Alþýðublaðið - 22.06.1958, Síða 3
jSltnnudagur 22. júní 1958
Alþgöublaöiö
Útgefandi:
Ritstjóri:
Fréttastjóri:
Auglýsingastjóri:
Ritstjórnarsímar:
Auglýsingasími:
Afgreiðslusími:
Aðsetur:
Alþýðuflokkurinn.
Helgi SæmundEson.
Sigvaldi Hjálmarsson.
Emilía Samúelsdóttir.
14901 og 14902.
1 4 9 0 6
1 4 9 0 0
Alþýðuhúsið
Prentsmiðja Alþýðublaðsins. Hverfisgötu 8—10.
( Ufan úr Heirrai )
sæns
Blettur á fegurðina
HATÍÐAHÖLDIN seytjánda júní tókust ágætlega að
þessu sinni, og bar margt til. Veður var óvenjulega fagurt,
■og íslendingar sameinast af einlægri gleði í mannfagnaði
pjoð'hátíðardagsins. Einnig skal viðurkennt, að sæmilega
var yfirleitt vandað til skemmtiatriða, þó að sumt hljóti að
standa til ærinna bóta. En hvað um það: íslendingar eru
stoltir af þjóðhátíðardagi sínum og eru vaxnir vanda þess
sóma.
Eigi að síður féll blettur á fegurðina, og sú saga má
ekki enduríaka sig í framtíðinni. Hér í Reykjavík bar
allt of mikið á hvers konar kaupmennsku og prjáli á
þjóðhátíðardaginn. Ýmsir samborgarar nota þetta tæki-
færi til að græða peninga með auðveldum hætti og njóta
i Í»ví efni fuíltingis bæjaryfirvaldanna. Þetta er allt of
langt gengið og skemmir þá fögru mynd, sem þjóðhátíð-
ardagurinn er. Hér er um áð ræða sams konar fyrifbæri
og að hafa glingur og sælgæti á boðstólúm í musteri við
hátíðlega athöfn. Sölumennsku sem þessari fyl-gir ónæði
samkeppninnar um framboð og eftirspurn. Og hún á
engan veginn við. Þess vegna ber bæjaryfifvöldúnum að
hætta fulltinginu við fégráðuga gæðinga, sem vilja auðg-
ast á þjóðhátíðardeginum og mannamóti hans í höfuð-
staðnum.
Hitt er fagnaðarefni, hvað skreyting Reykjavíkur heppn-
aðist vel á þjóðhátíðardaginn að þessu sinni. Framfarirnar
í því efni kennast ár frá ári. Verzlanirnar, sem lokaðar
voru, reyndust flestar í fallegúm og skemmtilegum spari-
fötum. Þó gætir ekki samræmis sem skyldi, enda varla von,
því að íslenzka höfuðborgin er á bernskuskeiði, hvað þetta
snertir. Og vissulegg. færi vel á því, að bæjaryfirvöldin
hefðu nokkra forustu um þetta efni. Væri ekki vel til
fundið, að þau verðlaunuðu árlega beztu, hugmyndaríkustu
og smekklegustu gluggaskreytingu á þjóðhátíðárdaginn?
Tilgangur þess myndi tvíþættur: Annars vegar að viður-
kenna það,, sem vel er gert. Hins vegar að efla heilbrigða
Samkeppni um listræna skreytingu höfuðborgarinnar á
stærsta degi ársins.
Q* >£• . 'r •
biogœoi o og trum
BISKUP ÍSLÁNDS komst svo að orði í setningarræðu
prestastefnunnar, að íslendingum ríði mest á afturhvarfi til
siðgæðis og trúar. Undir þau ummæli munu allir sann-
gjarnir menn taka. Oft hefur verið þörf, en nú er nauðsyn
að efla þessar dyggðir á íslandi.
En hér er einmitt um að ræða aðalverkefni íslenzku
kirkjunnar. Hún er ekki í dag það þjóðfélagsafl, sem vera
þyrfti. Þetta er sök almennings, sem, ekki rækir kirkju og
kristindóm eins og skyldi. En hefur ekki kirkjan ástæðu
til að gagnrýna. sjálfa sig? Ber ekki of mikið á deilurn um
ýmis konar kenningar í samtökum hennar, en of lítið á sam-
einuðu átaki til eflingar siðgæðinu og trúnni?
Prestarnir eru enn í hópi áhrifaríkustu foringja íslend-
inga, ef þeir þekkja sinn vitjunartíma og kunna að velja sér
verkefni. Kirkjan er enn í dag mikil stofnun á íslandi. Og
þess vegna ber kennimannastéttinni að taka höndium sam-
an um að vinna það stóra og góða verk, sem biskupinn
hvatti til í setningarræðu prestastefnunnar. Þeirri heilla-
þróun myndu allir góðir íslendingar fagna.
SÆNSKU BORG-
ARAFLOKKARNIR
geta enn ekki komið sér sam-
an um sameiginlega stefnu
í eftirlaunamálinu.
Endurtalningu atkvæða er
nú lokið, Kom þá í ljós, að
þeir töpuðu einu þingsætinu
til hægri flokksins, en fyrst
var talið að jafnaðarmenn
hefðu unnið tvö þingsæti í
Stokkhólmi, en hægri flokkur-
inn fékk annað þeirra.
Sætaskiptingin er þá þann-
ig í efri deild:
Jafnaða'rmenn 111 þingsæti
Hægri menn 45,
Þjóðflokkurinn 38,
Miðflokkurinn (Bænda-
sambandið) 32 —- og
Kommúnistar 5.
Eftir þessu hafa stuðnings-
menn eftirlaunafrumvarps
stjórnarinnar meirihluta, 116
þingsæti (111-1-5), en borgara-
flokkarnir 115 þingsæti, En
jþar sem þingforseíi hefur,ekki
atkvæðarétt í þinginu og al-
mennt er búizt við að jafn-
ðarmaður verði endurkjörinn
forseti deildarinnar, þá kann
svo að fara, að úrslit atkvæða-
greiðslu verði 115-----115 og
ræður þá hlutkesti úrslitum.
Hægri flokkurinn og mið-
fíokkurinn eru þess reiðubún-
ir að láta hlutkesti ráða úr-
slitum þessa mikilvæga máls,
sem meirihluti þjóðarinnar
hefur samþykkt. En þjóðflokk-
urinn hefur enn ekki tekið af-
stöðu. Flokkurinn hélt stjórn-
arfund fyrir skömmu og ræddi
úrslit kosninganna.
Formaður flokksins, Bertil
Tage Erlandcr
Ohlin. lét svo um mælt, aö
flokkurinn mundi ekki hallast
að samvinnu við jafnaðarmenn
um eftirlaunamálið. Þstta
bendir til þess, að þjóðflokk-
urinn ætli sér að standa með
miðflokknum’og hægrj flokkn-
um,' þrátt fyrir það, að ýmsir
meðlimir hans hafi varað við
slíkrj samvinnu.
Það er skiljanlegt, að. þjóð-
flokkurinn, sem tapaði miklu
atkvæðamagni í kosningunum,
reyni að taka uþ? sjálfstæða
stefnu og koma flokknum á
réttan kföl, en þrátt fyrir þ'áf?
segir ..Dagens Nyheter" ac?
stefna flokksins sé óskynsam-
leg.
Blaðið bsndir á, að ekkj ::«•
hægt til lengdar. að halda fást'
við stefnu, sem meira en’.
hslmingur þjóðarinnar hefur
lýst sig. algjörlega andviga.
'faki flokkur, sern beðið hefitr’
mikinn kosningaósigur. slíka
neikvæða stefnu, er ekkj vic?
því að búast. að aðrir flok’J.rnr
jséu fúsir til samvinnu. TÍcí
slíkan flokk. Breytj þjóð-
flokkurinn ekki stefnu sirani í
'eftirlaunamálinuj mun iha.nn
hindra framgang efiirlauna-
frumvarpsins og styðia bprg-
araflokkana.
Þannig skrifar ..Dagens Li’y-
heter“ o.g sialdan he'fur filokks
foringi verið svo gagnrýnólux 1
'flokksblaði sínu. Hægrj fcilöcS-
in hrósa Bertil Ohlin áf|i.T á
móti fyrir stefnufestu, en
hæðast um leið að því. að flokk
ur. sem beðið hefur ósfguir,
skuii ætla sér að leysastór-
mál eftir eigin höfði. Stjórn-
arar.dstaðan sænska er jafnt
kiofin eftir kosningarnar og
hún var fvrir bær. Hún er e.ig-
inlega ekki sammála um- neitt
nema það, að fella með öHum
ráðu.m. eftirlaunafrumvairpið,
sem þjóðin hefur sarreþykkt
með miklum meirihluta.
BÍFREIÐIN GENUGUB ÞÍBARfk A
Fagrir litir
Þekur vel
Auðveld í notkun
Falleg áferð
Kaupum hreinar léreftsfuskur
PreRfsmiðja Áiþýðubiaðsins.
f** jT* ✓'í