Morgunblaðið - 21.08.1940, Side 5
Miðvikudagur 21. ágúst 1940
S
Jplor^imMaðid
Útget: H.f. Árraknr, Btfklarlk.
Rlt*tj6rar:
Jön KJartan*»«.is,
Valtýr Stef&naaem (Abrnröartn. >.
Aoglýsingar: Árni 01».
Rltatjörn, aa^fhifar oft alcnitHla':
Austuratrœtl 8. — Sljsd WM.
á*krlftarg]ald': kr. 1,88 A asAnuDl
lnnanlands, kr. 4,00 utamlaBda.
f lausasölu: 20 aura •tntaktö,
26 aura m*t UiMk.
Reykjavík
PAÐ er gott eitt um það að
segja, að rædd sjeu vanda-
mál Reykjavíkurbæjar ef það er
gert af velvilja og einlægum liug
til lagfæringar og umbóta.
Vandamál Reykjavíkur eru
margskonar. Bn til þess að ráðin
verði bót á þeim meinsemdum,
sem aðallega há bæjarf jelaginu, er
nauðsynlegt að menn geri sjer
Ijóst, hverjar eru rætur meinsemd-
anna. Bf menn þekkja orsakir
meinsemdanna, verður hægara að
lækna þær, ef á annað borð vilji
-«r fyrir hendi.
Við vitum, að Reykjavík á nú
við margskonar erfiðleika að
stríða, og til þeirra liggja tvær
höfuðorsakir:
1. Sú stefna þings og stjórnar
á undanförnum árum, að velta
miklnm byrðum á Reykjavík, áu
þess um leíð að sjá bænum fyrir
mögúleikum fyrir því, að rísa und
;ir byrðunum.
2. Sú stórfelda hnignun, sem
varð á þeim atvinnuvegi, sjávar-
útveginum, sem um langt skeið
hafði verið undirstaða alls at-
Iiafnalífs bæjarins.
ÍEirifiðÍeikar Reykjavíkur urðu
vitanlega miklu meiri og þung-
bærari, þar sem þetta skall sam-
tímis yfir bæinn — hinar auknu
byrðar og hrun sjávarútvegsins.
Bot á hinni fyrri meinsemd,
’hinum miklu byrðum á bæjarfje-
: laginu, fæst vitanlega ekki, nema
í samvinnu við Alþingi og ríkis-
•stjórn. Slík samvinna hefir verið
Jlítil undanfarin ár og minni en
• æskilegt hefði verið, hverjum sem
um verður kent. Upp á síðkastið
hefir þetta talsvert lagast og
■ meiri samvinna verið upp tekin.
Má án efa þakka það þjóðstjórn-
Jinni. Á síðasta þíngi kom í ljós
fyrsti árangurinn af því sam-
• starfi, með breytingunum á fram-
færslulögunum, sem áreiðanlega
hafa góðar verkanir fyrir bæjar-
fjelagið, þegar frá líður. En sam-
vinnan þarf að vera á fleiri svið-
;«m, til þess að vel fari.
Hin meinsemdin, hnignun sjáv-
-artitvegsins, verður ekki læknuð
inema með því að koma nýju lífi
í þenna atvinnuveg. Reykjavíkur-
bæ verður vitanlega ekki kent
um hnignún sjávarútvegsins á
undanförnum árhm. Hann gat
lítið gert til úrbóta. Hinsvegar
var ráðandi mönnum bæjarfje-
lagsins það ljóst, að stuðla yrði
. að því, að skipastóllinn í bænum
ykist aftur. Þessvegna reyndi bær
ínn á s.l. sumri að fá keypta 10
mótorbáta og hjet stuðningi til
þeirra kaupa. En þetta strftndaði
. á opinberum stöfnunum, gjald-
eyrisnefnd og banka. Svona er
það á flestum sviðum, að bæjar-
fjelagið á alt undir skilningi og
vnðsýni valdsmanna ríkisins. Hanu
verður nvi að gjalda þröngsýni
þeirra og skilningsleysis.
Önnur grein dr. Bförns Björnssonnr:
Vandamál Reykjavíkur
og úrræðin til umbóta
Hinir miklu atvinnumögu
leikar, sem þilskipaút-
gerðin skapaði, dró fólkið til
sín úr sveitunum að sjávar-
síðunni. Bæirnir, og; þó eink-
um Reykjavík, tóku að vaxa
hröðum skrefum. Svo kom
heimskreppan. Fiskiveiðarn-
ar, einkum saltfisksfram-
leiðslan lagðist nær alveg í
rústir. Það kom harðast nið-
ur á þeim bæjum, þar sem
saltfiskveiðai’nar höfðu ver-
ið aðal atvinnuvegur fólks-
ins.
í ýmsum bæjum höfðu 40—50%
íbúanna þar 1930 lífsuppeldi sitt
af sjávarútvegi, en hjer í Rvík að-
eins 16%. Nxi hætti fólk að flytja
til þessara <staða, og fólk það,
sem fyrir var, tók jafnvel að leita
burtu. Það lagði leið sína hingað
Hjer voru fjölbreyttustu afkomu
möguleikarnir. Ýmsir biðu skip-
brot vona sinna um lífvænlega af-
komu hjer, og urðu að leita á
náðir hins opinbera. Hinir, sem
komust áfram, þrengdu olnboga-
rúmið fyrir þá, sem fyrir voru,
svo að sumir þeirra komust á von-
arvöl. Pátækrabyrðin óx, álögurn-
ar sömuleiðis.
Skuldaskil flestra bæjar- og
sveitarfjelaga fór fram. Reykja-
vík var ekki í þeirra hópi. Bærinn
tapaði stórkostlegum upphæðum
af því fje, er hann hafði lagt út
vegna styrkþega, annara bæjar-
og sveitarfjelaga.. Þar við bætt-
ist skriða framfærslubyrðarinnar,
sem skall á bæinn, um leið og
sveitfestin var uppliafin.
Vandkvæði bæjanna og lands-
bygðarinnar yfifleitt utan Reykja-
víkur eru síður en svo leyst enn.
Þau eru eins og vandamál Reykja-
víkur vandamál alls landsins. Þeir
erfiðleikar, sem heimskreppan,
styrjöldin á Spáni o. s. frv. leiddi
vfir landið, voru meiri en svo, að
fyrverandi ríkisstjórnir gætu siglt
þjóðarskútunni slysalaust út úr
þeim ógöngum. Hún var að síðustu
beinlínis komin að því að sökkva.
Þá var gripið til þeirra ráða, að
mynda þjóðstjórn.
Það er kunnara en frá þurfi að
segja, ,að meirihluti Sjálfstæðis-
fiokksins gekk nauðugur til þess-
arar stjórnarmyndunar, en hásk-
inn, sem yfir vofði, var svo aug
ljós, að ekki var hægt að hika
við að gera þessa tilraun til að
bjarga ríkinu frá liruni, enda
voru fyrirheit gefin um, að breytt
yrði um stefnu.
Það er ekki ofsögum sagt, að
seinagangur ríkisstjórnarinnar og
aðgerðaleysi í því að ráða bót á
augljósustu misfellunum, sem m.
a. lagasmíði Alþingis á undan-
förnum árum hafði skapað, hefir
valdið miklum þorra landsmanna
sárum vonbrigðum. Þó hefir t. d
nokkur, raunar ófullnægjandi,
lagfæring fengist á framfærslu-
löggjöfinni. Það ljettir undir með
Reykjavík í að koma þeim um-
bótum á í framfærslumáhumm,
sem stefnt hefir verið að nú und-
anfarið. — Þær eru ein af þeim
leiðum, sem greinarhöf. bendir á
til xirlausnar vandamálunum. Út
á þá braut hefir þegar verið lagt,
án þess, að greinarhöf. hafi átt
þar frumkvæðið, og mun verða
haldið áfram, raunar ekki með
glamri og trumbuslætti — heldur
festu. En menn mega ekki láta
blekkjast og halda, að það eitt
sje nóg til að ráða fulla bót á
vandamálunum.
★
Áður en lijer er sagt skilið við
lokunarhugmyndina, skal það
skýrt tekið fram, að eftirlit með
flutningum óvinnufærs fólks, eða
fólks, sem vitað er, að ekki getur
bjargað sjer af eigin ramleik, get-
ur verið og er nauðsynlegt. Það
er t. d. óeðlilegt að gamalmenni
og öryrkjar, sem ekki geta sjeð
sjer sjálfir farborða, flytjist til
þess staðar, þar sem dýrast er að
halda þeim uppi, og ekki hefir
notið starfskrafta þeirra áður en
þeir urðu því opinbera til byrði.
Auk þess hefir hvert bæjar- og
sveitarfjelag í hendi sinni að koma
í veg fyrir, að utanbæjarmenn,
eða menn nýaðfluttir, verði að-
njótandi þeirrar vinnu, sem þau
hafa yfir að ráða.
Takmarkið, sem keppa ber að er
það, að enginn þnrfi að þiggja
opinberan styrk, er getur unnið
fyrir sjer og sínum, og jafnframt
að enginn, sem vill ekki vinna eða
á annan liátt skorast undan þeirri
skyldu að bjarga sjer, sje veittur
opinber styrkur. Sá vandi verður
ekki leystur fvrir alla þjóðina, a£
einu bæjarfjelagi, og allra síst
með því að loka sig inni og þar
með segja sig úr lögum við aðra
landshluta. Slík innilokunarstefna
mundi vera sjerstaklega skaðleg í
voru þjóðfjelagi, þar sem jafn
mikil árstíðaskifti eru í atvmnu-
lífinu eins og raun ber vitni um.
Sjálfsagt fylgdu aðrir bæir for-
dæmi höfuðstaðarins og lokuðu
hjá sjer.
Tökum til dæmis, að Siglufjörð-
ur „lokaði“. Mest þörfin fyrir
vinnukrafta þar á staðnum er á
sumrin, en þó mjög misjöfn, eft-
ir því, hvernig síldveiðarnar
ganga. Siglufjarðarbær vildi
vernda atvinnumarkaðinn fyrir
sína menn, og bannaði því öðrum
að sækja þangað í atvinnuleit. Á
veturna er mjög lítil lausavinna
í bænum. Bærinn þyrfti því að
halda uppi" sínum atvinnuleys-
ingjahópi yfir veturinn þangað til
sumarið kæmi og síldveiðarnar
byrjuðu, nema því aðeins tekist
hefði að hækka kaupið það mik-
ið, að sumarlaunin nægðu fyrir
ársþörfunum. Það snjallræði
myndi hinsvegar koma óþyrmilega
við atvinnureksturinn.
f Vestmannaeyjum horfir mál-
ið alveg öfugt við. Þar er lausa-
vinnan á veturna. Lokun Vest-
mannaeyja myndi liinsvegar hafa
nákvæmlega sömu afleiðingar fyr-
ir þann bæ og lokun Siglufjarðar
liefði þar. Ef til vill myndu lok-
unarmennirnir aldrei ganga al-
veg svona langt, en það hálfa
væri líka meira en nóg.
f sumar vai’ sú nýbreytni tekin
upp að senda trillubáta hjeðan að
sunnan, sem höfðu ekkert að gera,
til fiskiveiða við Norðurland. Sú
tilraun mun reynast betri bu-
hnikkur fyrir þjóðfjelagið en loka
hverjum stað sem rambyggileg-
ast, en það myndi óhjákvæmilega
mjög torvelda alt samstarf milli
bæjar- og sveitarfjelaga landsins.
— Það má ekki trufla þannig
eðlilega hringrás atvinnulífsins,
sem er í ætt við lífseðlið sjálft,
en ekki kyrstaða, sem þýðir
dauða. Vjer höfum næga reynslu
af allskonar höftum og frelsis-
skerðingu bæði fyr og síðar. For-
mælendur þeirrar stefnu hafa
verið nægjanlega margir og feng-
ið nógu áorkað, þótt „víðsýnir"
fjármálamenn bætist ekki í hóp-
inn og gangi þar fram fyrir
skjöldu.
★
Auk þessa aðal bjargráðs, sem
greinarhöf. tilfærir, lokun bæjar-
ins, bendir hann á nokkrar aðrar
leiðir, sem virðist bera að skoða
sem hjálparmeðul. Þau eru yfir-
leitt þess eðlis, að óþarfi er að
fara þar um mörgum orðum.
1. Eins og drepið var á hjer að
framan, hefir þegar verið hafist
handa um nýskipun framfærslu-
málanna. Plestum mun ljóst, að
slíkri skipun er ekki hægt að
koma á í einu vetfangi, eins um-
fangsmikil og þau mál eru orðin.
2. Sú tillaga greinarhöf. miðar
sumpart að því, að hjer í bæ kæm-
ist á algerð „planökonomi", sem
myndi lítt samþýðanleg þjóðskipu-
lagi því, er vjer búum við. Að
öðru leyti hefir þegar verið stofn-
að til rannsóknarstarfsemi fyrir
alt land af svipuðu tagi og grein-
arliöf. minnist á, með skipun hinn
ar svokölluðu bjargráðanefndar.
3. Það er spor alveg í öfuga
átt, að ætla sjer að gera lausa-
skuldir bæjarins að föstum af-
borgunarlánum, sem skapaði
bæjarsjóði þungar vaxtabyrðar
um langt skeið. Lausaskuldirnar
þarf að borga upp á allra næstu
árum, og koma fjárhag bæjarins
jafnframt á þann grundvöll, að
skuldir geti eklti myndast, hverju
nafni sem þær nefnast, við eyðslu
eða óarðbærar framkvæmdir.
4. Iljer er ekki riim til að ræða
skipun bæjarmálefnanna yfirleitt,
sem að ýmsu leyti þurfa gagn-
gerðrar breytingar við. Hefir þeg-
ar verið hafist handa um sumar
þeirra breytinga, aðrar eru í und-
irbúningi og enn aðrar bíða íir-
lausnar. Hinsvegar skal fullyrt,
að lijer í þessum kotbæ er engin
þörf á þremur borgarstjórum, eða
þriggja manna fastri allsherjar
framkvæmdastjórn, sem er nokk-
urnveginn það sama, en sú er að-
al umbótatillaga greinarhöf. á
þessu sviði.
5. Allmikil byggingarstarfsemi
hefir verið rekin hjer í bæ á und-
anförnum árum. T. d. var bygt
fyrir 5.3 milj. kr. að meðaltali á
árunum 1929—38. Er mjög vafa-
samt, að æskilegt væri, frá þjóð-
hagslegu sjónarmiði sjeð, að lagt
væri í meiri framkvæmdir af því
tagi. Fjeð hefir á þessum árnm
leitað úr þeirri framleiðslustarf-
semi, er skapar hin raunverulegn
verðmæti.
Hin nýju hús hafa yfirleitt ver-
ið búin miklunf nýtísku þægind-
um. Er'út af fyrir sig ekki nema
gott um það að segja. Hinsvegar
hafa húsin orðið svo dýr, að erf-
itt er, ef ekki ókleift, fyrir hin-
ar lægst launuðu stjettir bæjar-
fjelagsins að búa í þeim. Yæri
nauðsynlegt að finna leiðir til að
lækka byggingarkostnaðinn, svo
að hinum efnaminstu borgurum
oþnaðist leið til að búa í hinum
nýju húsum, annars myndu þeir
altaf útilokaðir frá því, hversu
mikið, sem bygt væri.
Það er staðreynd, að bygging-
arkostnaðurinn og þar af leið-
andi húsaleigan, er langtum
hærri hjer í bæ en í öðrum kaup-
stöðum landsins. Má af því ráða,
að byggingarkostnaðurinn hjer
muni, af einhverjum ástæðum,
vera óeðlilega hár. Um leið og
tækist að lækka byggingarkostn-
aðinn, væri hægt, að byggja að
sama skapi meira af húsum, án
þess að verja til þess meira fjár-
magni, en gert, hefir verið. Yi5
það myndi skapast nokkur aukin
atvinna, en þó fyrst og fremst
skilyrði til þess, að allur almenn-
ingur gæti búið í viðunandi húsa-
kynnum. Það er takmarkið, sem
keppa ber að í húsnæðismálunum.
★
Hjer að framan hefir verið sýnt
fram á, að tillögur greinarhöf. um
úrlausn vandamála Reykjavíkur-
bæjar eru ýmist skaðlegar, spor
í öfuga átt, eða svo fánýtar, a5
þær myndu að engu raunhæfu
gagni koma. Því miður gefst ekkí
kostur að þessu sinni að ræða
hina alhliða lausn vandamálanna.
En það er óhætt að fullyrða, aS
hún verður ekki fundin, nema því
aðeins, að komist verði fyrir raet-
ur meinsemdanna, sem eru orsök
þeirra.
Hvað snertir málefni bæjanna
út. af fyrir sig, má taka það fram,
að vjer erum frumbýlingar í landl
voru sem bæjarbúar. Skipun
þeirra mála er enn ófullkomin og
vantar fastan grundvöll. Þanu
grundvöll þarf að leggja sem
fyrst m. a. með víðtækri nýrri
löggjöf.
Yona jeg að mjer gefist, áðui1
en langt um líður, tækifæri á að
taka málefni Reykjavíkur til nán-
ari meðferðar, en hjer hefir verið
kostur á.