Morgunblaðið - 05.07.1940, Side 3
Föstudagur 5. júlí 1940.
3
MORGUNBLAÐIÐ
Víkingur besta knatt
spyrnufjelag Reykja
víkur 1940
Sigraði Fram
með 2 :1
VÍKINGUR sigraði Fram í gær með 2 mörkum
gegn 1 og vann þar með Reykjavíkurhornið og
heiðursnafnbótina „besta knattspyrnufjelag
Reykjavíkur 1940“, og hefir rjett til að kalla sig Reykja-
víkurmeistara í knattspyrnu.
Úrslit mótsins urðu þessi: Víkingur !) stig. Valur 7 stig. K. K.
C Stig og Fram 2 stig. Kept var í tveimur umferðum' og vann Víking-
ur alla leiki í fyrri umferð, en r seinni umferð tapaði hann einum.
gerði jafntefli í einum og vann þann þriðja.
Víkingar hafa sett 11 mörk á
■mótinu, en fengið 5 sjálfir. Þara(
Jrefir Þorst. Ólafsson miðframh.
Víkings, skorað 8 mörk. Leik-
irnir hafa farið þannig: Víkingur
vann K. R. með 3 gegn 0 í fyrri
umferð, í seinni umferð 0:0. Vík-
ingur vann Fram með 1:0 í fyrri
umferð og 2:1 í seinni. f fyrri um
ferð vann Víkingur Val með 4:1,
en tapaði í seinni umferð með
3:1.
Reykjavíkurmeistarar Víkings
eru: Markv'öi'ður: Ewald Bernd-
,sen, bakverðir: Hreiðar og Skúli
Ágústssynir, auk þess ljek Gunn-
ar Hannesson sem bakvörður í
fyrri umferð, eða þar til hann
meiddist á fæti, og Högni Helga-
son ljek einn leik, sem- bakvörð-
ur. Framverðir hafa verið:
Brandur Brynjólfsson, Haukur
Óskarsson og Ólafur Jónsson.
Framherjar: Ingólfur Isebarn,
Ingvi Pálsson, Þorsteinn Ólafs-
son, Einar Pálsson og Vilberg
Skarphjeðinsson. Þá ljek Björg-
vin Bjarnason sem' framherji á
fyrsta leiknúm, en fór síðan úr
bænum. , ■ f : '
Þetta er í fyrsta sinn, sem Vík-
ingur vinnur Keykjavíkurhornið.
•Afhenti Einar Björnsson for-
ingja kappliðs Víkings hornið aö
leikslokum, í gær.
Kappleikurinn í gær milli Vík-
ings 'og Frain var að mörgu leyti
ágætur leikur. Bæði fjelögin eiga
ijetta óg lipra knattspyrnumenn-
Veður var mjög hagstætt, logn
og blíða. Áhorfóndur voru fjöl-
margir.
Víkingar skoruðu fyrsta rnark-
ið. Gerði Þorsteinn Ólafsson það
aneð bráðfallegu skoti. Annað
ntarkið var sett úr vítaspyrnu og
skoraði Þorsteinn einnig það
mark.
Markið, sem Fram setti, skor-
aði Jón Magnússon. Kom knött-
urinn í stöngina og skall á bak
markverðinum og inn í netið.
Víkingar ljeku á syðra markið
í fyrri hálfleik og liöfðu Fram-
menn þá sólina í augun, en dá-
lítil sól var einnig í seinni hálf-
leik.
Bæði lið fengu ágæt tækifæri,
sem þeim mistókst að sltora mörk
úr. Einkum voru tækifæri Vík-
ings mörg.
Dómari var Sigurjón Jónsson.
Víkingar eru vel að sigri sín-
um komnir. Þeir hafa leikið þrúð-
mannlega og drengilega.
Víkingar ætla að halda skemti-
krmld í Oddfellowhúsinu annað
kvöld til heiðurs Reykjavíkur-
meisturuiri! sínum og til að fagna
sign.
Vivax.
Norsku tlótta-
mönnurtum
verður hjálpað
Bráðabirgðalög
í dag
Bráðabirgðalög verða gefín
út í dag, til þess að unt
verði að hjálpa hinum norsku
flóttamönnum, sem hingað eru
komnir.
Bráðabirgðalögin verða um
það, að heimila íslenskum ríkis-
borgurum að taka hin norsku
skip á leigu yfir síldveiðitím-
ann í sumar, þannig, að þau
n;jóti þá sömu rjettinda, sem
íslensk skip. En til þess þarf
undanþágu frá fiskiveiðalög-
gjöfinni og verður með bráða-
birgðalögunum stjórninni veitt
heimild til að veita slíka und-
anþágu, að því er snertir þessi
norsku skip.
Þessi n'orsku flóttaskip munu
vera 10—14 talsins. Fá þau nú
sömu rjettindi og íslensk skip,
þannig, að þau mega fiska síld
í landhelgi og leggja aflann
hjer á land. Þau fá og að hafa
norskar skipshafnir. Þetta er
gert til hjálpar hinum norsku
flóttamönnum.
Ný skipan utan-
rikismálanna
i vændum
p íkisstjómin hefir haft með
höndum víðtækar breyting-
ar á meðferð utanríkismálanna,
vegna þess ástands, sem nú ríkir.
Morgnnblaðið sneri sjer í gær
til utanríkismálkráðherrans, Stef-
áns Jóhanns Stefónssonar og
spurði hann, hvort búið væri að
ganga frá þessum málum.
— Nei, ekki til fulls, svaraði
ráðherrann. Jeg hefi að vísu lagt
fram tillögur mínar, bæði fyrir
ráðlierrafund og utanríkismála-
nefnd, en ákvörðun befir ekki
Verið tekin ennþá.
Jeg hefi einnig, bætti ráðherr-
ann við, gert. tillögu um bráða-
birgðalög snertandi meðferð ntan-
ríkismálanna. En það er hið sama
að segja um þau, að ákvörðun er
ekki endanlega tekin. Jég býst
við, sagði ráðherrann að lokum,
að frá þessu verði gengið næstu
daga.
★
Samkvæmt. upplýsingum, sem
Morgunblaðið hefir fengið úr ann
ari átt, mun áform ríkisstjórnar-
innar að gera til að byrja með
þessar breytingar á meðferð utan-
ríkismálanna:
Bandaríkin. Þar hefir Vilhjálm-
ur Þór gegnt ræðismannsstörfum
undanfarið. Sú ráðstöfun var þó
aðeins til bráðabirgða, þar eð Vil-
hjálmur er skipaður bankastjóri
■við Landsbankann og það starf
bíður hans nú. Mun Thor Thors
,alþm. taka. við ræðismannsstörf-
um í New York, í stað Vilhjálms.
Svíþjóð. Þá miin sú breyting'
verða gerð, að Vilhjálmur Finsen,
sem verið hefir fulltrúi ísl. stjórn
arinnar í Osló, flýtjist t.il Stokk-
hólirrs og verði fulltrúi íslands
þar.
Suðurlönd. Þar Iröfum við eng
an fulltrúa haft, síðan borgara-
styrjöldin var á Spáni. Áður höfð
um við þar fiskifulltrúa og gegndi
Helgi Briem því starfi síðast. Nn
mun í ráði yera, að seuda Helga
aftur til Suðurlanda og verður
hann þá fulltrúi íslands þar, með
aðsetri annaðhvort á Spáni eða í
Portúgal.
Ekki er énn fullráðið, hvers-
konar ræðismensku þeSsír fulltrú-
ar íslands fá, en allir verða þeir
„diplomatískir".
Þýskaland. Vegna stríðsins hef
ít ekki verið bægt að koma skip
an á þessi mál okkar í Þýska
landi. En þangað verður að sjálf
sögðu sendur maður strax og auð
ið er. Til bráðabirgða verður
sendiherra Svíþjóðar í Berlín
sennilega heðinn að gæta okkar
bagsmuna í Þýskalandi.
Mikii síld til
Raufarhafnar
Nýja verksmiðjan byrjar
bræðslu á morgun
MJÖG MIKIL SÍLD hefir vaðið tvo undan-
farna daga við Digranes, sem er milli
Bakkafjarðar og Vopnafjarðar.
Við I^anganes var og mjög mikil síld í gær. Var þar fjöldi
veiðiskipa og var talið, að meginhluti þess síldveiðiflota, gem kom-
kominn þangað eða á leiðinni.
inn er á veiðar, væri anna.ðhvort
Mjðg hagkvæm
kolakaup
i Englandi
5000 tonn ð vegum
[íkisstjórnarinnar
Ríkisstjórnm hefir ákveðið að
kaupa 5000 tonna kolafaxm
í Englandi, ef að kolin fást flutt
hingað fyrir 30 shillinga t-onnið.
Þannig stendur á þessum kol-
um, að skip lig'gúr í Englandi.
með fullfermi af koluni', ca. 5000
tonn. Kol þessi áttu að fara ann-
,að, en geta ekki komist á ákvörð-
unarstaðinn, eins og nú er ástatt.
Ríkisstjórnin ákvað að .fest.i
katip á þessum kolafarmi, með
því skilyrði þó, að kolin yrðn
fiútt hingað fyrir 30 shillinga pr.
tonn. Er það langt. fvrir neðan
það flutningsgjald, sem nú er fá-
anlegt.
Ef úr þe.ssum kolakaupum verð-
ur, sem líkur benda til, er hjer
um að ræða mjög hagkvæi'n kaup.
Yrðu þá kol þessi not.úð til þess
að lækka kolaverðið í landinu.
Enda þótt nægar kolabirgðiv
verði til í landmu, þegar komin
éru hingað þan köl, sébi búið er
að festa kailp á, þótti ríkisstjórn-
inni sjálfsúgt að trvggja landinu
kol þau, sém bjer um ræðir,
vegna þéss hversu' 'hagkvæm þau
kaup eru. Enda er útlitið þannig
nú, að farmgjöld geta stórliækkað
á hvaða augnabliki sem er.
Væri óskandi, að stjórnin næði
þeim hagkvæmu kolakaupunr, sem
að framan greinir.
Nýjasta ffugvjetamóð
urskipi Breta sðkt?
ýska herstjórnin tilkynti í
gær, að kafbát hefðj tekist
að sökkva nýjasta flugvjela-
móðurskipi Breta, „Illustrious“.
Engar nánari fregnir hafa bor-
ist af þessu og í Englandi hefir
því hvorkiverið neitað nje stað-
fest, að ,,Illustrious“ hafi verið
sökt.
Síldartorfurnar yoru mjög stór
ar á þessum slóðum og hafa nokk
ut’ skip sprengt nætur sínar, en
önnnr fengið stór köst. Veiðiveð-
ur var gott í gær, hæg norðan-
átt og úrkomulítið.
Fjöldi skipa liafa fengið full-
fermi og haldið með síldina tii
Raufarhafnar ■ eða verksmiðjanna
á Norðfirði og Seyðisfirði.
í gær löndúðu þessi skip á Rauf-
arhöfn•
Rúna 800 mál, Sigurfari 500,
Grótta 200, Dagný 1400, Huginn
II. 800, Huginn III. 800, Þorsteinn
600, Fylkir 600, Ásbjörn 600,
Fróði 800 mál.
Jón Þorláksson landaði á
]>riðjudag.
Annars voru skipin sem óðast
að koma inn, þegar blaðið átti í
gærkvöldi tal við Raufarhöín.
Er nú unnið þar dág og nótt
við að fullgera nýjn síldarverk-
smiðjuna og er gert ráð fyrir að
hún taki til starfa n.k. laugar-
dag.
Gamla verksmiðjan hóf vinslu
Jtl. 2 í gær og er hún fyrsta rík-
jsverksmiðjan, sem tekur til starfa
Veiðihorfnr eru taldar ágætar
á þessum slóðum.
Til Siglufjarðar barst engin
síld í gær, enda hafði veðúr ver-
ið óhagstætt á miðunum. Veður
fór þó batnandi síðari hluta dags
í gær. Seint í gærkvöldi var líntt-
veiðarinn Ólafur Bjarnason þó á
leið til Siglufjarðar með ca. 1400
mál.
Til Seyðisfjarðar bárust í gær
og í fyrradag 2700 mál síldar.
Til Norðfjarðar hefir og nokk-
ur síld borist.
Orðsending frð
úthlutunarskrifstofu
Reykjavíkurbæjar
Uthlutun á sykurskamti til
sultugerðar í Reykjavík
fer fram í skrifstofunni við
Tryggvagötu 28, mánudag og
þriðjudag, 8.—9. þ. m. kl. 9 f.
h. til kl. 6 e. h. gegn framvísun
stofna af núgildandi matvæla-
seðli. — Þeir, sem vitja ekki
skamtsins þessa daga fá hann
ekki afhentan fyr en við næstu
aðalúthlutun. Seðlar fyrir sultu-
sykur verða ekki afhentir nema
gegn framvísun júní-júlí stofna.
Fólk er alvarlega ámint um
að gæta vel stofnanna, og glata
þeim ekki.