Morgunblaðið - 17.08.1939, Page 8
JCaupÁ&apuv
RABARBAR
nýupptekinn, 35 aura pr. kg.
Valdar íslenskar kartöflur 35
aura pr. kg. Niðursuðuglös,
margar stærðir, Sultuglös og
1 kg. og flest til sultunar í Þor-
steinsbúð, Grundarstíg 12, sími
3247. Hringbraut 61, sími 2803.
DR. BIRCHES-BRAUÐIN
fara líka sigurför um bæinn. —
Sendum jfljótt. Sveinabakaríið,
Vesturgötu 14. Sími 5239.
|#0»pttWÍÍ Fimtudagur 17. ágúst 1939.
Framhaldssaga — Þjcr getið byrfað i dag
Rauða akurliljan og rænda brúðurin
ÁGÆTAR GULRÓFUR '
frá Móum, til sölu. Tekið móti
pöntunum í síma 3613.
RABARBARAPLÖNTUR
og fjölærar plöntur til sölu —
næstu daga frá kl. 1—6. Blóma
stöðin Blágresi, Njálsgötu 8 C.
KRAFTBRAUÐIN
borða allir, sem vilja sjer og
sínum vel. Altaf undir læknis-
eftirliti. Sveinabakaríið Vestur-
götu 14. Sími 5239.
BIFREIÐAR TIL SÖLU
5 og 7 manna og !/*> tons bílar.
Skifti geta komið til greina á
7 manna bifreið og annari
minní
Martin Roget þykist vera bankastjóri
frá Brest og hefir vjelað Kernogan,
franskan hertoga og útlaga, með sjer
frá Englandi til Nantes, ásamt dóttur
hans, Yvonne, sem er gift Anthony lá-
varSi, einkavini Sir Percy Blákeney, er
kallaöur er Rauða akurliljan og hjálp-
að hefir mörgum frönskum aðalsmönn-
um úr klóm byltingarmanna. Chauvel-
in, fyrv. fulltrúi bvltingamefndarinnar
í París, hefir beðið ósigur fyrir Rauðu
akurliljunni. Ætlar hann mi að reyna
að hefna sín á honum, þar sem hann
heldnr, að hann sje kominn til Nantes
til þess að bjarga hertogannm og dótt-
ur hans. Martin Roget og Chauvelin
hafa leitað hjálpar hjá grimdarseggn-
um Catrier, sem er einvaldur í Nantes.
laus. Druknanir og lýðveldishjóna-
bönd! Þjer eruð svo heimtufrek-
ur, að yður finst það ekkert! En
þetta ? Að sjá Rauðu akurliljuna
og f jelaga hans handtekna! Það
mun fá blóðið til þess að renna ör- an
ara í æðum yðar. Áfram, Chauve-
lin borgari. Jeg bíð með óþreyju
eftir að heyra meira!“
Hann neri saman höndunum og
skríkti hinn ánægðasti.
,,í „Dauðu rottunni", segið þjer,
— Stefán JóhannssonJ borgari“, sagði Chauvelin í spyrj-
Frakkastíg 24. Sími 2640. andi róm.
MEÐALAGLÖS
Fersólglös og Soyuglös, keypt
laglega. Sparið milliliðina og
kcmið beint til okkar ef þið
jlljið fá hæsta verð fyrir glös-
Ta. Laugavegs Apótek.
KALDHREINSAÐ
þorskalýsi sent um allan bse. —
Jjörn Jónsson, Vesturgötu 28.
3íml 8694.
i KAUPUM FLÖSKUR
glðs og bóndósir af flestum teg-
undum. Hjá okkur fáið þjer á-
valt hæsta verð. Sækjum tT
yðar að kostnaðarlausu. Simi
5883. Flöskuversl. Hafnarstr. 21
MUNIÐ
fallegustu og ódýrustu blómin.
Blómasalan, Laugaveg 7, sími
5284.
KOPAR KETPTUR
f Lan d imiðjunnL
KAUPUM FLÖSKUR,
atórar og smáar, whiskypela,
glös og bóndósir. Flöskubúðin,
Bergstaðastræti 10. Sími 5395.
Sækjum. Opið allan daginn.
TJÖLD, SÚLUR
og SÓLSKÝLI.
Verbúð 2,
sími 1840 og 2731
VANTAR
duglegan pilt á aldrinum 14—
18 ára til sendistarfa hjer í
bænum, helst að hann sje van-
ur sölu og sendistörfum. Verð
til viðtals frá kl. 5—8 í dag á
Mýrargötu 3, niðri.
„•Tá! hvers vegna ekki. Martin-
Roget borgari ætlar að flytja
stúlkuna þangað. Er ekki svof'
.Jú“
„Og þjer segið, að þar sem hún
sje, muni Englendingurinn líka
vera —> —“
„Mjög líklegt".
„Og það þýðir, að Martin-Roget
verður að greiða tíu þúsund
franka fyrir að láta handtaka
stúlkuna og föður hennar í „Dauðu
rottunni“, og tíu þúsund fyrir
að handtaka ensku njósnarana ..
.. Eruð þjer búinn að gleyma
því, Chauvelin borgari“, bætti
hann við, „að jeg læt Fleury kapt-
ein ráðast inn í „Dauðu rottuna“
í kvöld og handtaka alla, sem þar
eru, meðal annara Kernoganhysk-
ið?“
„Yvonne Kernogan er ekki kom-
in þangað enn“, sagði Chauvelin
þurrlega. „Og þjer hafið neitað
aðstoð yðar til þess að koma henni
þangað“.
„Mjer er það ómögulegt, kæri
Chauvelin“, svaraði Carrier. „Ó-
mögulegt. Þjer skiljið það. Jeg
get ekki látið hermenn mína fara
með stúlkuna í illa þokkað hús og
síðan látið taka hana fasta þar
litlu síðar. Það er ekki hægt. Þjer
vitið ekki, hvernig setið er um
migÁ allar liliðar. Það er ómögu-
legt! Það er yfirleitt mjög óheppi-
legt, að mjer sje blandað í málið.
Stúlkan verður að fara þangað af
fúsum vilja, annars fer ráðagerð
okkar út um þúfur. Martin-Roget
verður að finna ráð. Eða getið
þjer kannske liugsað yður ein-
hverja leið?“, bætti hann við
smjaðurslega. „Þjer hafið ráð und-
ir hverju rifi, kæri Chauvelin“.
„Já“, svaraði Chauvelin rólega.
„Jeg get hugsað mjer leið. Stúlk-
skal af fúsum vilja fara úr
húsi Adets borgara og yfir í
„Dauðu rottuna11. Mannorð yðar,
Carrier borgari, skal ekki líða við
það“, bætti hann við, án minstu
hæðni í rómnum. En ef hinum
ensku æfintýramönnum tekst að
hrífa hana á brott á leiðinni milli
húsanna ....“
„Eins og það gætiikomið fyrir“,
sagði Carrier og ypti öxlum.
„Mjög líklegt, borgari. Þjer
mynduð ekki efast um það, ef
þjer þektuð Rauðu akurliljuna
eins vel og jeg. Hann getur alt.
Hann er sterkur eins og björn,
fimur einsi og köttur og sjer jafn-
vel í myrkri. Hann hefir líka lag
á því að liverfa í fjöldann hve-
nær sem er. Ög það er aldrei að
vita, hvar hann felur sig. Hann
kann að dulbúa sig og er fæddur
leikari. Trúið mjer, borgari. Yið
þurfum á allri okkar snilli að
halda til þess að standast slíkan
fjandmann“.
c
arrier sat hugsi um stund.
„Hm!“, sagði hann síðan
og hló beiskjulega. „Þjer hafið
reynslu í þessum efnum og ættuð
að þekkja þorparann. Hjer fær
engin tilviljun að ráða! Treystið
því. Ilermenn mínir verða æstir í
að ná í þrjótinn, og jeg lofa
Fleury þúsund frönkum fyrir
sjálfan hann, og öðru þúsundinu
fyrir hermennina, ef þeim tekst vel.
Hjer fær engin tilviljun að ráða!“
sagði hann aftur og blótaði til
áherslu.
„Þá verðið þjer að lofa tvennu,
Carrier borgari“, sagði Chauvelin
„Hverjuf
„Þjer verðið að skipa Fleury
kaptein að láta mig fá hálfa lið-
sveit undir forystu hans til um-
ráða“.
„og------?“
„Gefa þeim leyfi til þess að
koma okkur til hjálpar, ef til-
raun verður gerð til þessj að ræna
stúlkunni á leiðiuni yfir í „Dauðu
röttuna' ‘----“
Carrier hikaði, en aðeins til
málamyndar. Hann vissi, að hann
varð að láta undan.
„Jæja“, sagði hann að lokum.
„Jeg skal gefa Fleury skipun um
að vera á verði og koma til hjálp-
ar, ef eitthvað kemur fyrir í nánd
við „Dauðu rottuna“. Eruð þjer
ánægður með það?“
„Já, það er ágætt. Jeg verð líka
á verði einhversstaðar þarna í]
nánd og gef Fleury merki, ef mig
grunar, að Englendingarnir ætli
að fara á stúfana. Martin-Roget
hefir einnig til taks nokkra menn
fyrir utan hús systur sinnar. Það
eru ungir menn frá Vertou, sem
hata hertogann jafn mikið og hann
sjálfur. En jeg þykist öruggur nú,
er jeg hefi trygt mjer aðstoð
Fleurys“.
„Þá getum við báðir verið á-
nægðir ?“
„Já. En eftir er að ákveða, hve-
nær Fleury kapteinn á að berja að
dyrum á veitingahúsinu og krefj-
ast inngöngu í nafni lýðveldisins“.
„Það má hann ekki gera, fyr en
hann hefir gengið úr skugga um,
að bráð okkar sje í netinu, áður
en hann dregur það saman, annars
fara allar ráðagerðir okkar tit um
þúfur".
„Auðvitað!“, svaraði Chauvelin.
„En þegar við erum búnir að koma
stúlkunni þangað. til föður hennar,
þurfum við á einjim manni að
halda, er getur hjálpað okkur til
þess að veiða fuglana okkar í
gildruna. Hann heitir Paul Friehe
og er í einni Marat-sveitinni. Hanrt
var á verði fyrir utan Le Bouffay
í dag og myndi vera ágætlega tií
þess fallinn“.
„Hvað viljið þjer, að hanm
geri?“, spurði Carrier.
„Geri sig í útliti eins og versta*
morðingja — —“
„Þá þarf hann ekkert að breyta
sjer“, tók Jaeque Laíouet fram %
fyrir. honum.
„Því betra. Hann vekur þá ekki
grunsemd gestanna í „Dauðu rott-
unni“. Strax og stúlkan er komin
þangað læt jeg hann koma af stað'
rifrildi. I ólátunum, sem af því
Framh.
D 0 3 GQ 0 0 a Œ
íKOÉðALT
nrmcF
Rithöfundurinn Chesterton var
manna feitastur, og henti oft gam-
an að því sjálfur. Einu sinni sagði
hann við vin sinn.
— Jeg fór inn v sporvagn í gær
og settist. Rjett á eftir fyltist
vagninn alveg. Þá var jeg svo
kurteis að jeg reis á fætur og ljeði
þremur konum sætið mitt.
Öðru sinni hitti hann Bernhard
Shaw, sem er mjög grannholda.
Þá sagði Chesterton;
— Þegar maður horfir á þig
gæti maður trúað að það væri
hungursneyð í laudinu.
— Og hún væn þjer að kenna,
sagði ShaW.
★
Þegar Mark Twain kom seinast
til Evrópu var hann boðinn til
bresku konungshjónanna í Wind-
sor. Hann sagði þá Játvarði kon-
ungi frá því, að daginn áður hefði
hann setið veislu hjá ræðismanni
Bandaríkjanna og grætt þar 500
dollara á því, að ræðismaðurinn
kom í veg fyrir að hann heldi
ræðu. Konungi þótti þetta heldur
ótrúlegt, en Jfá útlistaði Mark
Twain það:
— Ef jeg hefði haldið þessa
ræðu, sem jeg var að hugsa um,
mundu öll amerísku blöðin hafa
prentað hana eftir mjer, og þá
hefði jeg ekki getað notað efnið
úr henni í þá grein, sem jeg sendi
„North American Review“ í dag,
en fyrir hana fæ jeg 500 dollara.
★
í Hvíta húsinu í Washington,
bústað forseta U. S. A., er eitt af
verðmætustu píanóum heimsins.
það kostaði 158.000 krónur og er
skreytt með gulli og silfri. Píanóið
er eign ríkisins og var smíðað fyr-
ir forsetafrúna, sem ekki kann að
spila eitt einasta lag.
★
Enski leikarinn Saszmore var
nafnkunnur bæði fyrir það hvað
hann var spikfeitur og Ijek vel.
Einu sinni Ijek hann þar sem hann
átti að deyja í seinasta þætti, en
þá var hann svo þungur, að þjón-
arnir gátu ekki borið hann út af
leiksviðinu. Þá hrópaði einhver af
áheyrendum:
— Nei, sko feita svínið!
Þá reis Sazmore upp við oln-
boga og sagði með grafarraust:
— Yirðingu fyrir dauðanum —
glópurinn þinn!
★
Ungur og kurteis maður hafði
fengið leigt herbergi hjá aldraðri
konu. Eftir fyrsta morgunverðinn
sagði hann við hana:
— Ef það var kaffi, sem jeg
fekk í morgun, þá vil jeg helst
fá te í fyrramálið, en ef það var
te, sem jeg fekk í morgun, þá vil
jeg helst fá kaffi.
★
—- Nú, ungfrú Halen er búin að
trúlofa sig. Þú varðst ekki sá
hamingjusami ?
— Nei. Jeg var sigraður í loka-
kepninni.
VENUS SKÓGLJÁI
tnýkir leðrið og gljáir skón* >vf-
burða vel.
VENUS-GÖLFGLJÁI
aíburðagóður og fljótvirkur. —
Ávalt í næstu búð.
HJÁLPRÆÐISHERINN
1 kvöld kl. 81/2 Hljómleika-
samkoma.
MUNIÐ FISKSÖLUNA
á Nýlendugötu 14, sími 4443.
FRIGGBÓNIÐ FlNA,
er ba*jarins besta bón.
MINNLNGARSPJÖLD
fyrir Minningarsjóð Einars*
Helgasonar, garðyrkjustjóra
fást á eftirtöldum stöðums:
Gróðrarstöðinni, Búnaðarfjel
íslands. Þingholtsstræti 33-
Laugaveg 50 A. Túngötu 45, o>-
afgreiðslu Morgunblaðsins. —
I Hafnarfirði á Hverfisgötu 38*
TOGTr
ST. DRÖFN NR 55.
Fundur í dag, fimtudag kl. 8..
Inntaka nýrra fjelaga. Skipað í
fastanefndir o. fl. Hagnefndar-
atriði? Embættismenn stúkunn-
ar vinsamlegast beðnir um a<Y
mæta stundvíslega. Æ. t.
herbergi eða íbúð
eða leigjendur fyrir
baustið, vinnustúlku,
eða einhverja muni
til kaups, þá er hægt
að ráða bót á því
/