Morgunblaðið - 05.07.1940, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 05.07.1940, Blaðsíða 3
Föstudagur 5. júlí 1940. 3 MORGUNBLAÐIÐ Víkingur besta knatt spyrnufjelag Reykja víkur 1940 Sigraði Fram með 2 :1 VÍKINGUR sigraði Fram í gær með 2 mörkum gegn 1 og vann þar með Reykjavíkurhornið og heiðursnafnbótina „besta knattspyrnufjelag Reykjavíkur 1940“, og hefir rjett til að kalla sig Reykja- víkurmeistara í knattspyrnu. Úrslit mótsins urðu þessi: Víkingur !) stig. Valur 7 stig. K. K. C Stig og Fram 2 stig. Kept var í tveimur umferðum' og vann Víking- ur alla leiki í fyrri umferð, en r seinni umferð tapaði hann einum. gerði jafntefli í einum og vann þann þriðja. Víkingar hafa sett 11 mörk á ■mótinu, en fengið 5 sjálfir. Þara( Jrefir Þorst. Ólafsson miðframh. Víkings, skorað 8 mörk. Leik- irnir hafa farið þannig: Víkingur vann K. R. með 3 gegn 0 í fyrri umferð, í seinni umferð 0:0. Vík- ingur vann Fram með 1:0 í fyrri umferð og 2:1 í seinni. f fyrri um ferð vann Víkingur Val með 4:1, en tapaði í seinni umferð með 3:1. Reykjavíkurmeistarar Víkings eru: Markv'öi'ður: Ewald Bernd- ,sen, bakverðir: Hreiðar og Skúli Ágústssynir, auk þess ljek Gunn- ar Hannesson sem bakvörður í fyrri umferð, eða þar til hann meiddist á fæti, og Högni Helga- son ljek einn leik, sem- bakvörð- ur. Framverðir hafa verið: Brandur Brynjólfsson, Haukur Óskarsson og Ólafur Jónsson. Framherjar: Ingólfur Isebarn, Ingvi Pálsson, Þorsteinn Ólafs- son, Einar Pálsson og Vilberg Skarphjeðinsson. Þá ljek Björg- vin Bjarnason sem' framherji á fyrsta leiknúm, en fór síðan úr bænum. , ■ f : ' Þetta er í fyrsta sinn, sem Vík- ingur vinnur Keykjavíkurhornið. •Afhenti Einar Björnsson for- ingja kappliðs Víkings hornið aö leikslokum, í gær. Kappleikurinn í gær milli Vík- ings 'og Frain var að mörgu leyti ágætur leikur. Bæði fjelögin eiga ijetta óg lipra knattspyrnumenn- Veður var mjög hagstætt, logn og blíða. Áhorfóndur voru fjöl- margir. Víkingar skoruðu fyrsta rnark- ið. Gerði Þorsteinn Ólafsson það aneð bráðfallegu skoti. Annað ntarkið var sett úr vítaspyrnu og skoraði Þorsteinn einnig það mark. Markið, sem Fram setti, skor- aði Jón Magnússon. Kom knött- urinn í stöngina og skall á bak markverðinum og inn í netið. Víkingar ljeku á syðra markið í fyrri hálfleik og liöfðu Fram- menn þá sólina í augun, en dá- lítil sól var einnig í seinni hálf- leik. Bæði lið fengu ágæt tækifæri, sem þeim mistókst að sltora mörk úr. Einkum voru tækifæri Vík- ings mörg. Dómari var Sigurjón Jónsson. Víkingar eru vel að sigri sín- um komnir. Þeir hafa leikið þrúð- mannlega og drengilega. Víkingar ætla að halda skemti- krmld í Oddfellowhúsinu annað kvöld til heiðurs Reykjavíkur- meisturuiri! sínum og til að fagna sign. Vivax. Norsku tlótta- mönnurtum verður hjálpað Bráðabirgðalög í dag Bráðabirgðalög verða gefín út í dag, til þess að unt verði að hjálpa hinum norsku flóttamönnum, sem hingað eru komnir. Bráðabirgðalögin verða um það, að heimila íslenskum ríkis- borgurum að taka hin norsku skip á leigu yfir síldveiðitím- ann í sumar, þannig, að þau n;jóti þá sömu rjettinda, sem íslensk skip. En til þess þarf undanþágu frá fiskiveiðalög- gjöfinni og verður með bráða- birgðalögunum stjórninni veitt heimild til að veita slíka und- anþágu, að því er snertir þessi norsku skip. Þessi n'orsku flóttaskip munu vera 10—14 talsins. Fá þau nú sömu rjettindi og íslensk skip, þannig, að þau mega fiska síld í landhelgi og leggja aflann hjer á land. Þau fá og að hafa norskar skipshafnir. Þetta er gert til hjálpar hinum norsku flóttamönnum. Ný skipan utan- rikismálanna i vændum p íkisstjómin hefir haft með höndum víðtækar breyting- ar á meðferð utanríkismálanna, vegna þess ástands, sem nú ríkir. Morgnnblaðið sneri sjer í gær til utanríkismálkráðherrans, Stef- áns Jóhanns Stefónssonar og spurði hann, hvort búið væri að ganga frá þessum málum. — Nei, ekki til fulls, svaraði ráðherrann. Jeg hefi að vísu lagt fram tillögur mínar, bæði fyrir ráðlierrafund og utanríkismála- nefnd, en ákvörðun befir ekki Verið tekin ennþá. Jeg hefi einnig, bætti ráðherr- ann við, gert. tillögu um bráða- birgðalög snertandi meðferð ntan- ríkismálanna. En það er hið sama að segja um þau, að ákvörðun er ekki endanlega tekin. Jég býst við, sagði ráðherrann að lokum, að frá þessu verði gengið næstu daga. ★ Samkvæmt. upplýsingum, sem Morgunblaðið hefir fengið úr ann ari átt, mun áform ríkisstjórnar- innar að gera til að byrja með þessar breytingar á meðferð utan- ríkismálanna: Bandaríkin. Þar hefir Vilhjálm- ur Þór gegnt ræðismannsstörfum undanfarið. Sú ráðstöfun var þó aðeins til bráðabirgða, þar eð Vil- hjálmur er skipaður bankastjóri ■við Landsbankann og það starf bíður hans nú. Mun Thor Thors ,alþm. taka. við ræðismannsstörf- um í New York, í stað Vilhjálms. Svíþjóð. Þá miin sú breyting' verða gerð, að Vilhjálmur Finsen, sem verið hefir fulltrúi ísl. stjórn arinnar í Osló, flýtjist t.il Stokk- hólirrs og verði fulltrúi íslands þar. Suðurlönd. Þar Iröfum við eng an fulltrúa haft, síðan borgara- styrjöldin var á Spáni. Áður höfð um við þar fiskifulltrúa og gegndi Helgi Briem því starfi síðast. Nn mun í ráði yera, að seuda Helga aftur til Suðurlanda og verður hann þá fulltrúi íslands þar, með aðsetri annaðhvort á Spáni eða í Portúgal. Ekki er énn fullráðið, hvers- konar ræðismensku þeSsír fulltrú- ar íslands fá, en allir verða þeir „diplomatískir". Þýskaland. Vegna stríðsins hef ít ekki verið bægt að koma skip an á þessi mál okkar í Þýska landi. En þangað verður að sjálf sögðu sendur maður strax og auð ið er. Til bráðabirgða verður sendiherra Svíþjóðar í Berlín sennilega heðinn að gæta okkar bagsmuna í Þýskalandi. Mikii síld til Raufarhafnar Nýja verksmiðjan byrjar bræðslu á morgun MJÖG MIKIL SÍLD hefir vaðið tvo undan- farna daga við Digranes, sem er milli Bakkafjarðar og Vopnafjarðar. Við I^anganes var og mjög mikil síld í gær. Var þar fjöldi veiðiskipa og var talið, að meginhluti þess síldveiðiflota, gem kom- kominn þangað eða á leiðinni. inn er á veiðar, væri anna.ðhvort Mjðg hagkvæm kolakaup i Englandi 5000 tonn ð vegum [íkisstjórnarinnar Ríkisstjórnm hefir ákveðið að kaupa 5000 tonna kolafaxm í Englandi, ef að kolin fást flutt hingað fyrir 30 shillinga t-onnið. Þannig stendur á þessum kol- um, að skip lig'gúr í Englandi. með fullfermi af koluni', ca. 5000 tonn. Kol þessi áttu að fara ann- ,að, en geta ekki komist á ákvörð- unarstaðinn, eins og nú er ástatt. Ríkisstjórnin ákvað að .fest.i katip á þessum kolafarmi, með því skilyrði þó, að kolin yrðn fiútt hingað fyrir 30 shillinga pr. tonn. Er það langt. fvrir neðan það flutningsgjald, sem nú er fá- anlegt. Ef úr þe.ssum kolakaupum verð- ur, sem líkur benda til, er hjer um að ræða mjög hagkvæi'n kaup. Yrðu þá kol þessi not.úð til þess að lækka kolaverðið í landinu. Enda þótt nægar kolabirgðiv verði til í landmu, þegar komin éru hingað þan köl, sébi búið er að festa kailp á, þótti ríkisstjórn- inni sjálfsúgt að trvggja landinu kol þau, sém bjer um ræðir, vegna þéss hversu' 'hagkvæm þau kaup eru. Enda er útlitið þannig nú, að farmgjöld geta stórliækkað á hvaða augnabliki sem er. Væri óskandi, að stjórnin næði þeim hagkvæmu kolakaupunr, sem að framan greinir. Nýjasta ffugvjetamóð urskipi Breta sðkt? ýska herstjórnin tilkynti í gær, að kafbát hefðj tekist að sökkva nýjasta flugvjela- móðurskipi Breta, „Illustrious“. Engar nánari fregnir hafa bor- ist af þessu og í Englandi hefir því hvorkiverið neitað nje stað- fest, að ,,Illustrious“ hafi verið sökt. Síldartorfurnar yoru mjög stór ar á þessum slóðum og hafa nokk ut’ skip sprengt nætur sínar, en önnnr fengið stór köst. Veiðiveð- ur var gott í gær, hæg norðan- átt og úrkomulítið. Fjöldi skipa liafa fengið full- fermi og haldið með síldina tii Raufarhafnar ■ eða verksmiðjanna á Norðfirði og Seyðisfirði. í gær löndúðu þessi skip á Rauf- arhöfn• Rúna 800 mál, Sigurfari 500, Grótta 200, Dagný 1400, Huginn II. 800, Huginn III. 800, Þorsteinn 600, Fylkir 600, Ásbjörn 600, Fróði 800 mál. Jón Þorláksson landaði á ]>riðjudag. Annars voru skipin sem óðast að koma inn, þegar blaðið átti í gærkvöldi tal við Raufarhöín. Er nú unnið þar dág og nótt við að fullgera nýjn síldarverk- smiðjuna og er gert ráð fyrir að hún taki til starfa n.k. laugar- dag. Gamla verksmiðjan hóf vinslu Jtl. 2 í gær og er hún fyrsta rík- jsverksmiðjan, sem tekur til starfa Veiðihorfnr eru taldar ágætar á þessum slóðum. Til Siglufjarðar barst engin síld í gær, enda hafði veðúr ver- ið óhagstætt á miðunum. Veður fór þó batnandi síðari hluta dags í gær. Seint í gærkvöldi var líntt- veiðarinn Ólafur Bjarnason þó á leið til Siglufjarðar með ca. 1400 mál. Til Seyðisfjarðar bárust í gær og í fyrradag 2700 mál síldar. Til Norðfjarðar hefir og nokk- ur síld borist. Orðsending frð úthlutunarskrifstofu Reykjavíkurbæjar Uthlutun á sykurskamti til sultugerðar í Reykjavík fer fram í skrifstofunni við Tryggvagötu 28, mánudag og þriðjudag, 8.—9. þ. m. kl. 9 f. h. til kl. 6 e. h. gegn framvísun stofna af núgildandi matvæla- seðli. — Þeir, sem vitja ekki skamtsins þessa daga fá hann ekki afhentan fyr en við næstu aðalúthlutun. Seðlar fyrir sultu- sykur verða ekki afhentir nema gegn framvísun júní-júlí stofna. Fólk er alvarlega ámint um að gæta vel stofnanna, og glata þeim ekki.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.