Morgunblaðið - 06.06.1942, Page 3
Laugardagur 6. júnf 1942.
MORGUNBLAÐIÐ
3
Stórhöfðinglegar gjafir
frá Rauða Kross U. S. A.
veitt móttaka
Gjafirnar eru 500
þús. króna virði
Allur útbúnaður fvrir
1000 sjúklinga
RAUÐI KROSS Bandaríkjanna hefir afhent
Rauða Krossi Islands stórhöfðinglega gjöf.
Eru það hjúkrunargögn, fatnaður og ýmis-
legt fleira, sem nægir til að veita 800—1000 sjúklingum alla
þá aðhlynningu, sem þeir kynnu að þarfnast. Eru þessar
gjafir um 500.000 króna virði, reiknað í íslenskum krónum.
Allar þessar gjafir eru komnar til landsins og við afhend-
ingu þeirra í gær 1 Austurbæjarskólanum voru viðstaddir ráð-
herrarnir Ólafur Thors og Jakob Möller, sendiherra Bandaríkj-
anna McVeagh, borgarstjóri Bjarni Benediktsson, fulltrúi frá
Bandaríkjaher svo og stjórn Rauða Krossins. Forstjóri ameríska
Rauða Krossins hjer á landi, Mr. Charles MacDonald afhenti
gjafimar.
Blaðamönnum var boðið að
skoða þessar höfðinglegu gjaf-
ir. 1 kensíustofum var komið
fyrir nokkru af þeim, svo sem
sjúkrarúmum, undirsængum o.
fl. Eru gjafir þessar geymdar
víða í bænum. 1 einni stofunni
var komið fyrjr sýriishornum af
gjöfunum. Má þar sjá, að alt
var af bestu fáanlegri tegund
og frá bestu firmum í Banda-
ríkjunum.
„Jeg er þess fullviss, að við
getum nú mætt hverju, sem
komá kann frá sjónarmiði
hjúkrunar og lækningar“, sagði
Mr. MacDonald. „Læknarnir
hafá sagt mjer, að þeir hafi
aldrei verið svo vel undir búnir
að mæta hættum“. Mac Donatd
skýrði einníg frá því, að verið
væri að senda tæki til annara
Rauða Kross stöðva á landinu.
GJAFIRNAR
Gjafalistinn er langur og hef-
ir verið hugsað fyrir öllu, alt frá
pappírs þurkum upp í rúm og
súrefnisgeyma. Hjer skulu að-
eins nokkrir hlutír nefndir:
800 sjúkrarúm. 800 undir-
sængur (madressur). 200 kodd-
ar. 3,200 lök. 1.680 koddaver.
7400 ullarteppi. 1000 bollar (ó-
brjótanlegir). 300 sjúkrabörur.
Þá er fatnaður allskonar, skór,
og margt, margt fleira, sem of
langt yrði upp að telja.
Þá hefir Rauði Kross Banda-
ríkjanna sent bömum, sem eru
í sveit garðyrkjuverkfæri og
er verið að senda þau til barn-
anna þessa dagana.
Gigurður Sigurðsson berkla-
yfirlæknir, formaður Rauða
Kross fslands, ávarpaði gestina
við móttöku gjafanna með eft-
irfarandi ræðu:
Framkvæmdanefnd Rauða
Kross fslands virðist tilhlýði-
legt að forráðamönnum ríkis og
bæjar sje gefinn kostur á að
kynnast hinni höfðinglegu gjöf
„Fullkomin ðsvifni11
að Sjálístæðisílokkur-
inn hefir menn í kjori
Tímínn reynir að
leiðrjeita ræðu Egils
í Sigtúnum
L^ullkomin ósvífni“, þannig
5? *■ átti það að hljóða. Nú
er staðfesting fengin fyrir því,
hvað það var, sem Egill í Sig-
túnum átti að lesa á Stórólfs-
hvoli.
Og „vanmat“ átti það að vera
en ekki „vantraust" á dóm-
greind kjósendanna. Þarna
höfum við þá textan staðfestan
og viðurkendan.
Svo getur Tíminn talað eins
mikið og hann vill um „bombu“
í þessu sambandi. Þessi orð eru
Ameríska Rauða Krossins til jafnvel enn sterkari en þau, sem
Rauða Kross fslands, jafnframt hðfð eru eftir Agli í Morgun-
og hún er skýrð með fáum orð- blaðinu.
Það er „fullkomin ósvífni'"‘
að bjóða Pjetur Ottesen í Borg-
arfirði, Gísla Sveinsson í Vest-
ur-Skaftafellssýslu (móti sjálfri
brottflognu gæsinni af Rang-
æingum), Jón á Akri í Austur-
Húnavatnssýslu o. s. frv. Hvað
er svo langt frá þessari „full-
komnu ósvífni" ril fullkomins
banns? Ber ekki að útrýma
j,fullkominni ósvífni“ úr þjóð-
fjelaginu?
Framboð Ingólfs Jónssonar í
FRAMH. Á SJÖTTTJ SÍÐU
um.
Eins og flestum mun kunnugt
er Rauði Kross íslands ung
stofnun, sem enn hefir tæplega
náð að koma fótum fyrir sig,
enda haft fá fækifæri til þjóð-
legrar hjálpar síðan hann var
stofnaður. Er ófriðarblikan
barst nær landi voru vildí Rauði
Kross Islands þó e.igi láta sitt
eftir liggja og tók því að sjer
að sinna þeim hluta lóft- og ann
ara hervarna hjer, ér fela í sjer
að líkna særðum ög sjúkum eft-
FRAMH. Á SJÖTTU SÍÐU
Sigurður Sigurðsson berklayfirlæknir, formaður Rauða Kross ís-
Oands þakkar (’harles Mae Donald, forstjóra Ameríska Rauða Kross-
ins á íslaudi fyrir gjafirnar. í baksýn er fulltrúi Bandaríkjahersins
við athöfnina.
13 skotnir í Prag
Þrettán menn voru skotnir í
Prag í gær, í sambandi við til-
ræðið við Heyderich.
Hjónaband. í dag verða gefin
saman í hjónaband af síra Jóni
Auðuns, ungfrú Guðný Guðmunds-
dóttir og Sigurhans Sigurhansson,
Laugaveg 95.
Framhoð Sjálfstæðis-
flokksins
i
Norður-Múlasýslu verða í kjörí
af hálfu Sjálfstæðisflokksins
þeir Gísli Helgason, bóndi, Skóg-
argérði og Sveinn Jónsson bóndi,
Egilsstöðum.
Er þá Mýrasýsla eina kjordæm-
ið, sem ekki er enn ráðíð, hver
framhjóðandi yerður.
Frá vinstri: Charles Mae Donald, Haraldur Árnason, Bjarni Benediktsson borgarstjóri,
Pjetur Ingimundarson slökkviliðsstjóri, Sigurður Sigurðsson berklayfirlæknir, Jakob Möller fjár-
málaráðherra, Lincoln MeVeagh sendiherra og Ólafur Thors forsætisráðherra skoða sýnishorn af
gjöfum Ameríska Rauða Krossins.
Braggarí tekínn
Húsrannsókn var í gter fram-
kvæmd hjá manni nokkmm
hjer í bænum, þar eð grunur Ijek
á að hann bruggaði áfengi.
Fundnat hjá honum 600 iítrar
af landabruggi í gerjun, 6 heil-
flöskur af hörkusterkúm sþíritmi
(bruggi), 4 fl. af „fermingar-
▼íui“ «g fullkomin bmggunar,-
tæki. — Málið er í ratmaókn.
Sumardvðl Hafnar-
fjarðarbarna
A vegum sumardvalarnefndar
*""*■ Hafnarfjarðar starfa trö
baraaheimili, annað að Ásum í
Gnúpverjahreppi. Stjómandi þess
er Páll Sveinsson kennari. Þar
era rúmlega 50 börn.
Hitt er í skólahúsinu í Þykkva-
bæ. Ern þar 40 börn. Stjómandi
þess er Gnðjón Signrjónsson
kennaraskólanemi.
Börnimum líður öllum vel og
una hag aínum hið besta.