Morgunblaðið - 07.12.1940, Side 3
Laugardagur 7. des. 1940
MORGUNBLAÐIÐ
„Einhversstað-
ar i íslandi"
Krabbamein önnur hæsta
dauðaorsökin hjer á landi
Næsti háskólafyrir-
lestur á morgun
FlugiO I núvem
ber: 19 þúsum
kllómetrar
Hringferð kring um
land á 7 klst. 10 min.
Inóvembermánuði flugu ís-
lensku flugvjelarnar, „örn“
(landvjelin) og „Haföminn“
(sjóflugvjelin) 19 þús. kílóm.
Þegar tekið er tillit til tíðar-
farsins og þess, hve dagur er
skammur um þetta leyti árs,
verður sjeð hve góður árangur
þetta er.
Samtals voru flugvjelarnar
96 klst. í loftinu, þar af sjó-
flugvjelin í 56 klst. og land-
flugvjelin í 40 klst.
Saintals voru farnar 15 ferð-
ir til Norðurlands, báðar leiðir,
4 ferðir til Austurlánds, báðar
leiðir, 2 ferðir til Vesturlands,
báðar leiðir og ein hringferð
kringum land.
Hringferðin kringum land
var farin á einum og sama deg-
inum, á 7 klst. og 10 mín. (flug-
tími). Leiðin, sem farin var, var
frá Reykjavík til Hafnar í
Hornafirði, þaðan til Egilsstaða,
síðan til Akureyrar og þaðan
til Reykjavíkur.
Flugmennirnir í vjelunum eru
Örn Johnson og Sigurður Jóns-
Mynd þéssi hefir verið birt í blöðum út um heim, og er hún
tekin af breskri vjelaherdeild „einhversstaðar á fslandi“.
son.
Gjafirnar frá
nýlendanttm o. fl.
■^að var tilkynt í London í gær,
að gjafir þær, sem Bretum
hefði borist frá nýlendum sínum,
furstum og þjóðhöfðingjum í
breska heimsveldinu og fleirum,
ræmu 17.890.000 sterlingspundum.
starfar þrátt fyrír
u
Hópur lærðra svifflug-
manna stækkar
SVIFFLUGFJELAG ÍSLANDS hefir haldið á-
fram störfum í ár þrátt fyrir ýmsa aðsteðj-
andi örðugleika.
Flugskýli þess á Sandskeiði var hemumið, verkstæði þess og
fundasalur hernuminn, geymslnrúm þess við Skerjafjörð hernumið.
Sandskeiðið úr lagi fært. Allan míðhlúta sumaráins vár því ekki hægt
að stunda flugæfingar.
Þó hurfu Bretar síðar meir úr flugskýlinu, og vár þá fárið að
hugsa til starfs á ný.
Nokkrar helgar unnu svifflug-
menn við flugskýlið á Sand-
skeiðinu við málun og aðrar
lagfæringar á skýlinu. Og síðan
var farið að prófa Sandskeiðið á
ný — þrátt fyrir minniháttar jarð-
rask, sem gert hafði verið — og
reyndist fært að hafa þar æfing-
ar. Síðan hefir verið æft af kappi
um hverja helgi, þegar veður, hef-
ir leyft, og árangurinn orðið eftir
því.
Þessi próf hafa verið tekin það
sem af er þesu ári:
A-próf; Hörður Jónsson, BjÖrg-
vin Ingihergsson, AtÍi Ólafsson,
Skúli Pedersen, Guðm. Bjarnason
og Magnús Guðbrandsson. Þannig
hafa 6 lokið fyrsta prófi á árinu,
en 35 frá stofnun fjelagsins.
B-próf: Ragnar Einarsson, Hörð
ur Jónsson, Hallgrímnr Hallgríms-
son og Halldór Sigurjónsson, eða
4 alls, og er þá lokið 15 B-prófum
frá upphafi.
C-próf: Sigurður Ólafsson, Krist
FRAMH. Á SJÖTTD SÍÐTJ
Vestmaonaeyjastúlk-
urnar unnu Hafnar-
fjarOarstúlkurnar
Handknattleikskepni fór fram
í íþróttahúsi Jóns Þor-
steinssonar í gærkvöldi og keptu
II. fl. Vals og Víkings. Leikar
fóru svo, að Valur vann með 19
mörkum gegn 18 eftir fjörugan
og skemtilegan leik.
, Vestmannaeyjastúlkurnar, sem
ern hjer gestir í bænum, kepta
við stúlkur frá Haukum í Hafn-
arfirði og unnu Vestmannaeyja-
stúlkurnar með 17 mörkum gegn
4. —
Næst verður kept á mánudags-
kvöld og keppa þá II. fl. Ár-
manns og Hauka í Hafnarfirði
og Vestmannaeyja stúlkurnar
aftur við stúlkur úr Ármanni.
Samtal við Guðmund Thorodd-
sen prófessor
AMORGUN kl. 2.15 flytur prófessor Guðmund-
ur Thoroddsen fyrirlestur í hátíðasal Háskól-
ans, um krabbamein. Er þetta þriðji háskóla-
fyrirlesturinn fyrir almenning, sem próf^ssorarnir flytja.
Efni þessa fyrirlesturs próf. Guðm. Thoroddsen á áréiðan-
lega erindi til almennings, ekki síður en hin fyrri.
r— Hvað verður aðalefni í
fyrirlestri yðar?, spurðum vjer
Guðmund Thoroddsen í gær.
— Jeg mun fyrst tala um
krabbaihein alment, svaraði
prófessorinn. Á seinn árum hef-
ir dánartalan alment verið að
lækka og hún hefir einnig lækk-
að mikið hjer á landi. En um
krabbameinið er það að segja,
að þar hefir dánartalan ekki
lækkað hjer á landi, heldur
frekar hækkað, og ekki ein-
göngu þannig, að mannslátin
eru fleiri, heldur einnig í hlut-
falli við fólksfjölgunina.
— Hvar er krabbameinið í
tölu dánarmeina hjá okkur?
— Það er nr. 2 í röðinni, eða
næst á eftir ellihrumleika. —
Lengi var berklaveikin nr. 2,
en dauðinn af hennar völdum
hefir nú minkað verulega,senni-
lega vegna róttækra aðgerða
okkar sjálfra.
— Hver myndi vera ástæðan
fyrir því, að krabbameinið virð-
ist færast í aukana?
— Því er ekki gott að svara.
Meira segja verður ekkert full-
yrt um það, hvort krabbamein-
ið er að færast í aukana. Hin
aukna dánartala getur legið í
öðru, t. d. því, að nú finna
menn miklu meira af krabba-
meinum en áður, læknarnir eru
fleiri, greiðari aðgangur að ná
til læknanna, betri og fullkomn-
ari tæki til rannsókna. — Mjer
þykir sennilegast, að hin aukna
dánartala stafi af því, að nú
eru miklu fleiri, sem komast á
krabbameinsaldurinn.
Það, sem aðallega hefir lækk-
að dánartöluna alment er, að
nú þekkja menn farsóttir og
smitunarleiðir þeirra. En um
krabbameinið er hinsvegar það
að segja, að menn vita ekkert
af hverju það stafar.
— Hver er krabbameinsald-
urinn?
1 — Hann er talinn byrja með
fimtugsaldrinum.
— Breytt mataræði, kynni
það að hafa áhrif?
— Við vitum svo lítið um
orsakir krabbameins. Breyting
á mataræði hefir oft verið
FSAMH. Á 8JÖTTU SÖ)U
Guðmundur Thoroddsen.
' • • • ■ '• . .. :)ii :; ';•; V'.rl
Tveir menn kosnir
í sóknarnefnd dóm-
Tveir meún voru kosnir í sókn-
arnefnd dómkirkjusafnaðar-
ins á. safnaðarfundi í gærkvöldi.
Kosningu hlntu Knud Zimsen,
fyrv. borgarstjóri, fjekk 108 at-
kvæði og Markús Sigurðsson trje-
smiður, sem fjekk 107 atkv.
Kosið var í stað þeirra Pjeturs
heit. Halldórssonar og Sigur-
björns Þorkelssonar, sem nú er í
sóknarnefnd Hallgrímssóknár. Er
fundnr hófst mintist oddviti sókn-
arnefndar, Sigurbjörn Á. Gíslason,
Pjeturs Halldórssonar og, mintist
þess, að hann hefði átt, sætií
sóknarnefnd næst lengsú, allra
sóknarnefndina, eða 1 24%
ár. Risn fundarmenn úr sætum
sínum til heiðnrs hinum látna
merkismanni.
Sigurhjörn Þorkelsson hefir átt
sæti í sóknarnefnd í 23% ár, , en
lengst hefir Signrbjörn Á. Gísla-
son verið í sóknarnefndinni, eða
32 ár alls.
Að kosningnnni lokinni var tek-
in fyrir tillagai frá sóknarmefnd
nm að hækka; safnaðargjöld nm
kr. 2.25. Eftir nokkrar umræður
var samþykt að fresta málinu.i
Loks flutti Sigurbjörn. Á. Gísla-
son fróðlegt erindi um fyrri
prestskosningar í Reykjavík.