Morgunblaðið - 30.11.1940, Side 6
I
«
MORGUNBLAÐIL
Laugardagur 30. nóv. 1940.
Minning Fanny Kartz Klahn
Hún var fædd í Hamborg
15. júní 1886. Móðirin
yar á ferð, talaði eitthvert mál
Éem enginn skildi; ferðinni var
haldið áfram, en meybarnið var
gefið auðugum hjónum af gyð-
inga ættum. Æska Fannyar var
þæði blómleg og fögur. Skort-
ur vár enginn og hún naut hinn-
ar ágætustu menntunar, og að
öllu leyti ástríkis fósturforeldra
sinna, sem reyndust henni sem
væri hún þeirra eigið barn.
Hér varð þó breyting á. Þegar
Fanny var 22 ára, þá ljest
fóstra hennar, en rjett fyrir
andlátið ljet hún Fanny vita,
að hún væri fósturbarn henn-
ár aðeins. Nú hafði Fanny þeg-
ar lokið námi á tónlistarskól-
anum og þar að auki fengið
^inkatíma hjá frægustu kenn-
úrum, sem þá voru, svo nú
hafði hún hafið starf sitt og
hlotið mikla aðdáun sem píanó-
leikari, og ljek nú undir hjá
mörgum þektum söngvurum.
Öll blaðaummæli frá þeim
tíma, sem geta um tónleika þá
sem Fanny tók á einn eða ann-
an hátt þátt í, eru mjög á einn
veg um að hún hafi orðið sjer
til mikils sóma. Sjerstaklega
er oft minnst hinnar lipru tækni
hennar og hið hreinlega píanó-
spil. Svona var Fanny líka
sjálf, í öllu hrein, framkoma
hennar og umgengni við alla
menn var svo fáguð, geðsmun-
ir hennar svo prúðir, jeg ýki
það ekki, ef jeg fullyrði, að
henni sinnaðist aldrei við nokk-
urn mann, þetta segi jeg af
reynlsu, eftir að hafa verið
sumpart samverkamaður Fann-
yar, og hafa þekt hana vel í
15 ár.
Árið 1925 kom Fanny inn á
annað svið tónlistarinnar, þar
■sem hún kyntist hr. Albert
_
Klahn. Á þeim árum stóð þann-
ig á fyrir honum, að örlögin
Ijeku þennan þátt lífs hans á
annan hátt en ætlað var, og
Teyndist Fanny honum sem besti
vínur í raun. Þau giftust 29.
nóv. 1930. Mjer er vel kunn-
ugt um að Klahn ber mjög
letningarfult þakklæti í hjarta
til konu sinnar fyrir samver-
una. Hún var manni sínum;
skær stjarna, sem vísaði hon-
um leiðina út úr þokunni. Hún
var óskift og hennar æðsta un-
un var að veita öðrum og gefa,
alt gaf hún af öllu hjarta. —
Hinar löngu og þungu þján-
ingar sínar bar hún svo undur-
samlega vel, og þegar hún tal-
Fanny Klahn.
aði um þær, v^’ það í frásagn-
artón, en ekki’ kvörtunar.
Áfanginn er nú á enda, —
hingað kom hún á ferð, þján-
ingunum er lokið, hin mikla
ferð heldur nú áfram. Hún
kvaddi rólega sátt við alla, sá
að ferðin var undirbúin, og
mjer virðist að vel mætti lesa
úr augum hennar, áður 6n þau
brustu, þessi orð skáldsins:
Gute Nacht, ihr Freunde, ach
wie lebte iéh gern
Dass die Welt so schön ist,
dankte ich Gott dem Herrn.
Meine Lust ist Leben,
doch sein Will’ gescheh’, dass
*’ ich schlafen geh’!
Við mennirnir skiljumst hjer
aðeins stutt andartak; okkur
setur hljóða, og undrandi ó-
svöruð spurning er á vörum
okkar, én það mun stafa af því
að við erum of skamt á veg
komnir enn til að skynja hrað-
flug tímans og mikilleik ei-
lífðarinn^r.
29. nóv. 1940.
Þórh. Árnason.
Franski herinn mink-
aður í 100.000 manns
A merískir frjettaritarar í
Berlín síma blöðum sín-
um í gær að Þjóðverjar munu
krefjast þess af Vichy stjórn-
inni, að hún minki fastaher
sinn í 100.000 manns.
Ekki er tekið fram hve stór
nýlenduher Frakka megi vera.
Eins og kunnugt er var fasta
her Þjóðverja eftir síðustu
heimsstyrjöld ákveðin 100.000
manns.
Enn fremur telja amerískir
frjettaritarar í Berlín að Þjóð-
verjar krefjist þess að Frakk-
ar afvo^nist á öðrum sviðum
í sama hlutfalli og fastaher-
inn verður minkaður.
Kanpl og «el allskonar
verðbrfef og Ittsteflgnflr.
TH viðtals kl. 10—12 alla virka daga og endranær eftir
aamkomulagi. — Símar 4400 og 3442.
GARÐAR ÞORSTEINSSON.
DANSLEIK
heldur West Yorks laugardaginn 30. nov. að Hálogalandi
frá kl. 7.30—11.30. — Aðgangur ókeypis.
Dömur og vinir eru velkomnir.
Bílar verða til taks til Reykjavíkur þegar dansleiknum
lýkur.
Rafmagnið
FRAMH. AF ÞBIÐJU SÍÐU.
tíminn, sem bægt er að fram-
kvæma á viðgerð háspennu-
strengja.
— Þjer sögðuð, að Rafmagns-
veituna vantaði nýja spenna, verð-
ur ekki hægt að ráða bót á því?
— Þegar eftir að sýnt var, að
vandkvæði yrðu á að fá afgreidda
efnispöntun frá Danmörku og Sví-
þjóð, voru pantaðir nýir spemiar
frá Englandi. Þeir áttu að koma
í september, en afgreiðsla þeirra
hefir dregist mjög á langinn, Síð-
ast var þeim lofað með Brúarfossi
nú fyrir viku, en þetta brást. Eu
nú er gert ráð fjrrir, að þeir komi
með næstu skipum frá Englandi
og við vonum, að það bregðist
ekki.
f haust hafa farið fram þær
endurbætur annarsstaðar á raf-
taugakerfinu innanbæjar, að ggrt
er ráð fyrir að hægt verði að
mæta því álagi sem mest verður
í vetur. Enda æfti álagið að vera
komið á hástig um þetta leýti, að
uhdanskilinni jólavikunni, seih alÞ
af hefir verið áiagabæsta vika árs-
ins. Veltur því á miklu, að sþenn-
ar og raftæki þau, sem pöntuð
hafa verið, komi í tæka tíð, svo
tími vinnist til að koma þeim upp.
— Er fleira að geta í sambandi
við þetta mál?
— Geta má þess að lokum, segir
Steingrímur rafmagnsstjóri, að
upp á síðkastið hafa veríð tíðar
bilanir á stofnvörum húsa. Stafa
þær yfirleitt af því, að of mikið
er lagt á stofntaug hússins. Hús-
eigendur athuga ekki, að láta setja
gildari stofntaug, þegar notkunin
í húsinu eykst. Vörin í stofnvars-
kössum húsanna, s.em Rafmagns-
veitan .4 og annast viðhald á, mið-
ast eingöngu við gildleika stofn-
taugarinnar. Þau verða ekki
stækkuð nema gildari taug verði
sett í stað þeirrar gömlu. Þetta
þurfa húseigendur að athuga.
Rúmenía
FRAMH. AF ANNARI SÍÐU.
væru aðeins örfáir hrjálaðir menn,
sem stæðu fyrir þessum hryðju-
verkum, en rúmenska þjóðin hefði
fyrirlitningu á verknaði þeirra og
öllu athæfi.
í 2000 ár, sagði Tilea sendiherra,
hefir Rúmeníá Verið á krossgötum
flestra innrásarherja í álfunni, en
rúmenska þjóðin hefir jafnáh rfs-'
ið upp á riý þótt hún hafi véfið
fjötruð í bönd ófrelsis um stund.
Þannig mun og einnig verða nú.
Níutíu og níu af hverjum hundr-
að allra Rúmena vonast eftir og
biðja fyrir sigri Breta, því að
rúmenska þjóðin veit, að aðeins
ef Bretar sigra þá er sjálfstgpöi
hennar trygt. >
Rúhaenska þjóðin mun nú sem
fyr standast þær raunir, sem á
hana eru lagðar og sigrast á erfið-
ieikunum, og verða á ný tekin í
tölu siðaðra þjóða í Evrópu.
Það varð kunnugt í London í
gær, að meiri hluti starfsmanna
rúmensku sendisveitarinnar í Lond
on hefir sent rúmensku stjórninni
orð og tilkynt að þeir muni láta
af 'embættum vegna atburðanna í
Rúmeníu undanfarna daga.
• B KJ£F •
Málaleitan Veitingamanna
fjelags Reykjavíkur
Herra ritstjóri!
¥ vrir nokkru síðan las jeg eftir-
* farandi tilkynningu í einu ar
daghlöðum bæjarins :
„Veitingamannaf jelag Reykja-
víkur hefir sent bæjarráði erindi,
þar sem farið er fram á, að bæ.j-
arstjórn dragi að sjer hendina,
um að veita meðmæli til veitinga
levfa“.
Þannig hljóðaði þessi tilkynn-
ing.
En þetta varð til þess að jeg
fór að grenslast eftir hvaða fje-
lagsskapur þetta væri, og niður-
staðan Varð sú, að hjer ætti hlut
að máli fjelagsskapur veitinga-
manrík þeirra, er allflestir hafa
risið upp eins og gorkúlur á haug,
síðan breska setnliðið kom hjer til
landsins, s.l. vor. Enda þó'tt þarna
kunni að vera einhverjai- undan-
tekningar.
Jeg hefi át-t tal við menn, sem
erú í hinu éiginlega fagfjelagi
veitingamanna og kannast þeir
ekkert við þenna fjelagsskap, það
kemur því úr hörðustu átt, þegar
þessir mehn fara fram á að bæj-
arstjórn haldi hlífiskildi 'ýfir fje-
lagsskap þeirra, með því að tak-
marka veitingaleyfi framvegis.
Undanfarin ár hefir Matsveina-
og veitingaþjónafjelág íslánds
beitt sjer fyrir því að hjer á laridi
risi uþp stjett matsveiha óg veit-
ingaþjóna, sem værn starfi sínu
vaxnir, og nú er svo vel á veg
komið að f.jeiag vort er komið inn
í Iðnsambandið, og mU'ii því senn
líða að því, að nemendur í þessum
fögum gangi í Tðnskóla og útskrif-
ist þaðan sem sveinar.
Eftir að þeir hafa unnið að
veitinga- og matsveinastörfum það
lengi að þeir hafi öðlast meistara-
rjettindi, þá eru það að sjálf-
sögðu þeir, sem eiga að fá veit-
ingaleyfi, en ekki menn á borð
við þá sem standa að veitinga-
mannafjelagi því, sem nú rekur
meginþorra þeirra staða er eiga
alt sitt líf undir breska setuliðinu.
Þetta vona jeg að háttvirt bæj-
arráð athugi áður en það tekur
tillit til óska fyrnefnds fjelags-
skapar.
Þá hefi jeg einnig heyrt að þau
veitingaleyfi, sem nú hafa verið lát
ih í tjé, sjeu því skilyrði bundin,
að þau falli niður þegar „ástand-
ið“ bréytist. Það er, að þau
falli niður þegar setuliðið hverfur
á brott hjeðan, hveriær sem það
verður. Ef svo er, þá má segja að
bæjarstjórn hafi farið skynsam-
lega leið í þessum málum.
Þegar Álþingi kemur saman
næst,' vomirv jeg að M. Vf F. í.
vinni að því ,að frumvarp til laga
um þessi efni verði flutt í þing-
inu, og er jeg ekki í neinum vafa
um að það nái fram að ganga.
Og ætti þá þessi fjelagsskapur
hinna svokölluðu veitingamanna,
sem nú ákallar bæjarstjórn um
vernd sjer til handa, að falla um
sjálfan sig. Því það er til lítils
fyrir okkur, sem erum fjélagar í
M. V. F. í. að berjast f nr meiri
| að loknu námi ætti að leggja
hindranir á braut okkar, er við
vildum reyna að koma á fót s.jálf-
stæðum atvinnurekstri í iðn okk-
ar. Stgr. Jóh.
Bætt samvinna
með Rússum og
Bandaríkja-
mönnum
Sumner Wells, aðstoðarutan-
ríkismálaráðherra Banda-
ríkjanna ljet svo um mælt í
gærkveldi, að viðtöl hans og
sendiherra Rússa í Washingtoii
s. 1. miðvikudag hefðu farið
fram í mesta bróðerni og að
fram hafi komið í samtölunum
gagnkvæmur skilningur á hags-
munum og þörfum Rússa og
Bandaríkjamanna.
Sumner Wells sagði að á-
kvörðun Bandaríkjanna, að
hafa fastan verslunarfulltrúa í
Vladivostock myndi hafa í för
með sjer aukin verslunarvið-
skifti milli Rússa og Banda-
ríkjamanna.
Ráðherrann sagði, að annar
viðræðufundur væri ákveðinn
mjög bráðlega milli sín og
sendiherra Rússa.
de Gaulle
FRAMH. AF ANNARI SÍÐU
Hann hvatti alla Frakka til
að halda baráttunni gegn Þjóð-
verjum áfram og ljet í ljósi ör-
ugga sigurvon. Hann sagði, að
hugsjón sín og þeirra manna,
sem berðust áfram væri að
vinna svo vel að sigri banda-
manna, að hægt væri að segja
að leikslokum að Frakkar hefðu
átt sinn þátt í sigrinum.
Grikkland
FRAMH. AF ANNARI SÍÐU.
Miðjarðarhafi og í Afríku undan-
farma daga. Hafa það aðallega verið
flugvjelar flotans, sem gert hafa árás-
imar með aðstoð herskipa. Gerð var
árás á hafnarborg á Tólfeyjunum, á
Triopolis og á hafnarborg í Eritreu.
Telja Bretar mikla árangra hafa náðst
í árásum þessum.
f minningargreininni um Ólaf
heitinn Einarsson í Morgunblaðinu
í gær, var sagt að Ólafur hefði
andast að IGárðbæ í Hafnarfirði,
en' átti að vera Höfnum.
Leikfjelag Reykjavíkur biður
biaðið að vekja at.hygli á því að
„Loginn helgi“ verður sýndur kl.
3 á morgun. Annað kvöld verður
engin sýning.