Morgunblaðið - 21.08.1940, Qupperneq 3
Miðvikudagur 21. á
MORGUNBLAÐIÐ
Engin breyting j
á Ameriku-
póstinum
Tafir þær, sem orðið hafa á
póstsendingum frá Ameríku,
hafa sem von er vakið nokkra
óánægju meðal fslendinga. Rúm-
lega þrjár vikur eru nú liðnar
síðan Goðafoss kom með póst frá
Ne>vV York. Pósturinn var sendur
til Englands, en er ókominn enn.
Nýlega var Ameríkupóstur tekinn
úr öðru skipi hjer í Reykjavík og
er varla að búast við honum fyr
en eftir langan tíma.
Margir liafa furðað sig á, að
ekki skuli hafa verið hægt að
gera einhverjar ráðstafanir til að
flýta fyrir póstinum, t. d. með
því að láta skoðun á honum fara.
fram hjer. En öll tormerki virð-
ast vera á þessu.
Breska stjórnin heldur fast við
að brjefaskoðun verði að fara
fram, en telur sig ekki geta opn-
að hjer skrifstofu til brjefaskoð-
unar fyrir þau fáu skip, sem eru
í förum milli Bandaríkjanna og
Islands.
Morgunblaðið hefir spurt sendi-
herra Breta hjer á landi, Mr. Ho-
ward Smith, hvort ekki væri von
til þess að eitthvað rættist úr
þessum málum.
Ráðin til að
flýta póstinum.
Sendiherrann kvaðst hafa farið
fram á að einhver leið yrði farin
til þess að flýta fyrir póstsend-
indum frá Ameríku til íslands, og
þó einkum verslunarpósti.
Eins og nú standa sakir er hægt
að senda skýrslur um vörur í
sjerstöku skipspóstboxi, sem er
undir umsjá skipstjóra. Einnig
hefir komið til mála, að verslun-
arbrjef, sem send eru í tveimur
eintökum, og annað eintakið í
opnu umslagi, verði sent í þessu
sjerstaka póstboxi, og fær því
viðtakandi brjefið strax og skipið
kemur.
Það mun ekki vera nokkur von
til þess, að breska stjórnin láti
sig hvað snertir skoðun á Ame-
ríkupósti til íslands og besta leið-
in til þess að fá póst frá Ameríku
og tafaminst verður því að send-
endur í Ameríku skrifi á brjefin
„Yia United Kingdom“ eða „Yia
Liverpool". Á þenna hátt ættu
brjef frá Ameríku að vera fljót-
ari á leiðinni frá Ameríku til ís-
lands heldur en ef senda þarf þau
hjeðan til Englands og svo hingað
aftur, eins og nú er.
Eins og kunnugt er fengu skip
okkar að sigla beint milli Ame-
ríku og íslands án þess að koma
við í breskri eftirlitshöfn, með því
skilyrði að þau tækju ekki póst
til flutnings.
Nú fór það hinsvegar svo, að
Bandaríkjastjórn neitaði að skip-
in færu úr höfn í New York nema
að þau tækju póst til íslands.
Breska stjórnin gaf þá eftir að
skipin flyttu póst aðeins frá Ame-
ríku. Þessu var svo aftur breytt
síðast er Goðafoss kom.
Síldveiðin í bræðslu
getur haldið átram
,Hvert þo p
er virki“ ^
Búið að veiða meira en í samn-
ingana, en verksmiðjurnar
taka áfram móti síid
Samtal við Olaf Thors atvinnumálaráðlierra
PRÁTT fyrir það, að þegar er búið að veiða
talsvert meira af bræðslusíld en tekist hefir
að selja, og þrátt fyrir, að alger óvissa ríkir
um söluhorfur síldarafurða umfram það sem samningar
heimila, hafa síldarverksmiðjurnar ákveðið að halda áfram
að taka á móti síld af skipum, sem þess óska, en útborg-
unarverðið hefir verið lækkað úr 12 kr. niður í 9 kr. málið.
Tilkynning um þetta var birt í útvarpinu í gærkvöldi og er
hún svohljóðandi:
„Ákveðið hefir verið að undirritaðar verksmiðjur haldi
áfram að taka móti síld til bræðslu fyrst um sinn og greiði
9 krónur fyrir málið. Verður síldin tekin til vinslu af ís-
lenskum skipum, en keypt af erlendum skipum. Gildir
ákvörðun þessi fyrir alla þá síld, sem ekki hefir verið
losuð fyrir kl. 20 í kvöld, en fyr ef svo hefir um samist“.
Allar síldarverksmiðjumar, bæði ríkis- og einstaklinga, voru
undir tilkynningunni.
Morgunblaðið sneri sjer í
gærkvöldi til Ólafs Thors at-
vinnumálaráðherra og spurði
hann, hvort ríkisstjórninni væri
kunn þessi tikynning verksmiðj--
anna. Svaraði ráðherrann því
játandi.
— Hver er ástæðan fyrir til-
kynningunni? spurðum vjer
ráðherrann.
— Ástæðan er sú, svarar ráð-
herrann, að nú þegar er búið að
veiða talsvert meira en þarf til
þess að fullnægja bresku samn-
ingunum. Bretar tilkyntu á
laugardagsmorgun, að þeir
keyptu ekki meira en samning-
ar tilgreindu.
— En er þá ekki von um
sölu annars staðar?
— Söluhorfur annars’ staðar
eru mjög slæmar og verðið í
algerðri óvissu. Þó er nokkur
von um, að eitthvað verði unt
að selja af síldarmjöli, en fyrir
verð sem er svo lágt, að það
myndi lækka ferkssíldina um
sem svarar yfir 4 kr. pr. málið.
En hvað snertir síldarolíuna
eru horfur í bili þannig, að ekki
verði unt að selja meira af
henni en bresku samningarnir
áskilja.
Þannig horfði málið við, seg-
ir ráðherrann ennfremur. Það,
sem þá lá fyrir var, að stöðva
algerlega síldveiðarnar — og
hefir undanfarið verið gripið til
þess ráðs að því er saltsíldina
snertir — eða að halda áfram
að taka á móti síld og þá að
sjálfsögðu fyrir lækkað verð.
Það var álitamál, hve mikið
þurfti að lækka verðið á fersk-
síldinni og verður að segja, að
þar sje teflt á fremsta hlunn
með 9 kr. verðinu.
— Er þetta 9 kr. verð fast?
Skiftimyntin
væntanleg
btéðlega
Haldið ekki mynt
í fórum yðar!
FRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU
Ríkisstjórnin tilkynnir hjer í
blaðinu í dag, að hún hafi
samið við bresku myndsláttuna
um að slá ísl. skiftimynt og muni
hún væntanleg hingað eftir tvo
mánuði.
Jafnframt brýnir ríkisstjórnin
það fyrir kaupsýslumönnum og al-
rnenningi, að þeir afhendi jafn-
harðan bönkum þá mynt, sem þeii
geta án verið.
Þar sem nú er vissa fengin fyr-
ir því, að ný skiftimynt er vænt-
anleg áður en langt líður, ættu
allir að gera sjer það að reglu,
að afhenda bönkunum alla þá
skiftimynt, sem þeir geta án ver-
ið. Ef allir fylgja þessari reglu,
ætti það mjög að greiða fyrir
viðskiftunum. Hinsvegar geta
vandræði af hlotist, ef menn fara
að safna mynt fyrir hjá sjer, af
ótta við að hún gangi til þurðar.
Slíkur ótti er ástæðulaus nú, eftir
að vissa er fengin fyrir því, að
ný mynt kemur bráðlega.
Sjálfsagt er að verða við þeim
tilmælum ríkisstjórnarinhar, að
tæma sparibauka og leggja inn í
banka þá mynt, sem í þeim ér.
Ættu ráðamenn sparibauka að
gera þetta hið fyrsta.
„Vjer höfum víggirt land vort — og hjörtu vor“, sagði
Churchill forsætisráðherra Breta í gær. „Hvert þorp er virki“.
Myndin sýnir hvernig Bretar hafá búist til várnar úti á þjóð-
vegunum.
Ekki veiðí
veður
í
Siglufirði, þriðjudag.
Síðan í gær hafa komið til rík-
isverksmiðjanna 36 skip með
nm 20 þús. mál. Síld var mikil á
miðunum í gær og ágætt veiði-
veður.
Söltun síðasta sólarhring var
3028 tn., þar af 643 tn. úr rek-
netum.
í dag er NA-strekkingur og
ekki veiðiveður.
HJALTEYRI.
í gær landaði þar Fróði 980
mál; fjöldi skipa lágu inni, vegna
storms.
Fjell af bil
og slasaðist
Þingeyri, þriðjudag.
Síðastliðinn sunnudag fjell 17
ára stúlka, Hulda Sigmunds-
dóttir, af palli vörubíls, er var á
leið frá Þingeyri að Söndum, og
hlaut mjög alvarleg meiðsl á
höfði, viðbeinsbrotnaði, einnig
nokkur rif, auk fleiri áverka.
Stúlkan var flutt meðvitundar-
laus í sjúkrahús. Hefir hún nú
fengið rænu aftur og er talin úr
lífshættu. Hún er dóttir Sigmund-
ar kaupm. Jónsonar og konu hans
Fríðu Jóhannesdóttur og er nem-
andi í Verslunarskóla íslands.
Italir lýsa yfir algjöru
hafnbannl
Italska stjórnin hefir farið að
dæmi Þjóðverja og lýst yfir
hafnbanni á breskar hafnir við
Miðjarðarhaf og Rauða haf.
Meistaramit
í. S. í.
eistaramót f. S. í. í frjáls-
um íþróttum hófst í gær-
kvöldi á íþróttavellinum. Kalt var
í veðri og mun það hafa háð kepp-
endum nokkuð.
Urslit í einstökum greinum
urðu þessi:
100 m. hlaup.
1. Brandur Brynjólfsson (Á.)
11.3 sek.
2. Björn Jónsson (H.) 11.8 sek.
3. Brynjólfur Ingólfsson (H.)
11.8 sek.
Methafinn, Sveinn Ingvarsson,
var ekki með vegna meisla á fæti.
110 m. grindahlaup.
1. Jóhann Jóhannesson (Á.) 18.1
sek.
2. Sigurður Nordahl (Á.) 18.1
sek.
3. Þorsteinn Magnússon (K.R.)
20.3 sek.
Langstökk. (V,
1. Oliver Steinn (H.F.) 6.37 m.
2. Jóh. Bernhard (K.R.) 6.21 m.
3. Georg L. Sveinsson (K.R,)
6.07 m.
800 m. hlaup.
1. Sigurgeir Ársælsson (Á.) 2
mín. 6.3 sek.
2. Ólafur Símonarson (Á.) 2
mín. 8.0 sek.
3. Evert Magnússon (Á.) 2 mín.
14.2 sek.
Kringlukast.
1. Ólafur Guðmundsson (f.R.)
38.04 m.
2. Sveinn Stefánss. (Á) 32.66 m.
3. Sig. Finnsson (K.R.) 31.88 m.
Mótið heldur áfram í kvöld kl.
7.30 og verður þá kept í þessúm
greinum: Stangarstökki, 200 m.
hlaupi, spjótkasti, 1500 m. hlaupi,
þrístökki og kúluvarpi.
Undanrásir í 200 m. hlaupi hefj ■
ast kl. 6.
Jón Hjartar frá Siglufirði mun
koma fljúgandi hingað suður í
dag, til þess að taka þátt í spjót-
kasti og þrístökki.