Morgunblaðið - 01.03.1941, Page 6
MORGUNBLAÐIÐ
' fi
rt
Laugardagnr 1. mars. 1941.
Maður druknar
I Reykjavlkur-
höfn
Slys oo árekstraraf
vðldum hvassviðris-
íns I bænum
ÞaÖ slys vildi til hjer í höfn-
inni í gærmorgun, að storm-
nrinn svipti breskum hermanni út
af hafnargarðinum við eystri
hafnarhausinn. Fjell maðurinn í
sjóinn og druknaði.
Nokkrir menn Uomu þarna að,
er- mdðurinn fjell í sjóinn, bæði
íslendíngar og Bretár. Reyndu
þeir að bjarga hermanninum.
Einn íslendinganná, Jón Sigurðs-
sön járnsmiður, Laugaveg 40 B,
tók út af garðinum í vindhviðu.
Honum tókst að halda sjer uppi
á sundi þar til honum barst hjálp.
Bresku hermennirnir, sem þama
voru, fóru. með Jón í bíl suður í
Stúdentagarð, þar Sem taim fjekk
hina bestu aðhlynningu og náði
hann sjer brátt eftir volkið og
fór heim- til sín skömmu síðar.
Allmörg smáslys urðu af völd-
um óveðnrsins hjer í bænum í
gœf. Var mikið um bílaárekstra.
Sjórok var mikið víða um bæinn
og settist á' skygnirúður bílanna
og fraus, Bflstjórar áttu því bágt
með að sjá út og hlutnst árekstrar
af. Ekkert alvárlegt slys varð þó.
Á götununi var varla stætt í
mestu vindhviðunum. Dæmi voru
til að vindurinn feykti mönnum
langar leiðir, svo þeir gátu ekki
fótað sig. Einn breskur maður
fótbrotnaði, er vindurinn svipti
honum til jarðar. Annar maður
rakst á húsvegg og skarst all
mjög á höfðí.
Gluggarúður brotnuðn víða í
húsum.
Slökkviliðið kvatt út
þrisvar í gær.
Slökkvilið bæjarins var kvatt
út þrisvar í gærdag. Fyrst um 12-
leytið I gærmorgun vestur í Sel-
búðir. Hafði kviknað þar í poka-
rusli og var búið að slökkva eld-
inn er slökkviliðið kom á stað-
inn.
Klukkan rúmlega 2 var slökkvi
liðið kallað að bifreiðastöðinni
Geysi við Kalkofnsveg. Þar kvikn-
aði í út frá því, að verið var að
þíða frosín vatnsrör. Var eldur-
inn kominn á milli þilja, er
slökkviliðið kom á vettvang, en
greiðlega tókst þó að kæfa eld-
inn.
.Jjobs var slobkviliðið kvatt út
klukkan 8.30 í gærkvöldi, vestur
á Sellandsstíg. Þegar þangað kom,
kom í Ijós, að brunaboði hafði
brotnað í rokinu.
Eftirmiðdagssýning verður hald
in á revýunni „Forðum í Flosa-
porti" á morgun kl. 3 e. h.
Óperettan Nitouche verður
sýnd annað kvöld og hefst sala
aðgöngumiða kl. 4 í dag.
Skipatjónið í ofviðrinu
FRAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU.
yfir skipið, en alt kom fyrir
ekki, skipverjar virtust ekki
átta sig á, hvernig þeir ættu
að snúa sjer í þessu. En öðru
hverju þeyttu þeir eimflautu
skipsins.
Af þessu leiddi að björgun-
arsveitin gat ekki hafst að og
varð því að bíða alla nóttina.
Voru það 4 menn og voru það
auk Jóns Oddgeirs, þeir Ingv-
ar Magnússon vjelamaður hjá
Sláturfjel. Suðurlands, Guðm.
Sigurðsson og Jóhannes Guð-
jónsson. Hjeldu þeir vörð á
staðnum. Lögreglan lánaði bif-
reið með mjög sterkum Ijós-
um og var sundið milli skips
og lands lýst upp með þeim.
, Er a nóttina leið versnaði
veðrið mjög og hefði þá alls
ekki verið hægt að bjarga í
björgunarstól. Gekk nú sjór
allmjög yfir skipið og það tekið
að velta. Hafði skipshöfn þess
þá safnast saman í brúnni.
ANNAÐ SKIP
STRANDAR
Klukkan fjögur um nóttina
kom’ svo björgunarsveitin
auga á annað skip, er rak
stjórnlaust til lands. Virtist svo
í fyrstu sem það myndi reka
beint á portýgalska skipið og
er líklegt að af því hefði hlotí
ist manntjón
En af því varð þó ekki og rak
þetta skip, sem reyndist vera
dánska jskipið Sonja Mersk, að
landi rjett austan við portú-
galska skipið.
Eftir skamma stund höfðu
skipin færst það saman, að
stefni Ourem nam við miðjan
byrðing Sonje Mersk.
Danska skipið er 1136 tn.
nettó, en lestar 3000 tonn.
Við björgun var nú ekkert
haegt. að starfa vegna veður-
ofsans og myrkurs. Var því
ekki annað fyrir hendi, en bíða
birtu. Var auðsætt að a. m. k.
mennirnir á Sonja Mersk voru
ekki í hættu.
Með Ourem var hinsvegar
svo ástatt, að með flóðinu
hækkaði sjór mjög á skipinu
og stóð nú ekkert upp úr nema
brúin, sem rok og sjóar gengu
öðru hverju yfir.
En öll skipshöfnin var í
brúnni.
BJÖRGUNIN HEFST
Kl. 8 um morguninn tókst svo
dönsku skipshöfninni að skjóta
línu til lands. Var þá hnýtt í
hana línu úr landi og drógu
skipsmenn hana síðan að sjer
og síðan sjálfan björgunarstól-
inn.
Hófst nú björgunin og var
allri skipshöfninni. samtals 24
mönnum, bjargað í land í
björgunarstólnum á þremur
stundarfjórðungum. Var skips-
höfnin lítt velkt og hin hress-
asta.
Kvað skipstjórinn þá hafa
reynt að bjarga portúgölsku
skipshöfninni yfir í sitt skip, en
það hefði ekki t.ekist vegna
þess, að ekki tókst að fá þá
til þess að taka við línum frá
þeim, enda var þá naumast
hægt að hreyfa sig nokkuð á
Ourem vegna sjógangs og brim
löðurs.
PORTÚGALSMÖNNUM
BJARGAÐ
Þegar Dönunum hafði verið
bjargað var tekið að athuga
möguleikana á frekari björg-
unartilraunum gagnvart skips-
höfninni á Ourem. En vegna
sjógangs varð ekki aðhafst þá
þegar, en beðið þess, að lág-
sjávað yrði.
KI. 10 voru svo fimm hrapst-
irog þrekmiklir ungir menn,
aílir íslenskir, dregnir í björg-
unarstólnum út í danska skip-
ið. Hjet sá Hafliði Magnússön,
er fyrstur fór um borð. Er hann
þektur íþróttamaður og hraust
menni. Hlutverk þeirra fimm
var að leggja káðla á milli
skipanna, og í brúna á portú-
galska skipinu óg fika sig eftir
þeim yfir í það til þess að sækja
hina þjökuðu skipshöfn, einn
á eftir öðrum.
En þegar hjer var komið
tókst 4 skipverjum að komast
af sjálfsdáðum yfir í danska
skipið og voru þeir fluttir til
lands í björgunarstólnum og-
áíðan haldið áfram með björg-
unina.
Var íslendingunum, sem að
því verki unnu mjög óhægt um
vik vegna þess, hve þjakaðir
og máttfarnir skipverjar voru.
Aðalörðugleikarnir voru á
því að koma skipbrotsmönnum
yfir í danska skipið. En fyrir
mjþg vasklega framgöngu sjálf
boðaliðánna er að björguninni
unnu, tókst björgun allrar
skipshafúarinnar slysalaust og
var því lokið kl. 11i/2 árd.
Hinir portugölsku skipbrots-
menn voru mjög illa til reika,
sumir berfættir, klæðlitlir, vot-
ir og kaldir. Engir þeirra höfðu
spent á sig björgunarbelti.
Einn skipbrotsmannann var
fluttur í sjúkrahús en aðrir á
gistihús.
Jón O. Jónsson. sem björg-
uninni stjórnaði, rómaði mjög
kjark og dugnað þeirra sem að
björguninni unnu.
Þá lá og við að þriðja skip-
ið ræki á land í gær af ytri
höfninni. Var það 848 tonn
nettó og heitir Cler Miston. —
Fyrrihluta tjags tók það að
reka á legunni, en tókst þó að
halda sjer frá landi.
Á INNRI-
HÖFNINNI.
Á fimtúdagskvöld sleit varð-
báturinn Óðinn, er lá við Æg-
isgarð festar sínar og rak á
land við Slippinn. Línuskipið
Runa lá utan á Óðni og rak;
hana þá einnig á land.
Þá rak og hvalveiðaskipið
„Estella“ á land austan-
vert við Slippinn. Ekki er talið
að þessi skip hafi sakað mikið.
Þá sleit tvo vjelbáta —
Vestra frá Isafirði og Kristínu
frá Vestmannaeyjum frá aust-
ustu bátbryggjunni fyrir vest-
an Grófarbryggju og rak þá
upp að hafnargarðinum og
sukku þeir þar báðir og munu
hafa brotnað talsvert.
Tankskipið Rosewood tók
hafnsögumann kl. 6 e. h. á
fimtudag og tókst að komast
út undir Akurey.
Annað skip fekk aðstoð hafn
sögumanns og var farið með
það inn í Kollafjörð.
Óttast um vjel-
bátinn Hjört
Pjetursson
Ottasl er um afdrif vjelbáts-
ins „Hjartar Pjeturssonar“
frá Siglufirði, sem gerður er út
frá Hafnarfirði og fór þaðan í
róður s.l. miðvikudag.
Talstöð. bátsins var biluð, er
hánn lagði af stað, og hefir hann
ekki koinið fram, en hinsvegar
hefir rekið úr honum bjargliringi
og dufl í Garði.
Sex menn voru á bátpum, for-
maður Ejríkur Þorvaldsson. Eig-
andi bátsi'ns er Vilhjálmur Hjart-
arson á Siglufirði.
ftlHsnriiiKi
á Akranésft
Alíranesi í gær.
Húsið^ Vesturgata 26, eign
Guðmundar Bjarnasonar,
brann til kaldra kola síðast-
liðna nótt. Fólkið bjargaðist
klæðiítið á síðustu stundu. —
Allt innbú brann og var engu
bjargað.
Eldsins varð fýrst vart kl.
1 um nóttina. Vaknaði þá kona
á neðri hæðinni. Kom eldurinn
á móti henni niður stigann.
Það er talið sennilegast að
kviknaði hafi út frá rafmagni
á lofti hússins.
Á lofti bjó Sigurður Ein-
varðsson með konu og einu
barni. Komust þau nauðulega
út og brann Sigurður lítilshátt-
ar á hendi.
Þorbergur Jónsson bjó þar
einnig, brendist hann dálítið
á andliti og hendi.
Á neðri hæð bjó Hallfreður
Guðmundsson með konu og 4
börnum. Var hann fjarverandi.
Á Akranesi er ekki vatnsveita
og verður slökkviliðið að nota
sjó í þess stað. Húsið var al-
elda er slökkviliðið kom á vett-
vang. Fjara var og útgrynni
og krap í sjónum og torveld-
aði það mjög aðgerðir slökkvi-
liðsins þar sem krapið stíflaði
dæluna.
Næstu húsum var bjargað
með eldvarnarseglum og
brunnvatni í fötum. Sprungu
rúður í þeim vegna hitans. —
Veðrið lægði meðan eldurinn
var magnaðastur. Er talið
sennilegt að næstu hús hefðu
einnig brunnið ef veðrið hefði
ekki lægt.
HÁLF JÖRÐIN
Hagi í Skorradal
i
I
er til sölu.
Jóhann Guðnason.
Akranesi. Sími 37.
í
Tjónið á Suður-
nesjum
______ >
FRAMH. AF ÞRIÐJU SÍÐU.
bátaþvagan í stórhættu. En þaö;
fór betur en áhorfðist, að því er
fregn hermdi ^rá Keflavík í gær-
kvöldi.
Einir 12—15 bátar lögðu út frá,
Keflavíb í óveðrinu og björguðui
sjer til Hafnarfjarðar eða Reykja- ''
víkur,
FREGNIR AF ÚTI-
LEGUBÁTUNUM.
f gærkvöldi sagði Jón Berg-
sveinsson, erindreki Slysavarna- í
fjelagsins, blaðinu frá því, að -
frjest hefði til útilegubáta margra, "•
sem stiindað hafi veiðar hjer í
flóanum. Einn var á Herdísarvík. •:
Ekki vissi hann hver það var. ;
Togarinn Leiknir var í sambandi
við einhvern bát, og annar tog- j1
ari í sambandi við tvo báta, ejf'S
voru með bilaða vjel.
Jón vonaðist éftir, að eitthvað
talsvert af bátunum væri undir \
Snæfellsnesi. Sæbjörg og einn eða ;
tveir bátar með henni voru, í gær
á Sandvík við Reykjanes.
En allar fregnir af bátunum ,
bérast seinna, vegna þess að ekki ;
er hægt að hafa talsamband við
þá úr landi. .
ísólfur Pálsson
FRAMH. AF FIMTU SÍÐU-
margar mætar minningár um
bann. Þó að hann væri manna dút
astur í skapi, var hann hinn elsku,
legasti fjelagi, glaður og ræðinn
í sinn hóp, fróður og minnugur,
og sá vel þáð, sém broslegt ,var
og að gamni mátti verða, En
gamanið var græskulaust, því að>
manna grandvarastur var hann í
öllu.
Ekki er um það að villast, að'
sönglistin var hans hugleiknasta
hjartans mál. Á hennar máli hefir
Iiann talað til allrar þjóðarinnar
og mun tala, þó að hann hverfi
sjónum. Mörg af lögum hans ern
alþjóðar eign fyrir löngu. Þau
hafa sungið sig sjálf inn í fólkið.
En mörg eru þó almenningi ó- •
kunn enn sem komið er. Fyrir
sex árum gaf Jón Pálsson þróðir
hans út sönglagaheftið Fjólu með
lögum eftir hann. f heftinu eru
31 lag, hvert öðru fallegra. Þar
andar innileika, hlýju og við-
kvæmni frá hverri línu. Þess er
ekki getið í bókinni, að ísólfur
hefir sjálfur gert suma textana og
það ékki þá sístu. Hann var prýði-
lega hagmæltur, en flíkaði því
ekki mikið. Yndislegra ljóð og lag
en Sumarnótt ísólfs hygg jeg vera
vandfundið.
ísólfur hafði ekki hátt um sjálf-
an sig og sína hagi. Hann leitaði.
ekki lofs eða frægðar fyrir verk
sín. Söngvar hans komu innan að
úr hans eigin sál; Þeir eru neista>-
af „listanna heilögu glóð“. Með
tónsmíðum sínum hefir hann reist
sjer óbrotgjarnari minnisvarða.
ísólfur Pálsson var einn af bestu
listamönnum þessa lands.
Fr. G.
Næturakstur: Allar bifreiða-
stöðvar opnar næstu nótt.