Morgunblaðið - 11.05.1941, Síða 2
2
M©R6lj[N£iLA@li
Sunnudagur 11. maí 1941
Stórárás á London í nótt
Nýtt met breskru
næturorustuflug-
vjelanna
Dsftárásir Breta á Þýska-
íand, Frakkland og Noreg
MESTA LOFTÁRÁSIN sem gerð hefir verið á
London frá því að stórárásin var gerð fyrir
3 vikum, var gerð í nótt (skv. fregn frá Lond
on). Loftárásin hófst skömmu eftir myrkur í gærkvöldi
og flugvjeiarnar komu í bylgjum fram eftir nóttunni.
Þýsku flugvjelarnar notuðu nýja aðferð, þannig að
þær vörpuðu niður tundursprengjum á undan eldsprengj-
unum, í þeirri von að hræða eldvörslumennina. En þeim
varð ekki að ætlan sinni (segir í Lundúnafregnum).
Árásin var gerð í glaða tunglskyni. Kl. 2 í nótt hafði frjest um
4 flugvjelar, sem búið var að skjóta niður, og hafa þar með verið
skotnar niður 95 flugvjelar að næturlagi yfir Englandi í maí, eða
fleiri flugvjelar en allan aprílmánuð.
Loftárásirnar á England í fyrrinótt voru í smærri stíl, en
undanfarnar nætur. Sprengjum var varpað á borgir í Miðlöndum,
Suður-Englandi og Suð-austur-Englandi. Hjá Portsmouth segj-
ast Þjóðverjar hafa kveikt í tundurspilli.
Rússar hafa
angaslað
á Iran
Isambandi við hin væntanlegu átök um yfirráðin
við austanvert Miðjarðarhaf, hefir athyglin
beinst að nýju að Rússum og fyrirætlunum þeirra
um að taka Iran (Persíu) í sinn hlut.
Fregnirnar, sem Tassfrjettastofan bar til baka á fimtudaginn
nm að herflutningar ættu sjer stað frá austurlandamærum Rússlands,
til vesturlandamæranna, snerist ekki svo mjög um liðsflutninga til
landamæra Þýskalands, heldur miklu fremur -til landamæra Irans.
Loftárás á
breska flota-
deild í Mið'
jarðaihafi
Bretav gerðu í fyrrnótt
harða árás á Mannheim
og Ludwigshafen en borg-
ir þessar liggja gegnt hvor
annári beggja megin við
Rín. í tilk. breska flug-
málaráðuneytisins segir,
að miklir eldar hafi komið
Upp (einn flugmaðurinn
kvaðst hafa talið 27 elda)
og ægilegar sprengingar
urðu í borgunum.
í Ludwigshafen er ein
stsérsta kemiska verksmiðja
Þýskalands.
Nokkrar breskar flugvjelar
flugu alla leið til Berlín og
vörpuðu sprengjum yfir borg-
ina. — Þjóðverjar segja að
sprengjurnar hafi fallið um
miðbik borgarinnar, eingöngu á
íbúðarhús, og að manntjón hafi
orðið nokkuð.
Árásir voru einnig gerðar á
hafnarborgir í Frakkalandi,
Hollandi og á Kristianssand og
Namdal í Suður-Noregi. Holl-
enjékar flugvjelar tóku þátt í
árasinni í Noregi, og var það í
fyrsta skifti, sem hollenskar
flugvjelar eru í ferðum með
breska flughernum.
Þjóðverjar segjast hafa skot-
ið niður 7 breskar flugvjelar í
fyrriiiótt.
M ikilvægir
samningar
¥7' regnir frá Vichy í gær-
•*- kvöldi hermdu að Dar-
lan aðmíráll væri lagður
af stað þaðan til borgar
einnar í htnum hernumda
hluta Friakklands, og að
hann myndi taka þar upp
mikilvæga samm'nga við
Þjóðverja.
Vichy égnar með
franska flotanum
FERRAND de BRINON, fulltrúi Vichystjórnar-
innar í París, sagði við ameríska blaðamenn í
gær, að ef Bandaríkin „blönduðu sjer í stríðið
í Evrópu, þá væri það sameiginlegt hlutverk Evrópuþjóð-
anna, að sjá um sameiginlega vörn Evrópu“. Hann ljet í
þessu sambandi falla þau orð, „að franski flotinn væri
jafnan viðbúinn að láta til sín taka.
Samtímis var það gert opinþert í Vichy, að frauska stjórn-
in hefði tilkynt sendiherra Bandaríkjanna í Vich, að
Frakkar myndu láta herskip fylgja kaupskipum sínum. sem
flytja nauðsynleg matvæli til Frakklands, ef Bretar hjeldu upp-
teknum hætthog hertækju frönsk kaupskip.
300 ÞÚS. SMÁLESTUM
SÖKT Á ATLANTSHAFI.
Rúmlega 300 þús. smálestir
af skiþastól þeim, sem sökt
var í aþríl, var sökt „á Atlants-
hafi og víðar“, en 187 þús. smál.
var sökt í Miðjarðarhafi á með-
an á hernaðaraðgerðunum í
Grikklandi stóð (skv. tilk.
breska flotamálaráðuneytisins í
gær).
Undanfarið hefir mikið verið
rætt, bæði vestan hafs og aus-
an um að nauðsynlegt væri
að Bandaríkjaflotinn fengi
bækistöðvar í austanverðu At-
lantshafi. Pepper, öldunga-
deildarmaður lagði til í fyrra-
dag. að Bandaríkin legðu undir
sig á meðan á stríðinu stæði,
Asoreyjarnar og Kap-Verde-
eyjarnar, (báðir þessir eyja-
klasar eru í eign Portúgala) og
frönsku flughöfnina Dakar á
vesturströnd Afríku. — Bæði
Frakkar og Portúgalar hafa
gripið þetta tilefni til að gefa
út yfirlýsingar:
de Brinon sagði við ame-
rísku blaðamennina í gær, að
Frakkar myndu verja Dakar,
hvað sem það kostaði.
Salazar, forsætisráðh. Portú-
gala hefir birt yfirlýsingu á þá
leið, að hann álíti að ummæli
Peppers öldungadeildarþing-
manns sjeu ekki í samræmi við
stefnu Bandaríkjastjórnar.Hann
bætti því við, að Portúgalar
myndu undir öllum
og
stæðum verja Azoreyjar
Kap-Verdeeyjar.
Fregnir hafa undanfarið ver-
ið að berast um liðsflutninga
Portúgala bæði til Azoreyja og
Kap-Verdeeyja.
Manntjón Itala
Samkvæmt tilkynningu í -
tölsku herstjórnarinnar
mistu ítalir á vígstöðvunum í
Grikklandi og Júgóslafíu í apríl
2338 menn fallna, 12605 menn
særða og 5893 menn, sem sakn-
að er.
Onnur lofláfás-
fln á §uez
London í gær.
í fyrrinótt var önnur loft-
árásin í þessari viku gerð á Su-
ezskurðinn. Landvarnamála-
ráðherra Egyfta skýrir frá því,
að lítilsháttar tjón hafi orðið,
kringum- en manntjón ekkert.
í frjettaskeyti til The Times um
afstöðu Rússa eftir undirskrift
rússnesk-japanska sáttmálans, seg
ir á þessa leiS:
Nokkrum dögnm eftir að rúsanesk
japanski hlutleysissáttmáliim var gerð-
ur, bönnuðu sovjet-yfirvöldin útlend-
ingum að koma til Rússlands um Man-
schuríu. Ránn þetta gilti frá 17. ág.
til 3. maí og vóru öll vegabrjef gerð
ógild á þessu. tíbabili.
Astæðan. sem gefin var opinberlega
fyrir þessari ráðstöðuu var sú að rúss-
neska stjórnin vildi komast bjá þrengsÞ
uiu á járnbrautunum á meðan 1. maí
hátíðahöldin stæ?u yfir. Bn frjettarit-
árinn, sem skýrir frá þessu, maður
kunnugur í Rússlandi, álítur að orsök-
in sje herfluningar sem átt hafi sjer
stað frá Aubtur-Asíu „í hina áttina
vegna ríkjandi ástands í Evrópu'í.
Ferðajnenn haía staðfest það, a,ð
herflutningar hafi átt sjer stað um Sí-
beríuj ámbrautina; er litið á þetta bæði
Sem óbeina orsök s og afleiðing blut-
leysissáttmálans. Hver tilgangurinn
með þeim er, mun sí'ðar koma í ljós.
Alment. er álitið að verið sje að flytja
rússnoska herdeildir frá Austur-Asíu
til þýsku landamæranna, en þar hafa
Rúþsar þegár mikið lið, alla leið frá
Hvítahafinu. til Svartahafsins, og Þjóð
verjar vinna nú af kappi að því, að
gera þar „austur-veggö', samsvarandi
„yestur-veggnum" e ða Siegfried-lín-
unni.
Á hinn bóginn hafa japönsk blöð
undanfarið lagt áherslu á, að með rúss-
nesk-j apanska. hlutleysissáttmálanum,
sem sje eðlileg afleiðing af þýsk-rúsjs-
neska sáttmálanum, sjeu Rússar í raun
og veru komnir í herbúðir öxulríkj-
anna og að það sje þegjandi samkomu-
lag allra aðila að Rússar hafi óbundnar
hendur í Mið-Asíu og Tátlu-Asíu til
þess að auká þar áhrif Sovjetríkj-
anna. Tilgáta þeissi er studd af fregn-
um, sem birst hafa um að Rússar sjeu
að krefjast að fá að hremma hjeruðin
Azerbaidjan pg Az.enderin í Iran og
einnig að fá „hlið“ að perneska fló-
anum, og ennfremur að þeir sjeu að
draga saman lið á svæðinu hjá Tiflis
í „heræfinga“-skyni. Það getur því
verið að Auistur-Asíuhersveitirnar hafi
verið sendar, ekki fyrst og frem,st til
yestur-Iandamæranna, heldur til suð-
vestur-landamæranna.
I grein sem hirtist í „Pravda“
skömmu eftir að japansk-rússneski
sáttmálinn var undirskrifaður, segir:
Sumir halda því fram, að sáttmálinn
sje gerður til höfuð^ Þjóðverjum. —
Aðrir halda því fram, að Þjóðverjar
hafi knúið Rússa til að undirskrifa
hann. í hvorugri greininni er sannleiks
korn. Svo virðist sem reiknað hafi!
PRAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU.
Breska flotamálaráðuneytið
skýrði frá því í gærkvöldi,
að 7 þýskar og ítalskar flugvjel-
ar hafi verið skotnar niður og 5
laskaðar í loftárásum, sem gerðar
voru á breska flotadeild í vestan-
verðu Miðjarðarhafi á fimtudag-
inn. Herskipin urðu ekki fyrir
neinu tjóni.
Italska herstjórnin hafði skýrt
frá því í fyrradag, að 7 bresk
herskip hefðu verið hæfð, eða 1
flugvjelamóðurskip, 1 orustuskip,
2 beitiskip, l tundurspillir og
2 önnur skip, stór.
I tilkynningu breska flotamála-
ráðuneytisins segir að árásirnar
þafi staðið yfir með litlum hlje-
um allan fimtudaginn. En flug-
vjelar flotans tvístruðu þýsk-ít-
ölsku flugsveitunum jafnóðum.
Loftvarnahyssur flotans aðstoðuðu
flugvjelarnar og hjeldu óvinaflug-
vjelunum í hæfilegri fjarlægð.
Árásarflugvjelarnar voru ýmist
tundurskeytaflugvjelar, háflugs-
sprengjuflugvjelar eða steypiflug-
vjelar. í einni atlögunni komu 25
steypiflugvjelar, sem böfðu fylgd
orustuflugvjela, en bresku flug-
vjelarnar tvíst.ruðu fylkingu
þeirra og hröktu þær á flótta.
í býtið á fimtudagsmorgun
gerðu bresk herskip skotbríð á
höfnina í Benghazi. Tveim skip-
um, sem voru á leiðinni inn ‘ 1
höfnina í Benghazi, var sökt, ann-
að 3 þús. smál., en hitt 5—6 þús.
smál. skotfæraskip og sprakk það
í loft upp.
Skip í höfninni í Benghazi voru
einnig hæfð.
Leiftursókn
náttúruaflanna
Igær var 48 stiga hiti (á Cel-
síus) í Kairo. f fregn frá Ka-
iro segir, að í slíkum hita sjeu
skriðdrekarnir þannig, að ólíft
sje inni í þeim. Allar könnunar-
ferðir verða að fara fram á kvöld
in eða snemma á morgnana.
Breska herstjórnin tilkynnir, að
ekkert sje tíðinda á vígstöðvun-
um hjá Tobruk, en Italir segja
að fallbyssuskothríð eigi sjer stað
þar.
f Abyssiníu ganga nú „litlu
rígningarnar“, eins og það er kall-
að, en stórrigningar eru ekki byrj-
aðar ennþá.
Bretar hafa nú umkringt
Amha Alagi, síðata virki ítala í
Norður-Abyssiníu, og er talið að
ítalir hafi þar 30 þús. manns.
ítalska herstjórnin tilkynti í gær,
að liðið í Alagi veitti hetjulegt
viðnám, þrátt fyrir vaxandi árás-^
ir Breta.
í Suður-Abyssihíu veita ítalir
harðvítugt viðnám (segir í fregn
frá London), en hafa þó orðið að
hörfa.