á Stöng
í Þjórsárdal:
Bærinn hefir orpist vikri og
mold svo mjög, að ekki sá móta
fyrir tóftum á yfirborði. Fjós-
rúst var örfoka að nokkru. Sá-
ust þar stórar báshellur og
leiddi það til þess að hinn gamli
bær fanst.
Rannsóknunum er ekki lokið,
en nokkrar stofur eru þegar
komnar í ljós. Merkust er setu-
stofa, fjórum sinnum átta metr-
ar, með veggjum úr torfi og
grjóti. Standa veggir því sem
næst í fullri hæð.
Meðfram langhliðum eru set
upphækkuð, sem hafa forðum
verið gerð af timbri. Sjer enn
hólur eftir stoðir þær, er fest
hafa setbekkinn í gólfið. Einnig
sjer steina þá, er borið hafa
setstokkinn. Á miðju gólfi hefir
brunnið eldur — einskonar lang
eldur — en umhverfis stórar
hellur, reistar á rönd, og hefir
eldstæðið verið eins og stór
ferhyrndur aflangur kassi að
lögun, niðurgrafið í gólfið. Úr
stofu þessari liggja dyr inn í
skála stóran, er var ekki graf-
inn út til fullnustu, síðast er
frjettist. Annað hús er þegar
rannsakað. Er það fremur lítið
bakhús með inngangi frá skála.
Tvær djúpar steinrennur liggja
þar meðfram báðum langhlið-
um og opnast báðar út gegn
um vegginn, niður að bæjar-
læknum. í rennum þessum er
beinarusl, aska og kol, og bend-
ir margt til þess, að allskonar
sorpi hafi verið kastað þangað.
Stofa lík þessari hefir aldrei
fundist á landi hjer fyr. Geta
fornfræðingarnir þess til, áð
hjer sje um að ræða baSstofu í
fornum stíl. (FÚ)
Trúlofun sína opinberuðu ný-
lega uiigfrú , Guðrún Axelsdóttir
og Ólafur Sig'urjónsson.
Af fx'ssmn heiijildai’lögum (frá
1935) sprúttu 2 ríkiseinkasölur:
Bifreiðaeinkasalan og Raftækja-
eiukasaJan. Hin síðarnefnda var
þegaf oi’ðin mikið bákn, með
fjölda starfsfólks og árlegi'i launa
greiðslu milli 80 og 90 þús. króna.
Reis þegar mik.il deila um
þessa einkasölu, þar eð ýmsar
nauðsynjavörur stórhækkuðu í
verði, eftir hennar komn. En gagn
rýni á þessa einkasölu fekk engu
áorkað, þar eð hún var stofnuð
samkvæöit kröfu sósíalista, sem
þá voru mikils ráðandi í stjórn-
inni.
Ber áð fagna 'þVí, að fjármála-
ráðherfa hefir nú tekið þá á-
kvörðun aðr leggja þessa einka-
sölu niður. Þyrftu fleiri að fara
Sömu leið, og þá ekki hvað síst
hin einkasalan, bíla, sem fædd-
ist í skjóli sömu heimildarlaga.
Hún er áreiðanlega engum til
góðs.
Það er vissulega tími til kominn
fyrir ríkisvaldið, að fara að draga
saman seglin í kapphlaupinn við
einkaframtakið. Hinar mörgu
einkasölur, sem ríkið rekur nú,
er einn þátturinn — og hann ekki
lítill — í þessu kapphlaupi. Þær
eru runnar undan rifjum sósíal-
ista, sem ætluðu sjer, þegar þeirra
veldi vár mest hjer á árunum, að
koma allri vefslun í ríkiseinka-
sölu. Það tókst að vísu ekki, en
einkasölubáknið er þó margfalt
meira hjer en í nokkru öðru landi,
þar sem einræði ekki ríkir.
K. R. vann
Drengjamótið
Sigurður Finnsson
hæstur
Drengjamótinu var lokið í
gærkvöldi, og fóru leikar
þannig, að K. R. vann mótið með
40 stigum. Hæsta einstaklings-
stigatölu fjekk Sigurður Finnsson
(K. R.), 18 stig.
Yeður var'heldur óhagstætt þau
þrjú kvöld, sem kept var. Þó náð-
ist all góður árangur á mótinu,
betvi í mörgum íþróttagreinum en
í fyrra, enda þótt ekkert íiýtt met-
væri sett nú.
Keppendur á mótinu voru alls
30, frá 5 fjelögum. Frá Ármann
11, K. R. 7, S. H. 7, í. R. 4 og í.
K. 1.
FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU
,Æfinlýrið‘
á íslandi
FrúSigríður Eiríksdóttir, for-
maður Fjelags íslenskra
hjúkrurtarkvenna, er nýlega kom
in heim frá Noregi. En hún fór
með Stavangerfjord snöggva
ferð, er hjúkrunarkvennamótinu
var lokið, til þess að ræða við
fulltrúana mál, sem ekki urðu
afgreidd hjer.
í Oslo tóku norskar hjúkrun-
arkonur á móti stallsystrum sín-
um og fulltrúar hinna ýmsu landa
sátu veislu hjúkrunarkvennafje-
lagsins norska á heimili systur
Bergljótar Larsson.
Eftir það skildust leiðir.
Morgunblaðið. átti tal við frú
Sigríði í gær. Kvaðst hún hafa
haft gott tækifæri til þess á ferð
inni að heyra álit hjúkrunar-
kvennanna um dvöl þeirra hjer.
Hafi það verið á þann veg, er
hinar íslensku hjúkrunarkonur
mættu vel við una, og til marks
um ánægju þeirra, sagði frú Sig
ríður, að mótið hefði aldrei ver-
ið kallað annað um borð, en „æf-
intýrið á íslandi“. En mesta á-
herslu lögðu hjúkrunarkonurnar
á það, hve mikilli alúð þær hefðu
mætt alstaðar, hvar sem þær
hefðu komið hjer á landi.
„Kann jeg öllum, sem þár eiga
hlut að máli, þakkir fyrir það“,
sagði frú Sigríður. „Okkur, sem
fyrir mótinu stóðum, var mikill
styrkur í því, hve góðar undir-
tektir þetta fjölmenna hjúkrun-
arkvennamót fjekk lijer heima“.
„Ánægja þátttakenda mótsins
kemur líka fram í skrifum þeirra
og viðtökum, sem birst hafa í
ýmsum Norðurlandablöðunum“,
segir frú Sigríður ennfremur.
FRAMH. Á SJÖTTU SlÐU
Kl. var um 8, er lagt var af
stað frá kvennaskólanum á
Blönduósi. Mikil rigning var á
leiðinni inn Langadalinn og á
Vatnsskarði. Dimt var einnig yú
ir Skagafirði og fengu menn
ekki að njóta fegurðar hans.
Víðimýrarkirkja var skoðuð, og
þótti dönsku blaðamönnunum
hún einkennileg. Árdegisverður
var snæddur að Víðivöllum og
var íslenskur matur á borðum.
Síðan voru bæjarhúsin skoðuð
og þóttu hinum erlendu gestum
þau merkileg.
Um hádegi var svo lagt af
stað frá Víðivöllum og fór veð-
ur batnandi; var ágætt er kom-
ið var í Öxnadalinn og Eyja-
fjörður sýndi sig í sínum mesta
skrúða; glampandi sólskin og
blíða.
Á AKUREYRI
Til Akureyrar var komið kL
4Yi- Þar hittu . ferðalangarnir
blaðamenn Akureyrar og
drukku með þeim kaffi á Hótel
Goðafoss, en þar búa dönsku
blaðamennirnir.
Var þvínæst bærinn skoðaður
og nokkur fyrirtæki KEA. Tók
forstjórinn, Jakob Frímannsson
á móti blaðamönnunum í fund-
arsal fjelagsins. Síðan var Gefj-<
un skoðuð, Skógerðin og nýja
mjólkurstöðin, er tók til starfa
í vor.
Þá var haldið upp í Lystigarð
inn, en þar er nú alt í mesta,
blóma og gróður mikill og fag-
ur.
Var síðan farið í Gróðrarstöð-
ina. Ólafur Jónsson framkv.-
stjóri Ræktunarfjelagsins flutti
fyrirlestur'í brekkunni, þar sem
liann lýsti starfsemi fjelagsins
fyr og síðar.
VEISLA
BÆJARSTJÓRNAR
Kl. 8 í gærkvöldi hófst mið-
FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU.