Morgunblaðið - 22.08.1939, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Þriðjudagur 22. ágúst 1939.
r
Ofriðarblikan er
svört, en óvænt getur
alt breyst
Þjóðverjar hafa gert
viðskiftasamning
við Rússa
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
IBerlín er búist við því, að Hitler muni leysa Dan-
zig-málið á einhvern hátt áður en flokksþing
þjóðernissinna kemur saman í Niirnberg. Blöð-
in taka svo til orða, að nú vanti klukkuna ekki nema fimm
sekúndur í tólf, og vilja með því gefa til kynna hvað stutt
sje þangað til látið verður til skarar skríða.
ítölsku blöðin segja líka, að innan fárra daga muni
draga til úrslita, en þau bæta því við, að enda þótt ófriðar-
blikan sje svört, þá geti útlitið breyst alt í einu og óvænt.
Annars eru Þjóðverjar nú bjartsýnni en áður, því að
þeir efast um að Bretland muni hjálpa Póllandi.
Ýmsir Þjóðverjar telja að Hitler muni taka Danzig og
pólska hliðið með svo mikilli skyndingu, að vesturríkin
átti sig ekki á því fyr en alt er um garð gengið og geti
þess vegna ekki skorist í leikinn. Og svo muni Hitler friða
|þau með því að fara ekki lengra.
En í frjettum frá Englandi er sagt að Bretar bíði
reiðubúnir að fara í stríð. Flotinn sje nú enn betri heldur
en hann var 1914, og svo hafi Bretar nú hálfa miljón æfðra
hermanna undir vopnum. Lundúnablöðin, sem komu út í
morgun, leggja áherslu á það, að Bretar hafi þegar gefið
fullnaðarloforð um liðveislu, og hafi þar engu við að bæta.
Samningur ÞjóOverja og Rússa
Frá frjettaritara vorum.
Khöfn í gær.
Ifyrradag var undirritaður viðskiftasamningur
milli Þjóðverja og Rússa.
Samkvæmt þeim samningi veita Þjóðverjar
Rússum 200 miljóna marka lán til þess að kaupa vörur í
Þýskalandi.
Á næstu tveimur árum eiga svo Rússar að láta Þjóð-
verja fá vörur fyrir 180 miljónir marka,
Þjóðverjar búast við því, að
viðskiftin, við Rússland muni
stórkostlega aukast framvegis
úr því að þessi samningur var
gerður. Leggja þýsku blöðin á
herslu á það, að iðnaðarlandið
Þýskaland og hráefnalandið
Rússland geti bætt upp þarfir
hvors annars. Þýskaland geti
keypt alveg ótakmarkað af hrá-
efnum frá Rússlandi handa iðn-
fyrirtækjum sínum til þess að
vinna úr þeim.
Það virðist svo, sem Þjóð-
verjar búist líka við því, að
þessi viðskiftasamnlngur muni
jhafa mikil áhrif á pólitík þess-
ara landa og rnuni verða til sam
dráttar á stjómmálasviðinu.
Gefa þau svona í skyn um I®ið,
að ekki sje óhugsandi að Pól-
landi verði skift í fjórða sinn
jmilli Þýskalands og Rússlan^s.
Rússneska blaðið „Pravda'
segir, að hinn nýi viðskifta-
samningur muni ekki aðeins
verða til þess að efla samstarf
Rússa og Þjóðverja á viðskifta-
sviðinu, heldur einnig á stjórn-
málasviðinu.
í Vestur-Evrópu er mönnum
ekki Ijóst hvort þessi samn-
ingur sje undanfari þess, að
Rússar ætli að vingast við Þjoð-
verja eða hvort Rússar hafa
gert hann til þess að knýa Rreta
til þess að gera frekari tilslak-
anir í samningum þeim, sem nú
standa yfir í Moskva milli rúss-
nesku stjómarinnar og hermála-
fulltrúa Breta og Frakka.
Þeir samningar hafa nú legið
niðri í 3 daga, að sögn vegna
flugvikunnar rússnesku, en
fulltrúarnir hafa nú aftur kom-
ið saman á fund í dag.
Stjórnmálamenn
eiga annríkt
Ciano greifi lagði á laug-
ardaginn hornsteina að tveim-
ur opinberum byggingum,
sem ítalir ætla að reisa í Tir-
ana í Albaníu. Þaðan flaug
hann til Durazzo og síðan til
Róm. I gær átti hann samtal
við Mussolini og sendiherra
ítala í Berlín, sem kvaddur
var þangað suður til skrafs
og ráðagerða.
★
Chamberlain og Halifax
lávarður eru báðir komnir til
Lundúna, og ræddust við í
bústað forsætisráðherra í
gærmorgun.
Að þeim fundi loknum fór
Halifax lávarður til skrif-i
stofu sinnar í utanríkismála-
ráðuneytinu og ræddi þar við
ýmsa, þar á meðal George
Lansbury.
Chamberlain átti og tal í
gær við þá Samuel Hoare inn
anríkisráðherra og Mr. Bur-
gin birgðamálaráðherra.
Ríkisstjórnarfundur verður
haldinn í dag.
★
Hoare Belisha hermálaráð-
herra Breta hefir verið í sum-
arleyfi í Frakklandi. I gær-
morgun fór hann á fund Dala
dier, forsætisráðherra í Par-
ís og ræddu þeir saman i eina
klukkustund. Síðan helt Ho-
are-Belisha áfram til Lúnd-
úna og kom þangað síðdegis í
gær.
★
Franska ríkisstjórnin kem-
ur saman á fund í kvöld.
★
Czaky greifj er nú kominn
heim til Budapest úr ferða-
lagi sínu til öxulsríkjanna.
★
ítalski sendiherrann í Ber-
lín, sem kallaður var heim
til Rómaborgar til viðtals, átti
tal við von Ribbentrop í Salz-
burg áður en hann fór, en það
er sagt að hann hafi ekki
farið á fund Hitlers.
(Eftir F.Ú.)
Jakobína Pjetursdóttir að Litlu-
Strönd í Mývatnssveit andáð’ist á
laugardagsmorgun nsprri 89 ára
aÖ aldri. Jakobína var ein hinria
alþektu Reykjahlíðarsystkina, sem
nú eru flest látin. Hiin var gift
Þorgils gjallanda og bjuggu þau
mestan sinn búskap að Litlu-
Strönd. Hefir Jakobína einnig
dvalið þar síðan bann andaðist,
eða alls um 50 ár. Jakobína var
mikil myndarkona og. margvísleg-
um hæfileikum búin. (FÚ)
Ribbentrop
fer til Moskva
að undirskrifa hlut-
leysissáttmála Rússa*
og Þjóðverja
Seint í gærkvöldi var skýrt frá því í breska
útvarpinu, að óstaðfest fregn frá Berlín
hermdi, að Þýskaland og Rússland myndu
vera búin að gera með sjer samning, um að hvor-
ugt ríkið skyldi ráðast á hitt, og að von Ribben-
trop myndi fara til Moskva á miðvikudag eða
fimtudag, til þess að undirskrifa samninginn.
í þýska útvarpinu í nótt var fregn þessi stað-
fest. Von Papen hefir verið í Moskva undanfarið
og er talið, að hann hafi komið þessuin samning-
um á.
Breski konsúllinn í Prag hefir ráðlagt öllum
breskum þegnum að hverfa úr Póllandi.
Hlutlausu ríkin
efna til ráðstefnu
London í gær F.Ú.
elgiski forsætisráðherrann,
sem er einnig utanríkis-
málaráðherra, gerði í dag grein
fyrir horfum í alþjóðamálum, í
ræðu sem hann flutti á fundi
stjórnarinnar.
Hann sagði, að Oslo-veldun-
um hefði verið boðið að koma
saman á fund í Briissel, til þess
að ræða helstu vandamál yfir-
standandi tíma. Ríkisstjórnir
Noregs, Danmerkur og Svíþjóð-
ar hefði þegar þegið boðið, og
utanríkismálaráðherrar þeirra
leggja af stað til Brussel á morg
un. Hin ríkin, sem standa að
Oslo-samþyktinni, eru Finnland,
Holland og Luxemburg.
Eitt þeirra mála, sem rædd
verða, er hversu Osloveldin geti
varðveitt hlutleysi sitt og sjálf-
stæði, en annað helsta málið er
hversu draga megi að nægar
birgðir nauðsynja á styrjaldar-
tímum.
Strfðsfangar á Spáni
látiMlausir
London í gær F.Ú.
regn frá Spáni í dag herm-
ir, að innan skamms verði
allir sfríðsfangar, sem eru í
fangabúðum á Spáni, látnir
lausir.
Það er nú búist við, að Fran-
eo muni leggja upp í ítalíuheim
sókn sína 4. eða 6. september
næstkomandi.
Tilkynt hefir verið, að Bale-
areyjar verði framvegis sjer-
stök bækistöð fyrir spænska
flotadeild, og verður aðalhöfn
flotans á Majorca.
Finnum þökkuð
skilvísi
London í gær F.Ú.
enry Morgenthau, fjár-
málaráðherra Bandaríkj-
anna, er kominn til Helsingfors.
Morgenthau.
Fór hann þangað loftleiðis.
Komst hann svo að orði í gær,
við komuna, að hann hefði tekið
sjer þessa ferð á hendur til þess
að þakka Finnum opinberlega,
fyrir hönd Bandaríkjastjórnar,
.að þeir hefði alt af staðið í skil-
um með greiðslú afborgana og
vaxta af ófriðarskuldum sínum.
„LEIÐTOGINN“
MUN KOMA TIL DANZIG.
London í gær F.Ú.
örster, foringi nazista í Dan
zig sagði í dag í ræðu,
sem hann flutti á útifundi þar í
borginni:
„Við bíðum ósmeikir þess,
sem gerast mun, en verið viss-
ir um það, að leiðtogipn (þ. e.
Hitler) mun koma til Danzig
innan skamms“.