Morgunblaðið - 01.03.1941, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 01.03.1941, Blaðsíða 2
1 2 MORGUNBLAÐIÐ Laugardagur 1. mars. 1941. Búlgarar gerast aðilar að þrívelda sáttmálanum í dag Petain beygði sig fyrir Japönum „í þágu friðarins“ Heimsókn Edens í Tyrkiand breytti fyrirætlunum Þjóðverja Bn hafði áður beygt Japani örlitið STJÓRNIN 1 VICHY hefir, „í þágu friðarins“, fallist „í grundvallaratriðum‘‘ á málamiðlunar- tillögur Japana í deilum Indo-Kína og Thai- iands. Áður hafði stjórnin í Thailand fallist á tillogurnar skilyrðislaust. Fregnin um ákvörðun Vichystjórnarinnar barst ekki til Tokio, fyr en nokkru eftir miðnætti, skv. japönskum tíma, en Japanar höfðu lýst yfir því, að ef þeir hefðu ekki íengið af- dáttarlaust svar, já eða neið, fyrir miðnætti á föstudag, þá neyddust þeir tii að grípa til „ofbeldisráðstafana“. En þegar ekkert bólaði á svari Frakka síðdegis í gær, fóru Japanar að draga úr of- beldishótunum sinum (segir í fregn frá London). Þeir sögðu að þeir ætluðu að boða fulltrúa Frakka á fund sinn á laugar- dagsmorgun og gefa þeim kost á að gera grein fyrir því, hvers vegna þeir hefðu ekki svarað. Og síðan var því bætt við, að „ofbeldisráðstafanimar" myndu ekki undir neinum kring umstæðum hefjast fyr en eftir að vopnahljesfresturinn, sem nýlega var framlengdur um 10 daga, væri útrunninn (þ. e. G. mars). Stjórnin í Vichy kom ekki saman til þess að ræða /■ horfurnar í Austur-Asíu fyr en síðdegis í gær, en þá var liðið fram yfir mið- nætti í Tokio. í opinberri tilkynningu, sem birt var eftir fundinn, er skýrt frá því, áð stjórnin hafi ,,í þágu friðarins" fallist á að láta af hendi auk landamærahjerað- anria, sem hún hefði þegar géngið inn á að afsala sjer, nokkrum hlutá Kamboliahjer- aðsins. En fram til þessa hefir sú skoðun verið algerlega ráð- andi í Vichy, að ekki kæmi til mála að Játa af hendi nokkra sjneið af Kamboliá. Höri loftðrás ð Malta Hörð loftárás var gerð á eyna Malta í gær (skv. fregn frá London). Sprengjur, sem fjellu á eyna, ollu allmikíu eignatjóni og nokkru manntjóni. Um 2Ó0 mánns úrðu húsnæðislausir. M. a. voru tvær kirbjur hæfðar og eitt klaustur. Alfonso fyrv. Spán- arkoniingiir látinn A lfons 13., fyrv. Spánarkonung- ur, andaðist í gær í útlegð í Rómaborg, 54 ára að aldri. Alfonso hafði setið að ríkjiun í 29 ár, er lýðræðisflokkarnir á Spáni sigruðust á einræði Primo de Ríveras árið 1931, og neyddu um leið Alfonso konung til þess að flýja úr landi. Hefir Alfons síðan bfað í iítlegð, fyrst í París, en síðan í Rómaborg, en þar tók hann sjer fast aðsetur. Alfonso liafði fyrir npkkru af- salað sjer konungstign í hendur sonarsonar síns. Alfonso átti alla stjómartíð sína við miklar innanlandserjur að búa, og var honum t. d. sýnt banatilræði 8 sinnum, á meðan hann sat að völdum. En þrátt fyr- ir að honum hafi aldrei tekist að sigrast á vandamálunum innan- lands, þá hefir honum yfirleitt verið borið gott orð sem dugleg- um og rjettsýnum konungi. Þjóðarsorg hefir verið fyrir skipuð á Spáni. Tillögur ,um friö- inn eftir sigur Breta* ohn G. Winant. hinn nýi sendiherra Bandaríkjanna í London kom til Lissabon (Portúgal) með Atlantshafs- flugvjelinni í gær. Komu hans til London er beðið með allmikilli -eftirvænt ingu, vegna fregna, sem birtar hafa verið í heimsblöðunum um að hann hafi’ meðferðis til- lögur Roosevelts um skipun heimsmálanna . að n stríðinu loknu. 26 (e. t. v. 35) italskar flugvjel- ar skotnar niður Yfir Albaniu í gær Associated Press fregn frá ■* Aþenu seint í gærkvöldi, var skýrt frá því að bres.ka flugstjórnin þar hefði gefið út tilkynningu, þar sem skýrt er frá því að 26 ítalskar flugvjel- ar hefðu verið skotnar niður yfir vígstöðvunum í Suður-Al- baníu í gær, og að líklegt sje að 9 flugvjelar í viðbót hafi verið skotnar niður. I A. P. fregninni segir, að bresku flugvjelarnar hafi all- ar komið aftur heilu og höldnu. Bresku flugvjelarnar, sem hjer um ræðir, eru af Húrri- cane-gerðinni og voru nýlega sendar til Grikklands. Flug- vjelarnir hittu öfluga þýska sprengjuflugvjelasveit og voru ítalskar orustuflugvjelar í fylgd FRAMH. Á SJÖUNDU 8ÍÐU Willkie „óviidarmaður Gyðinga“ jóðverjar hafa nú farið að kynna sjer ættarsÖgu Wen- dell WiJlkie. I fregn frá Berlín í gær var skýrt frá því, að afi Willkies, sem hjet Willicke, hafi ekki flust vestur um haf frá f>ýskalandi, vegna þess hve mjög hann unni frelsinu (eins og Willkie ságði í ávarpi sínu til þýsku þjóðarinnar frá Lon- don), heldur vegna erfðaþrætu. Ránnsókn hefir leitt í ljós, (segir í Berlínarfregninni) að Willkíe hafi átt að erfa smiðju nokkra, en þegar málið fór fyr- ir dómstólana, vat Gyðingi ein- um dæmd smiðjan. Afi Will- kies fór þessvegna ekki frá Þýskalandi vegna ástar sinnax* á frelsinu, héldur végriá óvildar í garð Gyðinga. Það er boðað að þýsku blöð- in muni einhvern æstu daga leggja fram óvjefengjanleg gögn þessu til sönnunar. En innrásin í Búlgaríu llinú talin víirvofandi FREGNIR FRÁ LONDON í nótt hermdu, að inn- rás Þjóðverja í Búlgaríu virtist nú enn yfir- vofandi. Búist hefir verið við þvi nú um nokk- urra da<ga skeið, að þýski herinn, sem dreginn hefir verið saman í Rúmeníu, færi yfir Dóná, en talið er að heimsókn Edens í Ankara hafi haft í för með sjer, að Þjóðverjar hafi frestað innrásinni í nokkra daga. í London er talið, að gera eigi innrásina álitlegri með því að láta Búlgara gerast fyrst aðila að þríveldasáttmál- anum. Fregnir frá Belgrad hermdu í gærkvöldi, að Phi- loff, forsætisráðherra Búlgara myndi fara til Vínarborg- ar í dag, og hitta þar von Ribbentrop. Ein fregn hermdi. að ffitler myndi einnig fara til Vínarborgar til þess að vera viðstaddur athöfnina þegar Bálgarar gerðust aðilar að þrívejdasáttmálanum. ' HANDTÖKUR 1 BÚLGARÍU.. Ýmsir atburðir gerðust í Búlgaríu í gær, sem sýndu hve hratt sambúð Búlgara og Breta fer versnandi, í gærmorgun sló lögreglan í Sofia hring urn nokkur íbúðarhverfi í Sot'ia, og, sámtímis var gerð húsrannsókn hjá nokkrum mönnum, sem ..standa i sambandi við Breta“, að því er látið var í ljós opinberlega. Meðál þessara inanna vorn nolfkrir frjettaritarar breskra blaða, þ. á- n-. frjettaritari „The Times“. Einnig var gerð húsrannsókn hjá frjetta- ritara mneríska blaðsins „Chicago Tribune“. Frjettaritararnir voru handteknir og flutt.ir í fangelsi. En eftir að sendiherra Breta, G. W. Rendell hafði borið fram ákveðin mótmæli, voru þrxr breskir blaðamenn látnir lausir. Rendell ræddi í gær við Philoff, forsætisráðherra Búlgara og skýrði honum m. a. frá því, hve alvarlegum augum Bretar litu á her- kvaðningn þá, sem undanfarið hefir farið fram í Búlgaríu. En talið er að aðvaranir Breta sjeu úr þessu þýðingarlausar vegna. þess, a'ð Búlgarar hafi þegar tekið ákvörðnn um að ganga í lið með Þjóð- verjuin. Síðdegis í gær var þingið í Búlgaríu sent heim og nokkru síðar fór Philoff forsætisráðherra á fund Boris konungs. Nokkru síðaí* bárust fregnirnar nm það„ að hann væri á förnm til Víriarbiirgar. FULT SAMKOMULAG í ANKARA. En á meðan þessu fór fram í Búlgaríu, gerðust örnrar tíðindi hand an við Jandamærin í Tyrklandi. Mr. .Eden og Sir John Dill fóru með Ibruneyti sínu frá Ankara í gærkvöldi. Skömmu áðúr en þeir fóru hafði verið gefin út opin- bór tilkynning um viðræður þelrra við tyrknesku stjórnmálamennina. I tilk.ynningunni segir, að þeir hafi staðfest að nýju bresk- tyrkneska bandalagið. Ennfrem- ur segir, að þeir hafi rætt nm alþjóða vandamálin frá öllum hliðuni, : ög sjerstaklega þó vandamálin á Balkanskaga, og að fult samkomulag hafi orðið með þeim í öllum atriðum. Mr. Eden tók á móti blaðamönr, uiUí 'áðnr en hann fór og ljet í ljós þakklæti sitt og Sir Johu Dills fyrir móttökur þær, sem þeir hefðu fengið í Ankara. Ljet hann í'.ljós aðdáun sína á fraxnförum þeim, sem orðið hefðu í Tyrfc- landi. frá því hann var þar síð- ast árið 1921. Sarajoglu, utanríkismálaráðhera Tyrkja, og annað stói*menni í An- kara var Viðst’att brottför hi'nna hrésiku gesta. ’ j TJm viðræður Edeus ög Sir Staffórd Cripps í Ankara í gær segir aðeins í fregnum frá Lorid- on, að þeir hitst, sköniínú áður en Edeu hjelt. heimléiðis. Ófarir ítala ftir ófarir ítala í ítalska Só- malílandi undanfaraa daga virðist aðstaða þeirra í Eritreu nú cinnig vera orðin þannig, að út- lit er fyrir, að þeir verði að láta þar undan síga úr hinum öflugu virkjum hjá Keren. En úr því er búist við að lítið verði um vaimir hjá þeim í Erit- J

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.