Morgunblaðið - 03.09.1940, Blaðsíða 7
I»riðjudagur 3. sept. 1940.
MORGUNBLAÐIÐ
'7
Loftárásirnar
PRAMH. AF ANNARI SÍÐU.
iynningar hafa verið birtar um
tjón af þessari árás.
í gærkveldi bárust fregnir
af þýskum flugvjelum víðsveg-
ar yfir Englandi.
í London var gefið merki
um loftárásir 4 sinnum í gær.
HERNAÐAR-
TILKYNNINGARNAR
í hernaðartilkynningu Þjóðverja
í gær er skýrt frá loftárásum,
sem gerðar voru í fyrradag á
Liverpool, Swansea, Chatham og
Bristol. í þýskum fregnum er því
haldið fram að mikið tjón hafi
orðið af loftárásunum á höfnina
í Liverpool undanfarið.
I tilkynningu breska flugmála-
ráðuneytisins er skýrt frá loftá-
rásum, sem gerðar voru í fyrra-
dag norðan frá Emden og suður
til Italíu: M. a. var gerð fyrsta
loftárásin á Miinehen og stóð húu
yfir í 80 mínútur.
Aðrar borgir, sem loftárásir
voru gerðar á, eru: Stuttgart,
Leipzig, Hannover, Ludwigshafen,
Nordenh amn,Cassel, Mannheim,
Turin (Fiat-verksmiðjurnar) og
Morelli Magneto-verksmiðjurnar,
skamt fyrir norðan Milano.
Blaðaummæli
Flugmálafrjettaritari „Times“ rek-
ur í blaðinu í gær loftárásir ÞjóS-
verja um helgina og kemst að þeirri
niðurstöðu, að þær hafi farið siharðn-
undi og komist á eins hátt stig og
þær raunverulega geta komist.
„Það verður að gæta þess, að hark-
«n í loftárásunum takmarkast ekki af
eSru en getu þýska lofthersins, en get-
an takmarkast af þeim viðbúnaði, sem
hann getur haft á þeim flugvöllum,
sem næstir eru Bretlandi. Nú er breski
flugherinn sem óðast að eyðileggja
birgðastöðvar, flugvelli og herbúðir í
NorSur-Frakklandi, eða þar sem þýski
flugherinn heldur sig mest, enda er
það sýnilegt, að viðbúnaður þýska
fulghersins á jörðu niðri er ekki nærri
því eins góður og Þjóðverjar myndu
kjósa. Þýski flugherinn getur því ekki
haft ótakmörkuð not af hinum frönsku
og belgisku flugvöllum og því minni
not, sem loftárásir Breta eru örari
og hæfnari.
Þess ber einnig aS gæta, að tjón
Þjóðverja er ekki allt þar, sem flug-
vjeiatjóniS er, því að margar af flug-
vjelum þeim, sem þátt taka í loft-
árásum á Bretland, eru eftir árásina
orðnar óhæfar til hernaðaraðgerða,
vegna þess hve mjög þær hafa skemmst.
Loks mistu Þjóðverjar aði jafnaði í
síðasta mánuSi 4 flugvjelar fyrir hverja
eina breska, og munar þó því, að vjer
getum notfært oss allar flugvjelar, sem
skotnar eru niður og falla á land
hyort sem þær eru breskar eða þýskar,
þar sem hinar þýsku flugvjelar eru
Þjóðverjum algerlega tapaðar, og enn-
fremur það, að oss hefir tekist að
bjarga miklum hluta áhafnanna úr hin-
j KartOllur j
ágætar, nýar.
Lækkað verð.
vt*m \
Laugaveg 1. Fjölnisveg 2.
b □
si ii^siSEr..,- ia
um bresku flugvjelum, en þeir ÞjóS-
verjar, sem bjargast: eru teknir til
fanga.
Það er því engin furSa, þó að Þjóð-
verjar hafi hvað eftir annaS breytt
um árásarfyrirætlanir og tilhögun árása
enda er nú svo komið, að þótt oss finn-
ist árásimar harðari en í byrjun, þá
er raunverulega um færri flugvjelar að
ræða frá ÞjóSverjum, sem þátt taka
í árásunum, og sýnir það ekki nema
eitt: aS árásimar hafa náð hámarki
sínu, og að hjeSan af geta þær ekki
farið vaxandi að öllu óbreyttu.
Það er athugavert, að Þjóðverjar
leggja nú mjög mikla áherzlu á aS
gera sprengjuárásir á flugvjelaverk-
smiSjur vorar, en sem betur fer hafa
þær árásir ekki tekist betur en aSrar
árásir þeirra. FlugvjelaframleiSsla
vor er óskert og vjer nálgumst það
hröSum skrefum að hafa jafnvígisað-
stöðu við Þjóðverja í lofti. En hvað
sem fjölda flugvjela viðvíkur, þá er
að vissu leyti komin jafnvígisaðstaSa,
að minsta kosti meðan barist er yfir
Bretlandi, því að breski flugherinn
hefir undanfama mánuSi sannað yfir-
burði sína yfir hinn þýska. Hitt er
annað mál, að til þess aS geta aukiS
Íoftárásir vorar á Italíu og Þýska-
land og þvingað þar með óvininn til að
hætta loftárásunum á Bretland, þurfum
vjer fleiri flugvjelar og meira lið —
en ekki betra“.
Valur>Fram vann
Vlkino-K. R. 2:1
Kappleikur Rnattspyrnuráðsins
á sunnudaginn, varð, eins
og flestir bjuggust við , mjög
skemtilegur og vel leikinn. Leik-
ar fóru svo, að Valur—Fram (í
bláum peysum) vann Víking—
K. R. (í rauðum peysum).
Veður var hið ákjósanlegasta
og áhorfendur fjölda margir; mun
þetta vera næst best sótti kapp-
leikur sumarsins.
í fýrri hálfleik höfðu þeir bláu
heldur betur. Þeir voru ljettári,
ena var liði þeirra stilt mjög vel
upp.
Þá rauðu vantaði ekki góða ein-
staklinga, en aðal-gallinn á þeirra
liði var hvernig það var staðsett,.
T. d. í seinni hálfleik þegar tveir
bakverðir (Brandur og Haraldur)
ljeku í framlínunni.
Annars voru liðin afar jöfn og
mátti ekki á milli sjá lengi vel
hvor myndi bera sigur úr býtum.
Mörk þeirra bláu settu þeir Jón
Magnússon (Fram) og Björgúlfur
Baldursson (Val). Mark rauða liðs
ins setti Óli B. (K. R.) eftir send-
ingu frá Haraldi Guðmundssyni.
Þorsteinn Ólafsson (Vík,) ljek
ekki nema fyrir hálfleik sökum
meiðsla á fæti, og Hermann (Val).
fór út af í byrjun seinni hálfleiks.
I stað þeirra komu Einar Páls
(Vík.) ogMagnús Jónsson (Fram).
Ahorfendur fengu það sem þeim
hafði verið lofað, fallegan og
prúðan leik.
Ilinsvegar hafði K. R. R. látið
hafa eftir sjer að meðlimir ráðs-
ins yrðu línuverðir og formaður
dómari. Formaðurinn dæmdi, en
ráðsmennirnir svikust um( að vera
línuverðir. Vívax.
Dagbók
Næturlæknir er í nótt Karl S.
Jónasson, Sóleyjargötu 13. Sími
3925.
Næturvörður er í Reykjavíkur
Apóteki og Lyfjabúðinni Iðunn.
60 ára varð í gær Ásbjörn Páls-
son sjómaður, Brekkustíg 6A.
Hjónaband. 18. ágúst voru gef-
in saman í Kaupmannahöfn Þóra
Jónsdóttir (dóttir J. Jónssonar
læknis) og Jörgen Höberg-Peter-
sen (sonur Petersens fyrv. bíó-
stjóra).
Hjónaefni. Trúlofun sína hafa
opinberað ungfrú Ólafía Gísladótt-
ir verslunarmær og Atli Már Árna
son teiknari.
Hjónaefni. S.l. laugardag opin-
beruðu trúlofun sína ungfrú Sig-
ríður Mýrdal, Lokastíg 2, og Að-
alsteinn Guðmundsson stud. jur.
Knattspyrnumennirnir frá Vest-
mannaeyjum (II. fl.) hafa kept
hjer tvo leiki og unnu þeir fyrri
leikinn, móti Val, með 2:0. í gær
keptu þeir við K. R. og varð jafn-
tefli 0:0. í kvöld keppa Vest-
mannaeyjingarnir þriðja leik sinn
hjer við blandað lið úr Fram og
Víking. Aðgangur að þessum leikj-
um er aðeins 50 aurar og ætti fólk
að fjölmenna á íþróttavöllinn til
að sjá þessa efnilegu knattspyrnu-
menn frá Eyjum.
Sunnudaginn 4. ágúst.s.l. voru
festar upp í Skarðskirkju á Landí
2 ljósastikur, gerðar af Ríkharði
Jónssyni myndhöggvara. Er önnur
yfir prjedikunarstóli, gefin til
minningar um frú Ólafíu Ólafs-
dóttur frá Fellsmúla, konu síra
ófeigs prófasts Vigfússonar, og
hin á súlu hinum megin kórdyra
gegnt prjedikunarstóli, til minn-
ingar um Guðnýju Vigfúsdóttur,
konu Guðna bónda Jónssonar í
Skarði. Báðar þessar konur ljet-
ust í sömu vikunni í s.l. nóvem-
bermánuði og hafði þá önnur ver-
ið prestskona safnaðarins í nær 40
ár og hin húsfreyja staðarins í nær
50 ár. f
Theodór Skúlason læknir, sem
er nýkominn heim frá Danmörku,
hefir opnað lækningastofu í Póst-
hússtræti 7 (Reykjavíkur Apó-
teki). Theodór tók embættisprÓf
við Háskóla íslands 1936, og hefir
síðan stundað framhaldsnám á
sjúkrahúsum í Danmörku. Sjer-
grein hans er lyflæknissjúkdómar.
Lögreglustjóri hefir lagt til við
bæjarráð að komið verði upp úti
símakerfi fyrir lögregluna. Bæj-
arráð frestaði að taka ákvörðun
um þetta þar til næsta fjárhags-
áætlun verður samin.
Örorkubætur. Að gefnu tilefni
skal vakin athygli á því, að allir
þeir, sem sækja um örorkubætur
(fólk 16—67 ára), verða að fá ö'r-
orkuvottorð hjá trúnaðarlækni
Tryggingarstofnunar ríkisins
(Vesturgötu 3, kl. 1—3 síðd.).
Umferðarslys. S.l. laugardag
ivarð maðui’ fyrir ensku mótðT-
hjóli á gatnámótum Hringbrautar
og Suðurgötu. Fjekk hann sár á:
vhnakka og snert af heilahristing.
Maður þessi var Björn Guðmunds-
son, Eiríksgötu 27.
L.v. Ólafur Bjarnason kom til,
Akraness um helgina af síldveið-'
um. Hafði skipið aflað 22.301 mál
síldar (og tunnur í salt). Úthald-
ið var 67 dagar, eða rúmlegá tveir
mánuðir. Hásetahhitur vár UíU*
5000 krónur og mun það' véra
hæsti hásetahlutur, sem þekst hef-
ir á síldveiðaskipi á svona stutt-
um tíma.
Börn, sem dvalið hafa á vegúm
Rauða Kross íslands í sumar að
Laugum í Þingeyjarsýslu á sveita-
heimilum á Norðurlandi, koma tiL
Reykjavíkur fimtudagskvöld þ. 5.
þ. m. Nánari upplýsingar um
komutíma barnanna verða gefnar
á skrifstofu Rauða Krossins seinni
hluta fimtudags þ. 5. þ. m. og í
símum 5063 og 4658. Þess er
vænst, að aðstandendur taki á
móti börnunum. Bílarnir nema
staðar við Hafnarstræti 5.
Til Strandarkirkju. M. O. L. 10
kr. D. J. 20 kr. A. P. J. 10 kr.
M. H. 110 kr. J. G. 10 kr. Ferða-
langur 9 kr.
tJtvarpið í dag:
12.00 Hádegisútvarp.
19.30 Hljómplötur: Lög úr tón-
filmum og óperettum.
20.00 Frjettir.
20.30 Erindi; Trotski (Skúli Þórð
arson magister).
21.00 Hljómplötur: Tónverk eftir
Bach: a) Konsert fyrir tvær
fiðlur (d-moll). b) Píanókon-
sert (d-moll). c) Brandenborg-
arkonsert nr. 1.
21.45 Frjettir.
Nýlendur
Frakka
Nýlendumálaráðh. frönsku
stjórnarinnar í Vichy
skýrði frá því í gær, að Frakk-
ar hefðu undir vopnum stóran
herafla til þess að halda uppi
lögum og reglu í nýlendum sín-
um.
Franska stjórnin hefir borið
á móti því að Mið-Afríkuný-
lendan Gaboon hafi gengið í
íið með de Gaulle.
Akranes-Svignaskarð-Borgarnet
Bílferðir 4 daga vikunnar frá Akranesi eftir komu skip-
anna að morgni: mánudaga, miðvikudaga, föstudaga,
laugardaga.
Ódýrast, best og fljótlegast að ferðast um Akranes
í Borgarf jörð.
MAGNIJS GUNNLAUGSSON, Akranesi.
Jarðarför mannsins míns,
KRISTJÁNS GRÍMSSONAR læknis,
fer fram miðvikudaginn 4. september frá Dómkirkjunni og
hefst með húskveðju að heimili hans, Hverfisgötu 39, kl. 2 e. h.
Bengta Grímsson.
Innilegt þakklæti fyrir auðsýnda hluttekningu við fráfall
og jarðarför
HJÁLMARS EIRÍKSSONAR verslunarstjóra.
Jóna Kristinsdóttir og börn.
Sigurbjörg Pjetursdóttir.
Anna Eiríksdóttir. Haraldur Eiríksson.
Þökkum hjartanlega auðsýnda samúð og hluttekningu við
fráfadtJ og jarðarför okkar hjartkæru
HELGU ESTHER.
Sigurbjörg Þórarinsdóttir.
Anna Magnúsdóttir og Þorgeir Þórðarson.