Morgunblaðið - 06.06.1942, Side 2
MORGUNBLAÐIÐ
Laugardagur 6. júní 1942.
Úrslitaátökin milli Ritchies
og Rommels að hefjast
harðar árásir og gagn
árásir hjá Bir Hakeim
Þáttur nýu vopnanna
' Ritchie hershöfðingi fyrir utan aðalbækistöðvar hans í Libyu.
FRJETTIR frá Kairo í gærkvöldi hermdu, að
úrsJitaátökin milli Rommels hershöfðingja og
Ritchies hershöfðingja í Libyu væru nú að
hefjast.
Fregnir fyr í gær hermdu, að harðir bardagar stæðu
hjá Bir Hakeim, um 65 km. í suður frá Gazala. Breska
herstjórnin tilkynti, að nýjum áhlaupum öxulsríkjanna á
virkið þar hefði verið hrundið.
í tjlkynningunni er frá því skýrt, að breskar og indverskar
hersveitir hafi ráðist að baki öxulsherjunum og í tilkynningum
öxulsríkjanna er getið um að gagnárásum Breta hafi verið hrund-
ið og að miklu tjóni hafi verið valdið í liði þeirra.
Flugvjéíar hafa sig mikið í frammi í þessum bardögum og
segjast Bretar hafa skotið niður 9 öxulsflugvjelar og mist sjálfir
6, en öxulstilkynningarnar herma að 24 breskar flugvjelar hafi
verið skotnar niður.
Nýr þáttur í Aust
ur-Asíu stríðinu
að hefjast
Stór skipafloti kominn
til Indlands
ÞAÐ var opinberlega tilkynt í London í gær, að
einn stærsti skipafloti, sem nokkru sinni hefði
látið úr breskri höfn, væri nú kominn heilu
og höldnu til Indlands.
Skipafioti þessi, sem í voru mörg stór farþegaskip og orustu-
skip, og önnur herskip til fylgdjir, lagði af stað til Indlands í maí.
Þúsundir hermanna og þúsundir smálesta af hergögnum eru nú
komnar til indverskrar hafnar, segir í tilkynningunni, án þess að
óvinanna hafi orðið vart.
Gash ernaður
Jap^na
Aðvörun KooseveKs
Báðir aðilar virðast hraða liðs
auka 'til vígstöðvan^a. Þannig
er þess getið í tilkynningu frá
Kairo, ,að stóru skipi sem hafði
fylgd tundurspilla hafi verið
sökt fyrir öxulsríkjunum í aust-
anverðu Miðjarðarhafi, en
Þjóðverjar tilkynna, að þýskur
kafbátur hafi hæft með tundur-
skeyti tvö skip af þremur, sem
sigldu í skipaflota við Libyu-
strendur.
AfiSTAÐAN
Hermálaritari ,,The Times“, Cyril
Faíls, íjet í ljós þá skoðun í gær, að
aðstaða Rommels í Libyu væri mjög
örðug.
Rommel heíir sýnt það, segir her-
málaritarinn, að hann er slungnari í
því, að finna leiðir þegar út í bar-
dagana er komið, heldur en að undir-
búa bardagana. Hann var keminn í
alvarlega klípu, en hefir bætt aðstöðu
6Ína síðustu fimm dagana. En þrátt
fyrir það, verður aðstaða breska hers
ins að teljast'betri í bili.
Hermálaritarinn skýrir frá því, að
hohum hafi virst fyrir löngu, að
brésku herstjórainni i Kairo myndi á
engan hátt falla það illa, þótt Romm-
el yrði að þessu sinni fyrri til að
hefja sákn. Yfirleitt er það svo, að
herfræðingar telja að sá sje líklegri
til sigurs, að öðru jöfnu, sem frum-
kvæðið hefir. En reynslan hefir sýnt,
að þessu er öðru vísi varið í eyðimerk
Rommel.
urherhaðinum, þar sem svo mjög velt-
ur á öllum aðflutningum.
HERGÖGNIN
Ef við hefðum þurft að heyja bar-
dagana nú, segir hermálaritarinn
með sömu vopnum, sem notuð voru í
vetrarsókn okkar, og voru þau á all-
an hátt góð, þá er ekki ósennilegt, að
við værum þegar búnir að bíða ósigur.
En okkur hefir tekist, þrátt fyrir alla
örðugleika og vandkvæði á öðrum
vígstöðvum, að flytja ný hergögn til
Libyuhersins, og á jeg þar einkum við
ameríska beiti-skriðdrekann, sem
gengur undir nafninu Grant hershöfð
ingi, sem vöpnaður er öflugri fall-
byssum en aðrir skriðdrekar, sem við
FEAMH. Á SJÖUNDU SÍÐU
Roosevelt lýsti yfir eftirfar-
andi á fundinum, sem hann
hjelt með blaðamönnum í gær:
Upplýsingar, sem borist háfa
Bandaríkjastjórn staðfesta þa,ð,
að Japanar hafa notað eiturgas
á ýmsum vígstöðvum í Kína. Ef
Japanar halda áfram að nota
þessa ómannúðlegu hernaðarað-
ferð gagnvart Kínverjum, eða
einhverjum öðrum úr hópi
Bandamanna, þá munu Banda-
ríkjamenn líta á það, sem þetta
sje þeim gert og gera strangar
gagnráðstafanir.
Við erum við því búnir að
gera he'fndarráðstafanir og á-
byrgðin hvílir á Japönum.
flrás iapansks kafbáts
á Diego Suarez
Tllkynt hefir verið í Tokio,
að japanskur kafbátur hafi
þann 31. maí ráðist inn í höfn-
ina í Diego Suarez, flotabæki-
stöðina, sem Bretar tóku fyrir
nokkru á Madagaskar, og hæft
þar með tundurskeyti og laskað
alvarlega orustuskip af „Queen
Elisabeth" gerðinni og beitiskip
af Arethusa gerðinni. Það var
staðfest í London í gær, að jap-
anskur kafbátur hefði þann 30.
maí gert árás á höfnina í Diego
Suarez, en borið er til baka að
ofannefnd skip hafi verið hæfð.
LIÐSSAMDRÁTTUR
I BURMA
Fregnir hafa borist til Lon-
don um að Japanar sjeu að
safna liði í borginni Homalin í
Burma, um 25 km frá landa-
mærum Indlands.
Breskir herfræðingar líta þó
svo á, með tilliti til liðsaflans,
sem kominn er til.Homalin, að
her þenna eigi ekki að nota til
sóknar inn í Indland, helduri til
varnar meðfram hinum löngu
landamærum Burma og Ind-
lands.
KYRRAHAF
I Kyrrahafi, bæði í norður-
hluta þess, um miðbik þess og
við austurströnd Ástralíu hafa
japönsk herskip og japanskir
kafbátar haft sig allmjög í
frammi undanfarna daga.
Á miðvikudaginn var árásin
gerð á Dutch Harbour í Norður
Kyrrahafi „til þess að prófa
varnirnar þar“ að því er talið er
og á fimtudaginn var gerð árás
á Midwayeyju. Árásin á Mid-
wayeyju var hörð. að því er til-
kynt er í Washington, og var
gerð af flugvjelamóðurskipi. I
fylgd með flugvjelamóðurskip-
inu var orustuskip og mörg
beitiskip og er tilkynt í Wash
ington, að eitt orustuskip og
flugvjelamóðurskip hafi verið
laskað með sprengjum úr amer
ískum flugvjelum;. Lítið tjón
varð á eynni.
ÁSTRALÍA ;
Ástralskir og hollenskir flug
menn skýra frá því, að þeir hafi
sökt tveim japönskum kafbát-
um og e. t. v. hinum þriðja við
austurströnd Ástralíu að því er
tilkynt var í gær.
Það var tilk. í Tokio í gær, að
japanskir kafbátar hefðu 30.
maí ráðist inn í höfnina í Sydney
á austurströnd Ástralíu og sökt
þar herskipi. I tilkynningunni
segir að kafbátar þessir hafi
FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU
Rússar varaöir
vlð „ógurlegum
átökum"
Rússneska. blaðið „Rauða
stjarnan“ varaði við því í
gær, að Rússar mættu búast við
ógurlegu átaki Þjóðverja til
þess að ljúka styrjöldinni á aust
urvígstöðvunum. „Við verðum
og mursum stökkva óvinununum
á flótta“, segir blaðiði.
1 Reutersfregn frá Stokk-
hólmi er skýrt frá því, að Þjóð-
verjar flytji flatbotnaða báta í
vaxandi mæli frá Hollandi og
Belgíu um Kielarskurðinn tii
Eystrasaltsins. Er talið að verið
sje að flytja þá til Finnlands til
þess að nota þá þar í atlögu að
Leningrad.
Bátar þessir, &em flestir hafa
verið smíðaðir í Antwerpen eru
um 600 smálestir.
Islandsmótið
hefst á mið-
vikudag
Knattspyrnumót íslands hefst
n.k, miðvikudag. Gunnaí*
Axelsson form. Dómarafjelags
Reykjavíkur hefir beðið blaðið
fyrir eftirfarandi lista yfir dóm-
ara á leikjum mótsins;
Víkingur—K. R.: Dómari Þrá-
inn Sigurðsson, varadómari Jó-
hannes Bergsteinsson.
Víkingur—Valur; Dómari' Þor-
steinn Einarsson, varadómari Sig-
urjón Jónsson.
Víkingur—Fram: Dómari Jó-
hannes Bergsteinsson, varadómari
Sigurjón Jónsson.
Víkingur—V estmanna.: Dóm-
ari Sigurjón Jónsson, varadómari
Friðþj. Thorsteinsson.
K. R.—Valur: Dómari Þráinn
Sigurðsson, varadómari Guðj. Ein-
arsson.
K. R.—Fram: Dómari Guðjón
Einarsson, varadómari Sighv.
Jónsson. \ r
K. R.—Vestmanna.: Dóm. Guð-
mundur Sigurðsson, varadóm.
Friðþj. Thorst.
Valur—Fram: Dómari Guðjón
Einarsson, varadómari Baldur
Möller.
Valur—Vestmanna.: Sighv.
Jónsson, varadómari Sigurj. Jóns-
son.
Fram—Vestmanna.: Dóm. Bald-
ur Möller, varadóm. Þorst. Ein-
arsson.
U. S. A. hjálp tíl
Tyrkja
London í gær.
Fregnir frá Ankara herma,
að undanfarið hafi komið
til Tyrklands mörg Bandaríkja-
skip með láns- og leiguvörur.
Flutningar á láns og leigu-
vörum til Tyrklands í apríl og
maí eru sagðar hafa verið „tals-
vert miklir“.