Morgunblaðið - 22.08.1939, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 22.08.1939, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ Þriðjudagur 22. ágúst 1939. Hraðferðir Sleindórs Til Akureyrar um Akranes eru: FRÁ REYKJAVÍK alla sunnud., mánud., miðvikud., föstud. FRÁ AKUREYRI alla sunnud., mánud., fimtud., laugard. M.s. Fagranes annast sjóleiðina. Nýar upphitaðar bifreiðar með útvarpi. Bftfreftðastöð Steftndóri. Morgunblaðið með morgunkaffinu Bræðslusildaraflinn um 463 þús. hektólftrum minni en I fyrra ,, Jaðar“ beitir liinn nýi skemtistaður Templara Asunnudaginn var vígður hinn nýi skemtistaður Templara fyrir ofan Elliðavatn, og var hon- urn gefið nafnið Jaðar. Sigurður Guðmundsson ljós- myndari, sem er formaður land- námsnefndar og manna mest hefir unnið að landnáminu, setti vígslu- athöfnina og stýrði henni. Sigurður Þorsteinsson þing- templar helt aðalræðuna. Rakti hann sögu landnámsins í stórum dráttum og lýsti því hvaða vonir væri bundnar við þennan stað. Þarna ætluðu Templarar að rækta skóg og gera landið að hinum feg- ursta skemtistað, sem til væri í grend við Reykjavík. Þar ætluðu þeir að halda útisamkomur sínar. En fyrst og frejrist ætti þarna að verða miðstöð íþróttahreyfingar innan Reglunnar. Þarna ætti Reglufjelagar að stunda frjálsar íþróttir á sumrin og til þess ætti að gera þarna góðan leikvang, A vetrum heldu menn til í skálanum og stunduðu skíðaferðir suður til fjallanna, eða skautahlaup á vatn- inu. Skýrsla Fiskifjelagsins til laugardagskvölds SAMKVÆMT skýrslu Fiskifjelags Islands var bræðslusíldaraflinn síðastliðinn laugardag (19.- ágúst) orðinn 841.114 hektólítrar. Á sama tíma í fyrra var hann 1.303.542 hektólítrar. Saltsíldin var alls s. 1. laugardag 106.458 tn., en 190.994 tn. á sama tíma í fyrra. Saltsíldin skiftist þann'ig í verkunarflokka: Saltsíld 37.155 tn., sjerverkuð saltsíld 38.271, matjesverkað 8,385, kryddsíld 17.326, sykursíld 4.108 og sjerverkað 1.213 tn. Bræðslusíldin skiftist þannig á verksmiðjurnar: Verksmiðjur: 19/8 1939 20/8 1938 hektol. hektol. Akranes 4.076 516 Sólbakki 3.935 7.039 Hesteyri 43.736 Djúpavík 90.133 171.213 Ríkisverksm. Siglufirði ! 279.592 471.849 „Rauðka" Siglufirði 26.215 54.099 ,,Grána“ Siglufirði 9.953 , 15.497 Dagverðareyri 42.621 73.530 Hjalteyri 160.539 270.196 Krossanes 82.047 128.173 Húsavík 13.392 10.214 Raufarhöfn 66.806 39.641 Seyðisfjörður 35.377 10.434 Norðfjörður 26.428 : 7.405 Samtals 841.114 1.303.542 Fyrra laugardag var bræðslusíldin 814.707 hl., svo viðbótín vikuna sem leið var sáralítil, aðeins 26.407 hl. Að ræðu Þingtemplars lokinni voru sungin eftirfarandi vígslu- Ijóð eftir Kristmund Þorleifsson. Hjeit skal saman höndum taka, hlú að gróðri, veita skjól. Yfir kvistum veikum vaka — vori treysta’ og hlýrri sól. Láta vaxa’ úr lági hrísi laufga, fagurvaxna björk. Tignir, sterkir, stórir rísi stofnar hjer um gróna mörk. Settu hugrökk hátt þitt merki. Hrauni breyt í gróður reit. Gakk þú sigurviss að verki, vertu samhent, röská sveit. Þjer skal vaxa vit og styrkur, vona flug og starfa þrá. Gegnum vetrar vá og myrkur vorsins ljóma skaltu sjá. Ei skal bíða, hika — hræðast hraunið bert og grýttan mel, Skulum heldur harnisk klæðast, heyja stríð og duga vel. Sjertú hópur, heill og sterkur, hendur þínar geta vel breytt í glæstar grónar merkur gráu hrauni — blásnum mel. Trúðu krafti fóstur foldar, finn í barm þjer straumaj hans. Trúðu vaxtar mætti moldar — moldar eigin föðurlands. Furðast ei þá foldin kallar funann, sem í brjósti er, því að landsins æðar allar eiga grein í sjálfum þjer. Landið fögru skrúði skrýða skipar insta röddin þjer. Fegrun lands og fegrun lýða fljettast meir en vitað er. Látum vaxa’ úr lágu hrísi FRAMH. Á BJÖTTU SÍÐU Hæstan afla höfðu þessi skip: Garðar 8543 mál og 886 tn., Skutull 8210 mál og 1123 tn., Skallagrímur 8070 mál og 166 tn. Af línuvéiðurum höfðu hæst-» an afla: Jökull 7678 mál og 631 tn., Hvassafell 5984 mál og 696 tn., Ólafur Bjarnason 4951 mál og 737 tn., Eldborg 4382 mál og 1253 tn. Fjelagsbókbandið hefir nýlega keypt Amtmannshúsið við Ing- ólfsstræti, látið breyta því innan og utan, t. d. látið setja múrhúð utan á það með hrafntinnu og skeljasandi, svo að það hefir alveg breytt um svip. Nú hefir Fjelags- bókbandið flutt þangað vinnustof ur sínar, sem til þessa hafa verið í húsi Fjelagsprentsmiðjunnar. Gott verð. Súputarínur 5.00 Áleggsföt 0.50 Desertdiskar > 0.35 Ávaxtadiskar 0.35 Ávaxtaskálar 2.00 Ávaxtastell 6 m. 4.50 Smurðsbrauðsdiskar 0.50 Vínglös 0.50 fsglös 1.00 Sítrónupressur 0.75 Veggskildir 1.00 Kartöfluföt með loki 2.75 Matskeiðar 0.25 Matgafflar 0.25 K. Einarsson S: Björnsson Bankastræti 11. c 5 sími 5652 o )anKinr\ .Opið kl.11-12ocj‘1J3^ SELUR Kreppulánas)óðsbr)ef bænda Bæjar- og sveitarfjelaga Kreppubrjef. Veðdeildar- brjef. Skuldabrjef Reykjavíkurbæjar. VILL KAUPA: Hlutabrjef EimskipafjeJ. íslands h.f. — Hlutabrjef Útvegsbanka íslands. - Ennfremur vel trygð skulda- brjef. — Annast alls konar verðbrjefaviðskifti.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.