Morgunblaðið - 25.10.1939, Síða 7

Morgunblaðið - 25.10.1939, Síða 7
Miðvikudagur 25. okt. 1939. MORGUNBLAÐIÐ 7 Frú Margrjet Lðrus- dóttir fimtug ¥ dag er fimtug frú Margrjet * Lárusdóttir, fekkja hins góð- kunna læknis Guðmundar Guð- finnssonar. Frú Margrjet er eitt hinna mörgu og merku foarná Lárusar læknis Pálssonar, •en sú ætt er mörgum kunn. Vafa- laust berast þessari rnætu konu nú í dag á þessum tímamótúm hlýjar kveðjur víða að og ekki þá síst ætti það að vera frá Bangæingum, •en meðal þeirra dvaldi hún mörg ár. Þeir eiga þar að minnast konu, sem mörgum þeirra hefir á ýmsa lund hjálparhönd rjett og reynst Innn mesti bjargvættur. Þar aem htisfreyjan á Stórólfs- hvoli var, þar var þeirra griðastaður. Þau hjón voru vel samtaka um alla hluti og í bú- skapnum gætti ljóslega forsjár og ráðdeildar hennar um alt er innan 'íiúss var. Þar eð störf eiginmanns- ins voru að verulegu leyti fólgin í ferðalögum og þeim oft erfiðum ■og hann því oftlega fjarri heimil- inú varð hennar hlutskifti einatt áð hafa umsjón með hverju einu. Fórst henni það sem við mátti bú- ast með hinni mestu prýði. Við hvern sem að garði bar var hún jafn alúðleg og hjálpsöm. Á lieim- ilinu ríkti hinn besti bragur og gætti þar í öllu frábærrar hátt- sémi þeirra hjónanna. Frú Mar- grjeti er auðvelt að koma öðrum í gott skap og hefir sá eiginleiki verið dýrmætur mörgum þeim, er -til hennar hefir komið á erfiðri stuúd. Hin hlýja viðfeldni og hin umhyggjusamlega alúð hennar er ■aðall hennar. Þó eigi sjeu raktar hjer neinar sjerstakar endurminn- ingar frá þeim tímum er þessi mæta kona var meðal Rangæinga þá eru þær bæði margar og góðar. Þær munu geymast í þakklátum huga þorra Rangæinga, vermdar þeirri- ástúð, sem henni var svo lagið að sýna þeim. Hamingjuóskir og þakkir munu "berast frú Margrjeti í dag, þar sem hún nú dvelur með dætrum «ínum: á Þórsgötu 17 í Reykjavík, frá vinum og þeim öllum, er henn- ar hjálpar og vináttu hafa mætt. Megi heill og hamingja fylgja frú Margrjeti á ókomnum árum og því ríkulega launast fyrir þá vin- semd og margháttuðu hjálp, er hún hefir veitt samferðafólkinu og megi henni ennn um langa hríð auðnast að veita því yl og ánægju. Gamall Rangæingur. Leikhúsið. Athygli skal vakin á því, að Leikfjelag Reykjavíkur sýnir Brimhljóð í kvöld en ekki á morgun. Qagbófc Veðurútlit í Reykjavík í dag: Hægviðri fram eftir deginum, en vaxandi S-átt og rigning með kvöldinu. Næturlæknir er í nótt Karl S. Jónasson, Sóleyjargötu 13. Sími 3925. Næturvörður er í Ingólfs Apó- teki og Laugavegs Apóteki. Bifreiðastöðin „Hekla“, sími 1515 annast næturakstur næstu nótt. Fimtugur er í dag Jón Heið- berg kaupmaður, Laufásvegi 2. Hjónaefni. S.l. föstudag opin- beruðu trúlofun sína frk. Marin Jacobsen frá Færeyjum, nú til heimilis í Ingólfsstræti 19, og Sig- urður Breiðfjöðr Halldórsson járn- smíðanemi frá Patreksfirðl. Hjónaband. S.l. laugardag voru gefin saman í hjónaband af síra Garðari Þorsteinssyni, frk. Hulda Ágústsdóttir og Helgi Yilhjálms- son klæðskeri. Heimili þeirra er á Reykjavíkurvegi 15 B, Hafnarfirði Húsmæðrafjel. Reykjavíkur held ur fund í kvöld í Thorvaldsens- stræti 6, og hefst hann kl. 8 Skýrt verður frá sumarstarfsemi fjelagsins og ýms 'mál rædd. í blaðinu í gær misprentaðist föðurnafn Árna hreppstjóra í Bakkagerði í Borgarfirði eystra. Hann var Steinsson. Misritun var í blaðinu í gær, þar sem taldir voru þátttakendur í Innflytjendasambandinu, að H. Benediktsson & Go. Var talið kluta- fjelag. En það er ekkijrjett. Kveðjusamsæti var þeim haldið fyrra laugardagskvöld Guðmundi Ilallgrímssyni lækni á Siglufirði og frú hans, en þau eru nú að flytja frá Siglufirði, eftir 28 ára búsetu þar. Samsætið var haldið að Hótel Hvamieyri. Var þar um 100 mamis.’ Yoru þar fluttar marg ar ræður og þeim hjónum þökkuð góð viðkynning ,enda hafa þau notið almennra vinsælda. Háskólafyrirlestur á sænsku. Frk. Arnia Osterman flytur há- skólafyrirlestur á sænsku í kvöld — Efni: Málsmitun og mál- hreinsun. Þeim, sem hafa huga á að nema sænsku, er sjerstaklega bent á að hlusta á fyrirlestra þessa, sem m. a. fjalla um aðferð- ir Svía til að halda tungu sinni hreinni af erlendum málskrípum. Guðmundi Friðjónssyni var í gær á sjötugsafmæli hans fært skrautritað ávarp með undirskrift 50—60 manna, þar sem honum voru færðar þakkir fyrir hin miklu og merkilegú ritstörf hans og ljóða gerð. . Með ávarpinu fylgdi gull- armbandsúr með áritun. Svanur heimsækir æskustöðvar við Tjörnina. Pjetur Ingimundar- son slökkviliðsstjóri veitti því at- hygli í gær, að svanur var kom- inn á Tjörnina og var hann með fjóra unga með sjer. Pjetur taldi engan vafa á því, að þetta væri einn þeirra svana, er aldir voru úpp hjer á Tjörninni um árið og væri hánn\ nú kominn til að heim- sækja æskustöðvarnar. Er Pjetur manna kunnugastur þessum mál- um og liefir veitt fuglalífi á Tjörn inni nána athygli mörg undanfar- in ár. Útvarpið í dag: 19.45 Frjettir. 21.00 Tónleikar Tónlistarskólans: a) Beethoven: 8 Vínardansar. b) Brahms: Manúett úr seren- ade, Op. 11. c) Schubert: Adagio og Rondo fyrir pianó og strokhljóðfæri einl. á píanó: dr. von Urbantsch- itsch). Hlutleysislögin IU.S.A. afgreidd f þessari viku Frá frjettaritara vorum. Khöfn í gær. að er nú búist við, að at- kvæðagreiðsla fari fram í öldungadeild Bandaríkjaþings um afnám útflutningsbannsins í hlut- leysislögunum í lok þessarar viku. Andstæðingar frumvarpsins hafa nú hætt við þá fyrirætlan sína að halda áfram umræðum þar til frumvarpið er úr sögunni. Ræðutíminn hefir verið takmark aður við 45 mínútur. Búist er við, að frumvarpið komi til umræðu í fulltrúadeild- inni á mánudaginn. Talið er, að taka amerísks skips í Atlantshafi, „City of Flint“, kunni að hafa áhrif á endanlega ákvörðun Banda- ríkjaþings. Þýskt beitiskip tók þetta sMp síðastliðinn laugar- dag og fór með það til Mur- mansk í Rússlandi. Cordell Hull, ut-anríkismálaráð- herra Bandaríkjanna, skýrði frá því í dag, að nokkur hluti af farmi skipsins yrði sennilega að telja til aðálflokks ófriðarbannvara og um helmingur farmsins til bannvara hinna minni. Hann var spurður að því, hvort Þjóðverjar hefðu haft heimild til að flytja skipið til hlutlausrar hafnar, og kvað hann að verið væri að athuga það. Roosevelt forseti sagði í kvöld, að hann gerði sjer vonir um að skipið yrði látið laust. Fulltrúi Bandaríkjanna í Moskva fór í dag á fund Potem- kins varautanríkismálaráðherra. JÞJÓFNAÐARMÁLIÐ. FRAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU. selt kolin fullu verði utanbæjar- mönnum, er þeir höfðu lofað að annast kolakaup fyrir og aka heim til þeirra. Hefir Þórður játað, að hafa þannig selt samtals 17^4 smálest og einnig hefir hann tekið 400 kg. af síldarmjöli, af birgðum, sem Mjólkurfjelag Reykjavíkur átti geymdar í geymsluhúsi hjá Kol og Salt. Talið er, að rannsókn málsins sje nú að mestu lokið og má vænta dóms í þessu máli einhvern næstu daga. Rannsóknarlögreglan vill taka það fraíú, Vegna orðróms, Sem géngið hefir í bænum, að rann- sókhin hefir ekki leitt í ljós að nejnir nema þeir 6 menn, sem þeg- ar háfa verið taldir, sjeu viðriðn- ir þessi þjófnaðarmál. SALTKJÖT nýkomið í heilum, hálfum og kvart- tunnum. Jðh. Jóhannsson Grundarstíg 2. Sími 4131. „Við eigum samleið4* í Hljóðfærahúsið til þess að kaupa „Dagnf eftir Sigfús Halldórsson. Lögtak. Húseigendum í Reykjavík tilkynnist, að nú er verið að gera lögtök fyrir ógreiddum fast- eignagjöldum (lóðagjaldi, húsagjaldi og vatns- skatti), svo og lóðarleigu, sem fjellu í gjald- daga 2. janúar 1939. SKRIFSTOFA BORGARSTJÓRA. Ljósnpdastofa Lofts verður lokað frá kl. 12-4 i dag, vegna farðarfarar. Skrifslofuc vorar og vöruafgreiðsla verða lokaðar i dag frá hádegi. Afgreiðsla smjörlikisgerðanna. Lokað í dag vegna jarðarfarar eftir kl. 1. H f. SmjöflíKisgsrðin. H.f. Máninn. Jarðarför móður minnar SIGRÍÐAR MAGNÚSDÓTTUR fer fram fimtudaginn 26. okt. og hefst með húskveðju á heim- ili hennar, Ingólfsstræti 20, M. 1 e. h. Jarðað verður í Foss- vogs-kirkjúgarði. Fyrir hönd okkar systkinanna, Ársæll Árnason. Öllum þeim, sem í veikindum konu minnar og við andlát hennar og jarðarför sýndu okkur samúð og vináttu, votta jeg mínar hjartanlegustu þakkir. Guð blessi ykkur öll. Guðjón Guðmundsson, Barónsstíg 24.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.