Morgunblaðið - 22.08.1939, Qupperneq 6
6
MORGUNBLA&IÐ
Þriðjudagur 22. ágúst 1939.
Hagavatn hefir nú fengið
sína eðlilegu útrás
Frásðgn sjönarvolta
ASUNNUDAGINN var fóru þeir Björn Ólafs-
son stórkaupm., Tryggvi Magnússon verslun-
arstjóri, Stefán Stefánsson fylgdarmaður og
Helgi Jónasson frá Brennu upp að Hagavatni til þess að
skoða þau verksummerki sem þar hafa orðið eftir nýja
hlaupið.
Þessir sömu menn skoðuðu Hagavatn líka eftir hlaup-
ið 1929 og frá þeim er komin sú eina skýrsla, sem til er
um þær byltingar er þá urðu þar. Eru þeir manna kunn-
ugastir á þessum slóðum.
I
I
Því miður var veður ekki heppi-
legt á sunnudagirm, dimt yfir og
rigning. Yarð því eigi glögglega
sjeð vfir alt það svæði, sem vatnið
náði yfir áður, en sýnilega hefir
vatnið grynkað enn meira heldur
an eftir hlaupið 1929. Pjárgirðing
náði áður upp að vatninu og út í
það svo langt að ætla mátti að
fje færi ekki fyrir endann á henni.
En mr er girðingarendinn á þurru
landi og spölur frá honum út í
vatn.
Frá Birni Ólafssyni hefir blaðið
íengið eftirfarandi frásögn um
það hvernig nú er umliorfs þarna:
16. ágúst 1929 hljóp Plagavatn
síðast. Hafði vatnið þá sprengt
vestasta hluta skriðjökulsins og
ruðst fram yfir fjallsröndina og
myndað Leynifoss. — Síðan hefir
„taglið“ á skriðjöklinum, sem náði
alveg að fossinum, bráðnað á stóru
svæði og horfið með öllu og kom-
ist í línu við skrifjökulsbaltkann
frá Hagafelli.
Við austurenda skriðjökulsbakk-
ans hefir vatnið ieitað útgöngu og
grafið sig undir jökulröndina á
nokkur hundruð metra breiðu
svæði \it í hamragil eitt mikið
sem er í fjallsröndinni. Þar hefir
vatnið fundið iitgöngudyr þegar
það hafði grafið sig gegnum jök-
ulinn. Þetta nýja afrensli er á að
giska 500 metrum norðar en
Leynifoss.
Vatnsflaumurinn hefir síðan
myndað sjer djúpan farveg niður
fjallið og fram eyrarnar, og skol-
að burtu öllu sem fyrir var, klöpp-
um og melum. Þar sent vatnið
kemur undan jöklinum myndast
lón og síðan steypist vatnið í stór-
um fossi niður gljúfrin.
Umbrotin eru ekki eins stórkost-
leg og 1929. Vatnið hefir breyst
mikið og þornað á stóru svæði.
Það er erfitt að reikna hversu
vatnið hefir mikið lækkað, en eftir
skriðjöklinum að dæma, gæti það
verið um 8—12 metrar. Nii má
ganga þurrum fótum um stór
svæði af sandi. og möl, sem voru
undir vatni eftir hláupið 1929.
Vatnið virðist nú hafa fengið
sína eðlilegu útrás og gljúfrin, þar
sem Leynifoss var áður, munu að
líkindum aldrei framar duna af
hamförum jökulvatnsins.
Barða svarað. í Berlingatíðind-
um mótmælir danski sagnfræðing-
urinn Ellekilde skoðunum Barða
Guðmundssonar um landnám á ís-
landi til forna, en kveðst sömu
X
skoðunar og Barði um það, að
danskra áhrifa hafi gætt mjög
mikið í Noregi á víkingaöld-
inni. (PÚ)
SKEMTISTAÐUR
TEMPLARA.
FEAMH. AF FJÓRÐU SÍÐU.
laufga fagurvaxna björk.
Tignir, sterkir, stórir rísi
stófnar hjer um gróna mörk.
Á eftir töluðu þeir Helgi Sveins-
son umdæmiskanslari, Sigfús Sig-
urhjartarson störkanslari, Plosi
Sigurðsson þingkanslari og Guð-
jón Halldórsson, sem flutti kvæði
til sjálfboðaliðanna, sem mest og
best hafa unnið við landnámið í
öllum frístundum sínum nú í tvö
sumur. Á milli ræðanna var sung-
ið og auk þess söng I. 0. G. T.-
kórinn nokkur lög.
Veður var ekki. gott, hvast Qg
hálfkalt og gekk með skúrum. Var
því færra fóllc heldur en vænta
mátti við þessa athöfn. Staðurinn
var allur fánum ákreyttur og gjall-
arhornum var komið fyrir svo að
allir heyrðu ræðurnar.
REYKJAHLÍÐAR-
ÆTTIN.
FRAMH. AF FIMTU SÍÐU.
sárafáar, enda er þess að gæta, að
bækur eins og- þessar eiga að vera
heimildatrit, sent óhætt sje að
treysta — yfirleitt. Um þessa hlið
bókarinnar sje jeg mjer ekki fært
að dæma, því að til þess þyrfti
jeg að bera allar dagsetningar
saman við kirkjubækur, en hitt er
mjer kunnugt, að höfundurinn
lagði alvið við að vanda verlr sitt
eftir föngrnn. Dæmi um óná-
kvæmni hefi jeg þó rekist á, t. d.
þar, sem segir um Þorlák Jónsson
frá Gautlöndum (bróður höfund-
arins), að liann hafi dáið í Khöfn
1898. En Þorlákur druknaði í
Khöfn á aðfangadag jóla, 24. des.
1897.
Frágangur á bókinni er sjerstak-
lega smekklegur, bæði um prent-
un, pappír og band. Hefir höfund-
ur notið þar að frænda síns, Stein-
gríms Guðmundssonar prentsmiðju
stjóra, sem hefir annast um þá
hlið útgáfunnar og verið höfund-
inum að öðru leyti til hvatningar
og stoðar.
Bók þessi verður áreiðanlega
kærkomin ættingjunum og einnig
öðrum, sem hafa ánægju af ætt-
vísi og fróðleik.
Guðni Jónsson.
Dráttarbraut Jóhanns Hansson-
ar á Seyðisfirði var tekin í notk-
un þann 18. þessa mánaðar. Reynd
ist hún vel og má taka á land á
henni alt að 150 smálesta skip.
Bíl stolið og ekið
á honum austur
yfir Þjórsá
Unglingspiltur hjer í bæn-
um stal bíl, aðfaranótt
sunnudags og ók á honum aust-
ur yfir Þjórsá. Þar varð hann
bensínlaus, komst með mjólkur-
bíl að ölfusá aftur, labbaði nið <
ur að Litla-Hrauni og sagði þar
frá athöfnum sínum.
Það var bíllinn R 1092 frá
Litlu-bílstöðinni, sem stolið var.
Bíllinn stóð ólæstur vestur á
Öldugötu, því að maður hafði
fengið hann leigðan daginn eft-
ir og ætlaði að ganga að honum
þarna snemma morguns. En
þegar hann kom á staðinn var
bíllinn horfinn. Var nú farið að
leita um allan bæ, en hann fanst
ekki að heldur. Og þegar síminn
var opnaður, var hringt í allar
áttir og spurst fyrir um bílinn.
Að lokum kom tilkynning frá
sýslumanninum í Árnessýslu að
bíllinn mundi vera austur hjá
Steinslæk í Holtum. Svo var
símað frá Litla-Hrauni, að þang->
að hefði komið piltur, Hjörtþór
Ágústsson, og tilkynt að hann
hefði stolið þessum bíl og skilið
við hann þarna.
Var nú sent austur til þess að
sækja bílinn og piltinn og komið
með báða ti,l bæjarins. Var ekk-
ert annað að bílnum en að hann
var bensínlaus.
Hjörtþór hefir ekki bílstjóra-
próf, en hefir fengið að grípa
í stýri við og við hjá bílstjór-
umv Hann hafði verið undir á-
hrifum víns þegar hann tók bíl-
inn, og er því mesta furða að
hann skyldi komast slysalaust
þessa löngu leið.
Þegar hann var spurður að
því, hvert hann hefði ætlað að
fara, þá 'vjssi hann það ekki;
sagðist hafa ætlað að aka eitt-
hvað, og „slá“ sjer bensín ef
það þryti, því að enga peninga
hafði hann. En svo þraut ben-
sínið fjarri bensínstöð og ferða-
laginu var lokið. Sofnaði Hjört-
þór þá í bílnum; og svaf þar um
stund. Þá bar þar að mjólkurbíl,
og komst hann með honum út
að Ölfusá. Þá var runnið svo af
honum, að hann var farinn að
fá áhyggjur út af öllu saman,
og tók þá þann kost að ganga
niður að Litla-Hrauni og gefa
sig þar fram.'
Hann bíður nú dóms.
3. flokks mótið
hefst í kvöld
Knattspyrnumót 3. flokks
hefst í kvöld. Sú nýbreytni verð-
ur nú að kept verður í tveim-
ur umferðum, 12 leikar í stað-
inn fyrir 6 áður.
Mótið hefst kl. 6°S keppa
þá Valur og Víkingur. Dómari
verður Þorsteinn Einarsson.
Að þeim leik loknum keppa
K. R. og Fram og dómari á þeim
leik verður Árni Jónsson.
Sjómannakveðja. Parnir til
Þýskalands. Vellíðan. Kærar kveðj
ur. Skipshöfnin á Helgafelli.
Blaðamaniiaförin
FRAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU.
Þoka var á dalnum og sást ekki
til jökla og ljelst það veður niður
undir Þingvöll.
Er til Þingvalla kom var klukk
an að ganga fjögúr. Eftir hádeg-
isverð í Valhöll voru gestunum
sýndir Þingvellir. Veður var sæmi
legt um það leyti, en fjallasýn lít-
il og staðurinn naut sín ekki sem
skvldi.
Pálmi Hannesson rektor var
þangað kominn til þess að flytja
ræðu um þingstaðinn fyrir blaða-
mennina. Flutti hann ræðuna í
Lögbergsbrekkunni. Talaði hann
bæði um sögu staðarins og sögu
þjóðarinnar í sambandi við Al-
þing, en lýsti að síðustu Þiugvöll-
um frá sjónarmiði jarðfræðings.
Var ræða hans stuttorð og gagn-
orð. Að því búnu talaði Bögholm
magister. Hann ávarpaði fyrst
ferðamannahópinn á íslensku.
Vjek hann síðan að sögu þjóðar-
innar, þeim anda frelsis, jafnrjett-
is og lýðræðis, sem hjer hefir
ríkt. Bar liann íram þá ósk, að
þjóðinni mætti takast að sameina
það besta í fortíðinni og nútíð-
inni og vera svi frjálslynda menn-
ingarþjóð, sem henni hæfir best, í
samfjelagi Norðurlandaþjóða. Bar
ræða hans vott um kunnleik á
þjóð vorri og mikla samúð í vorn
garð.
Þvínæst var haidið suður Grafn-
ingsveg að Þrastalundi og þar gist
aðfarauótt mánudags. Veður var
dimt alt til kvölds, og þessi dagur
ferðarinnar sá eini, er veður var
svo óhagstætt, að það spilti á-
nægju gestanna.
Er að Þrastalundi kom var þar
kominn Tómas Jónsson borgarrit-
ari til að undirbúa það, að blaða-
mennirinr vrðu gestir bæjarstjórn
ar á mánudag.
Skínandi Geysisgos.
Þegar ferðamennirnir vöknuðu
í Þrastalundi á mánudagsmorgun
var veður svo slæmt, að engar
horfur voru á því, að um ánægju-
legt ferðalag yrði að ræða þann
daginn. Því útsynnings haugarign
ing var.
Pj-rsti þáttur ferðalagsins var
að fara upp að I.jósafossi. Þar var
Steingrímur rafmagnsstjóri. Hann
Sýndi gestunum stöðina. Þá var
stytt upp. Síðan haldið að Þrasta-
lundi til hádegisverðar.
Þar bauð Tómas Jónsson gest-
ina velkomna. Mintist hann m.a. á
það í ræðu sinni, að þó það væri
allfjarri bænum, sem þeir væru í
boði bæjarstjórnarinnar, þá væri
það tyent sem skoðað yrði þann
dag, er kæmi bænum mjög við,
orkuverið við Ljósafoss og hverir,
en jarðhitinn væri það næsta, sem
Reykjavíkurbær ætlaði að virkja,
þó ekki væri það þar austurfrá. ,
Morten Nielsen ritstjóri við
Arbejderbladet þakkaði borgarrit-
ara móttökurnar. Hann talaði m.
a. í ræðu sinni um framfarahug
þjóðarinnar og þá miklu trú ís-
lendinga á framtíð landsins, er
lýsti sjer í framkvæmdum vorum
hvarvetna um landið.
Haldið var frá Þrastalundi kl.
11 % áleiðis til Geysis, og komið
þangað eftii^ tæpl 2 tíma akstur.
Sólskinslítið var á þeirri leið og
sólskinslaust við Gullfoss. En för-
inni var hraðað, því menn vildu
hafa daginn fyrir sjer, ef biðin
þyrfti að verða löng við Geysi.
Að Geysií var komið nokkru fyr-
ir kl. 3. Þá var komið glaðasólskin
og kyrt veður. Hafði hverinn ekki
gosið síðan á miðvikudag, og þótti
varðmanni líklegt að hann gysi
brátt, eftir að vatnið var lækkað;
í skálinni og sápa sett í hann.
Að liðinni þó klukkustund byrj-
aði hann að láta á sjer bóla. Og
brátt reis upp hið tígulegasta gos,.
með fögrum regnbogum í úðan-
um. T'rðu hinir erlendu gestir æði
forviða og sagði liver um sig, að
gosið væri að öllu leyti fegurra
og tilkomumeira en þá nokkru
sinni hafði grunað að ósjeðu.
Eftir kaffidrykkju í skálanum
við Geysi var haldið til Þrasta-
lundar aftur og setin miðdegis-
veisla bæjarstjórnar, er borgarrit-
ari stjórnaði. Þar var dr. Björn
Björnsson og flutti stutta ræðu um
Reykjavík. En síðan útbýtti hann
meðal hinna erlendu blaðamanna
vjelritaðri greinargerð um fram-
þróun bæjarins. En Steingrímur
Jónsson,.er einnig var í Geysisför-
inni, talaði þar um rafmagnsmál-
in í stórum dráttum.
Peter Tabor þakkaði enn gest-
risni bæjarstjórnar og ágæta ferð-
og skemtilega, og árjettaði Gunn-
ar Nielsen það' með ræðu' þar sem
hann komst svo a| orði, að Is-
lendingarnir, sem verið hefðu í
þessari ferð, mættu vita það, að
sú yrði nú breyting á, að í stað-
inn fyrir að Islendingar hefðu
hingað til ekki haft nema einn
sendiherra í Danmörku, þá ættu
þeir þar tíu sendiherra fra'mveg-
Yaltýr Stefánsson talaði og nokk
ur orð þarna, þar sem hann lýsti
ánægju hinna íslensku blaðamanna
yfir ferðalaginu.
Síðan var haldið til Reykjavík-
ur.
I clag verða liinir dönsku blaða-
menn gestir Verslunarráðsins. við
árdegisverð að Hótel Borg, og í
kvöld í boði hjá sendiherra Dana,
Fr. d. Fontenav
Innbrot
Stolið nokkrum
buxum
ðfaranótt sunnudags var
brotist inn í Klæðaversl-
un G. Bjarnason & Fjeldsted í
Aðalstræti og stolið þar nokkr-
um fullsaumuðum karlmanns-
buxum.
Þjófurinn hafði farið inn um
glugga að húsabaki og mun
glugginn hafa verið illa kræktur
aftur. Lögreglan er nú að leita
að þeim ,sem innbrotið framdi.
Sambandsfundur kvenfjelaga.
Dagana 13. og 14. þessa mánaðar
var sambandsfundur austfirskra
kvenfjelaga haldinn á Norðfirði.
Pundinn sátu auk sarnbandsst.iórn
ar fulltrúar frá 7 kvenfjelögum.
Á fundinum voru rædd heimilis-
iðnaðai'mál húsmæðra, uppeldis og
skólamál og kirkjumál. Á sunnu-
dag var fundarhlje og bauð þá
Kvenfjelagið Nanna fundargest-
um inn í Norðfjarðarsveit. Pund-
urinn fór hið besta frarn og var
lokið á mánudagskvöld með kaffi-
drykkju í barnaskólahúsinu. (PÚ)