Morgunblaðið - 16.05.1940, Blaðsíða 7
Fimtudttgur 16. maí 1940.
MORGUNBLAÐIÐ
7
Evðilegging stríðsins
Bretar velja
skotfæri f staO
sykurs
Sykur- og smjör-
skamturínn
mínkaður
Myndin er frá Víborg í Finnlandi. Að ofan er hús, sem skotið hef-
ir verið í rúst. Neðri myndin sýnir kirkju, sem hefir verið eyðilög'ó
í loftárás.
Orustnrnar í Belgín
FRAMH. AF ANNARI SÍÐU.
manna á bak aftur, er talið að hann muni eins og í síðustu styrj-
öld beygja suður á bóginn í Sambredalnum, sem er nokkru. austar,
og sækja þaðan inn í Frakkland.
Sje þessi tilgáta rjett verður nyrstu hersvéitunum, sem sækja
fram á víglínunni frá Namur til Antwerpen, falið að halda áfram að
ueyna að brjóta viðnám Belga í norður- og vesturhluta landsins á
bak aftur.
:
MAAS-ORUSTAN
Orustuua, sem háð er á víglínunni frá Namur til Antwerpen, er
jþegar farið að kalla orustuna um Briissel. Lína þessi liggur í norð-
vestur frá Namur um Gembleux, til Wavre, þaðan méðfram Dyle- !
fljótinu til Louvain og þaðan norður til Antwerpen. Víglína þessi er
varin af belgiskum, frönskum og breskum hersveitum.
Bresku hersveitirnar verja nyrsta vænginn hjá Antwerpen. I til-
kynningu bresku herstjórnarinnar í gærkvöldi segir, að breskir lxer- |
menn í Belgíu hafi átt harðar viðureignir við Þjóðverja í gær, og að ]
Ahlaupum þýsku hersveitanna hafi verið hrundið.
Frakkar virðast aftur á móti verja svæðið umhverfis Gembleux,
-en sú borg er um 25 km. frá Namur. í hemaðartilkynningum, bæði
Þjóðverja og Frakka, í gær, er vikið að ógurlegri skriðdrekaorustu
tjá Gembleux og segjast báðir hafa borið hærra hlut.
Þjóðverjar tilkyntu í gær, að þeir gætu ekki lengur litlð á Brussel
sem óvíggirta borg. Þeir segja, að könnunarflugvjelar þeirra hafi sjeð
herdeildir á járnbrautarstöðvum í borginni og sýni það, að hún sje
notuð í þarfir hersins. Hjeðan af, segir í tilkynningu Þjóðverja, verða
gerðar loftárásir á hernaðarlega mikilvæga staði í borginni, eftir því
sem þurfa þykir. ,
Síðastliðinn föstudag hafði belgiska stjórnin beðið Bandaríkja-
stjórn að tilkynna þýsku stjórninni að Briissel væri óvíggirt borg, og
'höfðu Þjóðverjar lofað að líta á hana sem slíka.
KOMNIR TIL ANTWERPEN
Sjeu hernaðaraðgerðir Þjóðverja í Belgíu bornar saman við hern-
aðaraðgerðirnar í síðustu styrjöld, kemurxþ ljós sá munur, að víglína
Þjóðverja er norðar að þessu sinni. í síðustu styrjöld sóttu þeir yfir
Liege og Lóuvain til Briissel og fóru hvergi norður fyrir þessa línu.
Hei^Belga, sem safnast hafði saman í Brússel, gat hörfað burtu þaðan
áður en Þjóðverjar komu norður til Antwerpen. Þar varðist herinn
frá því í ágúst þar til í október 1914.
En nú sækja hesveitir þeirra samtímis að Brússel og Antwerpen
og á alt svæðið þar á milli. Hersveitir þeirra virðast hafa verið komn-
ar til Antwerpen í gær, því að miust er á þessa, borg bæði í hernaðar-
tilkynningu Breta og í tilkynningu belgisku herstjórnarinnar.
Eftir að Þjóðverjar liafa lókið herleiðangrinum í’ Hollandi, er
hætt við að þeir hefji sókn að Antwerpen einnig að norðan. .
Matvælaráðherra Bretk, Wool-
ton lávarður, tilkynti í gær,
að smjörskamturinn og sykur-
skamturinn í Englandi myndi
verða minkaður. Smjörskamturinn
minkar úr 8 unzum í 4 unzur og
sykurskamturinn úr 12 unzam í 8
unzur.
Sykurskamtinn kefir orðið að
minka vegna þess, að Bretar geta
ekki lengur gert smjörkaup í Hol-
landi og Danmörku.
Woolton lávarður boðaði einnig,
að svínakjötsskamturinn rnyndi
verða minkaður innan skamms.
,Um sykurskömtunina sagði
hann, að Englendingar myndu
ekki verða í vafa um hvort þeir
ættu heldur að velja sykur eða
skotfæri. En að öðru leyti kvaðst
hann ánægður yfir hve miklar
matvælabirgðir væru til í Iandinu
og bætti við, „að þótt við verðum
fyrir loftárásum, þá skulum við
þó fá mat“.
Ræða Hollands-
drotningar
\ 7 ilhelmina Hollandsdrottning
flutti ávarp á ensku í
breska útvarpið í gærkveldi. Hún
sagði, að Hollendingar hefðu
jafnan vonað að hægt yrði að
koma í veg fyrir, að stríðið
breiddist út og hefðu hvað eftir
annað boðist til að ljá krafta
sína til að miðla málum milli
óf riðaraðilanna, með því að
koma á sambandi á milli þeirra.
En þessar tilraunir virtust nú
hafa verið unnar fyrir gýg.
Drotningin sagði, að engin von
væri um frið, fyr en starfsemi
þeirra manna, sem bæru ábyrgð-
ina á öllum hörmungunum, hefði
verið stöðvuð.
Hún sagði að þjóð sín, sem
neydd hefði verið út í styrjöld,
þrátt fyrir að hún hefði jafnan
reynt að gæta hlutleysis, hefði
verið sigruð á vopnaþingi af því,
að við ofurefli var að etja. En
siðferðislega hefði hún ekki ver-
ið sigruð og verður ekki sgiruð,
vegna þess að s/imviska hennar
er hredn.
Dagbók
I. O. O. F. 5 = 1225168>/2 = 9. III
Næturlæknir er í nótt, Alfreð
Gíslason, Brávallagötu 22. Sími
3894.
NæturvörSur er í Reykjavíkur
Apóteki og Lyfjabúðinni Iðunni.
80 ára er í dag Guðrún Magn-
úsdóttir, kona Oddfreðs Oddsson-
ar; nú til heimilis í Bröttugötu
3 B. —
Dánardægur. Þann 13. þ. mán.
andaðist á Þingeyri við Dýrafjörð
merkiskonan Helga Samsonardótt-
ir, ekkja Jóhannesar Ólafssonar,
fyr alþingismanns.
Hjónaefni. Á hvítasunnudag op-
inberuðu trúlofxui sína ungfrú
Rósá Gestsdóttir stúdenþ Ásvalla-
götu 63, og Jónas Halldórsson
sundkappi, Ásvallagötu 17.
Hjónaefni. Nýlega hafa opin-
berúðu trúlofun sína ungfrú Guð-
finna Ólafsdóttir, Stóra-Knarar-
nesi, Vatnslevsuströnd, og Guð-
mundur I. Ágústsson, Laugaveg
42. —
Spegillinn kemur út á morgun.
Fulltrúafundur Þjóðræknisfje-
lagsins verður haldinn að Hótel
Borg kl. 4 í dag, þar sem m. a.
verður rætt um móttöku þeirra
Vestur-íslendinga, sem hingað hef-
ir verið boðið í sumar. Sumir
þeirra, eða þeir allir, eru væntan-
legir hingað í næstu viku. Það er
Þjóðræknisfjelagið sem: býður
hingað Gunnari Björnssyni fyrv.
ritstjóra og frú hans, en þeir Ás-
mundur P. Jóhannsson og Árni
Eggertsson verða hjer gestir Eim-
skipafjelagsins. En ef Hjörtur
Þórðarson kemur hingað, þá verð-
ur hann gestur Háskólans.
M.s. Hermóður annast um viku-
tíma áætlunarferðir m.s. Fagra-
ness.
Samtíðin, maí-heftið, er komin
út. Af hinu fjölbreytta efni rits-
ins skal þetta nefnt; Úr ríki kvik-
myndanna, ritgerð bvgð á viðtali
við Bjarna, JónSson frá Galtafelli.
Þeir vitru sögðu (umsagnir frægra
manna). Skipulag bæja, eftir Þór
Sandholt arkitekt. Merkir samtíð-
armenn (æviágrip með myndum).
Drengurinn litli, sem dó, niðurlag
af sögu eftir Hans klaufa (þ. e.
Harald Á. Sigurðsson leikara). Um
léiguburð af fje og okur, eftir
Pjetur Jakobsson (niðurl). Grein
um sænska auðmaúninn Alfreð
Nóbel, eftir Harland Manchester.
Hin ,,heilögu“ sverð Japúná, eftir
P. Montloin. Auk þess eru: skrítl-
ur, bókafregnir og fjöldi smærri
greina.
Útvarpið í dag:
12.00 Pládegisútvarp.
19.30 Hljómplötur; Ljett ,lög.
19.45 Lesin dagskrá næsiu viku,
20.00 Frjettir.
20.25 Erinöi: UUarverkun ,og ull-
arvinsla (Þorvaldur Árnason
ullaramtsformaður).
20.50 Einleikur á fiðlu (Þórariun
Guðmundsson) : Vors 'nat.an, eft
ir Beethoven
21.05 Frá útlöndum.
21.25 Útvarpshljómsveitin : Lög úr
óperunni „Dóttir herdeildar-
innar“, eftir Donizetti.
21.45 Frjettir.
Póstferðir á morgun. Frá Rvík:
Mosfellssveitar, Kjalarness, Reykja
ness, Ölfuss og Flóapóstar, Hafn-
arf j örður, Snæf ellsnesspóstur,
Breiðafjarðarpóstur, Rangárvalla-
sýslupóstur, Vestur- og Austur-
Skaftafellssýslupóstar, Akranes,
Borgarnes. Til Rvíkur; Mosfells-
sveitar, Kjalarness, Reykjaness,
Ölfuss og Flóapóstar, Hafnarfjörð-
ur, Laxfoss frá Vestmannaeyjum,
Alcranes, Borgarnes, Dalasýslu-
póstur, Ilúnavatnssýslupóstúr,
Strandasýslupóstur, Austur-Barða-
strandarsýslupóstur, Skagafjarðar-
sýslupóstur.
Japanar
og nýíendtir
Hoílendínga
_____ • r,,1
Q ,ir Robert Craigie,. sendih.
Breta í Tókíó, hafi farið á
fund japanska utanríkismálaráð
herrans og skýrt honum frá, að
bresku stjórninni væri það á-
hugamál að status quo (óbreytt
ástand) hjeldist í Austur-Ind-
landseyjum, og hún liti svo á, að
her Hollendinga í nýlendum
þeirra þar, væri fær um að
vemda þær. Hann sagði að Bret-
ar ætluðu engin afskifti að hafa
af þessum nýlendum.
Japanska stjórnin hafði fyrir
sitt leyti, lýst yfir því nýlega, að
henni væri það áhugamál, að ó-
breytt ástand hjeldist í Austur-
Indlandseyjum.
Heimilisiðnaðarsýningunni
sem átti að halda í sumar, verður frestað um óákveðinn tíma.
Stjórn sambands íslenskra heimilisiðnaðarfjelaga.
Elsku litla dóttir mín og systir okkar,
GUÐBJÖRG JÓNSDÓTTIR,
andaðist að St. Jósefsspítala í Hafnarfirði 14. maí
Fyrir ir.ína hönd og annara aðstandenda.
Guðrún Árnadóttir.
Jarðarför konunnar minnar,
SOFFÍU MAGNÚSDÓTTUR,
frá Holti, fer fram föstudaginn 17. maí kl. 10y2 f. hád. frá
heimili hinnar látnu, Brunnstíg 8, Hafnarfirði.
Jarðað verður að Útskálakirkju.
Ingimundur Jónsson.
Við þökkum vinsemd við fráfall og jarðarför föður okkar,
GUÐMUNDAR JÓELSSONAR.
Þórunn Guðmundsdóttir, Óskar og Sigurður Guðmundssynir.