Morgunblaðið - 07.12.1940, Side 4
4
MORGUNBLAÐIÐ
Laugardagur 7. des. 194&.
*,«immimmimmiimmimmiiiiinuiminmuumiunuiiH'’
BÆKUR
imrnmmmmtmn
Verið þjer sælir,
herra Chips
James Hilton: Verið þjer
sælir, herra Chips.
Iþessari stuttu skáldsögu eru
engin veruleg straumbrot,
■engin liarðsnúin átcik milli ills og
góðs, engar stórbrotnar mannlífs-
lýsingar, engar hrikalegar, raun-
Jiæfar þjóðfjelagsmyndir nje held-
ur umrót mikilla viðburða. Hjer
eru menn ékki lagðir á skurðar-
borðið og krufðir, án allrar misk-
unnar. Iljer er ekki gengið uin
afkima mannlegs sálarlífs með
skæra skriðbyttu í hendi, og því
síður flogið um heima og geima
á vængjum skáldlegs hugmynda-
flugs. Lesandinn er hvorki stadd-
ar á víðáttiynikluni flatneskjum
eða háum gnæfitindum, því að
svið sögunnar er afar þröngt. Það
er ýmist lrenslustofa í mentaskól-
anum í Brookfield eða herbergi
eins kennarans, herra Chipping’s,
eða Chips, eins og hann er venju-
lega kallaður. Haipi er aðalper-
sónan á leiksviðinu. Hann situr
við arininn með bók í hendi, en
sofnar oftast út frá lestrinum. A
veggjunum hanga myndir af Acro-
polis og Forum, en latneskar
•skræður og grískar lig'gja eins og
hráviði í kringum gamla mann-
inn. Br hann, þá ekki uppþornað-
nr og skorpinn eftir áratuga grúsk
í dauðum bókstaf? Nei, því fer
fjarri. Karlinn er bráðlifandi og
hinn skemtilegasti fram í andlátið.
Hann kærir sig kollóttan um ný-
tísku kensluaðferðir og hvikar
ekki frá venjum sínum, en honum
þykir innilega vænt um nemend-
urna og lífgar hinn dauða bók-
staf með fvndni sinni og kýmni. —
Og nemendurnir elska hann og
virða, þótt }>eir hermi óspart eftir
honum og hendi gaman að hinum
sjerkennilegu kækjum hans. • —
Herra Chips er íhaldssamur í skoð-
unum og vanafastur, en hann er
manna heiðarlegastur og laus við
allan loddaraskap. Valdafíkn á
hann ekki til og aldrei reynir
hann að skara eldi að sinni köku.
Hann er ekki umsvifagjarn, og líi’
hans líður áfram, kyrt og lygnt.
I rauninni bráðnar silfrið í skap-
gerð lians aðeins einu sinni og
endurmótast að nokkru leyti.
Hann er þá fjörutíu og átta ára
gamall og verður ástfanginn af
kornungri kenslukonu. Hún er
gáfaðri en hann og andstæð hin-
um steinrunnu skoðunum lians,
svo að ferskur blær berst loks
inn í hið latneska andrúmsloft
skólakennarans. En sambúð þeirra
verður ekki löng: Unga konan
deyr af barnsförum, en endur-
minningin um hana lifir og hefir
varanleg álirif á líf hans.
„Verið þjer sælir, herra Chipsil
er ekki stórbrotið skáldverk, býr
ekki yfir neinum óvenjulegum list-
rænum töfrum og ristir hvergi
djúpt. En hinu verður ekki neit-
að, að sagan er hugþekk og
skemtileg, svo að Chips gamli
verður lesandanum furðu minnis-
stæður: Lýsingin á honum er bæði
sönn og lifandi.
Bogi Ólafsson yfirkennari hefir
íslenskað bókina, og mál hans er
vfirleitt vandað og gott. Þó er
ekki laust við, að hinn persónu-
legi stíll höfundarins verði stund-
um fyrir nokkurri ágengni af hin-
um persónulega stíl þýðandans.
Ó. J. S.
Minning Sæmundar Halldórs-
sonar, kaupm. í Stykkishólmi
Sæmundur Ilalldórsson, kaup-
maður í Stykkishólmi, verð-
ur jarðsunginn í dag. Hann var
fæddur á Búðum á Snæfellsnesi 3.
desember 1861 og var því nærri
79 ára gamall þegar hann ljest 28.
f. m. — Faðir Sæmundar var Hall-
dór sonur Sæmundar Guðmunds-
sonar prests á Staðastað, Jónsson-
ar, en móðir hans var Guðrún
dóttir Sæmundar skipasmiðs, ^ sem
var sonur Sigurðar stúdents í
Geitareyjum, en sá ættbálkur eru
hinir svokölluðu Geiteyingar, sem
mann fram af manni hafa verið
annálaðir hraustleika- og atgervis-
menn, þjóðhagasmiðir og glæsi-
menni. — Halldór föður sinn misti
Sæmundur þegar hann var á 3.
árinu. Hann druknaði í Faxaflóa
á leið frá Búðum til Reykjavíkur.
Ilalldór var smiður og hafði dval-
ið í Danmörku til frekara náms
og var það ótítt um unga hand-
verksmenn á þeim dögum, en þar
var hann í skjóli föðurbróður
síns, hins mæta manns síra Þor-
geirs í Glólundi, sem Jónas Hall-
grímsson orti til hið fræga kvæði
sitt „Nú er vetur úr bæ o.s.frv.“.
— Það má segja um Sæmund, að
hann væri af traustustu stofnum
Islendinga kominn í allar ættir,
enda bar hann það með sjer. —
Eftir að Sæmundur hafði mist
föður sinn, ólst hann upp með
móður sinni, madömu Guðrúnu, —
svo var hún ávalt titluð eins og
hefðarkonu sæmdi, en madama
Guðrún var sannkölluð hefðarkona
í sjón og reynd. Hún var gáfuð
og góð, og betra verður ekki sagt
um neina konu. Þegar Sæmundur
óx og stálpaðist kom brátt í Ijós,
að hann bar af jafnöldrum sínum
að andlegu og líkamlegu atgjörfi
svo að til var tekið, og á unga
aldri komst hann í þjónustu Hol-
Mjaðveig Mánadóltir
er fólabók barnanna í ár.
Fæst hjá bóksölum.
Sæmundur Halldórsson.
ger Clausen kaupmanus, sem þá
var búsettur á Búðum og upp frá
því skyldu ekki leiðir þeirra fyr
en Sæmundur bvrjaði verslun
í Stykkishólmi á árinu 1892, —
en þá hafði hann tveim árum áður
gifst heitmey sinni Magðalenu,
dóttur Sören Hjaltalín í Stykkis-
hólmi, og hjeldu þau gullbrúð-
kaup sitt nokkrum dögum áður en
Sæmundur dó. — Hjónaband
þeirra var sönn fyrirmynd að ást-
úð og eindrægni. Þrjú börn eign-
uðust þau, en mistu elsta son sinn,
Gunnar, fyrir nokkrum árum. Hin
eru Ebba Richardson, gift banka-
manni í London, og Ragnar, skrif-
stofumaður hjá Eimskipaf jelagi ís-
lauds í Reykjavík.
Sæmundi varð fljótt vel til við-
skifta þegar hann hóf verslun
sína, enda jókst hún og dafnaði
með hverju ári, svo að hún varð
ein með stærri ^ erslunum á Vest-
urlandi. Samhliða versluninni rak
hann líka talsverða þilskipaútgerð
á tímabili og veitti þá mörgum
atvinnu. —
Sæmundur var samviskusamur
maður og grandvar í allri fram-
komu og því var það að líkindum
að hann ávann sjer mikið traust
samborgara sinna og því hlóðust
á hann flest trúnaðarstörf þess
opinbera. Hann var í hreppsnefnd
Stykkishólms og sýslunefnd full
20 ár og svo var hann amtsráðs-
maður meðan þær stofnanir stóðu.
í stjórn Sparisjóðs Stykkishólms
var hann á þriðja tug ára og var
einn af stofnendum hans. — Það
má með sanni segja, að Sæmund-
ur var einn þeirra þjóðfjelagsborg-
ara, sem hafði einlægan vilja til
þess að rækja þannig skyldur sín-
ar að þar væri hvergi á blettur
eða hrukka, — haún mátti eklti
vamm sitt vita. — En slíkir menn
eiga kröfu til viðurkenningar þess
opinbera, enda fjell hún Sæmundi
í skaut. Hann var sæmdur heið-
ursmerki Dannebrogsriddara og
Fálkaorðunnar, en það var þó
ekki eina viðurkenningin, sem
honum hlotnaðist. — Sæmundur
vann sjer óskorað traust þeirra,
sem hann varð samferða í lífinu
og kom það best fram þegar þau
hjónin hjeldu gullbrúðkaup sitt.
Þá sýndu vinir þeirra þeim þá
ástúð og hlýju, að órækur vottur
var, virðingar og viðurkenningar.
Það hefir oft verið sagt um
Stykkishólm að bæjarbragur þar
stæði á fornri menningu, enda seg-
ir prófessor Sigurður Nordal þa5
pm staðinn í minningargrein, sem
hann skrifaði fyrir skömmu nni
merka konu „að þar væri meiri
menningarbragur en víðast hvar
annarsstaðar á ísl., Mbýlaprýði og
samkvæmislíf með talsverðu Ev-
rópusniði, en aðdrættir og bú-
sýsla að íslenskum stórbýlahátt-
um‘ ‘. — Þetta er hverju orði sann-
ara, en eitt þessara heimila var
heimili Sæmundar Halldórssonar.
Það vita þeir best, sem til þekkja.
Jeg ætla ekki hjer að.fara a5
lýsa rausn, höfðingsskap og ein-
lægri góðvild húsbændanna, sem
þar hefir ávalt setið í öndvegi. —
Jeg hefi dvalið á þessu höfðings-
heimili í 15 ár' og gæti því best
um dæmt. — Heimilið var sann-
kallaður kastali friðsældar og á-
nægju. —
Sæmundur var einstakt snyrti-
menni í allri framkomu og reglu-
samur um alla hluti. í þjónustn
hans voru alla tíð margir ungir
menn ,en það var haft á orði, aJ5
allir mótuðust þeir meira og minna
af húsbónda sínum, isem var fram-
úrskarandi stjórnsamur og harð-
ur í kröfum um reglusemi alla.
Það þótti happ að, komast í þjón-
ustu hans, enda varð dvöliri þeim
þar flestum meiri ávinningur, en
löng skólaganga.
Ef jeg ætti að fara að lýsa Sæ-
mundi persónulega, þá býst jeg
við að honum hefði verið um ge5
að það væri gert í mörgum orðum,
en það vil jeg segja, að hann var
einstaklega góðgjarn heiðursmað-
ur, sem vildi ávalt, verða öðrum
að liði, og hvað þarf að segja
meira gott um hann? Er þetta
ekki nóg? Þegar það er satt og
sagt af manni, sem þekti hann
eins vel og jeg gerði. —
Jeg bið að lokum Guð að senda
frú Magðalenu styrk í sorg henn-
ar og eins bið jeg hann að hald-t
hendi sinni yfir ástvinum hennar,
en við blesssum öll minningn
gamla mannsins, sem dó rólegur
og í sátt við alla menn. 0. C.
■s
Flórsvkur.
Succat.
Kokosmjöl.
Möndlur heilar.
Möndlur hakkaðar.
VHIIi
Laugaveg 1. Fjölnisveg 2.
Q BB^ai issisa maaaammm m
Eigoin
Grettisgata 54B
með tilheyrandi eignarlóð, er til
sölu. Söluverð kr. 15.000.00. Út-
borgun kr. 5000.00.
Nánari upplýsingar gefur
Guðlaugur Þorláksson,
Austurstræti 7. — Sími 2002.